Fréttablaðið - 19.11.2001, Side 4
19. til 25. nóvember 2001
4
Heimilisblaðið
Notaður á hefðarsetrum
Oddný Sen er hrifin af gömlum húsgögnum
Oddný Sen kvikmyndagerðarmað-
ur og rithöfundur er mikið fyrir
gömul húsgöng. Hún hefur um
langt skeið búið í Frakklandi og
Bretlandi og er ætíð vakandi fyrir
gömlum munum sjái hún þá. „Þeg-
ar ég bjó í Bretlandi fann ég eitt
sinn mjög skemmtilegan mar-
maraskenk á húsgagnauppboði á
Portobello Road. Hann var frá þvi
fyrir aldamót og notaður á hefðar-
setrum fólks undir potta og pönnur
ARNOLFINESPEGILL
OG MARMARASKENKUR.
Spegilinn er fræg hönnun
og er stundum kallaður fiskauga.
þegar matur var borin fram. Hann
var þá hafður í borðstofum og
þjónarnir gátu lagt heit fötin frá
sér á skenkinn og hélst maturinn
heitur á meðan fólk borðaði. Ég
féll alveg fyrir honum og keypti
hann á staðnum. Hann fylgdi mér
síðan til íslands og er geymdur á
Breiðabólststað á Alftanesi sem er
á æskuslóðum ömmu minnar, Odd-
nýjar Erlendsdóttur Sen og fer vel
á því.“ Oddný segist einnig eiga
forláta Arnolfinespegil sem hún
haldi mjög uppá. „Arnolfinespegil-
inn er fræg hönnun en hann er eins
og fiskauga og hefur oft verið
nefndur það. Hann nær öllum
hornum herbergisins og er ákaf-
lega skemmtilegur."
Oddný segist vera mjög hrifin
af gömlum húsgögnum en hafi þó
garnan af að blanda saman nýju og
gömlu. „Nýtískuleg húsgögn jafn-
vel frá Ikea í bland við fallega
antik finnst mér alveg ganga upp
pg ég hef gaman af að raða saman.
í gegnum tíðina hef ég safnað að
mér mörgum fallegum hlutum en
megnið af búslóð minni er í Frakk-
landi þar sem ég bý að jafnaði." ■
Er sósan of feit eða sölt?
Ef sósan verður of sölt er til
gott ráð. Afhýðið eina eða
tvær kartöflur, sneiðið þær í
nokkra bita og setjið út í sósuna.
Látið þær vera í smá stund og
veiðið þær síðan aftur uppúr.
Kartöflurnar hafa þá dregið í sig
saltið og sósan verður mátulega
sölt.
Ef soðið í sósuna er of feitt er
gott að setja nokkra ísmola út í
soðið. Bíðið í augnablik, það kóln-
ar og dregur að sér fituna sem
þið getið þá veitt frá. ■
exo húsgagnaverslun
Fákafeni 9 108 Reykjavík
sími 568 2866 fax 568 2866
www.exo.is exo@exo.is
Opid
mánudaga - föstudaga
fra 10:00 til 18:00
laugardaga
frá 10:00 til 16:00
sunnudaga
frá 13:00 til 17.00
O S L O
Fígúrur úr
blásnu gleri
Glefígúrurnar á myndinni eru
sænskar og hannaðar af
Önnu Örnberg. Þær eru í öllum
mögulegum litum en blásið gler
hefur verið mjög vinsælt að und-
anförnu. Fæst í versluninni Duka
í Kringlunni. ■
Sjarmi gömlu
hverfisbúðanna
Verslunin Rangá
er ein örfárra verslana
í Reykjavík sem
lítið hafa breyst.
Sú var tíðin að húsmæður voru
heima allan daginn og hugsuðu
um sín börn. Þá brugðu þær
kápu utan yfir morgunsloppinn og
lölluðu með innkaupanetið út til
kaupmannsins á horninu. í leiðinni
komu þær við í mjólkurbúðinni og
enduðu í fiskbúðinni við hliðina og
keyptu eina væna ýsu sem þær
heilskáru síðan í pottinn og suðu í
minnst 20 mín. Verslunin var vett-
vangur umræðna og þar hittust
konurnar í hverfinu. Síðan hefur
mikið vatn til sjávar runnið og nú
hlaupa ungar húsmæður í stór-
markaðinn einu sinni í viku.
En þrátt fyir allt er þó ein
verslun í Reykjavík sem hefur
staðið af sér allar breytingar.
Hún stendur á horni og hefur
verið rekin af sömu eigendum í
þrjátíu ár. Það er verslunni
Rangá á horni Skipasunds og
Holtavegar og þar hefur hún ver-
ið síðan 1948. Hún var stofnuð
1931 af Jóni Jónsyni frá Ekru í
Rangárvallahreppi og var í byrj-
un staðsett á Hverfisgötunni.
Árið 1971 keyptu þau Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi og
Agnar Árnason verslunina og
hafa rekið hana saman síðan.
Það er ævintýri líkast að koma
inn í Rangá sem enn heldur sjar-
ma gömlu hverfisverslunarinnar.
Þar er til sölu fjölbreytt gjafavara
s.s. fallegur kristall, glervörur,
leikföng og ýmis smávara. Það
kunna þeir að meta sem til þekkja
og segja eigendurnir að gamlir
viðskiptavinir haldi tryggð við
verslunina og komi langt að til að
gera innkaup í sinni gömlu hverf-
isverslun.
„Þegar við keyptum verslunina
var hún í 30 fermetra plássi en
mjólkurbúðin og fiskbúðin voru
til beggja handa. Við hófumst
AGNARIRANGA
„„Viðskiptavinir verslunarinnar eru ekki bundnir við hverfið heldur vitum við að þeir
koma víða úr borginni, einkum eru það fyrrum íbúar sem koma reglulega og halda
tryggð við sína gömlu verslun."
fljótlega handa við að sameina öll
rýmin, brutum niður veggi og lét-
um hanna litla kjörbúð með
mjólkurvörum," segir Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi og
annar eigandi verslunarinnar.
„Rangá var fyrsta verslunin sem
fékk að selja mjólk og mjólkur-
vörur inn í eigin verslun en eins
og menn vita hafði Mjólkursam-
salan sínar eigin verslanir í hver-
ju hverfi."
Sigrún segir ennfremur að það
hafi verið nýjung að hafa
verslanir opnar fram eftir
kvöldi og þau Agnar hafi unn-
ið sjálf í í búðinni tvisvar í
viku til kl. 22 á kvöldin. „Það
var bannað að láta starfsfólk
vinna lengur en til kl. 18 en
við brutum engin lög ef við
stóðum sjálf vaktina." Sigrún
segir Rangá vera ein örfárra
verslana á höfuðborgarsvæð-
inu sem ekki tilheyra neinni
samsteypu eða keðju og í sjö-
tíu ára sögu sinni aðeins ver-
ið rekna af tveimur eigend-
um. „Viðskiptavinir verslun-
arinnar eru ekki bundnir við
hverfið heldur vitum við að þeir
koma víða úr borginni, einkum
eru það fyrrum íbúar sem koma
reglulega og halda tryggð við sína
gömlu verslun. Við höfum það líka
fyrir sið að stinga ávaxtadós og
almanaki í innkaupapokana og
margir segjast ekki komast í jóla-
skapið fyrr en þeir heimsækja
okkur.“
Sigrún segir Rangá vera fyrstu
verslunina í Sundunum og þá einu
sem hafi staðið af sér allar breyt-
ingar. „Þegar við keyptum hana
fyrir þrjátíu árum voru 8-10 litlar
SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR
„Þegar við keyptum verslunina var hún í
30 fermetra plássí en mjólkurbúðin og
fiskbúðin voru til beggja handa. Við hóf-
umst fljótlega handa við að sameina öll
rýmin, brutum niður veggi og létum hanna
litla kjörbúð með mjólkurvörum," segir
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi og ann-
ar eigandi verslunarinnar.
verslanir á sama svæði. Nú eru
þær allar horfnar nema Rangá.
Okkar styrkur hefur legið í starfs-
fólkinu en við höfum verið ákaf-
lega lánsöm með það og hafa
margar starfstúlkur verið hjá
okkur svo árum skipti." ■