Fréttablaðið - 19.11.2001, Side 6
SALAD / DESERTSKÁL
KR. 1690,-
+ 6 STK. LITLAR SKÁLAR
KR. 4200 -
TERTUDISKUR Á FÆTI
27 cm KR. 2990 -
34 cm KR. 3990,-
Bláu húsin við Faxafen
Sími 553 6622
Heimasíða: www.hjortur.is
Heimiíisblaðið
19. til 25. nóvember 2001
Hvernig bvriar bú
að elda?
Byrja á að
opna ísskápinn
*
Eg byrja á því að opna ísskápinn og finn þar eitthvað til
að elda,“ segir Eva Katrín Sigurðardóttir. „Ég er hins
vegar ekki mjög flink í elhúsinu og síðast þegar ég kom
nálægt eldavélinni þá kveikti ég í. Þá var ég að poppa og
gelymdi pottinum á hellunni"
Hún segist hafa keypt sér tilbúinn mat síðan og hefur
ekki tekið þá áhættu enn að reyna fyrir sér aftur. „Það
stendur þó til að gera tilraunir í eldhúsinu því ekki er
seinna vænna en taka sig saman í andlitinu og fara að elda
almennilegan mat. ■
Sé fjársjóði þar
sem aðrir sjá drasl
„Öllu þessu dóti raða ég svo upp í huganum í draumaíbúðinni minni...“
Ingibjörg Helgadóttir ritstjóri
býr allstaðar og hvergi um þessar
mundir en kveðst sannarlega
hlakka til að geta komið sér vel
fyrir á sínu eigin heimili. “Eins og
er flakka ég á milli foreldra
minna sem búa á Laugarvatni, afa
míns og kærasta hér í borg. Það
getur verið svolítið þreytandi á
köflum að búa á mörgum stöðum
en til allrar lukku líður mér yfir-
leitt vel hvar sem ég er.“ Skortur
á ákveðnum samastað kemur þó
ekki í veg fyrir að hún safni að sér
bæði húsgögnum og heimilismun-
um sem hún kveðst hafa mikið dá-
læti á. „Það er langt síðan ég fór
að kaupa bæði diska, glös og
hnífapör, potta og pönnur og jafn-
vel húsgögn ef ég hef rekist á eitt-
hvað sem ég hef fallið fyrir. Einu
sinni eyddi ég t.d. nánast öllu
námsláninu mínu í forláta stóla
sem ég bara varð að eignast. Fjöl-
skylda mín og kunningjar hrista
hausinn yfir þessu en þetta er eig-
inlega ákveðin árátta hjá mér.
Öllu þessu dóti raða ég svo upp í
huganum í draumaíbúðinni
minni." Auk þess að rölta á milli
búða sem selja húsgögn og aðra
innanhússmuni er Ingibjörg mik-
ið fyrir að fara á flóamarkaði og í
antíkbúðir. „Mér finnst gaman að
gömlum, fallegum munum - þann
áhuga hef ég líklega erft frá
mömmu minni - og skemmtilegast
er að finna falda fjársjóði þar sem
flestir sjá bara gamalt drasl."
Hún segist reyna að gæta hófs í
innkaupunum því að það geti
fljótt orðið of mikið af því góða;
betra sé að eiga fáa hluti en fal-
lega. Það geti hins vegar oft verið
ansi erfitt því að hún viðurkennir
að hún sé meira en í meðallagi
kaupglöð þegar kemur að innan-
hússmunum og þegar hún sjái
eitthvað spennandi eigi hún yfir-
leitt bágt með að standast það. „Á
tiltölulega fáum árum hef ég
óneitanlega sankað að mér ansi
miklu en ég á enga íbúð til að
koma þessu öllu fyrir í. Ég er að
safna fyrir útborgun og það geng-
ur bara nokkuð vel en á meðan
geyma mínir nánustu allt mitt
hafurtask. Bílskúr foreldra minna
er uppfullur af mínum kössum og
bróðir minn, sem býr í Noregi,
geymir fyrir mig bæði húsgögn
og annað dót sem ég keypti þegar
ég bjó þar um tíma og hann lendir
sjálfsagt í að flytja það með sér
heim, greyið, þegar hann hefur
lokið þar námi. Þannig að það eru
fleiri en ég sem bfða í ofvæni eft-
ir að ég festi kaup á íbúð utan um
allt það dót sem ég hef safnað að
mér í gegnum tíðina - það er bara
eins gott að hún verði nægilega
stór!“ ■
Alvöru
kaffikanna
Það er ekki laust við að kaffiilminn leggi fyrir vitin
þegar horft er á þessa fallegu kaffivél. Hún er frá
Ítalíu og er úr gegnheilu ryðfríu stáli. Pressugildið er
9 ber þrýstingur og það þekkja þeir sem vit hafa á
hvað þýðir og mun tengjast því hve gott kaffið getur
orðið. Framleiðandi er Lula Trazzi og kannan fæst í
Witthard við Stjörnutorg á efstu hæð Kringlunnar. ■