Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
22. nóvemer 2001 FIMMTUDAGUR
Verkalýðsheyfingin:
ASÍ á leið
á Sæbraut
húsnæði ASÍ hefur fest kaup á
húsnæði Samvinnuferða - Land-
sýnar að Sæbraut 1 þar sem Efl-
ing - stéttarfélag er einnig til
húsa. Kaupverð fæst hins vegar
ekki gefið upp að svo stöddu en
húsnæðið er alls um 1300-1500
fermetrar að stærð að meðtalinni
sameign. Grétar Þorsteinsson for-
seti sambandsins gerir ráð fyrir
að höfuðstöðvar ASÍ muni flytja í
nýja húsnæðið fljótlega á næsta
ári ef að líkum lætur. Þá hefur
fasteign sambandsins að Grensás-
vegi 16a verið auglýst til sölu. ■
VG á Akureyri:
Ekkert neglt
niður strax
SVEITARSTJÓRNflRKOSNINCAR „Það er
málefnavinna í gangi og við höf-
um dregið upp meginlínur í
hvernig þetta gengur fyrir sig og
það liggur ekkert fyrir með lista
fyrr en í febrúar.
Það verður ekkert farið að
negla neitt niður fyrr en þá“,
segir Björn Vigfússon formaður
kjördæmisfélags Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs í
norðausturkjördæmi um fram-
boð flokksins á Akureyri fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar.
„Það sem við leggjum áherslu
á eru hefðbundin velferðarmál
og þá sérstaklega skólamál. Síðan
eru það umhverfis- og atvinnu:
mál sem við tengjum saman. í
þriðja lagi, og það sem skapar
okkur e.t.v. sérstöðu, fjöllum við
um og setjum fram hugmyndir
um stöðu Akureyrar pieðal ann-
arra sveitarfélaga og sérstaklega
meðal sveitarfélaga.á Eyjafjarð-
arsvæðinu. Þá erum vfð að ræða
AKUREYRI
VC var innan raða Akureyrarlistans 1998 en býður fram undir eigin nafni næsta vor.
um hugmyndir um hvernig bæta
megi þá samvinnu sem verið hef-
ur. Þá erum við ekki að setja
þetta fram éndilega sem spurn-
ingu um sameiningu heldur að
auka það flæði sem hefur verið á
milli sveitarfélaganna og auka
samvinnu þeirra." ■
Tveir menn handteknir:
Sakaðir
um kyn-
ferðisbrot
lögreglumál Tveir menn voru
handteknir grunaður um að hafa
haft samfarir við rænulausa
konu að kvöldi 18. nóvember síð-
astliðinn.
Afbrotið á að hafa gerst á
heimili konunnar. Öll voru undir
áhrifum áfengis og eru mennirn-
ir grunaður um að hafa misnotað
sér rænuleysi konunnar. Konan
leitaði aðstoðar lögreglunnar í
Kópavogi og var flutt á neyðar-
móttöku Landspítala-háskóla-
sjúkrahús.
Mennirnir voru handteknir í
kjölfarið og yfirheyrðir þegar
áfengisvíman rann af þeim og
sleppt af því loknu. Að sögn lög-
reglunnar er málið enn í rann-
sókn. ■
Sumar mæður svelta til
að eiga mat fyrir börnin
Mikið annríki hjá Mæðrastyrksnefnd. Úthlutar mat og fatnaði til fátækra kvenna. Ætlunin er að
bjóða borgarfulltrúum í heimsókn. Sjálfboðavinna og stuðningur fyrirtækja.
fátækt Ásgerður Jóna Flosadóttir
formaður Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur segir að það sé búið
að vera mjög mikið að gera við að
gefa fátækum ein-
stæðum mæðrum
og einstaklingum
mat og klæðnað.
Hún segir að eftir-
spurnin eftir þess-
ari aðstoð sé búin
að vera svo mikil
að nauðsynlegt
hefði verið að
setja reglur um
það að sami ein-
staklingur geti ekki fengið aðstoð
nema á fjögurra vikna fresti. Hún
segir að þetta hafi eðlilega farið
misvel í fólk en annað hefði ekki
verið hægt til að allir fengju eitt-
hvað. Sem dæmi um það hvað fá-
tæktin getur verið mikil fullyrðir
hún að sumar einstæðar mæður
hreinlega svelti tímabundið til að
eiga mat fyrir börnin sín. Þá er
ætlunin að bjóða borgarfulltrúum
í heimsókn á næstunni til að
kynna þeim starfsemi nefndar-
innar en í fyrra komu þingmenn í
heimsókn.
Hún segir að margar konurnar
sem njóta aðstoðar nefndarinnar
hafa ekki áunnið sér nein lífeyr-
isréttindi og hafi því ekki annað
sér til framfærslu en bætur al-
mannatrygginga. Þær hrökkvi
skammt til framfærslu þegar
búið er að greiða kostnað vegna
leiguhúsnæðis. Hún segir að mik-
ið af skjólstæðingum nefndarinn-
ar séu öryrkjar sem eiga m.a. við
geðfötlun að stríða. Hún segir að
aðstæður þessa fólks breytist lít-
ið hvort um sé að ræða góðæri
eða kreppu í efnahagslífinu
vegna þess að það fær alltaf sína
krónutölu frá almannatrygging-
um til ráðstöfunar í hverjum
mánuði. Hún gerir ráð fyrir að
.—♦—
Eftirspurnin
eftir aðstoð
hefur verið
svo mikil að
nauðsynlegt
var að setja
úthlutunar-
reglur
—*—
ÁSGERÐUR JÓNA FLOSADÓTTIR FORMAÐUR MÆÐRASTYRKSNEFNDAR
Segir að mörg fyrirtæki séu nefninni innan handar og m.a. Pálmi í Fiskbúðinni okkar á Nesvegi sem hefur gefið fátækum
barnafjölskyldum fisk
mikið annríki verði hjá nefndinni
fyrir þessi jól eins og áður.
Á hverjum miðvikudegi út-
hlutar nefndin jógúrt, skyri og
súrmjólk sem hún hefur fengið
frá Mjólkursamsölunni og brauði
frá Myllunni. Þá hefur fyrirtækið
Ömmubakstur gefið nefndinni
flatkökur til úthlutunar. Þess
utan hefur nefndin gefið skjól-
stæðingum sínum fatnað sem
nefndin hefur fengið gefins. Ás-
gerður segir að það sé einatt mik-
ið starf við að flokka og ganga
frá þessum fötum til úthlutunar
og öll sú vinna sé unnin í sjálf-
boðavinnu.
-grh@frettabladid.is
þú tvöfaldar vinnings-
möguleikana með því að
fara á WWW.frikort.is
jcrfnleikur
Fríkortsins
Nánari upplýsingar á www.frikort.is
BCBBaS!
Þú safnar hjá okkur. .
Sveitarfélögin:
Launaráðstefna
um kaup og kjör
kjaramál Fastlega er búist við
því að stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga muni sam-
þykkja það á fundi sínum í dag,
fimmtudag að boðað verði til
launamálaráðstefnu sveitarfé-
laga til að fara yfir stöðu kjara-
mála og gerða samninga en þó
einkum deilu tónlistarkennarara
við Launanefnd sveitarfélaga.
Tillaga um þessa ráðstefnu var
samþykkt samhljóða í borgar-
stjórn á dögunum en flutnings-
maður hennar var Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna og formaður
Sambands ísl. sveitarfélaga. Bú-
ist er við að þessi ráðstefna
verði haldin í kringum næstu
mánaðamót.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
segir að það sé mjög gagnlegt
fyrir sveitarstjórnarmenn og
kjörna fulltrúa í Launanefndinni
VILHJÁLMUR þ.
VILHJÁLMSSON
Segir að það geti
verið mjög gott
fyrir sveitarstjóm-
armenn og full-
trúa í Launanefnd
að ræða stöðu
kjaramála
til að bera saman bækur sínar og
miðla hvor öðrum upplýsingum
um stöðu deilunnar við tónlistar-
kennara en verkfall þeirra hefur
staðið yfir í einn mánuð. Ekki er
talið að ráðstefnan verði blásin
af ef svo kynni að fara að samn-
ingar tækjust á milli Launa-
nefndar og tónlistarkennara fyr-
ir mánaðamót. Búist er við að
rúmlega 100 sveitarstjórnar-
menn taki þátt í ráðstefnunni. ■