Fréttablaðið - 19.11.2001, Síða 10
19. til 25. nóvember 2001
10
HeimiUsblaðið
Það er hægt að
gera allt í rúminu
Eyði alltof fáum stundum þar
Rúmið er í miklu uppáhaldi hjá
Bjarna Felixsyni, íþróttafrétta-
manni. Hann segist helst eyða tím-
anum þar í lestur og að hlusta á út-
varp;
„Ég eyði alltof fáum stundum í
rúminu en það er hægt að gera allt
þar. Lesa, hlusta á útvarpið, sem ég
geri mikið af, og svo margt annað.“
Bjarni segir að rúmið hafi
reynst vel en hann festi kaup á því
fyrir um þremur áratugum. Hann
segist lesa mest af sagnfraeði en
ekki íþróttaefni.
„Nei, ég les ekki íþróttaefni í
rúminu, það geri ég ekki. En það
kemur kannski í gegnum útvarpið.
Ég hlusta yfirleitt á talað mál, BBC
og Rás 1. Ég hef gaman af ýmsu
gömlu efni, sagnfræði, þjóðfræði
og líka upprifjun af gömlu efni.
Þetta er eitthvað í blóðinu. Mér
finnst alltaf fortíðin skemmtilegri
en nútíminn.
BJARNI FELIXSON
Hlustar mikið á útvarpið og gluggar
í sagnfræðiefni en hann er hrifnari
af gamla tímanum en nútímanum.
„Ég er nú ekki að lesa neitt eins
og er en ég glugga oft í sagnfræði-
efni.“
Bjarni segist eyða talsverðum
tíma í sjónvarpskróknum þó hann
sé ekki mikið fyrir sjónvarpsgláp.
.,Ég er ekki mikill sjónvarps-
glápari, ég er meiri sjónvarpsfikt-
ari. Ég þvælist oft á milli stöðva og
horfi þá oftast á fréttir. Ég er jafn-
vel spenntari fyrir textavarpinu en
sjónvarpinu sjálfu. Annars er ég
núna að horfa á brot úr danskri
mynd sem var gerð árið 1915.
Þessi mynd er eftir einhvern Filip-
sen, þann sama og byggði Palace
bíóið í Köben.“ ■
Textílkjallarinn
UPPÁHALDSBÓK í MÖRC ÁR
Brynju Cunnarsdóttur finnst mikill kostur
að þurfa ekki að hendast i margar búðir
til að kaupa inn í þær uppskriftir sem hún
ætlar að elda eftír.
S: 896 5801
8935801
BSkírnargjafir
i bœn og nafnl m
Óhætt að bjóða gestum án
þess að prófa réttinn fyrst
Sterklegt
°g þægilegt
hald úr stáli
finnst henni frábært að mat-
reiðslutíminn er gefinn upp í bók-
inni.
Af bestu lyst er gefin út af
Vöku - Helgafelli árið 1993 í sam-
vinnu við Krabbameinsfélagið,
Manneldisráð og Hjartavernd
þannig að uppskriftirnar eru allar
hollar og góðar. Brynja hefur
haldið upp á bókina í mörg ár og
treystir henni fullkomlega. „Hún
er svo pottþétt að manni er alveg
óhætt að bjóða gestum í rétti sem
maður hefur aldrei eldað.“
Uppskriftin sem Brynja gefur
úr uppáhaldsmatreiðslubókinni
sinni er að ítalskri grænmetis-
súpu á blaðsíðu 85. „Þessa súpu
elda ég oft og hef líka boðið gest-
um í hana.“
Brynja er sérstaklega hrifin af
súpunni vegna þess að hún fellur
vel í kramið hjá börnum hennar,
líklega vegna þess að í henni er
pasta. ■
U ppáhaldsmatreiðslu-
bókin hennar Brynju
Gunnarsdóttur heitir
Af bestu lyst.
BARNAMYNDATÖKUR
PÉTUR PÉTURSSON
Ljósmyndari
Sími: 897 2824
Ákveð hvað ég ætla
að hafa í matinn
Eg byrja á að ákveða hvað ég
æla að hafa í matinn, síðan
finn ég til uppskrift sem hentar
hverju sinni", segir Auður Geirs-
dóttir. Hún segist síðan athuga
hvað sé til í matinn og ef hún
eigi ekki það sem stendur f upp-
skriftinni þá verði hún að hlaupa
út í búð. „Eg er hins vegar ekki
mikið fyrir að elda og geri það
afar sjaldan því ég hef lítið þurft
að koma nálægt eldamennsku.
Vonandi á ég eftir að læra al-
mennilega að elda mat.“ ■
Það er sterklegt og þægilegt
þetta hald utan um fernurnar í
ískápnum. Þessu líkt hefur lengi
verið til úr plasti en mun
skemmtilegra er að bera mjólkina
á borð í þessu veglega stálhaldi.
Það má fá í versluninni Villeroy
og Boch í Kringlunni. ■
I Barónsstlg 59
551 3584
Af bestu lyst er uppáhaldsmat-
reiðslubókin hennar Brynju
Gunnarsdóttur.
„Það er allt gott í henni. Það er
hollt og fljótlegt og svo fæst allt
sem á að nota í réttina úti í næstu
búð,“ segir Brynja. „Þegar maður
eldar upp úr sumum bókum þarf
maður kannski að fara í þrjár
búðir til að kaupa inn í réttinn,"
heldur hún áfram. Auk þess