Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 22. nóvemer 2001 FIMMTUDAGUR Manndráp á Spáni: Hinn grunaði eftirlýstur manndráp Daninn, sem grunaður er um morðið á Daníel Eyjólfssyni, sem myrtur var á Spáni síðastliðinn sunnudag, var fluttur til Madrid nú í morgun, þaðan sem hann verður sendur til Kaupmannahafnar. Hinn grunaði er eftirlýstur af dönsku lögreglunni fyrir ýmis brot og mun þetta ekki vera í fyrsta skipti, sem hann kemst í kast við lögin. Daninn, sem er bróðir unnustu Daníels heit- ins, hefur ekki játað verknaðinn. Að sögn Þórhildar Þorsteinsdóttur ræðismanns íslands í Malaga, hafa ekki fengist frekari upplýsingar frá lögreglunni á staðnum varðandi málsatvik. ■ •jafnleikur Fríkortsins Nánari upplýsingar á wvAv.frikort.is þú safnar frípunktum > og getur líka unnið utanlandferð. Tveir aukavinningar dregnir út vikulega. < Verðbréfaþing Islands: Lífleg viðskipti með Bakkavör vidskipti Viðskipti með hlutabréf í Bakkavör hf. voru lífleg á Verð- bréfaþingi íslands í gær, daginn eftir að tilkynnt var um kaup Bakkavarar á breska matvælafyr- irtækinu Katsouris Fresh Foods Ltd. Hlutabréf í fyrirtækinu skiptu 89 sinnum um hendur í gær, og heildarverðmæti viðskiptanna námu 89.698.369 krónum. Verð hlutabréfanna var komið í 5,90 í lok gærdagsins, en var á bilinu 4,49- 4,50 í síðustu viku. ■ Þú safnar hjá okkur... Samtök atvinnulífsins: Flókið og engar skyndilausnir til kjarasamningar Hannes G. Sigurðs- son aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur viðbú- ið að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld fari í samstarf um þrí- hliða viðræður um hvaða leiðir geti verið fyrir hendi til að forða því að launalið kjarasaminga verði sagt upp á næsta ári. Hann bendir þó á að þetta sé flókið mál þar sem eng- ar skyndilausnir séu fyrir hendi. Hins vegar telur hann að allir vilji sameinast um það að verðbólgan fari aftur niður á þolanlegt stig. Hann segir að tæknilega séð hafi verðlagsforsendur kjarasaminga ekki gengið eftir vegna þess að verðbólga hafi aukist í stað þess að minnka eins og að var stefnt. í því sambandi bendir hann á að þegar samið var í fyrra hafi verðbólgan mælst um 5-6% en sé um þessar mundir í rúmlega 8%. Þessi mikla verðbólga sé m.a. vegna þeirrar miklu gengislækkunar sem orðið hefur á krónunni. Hann býst við að fjallað verði um viðbrögð við þess- ari þróun á vettvangi Samtaka at- KARPHÚSIÐ Bjartsýni manna um verðbólguþróunina við gerð síðustu samninga virðist vera að snúast upp í andhverfu sína vinnulífsins á næstunni, enda hljóta allir ásamt stjórnvöldum að hafa miklar áhyggjur af því að það geti komið til uppsagna á launalið samn- inga á næsta ári. Aðspurður hvort atvinnulífið geti brugðist við þessu með frekari kauphækkunum segir hann að verðbólguvandinn endur- spegli m.a. þær miklu kostnaðar- hækkanir sem orðið hafa. Af þeim sökumtelur hann að það sé ekki mjög uppbyggilegt til að lækkunar verðbólgu að hækka kostnað fyrir- tækja enn meira. ■ nmuumiimimitmimmiuimimmimHiDiiimmiiimmimimmmmiimimmiiimmiimimmiitmiimmKimmimmmiiimtmiiiimimíim Taugaveiklun er ein- kennandi á markaði Efnahags- og framfarastofnun Evrópu spáir samdrætti á næsta ári. Krónan er í kröppum dansi og viðkvæm fyrir fréttum. Spákaupmenn eiga ekki þátt í veikingunni, en markaðurinn bíður eftir skýrum skila- boðum um aðhald í ríkisQármálum og minnkandi viðskiptahalla. Gengi krónu gagnvart bandaríkjadollar 1104 * £ * <o' í 0 * O) * ©’ efnahagsmál Krónan hef- ur fallið hraustlega á síð- ustu dögum og er fall hennar frá áramótum orði meira en dæmi eru um á síðustu áratugum. Á þriðjudag féll krónan um 1,4 % vegna frétta um kaup Bakkavarar á erlendu fyrirtæki. Yngvi Harðarson, hagfræðing- ur, segir að nokkurrar taugaveiklunar gæti á gjaldeyrismarkaði. „Það er meiri eftirspurn eftir gjaldeyri en framboð og það er Ijóst að eitthvað þarf að gerast til þess að það breytist.“ f nýrri skýrslu Efna- hags- og framfarastofn- unar Evrópu, OECD, er samdrætti spáð á næsta ári. Stofnunin hvetur til aðhalds í ríkisrekstri og að Seðlabanki fari sér hægt í vaxtalækkunum til að byg- gja upp traust á krónuna. Ljóst er að krónan er mjög viðkvæm þessa dagana, en Yngvi Harðarson segir engin merki um að spákaupmenn geri atlögu að henni. „Ef svo væri sæjum við stærri tölur í viðskipt- unum.“ Már Guðmundsson, aðalhag- fræðingur Seðlabankans segir alla jafna grípi bankinn ekki inn í gjaldeyrismarkaðinn. Hann geti þó gert það ef hann telji það skila árangri og stuðla að markmiðum bankans varðandi litla verðbólgu og stöðugt fjármálakerfi. Að- spurður um hvort þær aðstæður hafi ekki skapast þegar krónan féll um 1,4% á þriðjudag, sagði Már: „Verkin tala hjá okkur varð- andi inngrip á gjaldeyrismark- aði.“ Útilokað er að spá um þróun krónunnar til skemmri tíma litið og enn síður frá degi til dags. Már segir að innan Seðlabankans hafi frekar verið reiknað með tíma- bundinni veikingu krónunnar þeg- ar viðskiptahallinn færi minnk- andi, þar sem líklegt var talið að það færi saman við enn snarpari samdrátt í fjármögnun hallans í gegnum erlenda lántöku. Það væri nú að koma fram. Yngvi Harðarson segir að margir óvissuþættir séu um þró- unina á næstu mánuðum. „Það er talsverð óvissa með þróun á er- lendum vettvangi svo og með ástand á vinnumarkaði hérlendis, þróun kjaramála og atvinnuleys- is.“ Markaðurinn virðist bíða eftir skýrum skilaboðum um aðhald í ríkisrekstri og jákvæðum fréttum af viðskiptahalla. Ómögulegt er að tímasetja slíkt, en fram að því má búast við áframhaldandi óróa. Gengisvísitalan endaði í gær í nýju meti eða 150 stigum og hefur krónan aldrei verið veikari. haflidi@frettabladid.is Bruni í rafmagnstöflu t Vopnafjarðarskóla: Ovíst hvenær kennsla hefst að nýju bruni Vopnafjarðarskóli var rýmdur um tvöleytið í gærdag þegar eldur kom upp í rafmagns- töflu í nýrri viðbyggingu skólans. Slökkvilið staðarins var kallað til og mætti það örfáum mínútum síðar og slökkti fljótlega eldinn. Mikill reykur barst um neðri hæð hússins þar sem taflan er staðsett. Að sögn Aðalbjörns Björnssonar, skólastjóra Vopnafjarðarskóla, varð eldsins vart þegar bruna- kerfi hússins fór í gang. Fljótlega eftir hafi verið ákveðið að rýma skólann en kennsla hafi verið í fullum gangi. Nemendur hafi yfir- gefið húsið nánast eins og þeir stóðu og safnað saman í íþrótta- húsi skólans. Bæði rafmagn og hiti fóru af viðbyggingunni auk þess sem símasamband er dottið niður. Að- albjörn segir flókið verkefni framundan að gera við töfluna en VOPNAFJÖRÐUR Símasambandslaust er við Vopnafjarðarskóla og einnig hefur bæði rafmagn og hiti dottið út við brunann í rafmagnstöflunni sem samkvæmt Aðalbirni Björnssyni, skólastjóra, er einungis ársgömul. hún sé bæði stór og mikil. „Við vitum ekki enn hvað olli brunan- um en viljum fá úr því skorið þar sem taflan er ekki nema ársgöm- ul.“ Aðalbjöi’n sagðist vonast til að kennsla gæti hafist að nýju strax eftir helgi en sagðist þó ekki mjög bjartsýnn. „ ■ Össur Skarphéðinsson: Ekki verð- skuldað tap stjórnmál „Það er heldur slæmt að hinn ágæti jafnaðarmaður Poul Nyrup Rassmussen skuli tapa kosn- ingum. Það er ekki verðskuldað því hann hefur staðið sig ákaflega vel sem forsætisráð- herra og gert margt gott fyrir Dani,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar. „Nyrup, eins og svo margir, gaf of mikinn gaum að skoðanakönnunum og tímasetti kosn- ingarnar miklu fyrr en hann þurfti. Niðurstað- an var sú að Ven- stre náði söguleg- um sigri að því leyti að hann er nú í fyrsta sinn stærri en flokkur jafnaðarmanna. Það sem vekur manni hins vegar ugg er uppgangur Danska þjóðar- flokksins sem gerði út á útlendinga- andúð,“ segir Ossur. Össur bendir á að Poul Nyrup hafi setið lengst allra forsetisráð- herra í aðildarlöndum Evrópusam- bandsins: „Forsætisráðherrar sem búnir eru að sitja ákaflega lengi lenda gjarnan í því að það fjarar fljótt undan þeim. í því lenti Nyrup Rassmussen og það kann að henda fleiri.“ ■ OSSUR SKARP- HÉÐINSSON Uppgangur Danska þjóðar- flokksins sem gerði út á útlend- ingaandúð vekur ugg, segir for- maður Samfylk- ingarinnar. Steingrímur J. Sigfússon: Iskyggilegt stjórnmál „Mér líst illa á úrslitin þó að mínir menn í SF og Einingarlist- anum haldi reyndar nokkurn veg- inn sjó og vinni varnarsigur því rík- isstjórnarblokkin í heild beið mikið afhroð," segir Steingrímur J. Sig- fússon, formaður Vinstri-grænna, um sigur hægri flokkanna i þing- kosningunum í Danmörku. Steingrímur segir úrslitin ekki síst vera mikinn ósigur fyrir Poul Nyrup Rassmus- steingrím j. sen forsætisráð- sigfusson herra persónulega. legs forsætisráð- »Hann valdi þessa herra er ekki sak- timasetnmgu fynr laus af því að kosnmgarnar og hafa gert út á baráttan var mjög þjóðernishyggju, mikið lögð upp á segir formaður hann persónulega. Vinstri-grænna. Hann ætíaði að selja sig þjóðinni sem hinn sterki leiðtogi á óvissutímum en það mis- tókst herfilega," segir hann. Steingrímur segir það vera mik- ið áhyggjuefni út á hvaða málefni borgaraflokkarnir unnu kosninga- sigurinn: „Það var gert út á þau af mikilli ósvífni af þeim sem spiluðu á strengi þjóðernishyggju og það er ískyggilegt að sjá flokk eins og Danska þjóðarflokkinn vaða svona upp. Flokkur væntanlegs forsætis- ráðherra er heldur ekki saklaus af því að hafa reynt að gera út á þetta ástand.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.