Fréttablaðið - 22.11.2001, Side 1

Fréttablaðið - 22.11.2001, Side 1
FÁTÆKT Sumar mœður svelta sig bls. 8 STJÓRNMÁL Formaðurinn ákveðinn LIFERNI Hissa á kvíðaköstum S M A R I N N Fasteignasala SÍMI 564 6655 FRETTABLAÐIÐ 150. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 22. nóvember 2001 Framtíð Óperunnar málþinc Málþing uni framtíð ís- lensku óperunnar verður haldið í ís- lensku óperunni kl. 13 til 17 í dag. I Haldnar verða framsöguræður og almennar umræður að því loknu. Spjallað í Skólabæ stafsetning ísienska málfræðifélag- ið efnir tii spjallkvölds í Skólabæ þar sem ræddar verða reglur um ís- lenska stafsetningu. Einkum verður fjallað um kosti og galla við auglýs- ingar menntamálaráðuneytisins frá 1974 og 1977. IVEÐRIÐ í DAC REYKIAVÍK Sunnan og suðaus- tan 13-18 m/s síðdegis. Rigning og hlýnandi vaeður VINDUR ÚRKOMA HITI fsafjörður Q 13-18 Súld Q 3 Akureyri ©8- 15 Skýjað © 0 Egilsstaðir © 10-15 Skýjað Q° Vestmannaeyjar © 15-20 Rigning O 0 Persónufrelsi í stríði fresli Spjallfundur um persónu- frelsi á stríðstímum verður í Kofa Tómasar frænda, Laugavegi 2, kiukkan 20.30 í kvöld. Þar verður spurt hvort réttlætanlegt sé að skerða frelsi einstaklinga í þágu ör- yggis og hversu langt megi ganga í þeim efnum. Það er Heimdallur sem boðar til fundarins. Karfa í Höllinni körfufbolti Körfuknattleikur verð- ur í Laugardalshöilinni í kvöld og hefst hann klukkan 20:30. Þar eig- ast við Ármann/Þróttur og ÍG í fyrstu deild karla. Ósýnlegir alþingismenn fundir Alþingismenn verða ekki sýnilegir í dag þar sem þeir funda í hinum ýmsum nefndum þingsins. Halldór Blöndai forseti þarf þess vegna ekki að sitja í forsetastóli í dag. Fundir Alþingis hefjast aftur á mánudag. KVÖIDIÐ í kvÖLD Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRFTTARLADHD Hvað les fólk á aldrínum 85,2'- F 78,2% 40 til 49 ára? <rz '<0 ra Meðallestur 40 til 49 r; JO ára á virkum dögum T c samkvæmt könnun r; 3 M) PriceWaterhouse- Coopers frá O september 2001 - s 70.000 s 78% v. r> ð IFJÖLMIÐLAKÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VAR FRAMKVÆMD DAGANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001. j Notuðu Hlíf í svikamyllu Sjóðsstjóri hjá Kaupþingi er talinn hafa notið aðstoðar föður síns, framkvæmdastjóra Lífeyris- sjóðsins Hlífar, við að auðgast með ólöglegum hætti. Situr í gæsluvarðhaldi. löcreclurannsókn „Starfsmaður- inn tók þátt í því að reyna að hylja uppruna fjármagns," segir Jón Þórisson, framkvæmdastjóri úti- búasviðs íslandsbanka, um starfs- mann bankans, sem grunaður er um að hafa brotið lög um peninga- þvætti. „Núna hefur lögreglan for- ræði á málinu og því er lokið af hálfu íslandsbanka." Starfsmaðurinn var gjaldkeri íslandsbanka við Laugaveg en hef- ur nú verið vikið úr starfi á meðan rannsókn fer fram. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þá not- aði sá starfsmaður Kaupþings, sem nú er í gæsluvarðhaldi vegna máls- ins, reikning gjaldkerans í íslands- banka til að hindra að slóð illa fengis fjárs finndist eða væri rekj- anleg. Skoðun innra eftirlits ís- landsbanka á reikningum starfs- manna varð til þess að farið var að fylgjast með óeðlilegum færslum inn á þennan reikning. Um var að ræða verulega háar fjárhæðir að sögn Jóns H. Snorrasonar, yfir- manns efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra. „Færslurnar voru gerðar með hans samþykki og á hans eigin reikning," segir Jón Þórisson. Ekk- ert bendir til þess að aðrir starfs- menn íslandsbanka hafi verið viðriðnir málið eða að reikningar viðskiptavina hafi verið notaðir. Faðir starfsmanns Kaupþings, sem gegndi framkvæmdastjóra- stöðu hjá Lífeyrissjóðnum Hlíf, er einnig aðili að málinu. Heimildir Fréttablaðsins herma að sjóð- sstjóri Kaupþings sé meðal annars grunaður um brot á lögum um verðbréfaviðskipti, þegar viðskipti með óskráð hlutabréf í eigu lífeyr- issjóðs Hlífar fóru fram. Þar hafi starfsmaðurinn hagnast á mismun á kaup- og sölugengi í viðskiptum ÍSLANDSBANKI VIÐ LAUGAVEG Gjaldkeri bankans notað reikninga sina til að fela slóð illa fengis fjárs. við lífeyrissjóðinn, sem faðir hans stjórnaði. Það er ólöglegt þegar viðskiptavinir fjármálastofnana eiga í hlut. Hagnaðurinn rann síðan inn á reikning þriðja aðilans, starfsmanns íslandsbanka. Með því að gera tilraun til að hylja slóð fjármagnsins gerast mennirnir sekir um að brjóta lög um peningaþvætti. Rannsóknin er því tvíþætt; annars vegar viðskipt- in sjálf og hins vegar hvernig hagnaði af þeim var komið undan. Fjármálaeftirlitið gerði athuga- semd um síðustu áramót vegna þess hversu hátt hlutfall fjárfest- inga lífeyrissjóðsins Hlífar væri í óskráðum hlutafélögum. Sam- kvæmt ársskýrslu Fjármálaeftir- litsins um lífeyrissjóði átti Hlíf hlutabréf að andvirði 886 milljón- um króna í óskráðum félögum en heildarfjárfesting sjóðsins voru rúmlegir þrír milljarðar. Páll G. Pálsson, forstjóri Fjármálaeftir- litsins, vildi ekki tjá sig um málið. „Við áttum ekki von á þessu og eigum ekki von á neinu öðru en þetta er greinilega hverfull heim- ur,“ sagði Sigurður Einarsson for- stjóri Kaupþings í gærkvöldi en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um málið. bjorgvin@frettabladid.is ANNA GEIRSDÓTTIR Neitaði að taka með sér fylgdarmann eins og Flugleiðir kröfðust. Fékk undanþágu til að mega ferðast ein eftir að Óryrkjabandalagið komst i málið en segir að fella verði niður reglur sem mismuni fólki vegna fötlunar. Anna Geirsdóttir borgarfulltrúi og læknir: Læt engan taka ábyrgð á mér flugferðir „Ég ætla ekki að gefast upp fyrr en þessar reglur verða afnumdar," segir Anna Geirsdótt- ir, heimilislæknir og borgarfull- trúi, sem er allt annað en sátt við starfsreglu Flugleiða sem mælir fyrir um að einstaklingar í hjóla- stól hafi með sér fylgdarmann þegar þeir ferðast með flugvélum fyrirtækisins. „Ég sætti mig ekki við þetta. Ég á eftir að ferðast margoft til viðbótar. Flugleiðir eru með einokunaraðstöðu þannig að ég hef ekkert val.“ „Þeir notuðu ekki orðalagið að það þyrfti að borga undir fylgdar- mann en samkvæmt þessum regl- um sem þeir eru með liggur það í orðanna hljóðan. Þeir sögðu að ég yrði að gefa upp ábyrgðarmann inni í flugvélinni. Ég ferðast ein þannig að hvern á ég að gefa upp? Ég er búin að vera í hjólastól í 20 ár og búin að ferðast með ýmsum flugfélögum. Ég er að fara á læknaráðstefnu í Mexíkó og búin að fá flugmiðann frá British Airways sem gerðu engar athuga- serndir." Anna segist aldrei hafa lent í þessu áður. „Þess vegna hafði ég samband við Öryrkja- bandalagið til að spyrja þá hvort þeir vissu eitthvað um þetta. Flug- leiðir skýla sér svo á bak við ein- hverjar alþjóðlegar reglur sem enginn kannast við og stangast á við reglur IATA (Alþjóða flug- flutningasamtakanna) sem eru til að rýmka rétt fatlaðra og koma til móts við þarfir þeirra." Anna þvertekur fyrir að taka fylgdarmann með sér. Það kemur þó ekki í veg fyrir að hún komist út núna. „Ég er búin að fá farseð- ilinn minn. Ég gat fengið hann í þetta skipti en það er undantekn- ing og reglurnar gilda áfram", segir Anna. „Ég má fara út en ætli ég komist heim aftur?" binni@frettabladid.is Davíð Oddsson: ÞETTA HELST Gengið er vitlaust skráð Lífeyrissjóðurinn Hlíf þarf að sameinast stærri lífeyrissjóði. bls. 2 ..♦... efnahagsmál Davíð Oddsson telur gengisskráningu íslensku krón- unnar of lága og hún muni styrkj- ast þegar fram í sækir og auknar tekjur útflutningsfyrirtækja skila sér. „Það getur tekið tíma fyrir markaðinn að átta sig á að útflutn- ingsgreinar hafa búið við mjög góð skilyrði núna,“ sagði Davíð. „Skilin á fjármunum eru mjög mikil um þessar mundir. Á móti kemur samt líka að útflutningsfyr- irtækin eru að borga niður skuldir sínar erlendis," sagði hann og bætti við að þón 1 bili reyndi á gengið, myndi það hækka mjög ört þegar miklar tekjur útflutnings- fyrirtækjanna færu að skila sér. Davíð bjóst við að sú þróun hæfist strax eftir áramót. „Sérstaklega þegar markaðir virðast þannig stemmdir að litlar fjárhæðir í neikvæða átt eru látnir ráða úrslitum en aflmikið streymi í hina áttina hefur ekki áhrif. Ég skil dæmið þannig að innstreymi gjald- eyris hafi verið nokkuð jafnt að undanförnu en markaðurinn virð- ist enn sem komið er næmari fyrir útstreyminu," sagði hann og aftók að gengissigið kallaði á sértækar aðgerðir af nokkru tagi. Einnig á bis. 12 Dæmi um mjög alvarleg slys á börnum vegna lausra knatt- spyrnumarka. Gengur illa að fá eigendur til að festa þau niður. bls. 4 • • Ossur Skarphéðinsson telur að Evrópumálin muni skapa Samfylkingunni sérstöðu meðal annarra stjórnmálaflokka. bls. 6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.