Fréttablaðið - 19.11.2001, Page 12
12
Heimilisblaðið
19, til 25. nóvember 2001
Fyrst kaupi
ég í matinn
Fyrst kaupi ég í matinn og síð-
an tek ég hann út og geri
hann kláran til matreiðslu," seg-
ir Hrafnhlildur Kristjánsóttir.
Hún segist næst finna til potta
eða pönnu allt eftir hvað hún
ætli að elda og þegar en allt er
tilbúið kveikir hún á eldavélinni.
„Síðan bíð ég eftir að feitin hitni
eða vatnið sjóði og þá getur mat-
reiðslan loks hafist. Svuntu set
ég sjaldan eða aldrei á mig nú
orðið. Það er helst á jólunum
þegar ég er uppáklædd að ég
bregði utan yfir mig svuntu.
Þetta hefur breyst svo mikið því
áður fyrr þurfti ég að vinna mat-
inn svo mikið áður. Nú kaupir
maður allt tilbúið á pönnuna eða
í pottinn." ■
Ósköp venju
legur trékall
Handunnir
íslenskir
púðar
að væri ekki amalegt að leggj-
ast í þennan sessolon með vín-
ber í skál og láta fara notalega
um sig. Púðarnir eru flestir ís-
lenskir og handunnir undir vöru-
merkinu Rutles. Sessalonin er
hins vegar frá Bandaríkjunum og
fæst hvorutveggja í versluninni
Borð fyrir tvo. ■
Síðumúla 34, sími: 568 6076
Antik er fjátfesting
Antik er lífsstill
Borðstofuhúsgögn
Stakir sófar
Ýmsir valkostir
Þórunn Lárusdóttir leikkona á
sitthvað inni á heimili sínu sem
henni þykir afskaplega vænt um.
Þar stendur upp úr það sem faðir
hennar lét eftir sig og kom í
hennar hlut. „Eftir lát föður míns
eignaðist ég mjög skemmtilegt
steinborð úr íslensku grjóti sem
mér finnst mikið til koma. Það er
níðþungt og platan er úr grjóti
eins og fæturnir. Pabbi átti líka
elgshorn sem hanga í ganginum
mínum og þau þykir mér mjög
flott og taka þau sig vel út þar. En
það sem mér er heilagast er út-
skorinn trékall sem hangir á
vegg í stofunni minni. Þetta er
ósköp venjulegur kall og alls ekki
merkilegur en mér þykir sérlega
vænt um hann. Við systurnar gáf-
um pabba hann í jólagjöf þegar
ég var tíu ára og ég býst við að
hann hafi verið með fyrstu jóla-
gjöfunum sem ég átti þátt í að
kaupa án aðstoðar.“
Þórunn segist seint gleyma
svipnum á föður sínum þegar
hann tók upp jólagjöfina sína frá
þeim systrum. „Hann var svo
glaður og ánægður með þennan
kall og hann skipaði öndvegi á
Nóvember er enn stærsti sölu-
mánuðurinn í parketti, flísum,
hreinlætistækjum og þess háttar
að sögn Júlíusar Hafsteinssonar
hjá BYKO - hólf og gólf. Hann
segir greinilegt að fólk sé að
taka í gegn hjá sér fyrir jólin.
Um mánaðamótin nóvember-
desember dettur salan hins veg-
ar niður á þessum vörum. Júlíus
segir þó að áberandi sé að dreg-
ið hafi úr því að miðað sé við
hans heimili alla tíð. Hann hefur
því mikið tilfinningalegt gildi
fyrir mig. Hann hangir á vegg í
stofunni og þar er ekki neitt ann-
að enda er hann það dýrmætasta
sem ég á og það skyggir ekki
neitt á hann.“
Þórunn segir trékallinn vaka
yfir sér og gæta heimilisins þegar
hún er fjarri, „Hann heilsar mér
síðan þegar ég kem heim, eftir
vinnu. Þórunn er nú önnum kafin í
Þjóðleikhúsinu, að sýna bæði Vatn
lífsins og Syngjandi í rigningunni
og er að æfa meistarastykki Tol-
stoys, um Önnu Kareninu, Hún er
einnig með söngleikjakvöld í
Leikhúskjallaranum, Kjallaraka-
barett, þar sem hún syngur nokk-
ur af sínum uppáhalds lögum. ■
Erfdi hann cftir pabba
og hann vakir yfir
heimili mínu.
jólin þegar fólk stendur í breyt-
ingum og salan sé orðin mun
jafnari yfir árið en áður hafi
verið.
Friðrik Ólafsson í verslun-
inni á efri hæðinni í BYKO þar
sem seld er málning og fleira
tekur í sama streng og segir að
stöðug og jöfn sala sé á máln-
ingu yfir árið en alltaf komi þó
sérstök stemning fyrir jólin og
sölukippur í málningu.
Upp úr miðjum desember
tekur sala á alls kyns smáhlut-
um til heimilisins hressilega við
sér, að sögn Júlíusar, þá sé skipt
um sturtuhengi, sturtuhausa og
jafnvel drífi fólk fyrir jólin í að
skipta um síuna í krananum í
eldhúsvaskinum sem hefur ver-
ið stíflaður lengi. ■
Fólk virðist dreifa
endurbótum á
húsnæði jafnar yfir
árið en áður þótt enn
komi sölukippur
í byggingavöru-
verslunum fyrir jólin.
• Ljósakrónur . Kertastjakar
Borðstofusett í úrvali
Klapparstíg 40 . Sími 552 7977
Nóvember
er parkettmánuður
LÍFGAÐ UPP FYRIR JOUN
Þegar desember gengur i garð dettur niður
sala á parketti, hreinlætistækjum og þess
háttar en upp úr miðjum mánuðinum fer
fólk'að fá sér ný sturtuhrngi og siur í krana
svo eitthvað sé nefnt.