Fréttablaðið - 19.11.2001, Síða 1
Vikulegt sérblað um heimili, hús og fasteignamarkaðinn
FRÉTTABLAÐ
Ð
m
FASTEICNASALA
■ Suðurlandsbjaut 50 (bláu húsin)
. Sími 533 43*00 . Gsm 895 8248
S M Á R I N N
FASTEIGNASALA
SÍWII 564 6655
Fasteígnamarkaotiriiiii;
Verðbólgan hefur lítil
áhrif á greiðslubyrði
Verðbólgan mun hafa lítil sem engin áhrif á greiðslubyrði af
algengustu íbúðalánum, að sögn Þórs Þorgeirssonar, fasteigna-
sala hjá Fasteignamiðlun. „Fólk tekur meira af lánum nú held-
ur en áður og helgast það af hækkun á íbúðaverði, en á móti
hefur lánsfjármagn aukist. Þau lán, sem algengast er að fólk
taki vegna íbúðarkaupa, eru lán hjá íbúðalánasjóði, en þakið
hefur verið hækkað í átta milljónir vegna notaðs húsnæðis og
níu milljónir vegna nýs,“ segir Þór.
„Ef húsbréf duga ekki til að fjármagna íbúðakaupin, reynir
fólk almennt að brúa bilið með lífeyrissjóðslánum eða heimilis-
láni Landsbankans. Af þessum lánum eru fastir vextir, og mun
verðbólgan hafa lítil sem engin áhrif á greiðslubyrðina. Ef fólk
selur íbúðir sínar vegna greiðsluörðugleika, er það ekki vegna
þessara tegunda lána, heldur vegna bankalána og yfirdráttar-
heimilda." Að sögn Þórs mun, sem dæmi, sjö prósenta verð-
bólga hækka afborganir af milljón króna láni, til fjörutíu ára,
um 350 krónur á mánuði. ■
HUGSANLEGUR HÚSAKAUPANDI
Verðbólgan mun hata lítil sem engináhrif á greiðslubyrði algengustu íbúðalána.
MIÐJA HEIMILISINS
Tviburarnir Ásthildur og Jófríður
setjast við eldhúsborðið og vinna
heimavinnuna sina þegar þær
koma heim á daginn. Þá er
mamma þeirra, Kristín María
Gunnarsdóttir, búin að pakka
saman sínu dóti en hún situr við
sama borð og lærir á daginn.
Yngsta systirin, Wlarta, er sú eina
á heimilinu sem ekki vinnur við
eldhúsborðið.
Kristín María Gunnarsdóttir og
dætur hennar, tvíburarnir Ásthildur
og Jófríður, læra allar við eldhús-
borðið heima hjá sér í íbúðinni á
hjónagörðum. Kristín María stundar
nám í lögfræði við Háskóla íslands
og dæturnar eru í 2. bekk í Mela-
skóla. í heimili með þeim mæðgum
er einnig yngsta systirin Marta sem
ekki er farin að læra heima, enda er
hún aðeins 10 mánaða.
„Mér gengur mjög vel að læra
við eldhúsborðið," segir Kristín
María. „Þetta er svo góður staður í
íbúðinni. Þetta er miðjan og þarna
eru straumarnir." Mæðgurnar læra
reyndar ekki allar á sama tíma við
eldhúsborðið því Kristín María seg-
ist lítið geta læi’t þegar dæturnar
eru heima og eldhúsborðið hefur
ekki sömu góðu áhrifin á systurnar
Kristínu Maríu
Gunnarsdóttur þykir
eldhúsborðið gott;
miðsvæðis í íbúðinni
og þaðan liggja
straumarnir.
eins og mömmu þeirra. „Þær rífast
svolítið og slást. Það vill nú þannig
til að það er engin önnur aðstaða
fyrir þær þannig að þær neyðast til
að vera þarna báðar. Yfirleitt geng-
ur þetta samt að lokum, eftir langa
mæðu.“
Kristín María hefur ákveðnar
skoðanir á því hvað gott vinnurými
þarf að hafa til að bera: „Mér finnst
skipta máli að hafa stórt borð og
góða lýsingu. Staðsetningin skiptir
líka miklu máli. Mér finnst ekki gott
að vera úti í horni. Mér finnst gott
að vera í rými og svo finnst mér
skipta máli að geta séð út.“
Kristín María er tónlistarkenn-
ari. Hún er klarínettuleikari og hef-
ur kennt á það hljóðfæri og kennir
reyndar svolítið með náminu. Mörg-
um þykir það líklega nokkuð áræðið
að venda sínu kvæði í kross og hefja
laganám með þrjú lítil börn. „Eg
gerði þetta kannski af því að ég er
með þrjú lítil börn, af því að ég sá
fram á að verða bara öreigi með það
nám sem ég hef þegar lokið.“ Áuk
þess segir hún vinnutíma tónlistar-
kennara henta mjög illa barna-
fólki. ■
Er svefn óg heilsa á óskalistanum?
* ♦ • *
-Jólagjöf fylgir h
verri heilsudýnu
REYKJAVIK