Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 22. nóvemer 2001 FIMMTUDACUR FRCTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Cunnar Smári Egilsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalslmi: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Visir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgat5væðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. | BRÉF TIL BLAÐSINS | Merkilegt starf Ættingi hafði samband. SÓLHEIMAR Sólheimar hafa mikið verið gagnrýndir, það er eins og alltaf sé verið að deila um málefni þessa yndislega staðar. Það gleymist hvað þarna er unnið merkilegt starf í anda frumkvöð- ulsins, Sesselíu heitinnar, um samfélag þar sem fatlaðir fengju notið sín. Það er ekki hægt að bera stað eins og Sólheima saman við hæli eins og Skálatún. Hugmynd- in að baki stöðunum er gjörólík. Á öðrum staðnum er litið á hina fötl- uðu sem vistmenn sem þurfi sér- hæfða starfsmenn til að sinna sér. Á hinum staðnum eru þeir hluti af samfélagi og á sínu heimili. Að mínu mati er það sem heimilis- mönnum á Sólheimum stendur til boða miklu verðmætara heldur en dvöl á hæli, þótt þjónustustigið kunni að vera hærra þar, eins og þetta er kallað. Á Sólheimum er fötluðum tekið eins og þeir eru. Mér finnst mikill munur á þessu. Vissulega hafa farið talsverðir peningar frá ríkinu til Sólheima en þeir peningar hafa verið vel nýttir til glæsilegrar uppbygging- ar á staðnum undir stjórn Péturs Sveinbjarnarsonar. Hafi hann og samstarfsmenn hans þökk fyrir. ■ Lausn í sjónmáli? Ef marka má tóninn í utandag- skrárumræðum á Alþingi í fyrradag um stöðu sjúkraliða inn- an heilbrigðiskerfisins hillir und- ir lausn hinnar langvinnu kjara- deilu þessarar mikilvægu heil- brigðisstéttar. Erfitt er að skilja umræðuna öðruvísi en svo að fram hafi komið þverpólitískur vilji til að rétta hlut sjúkraliða hvað launagreiðslur varðar og finna leið út úr faglegu öngstæti stéttarinnar innan menntakerfis- ins. Faglærðir sjúkraliðar í land- inu eru um 3000 talsins en vel inn- an við helmingur þess fjölda vinn- ur i faginu. Heilbrigðiskerfið sár- vantar sjúkraliða til starfa. Til að bæta úr skortinum þyrftu 300 ungmenni úr hverjum árangi að leggja sjúkraliðastarfið fyrir sig næstu ár. Hverjar eru líkurnar á því? í boði eru um 100 þúsund króna byrjunarlaun eftir um það bil þriggja og hálfs árs sérhæft nám á framhaldsskólastigi. Það eru augljóslega ekki launin eða skortur á öðrum tækifærum sem hefur haldið þeim sjúkraliðum sem eru við störf inni á sjúkrahús- unum þessi síðustu ár þegar ung- lingum með grunnskólamenntun hefur reynst auðvelt með að fá betur launuð störf. Sem betur fer segja launataxtarnir ekki alla sög- una því fjöldi fólks vill gera það að ævistarfi sínu að annast um sjúka og lætur ekki smánarleg launin standa í vegi þeirrar köll- unar. Sennilega er það sú köllun MáLmanna Pétur Gunnarsson skrifar um sjúkraliðadeilu sem hefur komið í veg fyrir að enn verr sé komið fyrir heilbrigð- iskerfinu í þessu efni en raun ber vitni. Aðstæður á vinnumarkaði eru ekki hagstæðar sjúkraliðum um þessar mundir, efnahagslífið er á leið í öldudal og þenslutíminn á vinnumarkaði að baki. Menn ótt- ast að leiðrétting launa sjúkraliða yrði til að kynda enn frekar undir kröfum um uppsögn almennra kjarasamninga í febrúar. Engu að síður hlýtur sá skortur sem nú er á sérhæfðum starfskröftum sjúkraliða að auðvelda réttlæt- ingu þess að komið sé til móts við kröfur þeirra. Að því leyti eru að- stæður sjúkraliða gjörólíkar því sem nú gengur og gerist á al- mennum vinnumarkaði. ■ Pia Kjœrs- gaard komin x lykilstöðu Anders Fogh Rasmussen sigurreifur eftir þing- kosningarnar í Danmörku. Poul Nyrup Rasmussen sagði af sér sem forsætisráðherra. Ný stjórn tekur líklega við völdum um næstu mánaðamót. KAUPMANNAHÖFN. AP SÓSÍalde- mókratinn Poul Nyrup Rasmus- sen, fráfarandi forsætisráðherra Danmerkur, var heldur þögull er hann hélt á hádegi í gær til fund- ar við Margréti Danadrottningu þar sem hann lagði fram afsögn sína. Búist er við að ný stjórn taki ..- ♦ við völdum í Dan- „Viðmunum mörku um næstu mánaðamót. Næsti forsætis- ráðherra Dan- merkur verður að öllum líkindum Anders Fogh Rasmussen, leið- togi Vinstriflokks- ins, sem reyndar er flokkur frjáls- lyndra hægri- manna þrátt fyrir Borgaralegu flokkarnir einbeita okkur að því að styrkja stöðu sjúkrahúsa í landinu, eins árs fæðingar- orlofi foreldra og að herða innflytjenda- lögin" —♦— nafnið. hlutu samtals 98 þingsæti af 179 sætum á þinginu. Þar af hlaut Vinstriflokkurinn 56 sæti, en 90 þingsæti þarf til að öðlast meiri- hluta. Kjörsókn var óvenju góð, eða 89,3%. Vinstriflokkurinn hefur aldrei hlotið jafnmikið fylgi í kosning- um, og borgaralegu flokkarnir í landinu hafa ekki haft meirihluta á þjóðþinginu frá því 1929. SIGURVEGARI Anders Fogh Rasmussen, næsti forsætisráðherra Danmerkur, fagnar sigri í kosningunum. Mikil sigurhátíð var haldin í fyrrakvöld til að fagna úrslitum kosningarnna. Hundruð liðs- manna Vinstriflokksins tóku þátt 1 fagnaðarlátunum. Nýafstaðin kosningabarátta snerist að miklu leyti um málefni innflytjenda. Poul Nyrup Rasmussen, sem verið hefur for- sætisráðherra frá 1993, hafði gott fylgi þegar hann ákvað að boða til þingkosninga. Fylgi hans hrapaði hins vegar fljótt þegar málefni innflytjenda komust í há- mæli. Hinn 48 ára gamli Fogh Rasmussen hefur gert lítið úr þeirri gagnrýni að hann standi fyrir útlendingahatri, en lofaði því samt sem áður að berjast gegn innflytjendum sem væru að reyna að svindla á kerfinu. „Við munum einbeita okkur að því að styrkja stöðu sjúkrahúsa í land- inu, eins árs fæðingarorlofi for- eldra og að herða innflytjendalög- in,“ sagði hann í ræðu skömmu eftir að úrslitin voru orðin kunn. Tíðindum sætir að Danski þjóðarflokkurinn, sá flokkur sem hvað lengst vill ganga í að tak- marka réttindi innflytjenda, er orðinn þriðji stærsti flokkurinn. Pia Kjærsgaard, leiðtogi hans, er því komin í lykilstöðu í dönskum stjórnmálum. Ljóst er að Fogh Rasmussen vill helst ekki hafa Danska þjóðarflokkinn með í stjórninni. Hann þarf þó a.m.k. á stuðningi Danska þjóðarflokks- ins að halda við minnihlutastjórn Vinstriflokksins og íhaldssama þjóðarflokksins, og strax á kosn- ingakvöldið gerði Pia Kjærs- gaard það lýðum ljóst að hún myndi ekki veita þann stuðning nema henni yrðu tryggð veruleg áhrif á stefnu stjórnarinnar, ekki síst í málefnum innflytjenda. ■ ÞINCSÆTI HLUTFALL ATKVÆÐA Þingsætí Prósentur 2001 (1998) 2001 (1998) Sósialdemókratar 52 (63) 29,1% (35,9%) Róttæki vinstriflokkurinn 9 (7) 5,2% (3,9%) Sóslalíski þjóðarflokkurinn 12 (13) 6,4% (7,6%) Einingarlistinn 4 (5) 2,4% (2,7%) Miðju- og vinstriflokkarnir hlutu samtals 77 þingsæti Vinstriflokkurinn 56 (42) 31,3% (24%) Ihaldssami þjóðarflokkurinn 16 (16) 9,1% (8,9%) Danski þjóðarflokkurinn 22 03) 12% (7,4%) Kristilegi þjóðarflokkurinn 4 (4) 2,3% (2,5%) Miðjudemókratar 0 (8) 1,8% (4,3%) Framfaraflokkurinn O (4) 0,6 (2,4) Borgaralegu flokkarnir hlutu samtals 98 þingsæti Stærri hljóðdeilcU’FAFF FAGMENN I HL Pfaff hf. hefur nú tekíð víð umboðum og vörumerkjum frá ReynÍSSOíl og býður nu einnig hágæða heimilishljómtæki. Við höfum á undanförnum vikum breytt versjun okkar tíl að gefa hljóðdeildinni aukið rými, smíðað fulikommn ilijÓðklefT og bætt aðstöðuna að öðru leyti. leyti. TEAC Ot NAUDIO ú/þlEIVIMHEIIEH E3 Klh/BER KABLE (((AE))) GRENSÁSVEGUR 13 SÍMI: 533 2222 www.pfaff.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.