Fréttablaðið - 22.11.2001, Side 14
fðos isdrrigvöfi .íí íiUðAOUtMWllí
gott verð
I.Guðmundsson ehf.
Skiphoiti 25 • 105 Reykjavík
Bíll sem
gefur frá
sér hljóð,
mótorhljóð,
flautar
og fleira.
Mánud.-föstud. kl. 13 -17
Frábær tilboð - Þú mátt ekkl mlssa af þessu
Hundurinn
sem geltir
og hleypur um
hann er með
fjarstýringu.
VOff
I'Off
M<$
Opnunartími:
Jólagjöf
LAGER SALA
Gæsaskyttirí
heima í stofu.
Myndvarpinn
varpar myndinni
af bráðinni
á vegginn
og riffillinn er
tengdur
myndinni, þegar
þú hittir fellur
bráðin til jarðar.
Hörkuspennandi
og skemmtilegt
verkfæri.
áður kr. 12.900,-
Nu kr
Gönguskór
7.990 kr
Gönguskór Grisport 389 leður
með grítex öndun og
vatnsfráhrindandi.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
ÍÍQL
J/
/1
FRÉTTABLAÐIÐ
22. nóvemer 2001 FIMMTUDACUR
ESSO deild karia:
Útiliðin unnu öll
HANDBOLTi Áttunda umferð ESSO
deildar karla lauk með þremur
leikjum í gær. í Mosfellsbæ tók
Afturelding á móti Haukum.
Meistararnir voru yfir í hálfleik,
13-10, og fylgdu þessarri siglingu
eftir með því að vinna leikinn 27-
22. Haukar halda því enn topp-
sætinu. Litlu munaði þó að Valur
næði þeim eftir spennuleik við
Fram. Heimamenn í Fram voru
yfir í hálfleik, 12-11, en þar sem
þeir brenndu af átta vítum og
Valur náði að hrista af sér slenið
fór leikurinn 21-20 fyrir Val.
Að lokum tók HK á móti ÍR.
Ekki gekk vel hjá heimamönnum,
ESSO PEILP KARLA
Lið Leikir u J T Mörk Stig
Haukar 8 8 0 O 219:187 16
Valur 8 7 1 O 220:186 15
Þór A. 8 5 2 1 223:204 12
Grótta/KR 8 5 O 3 203:205 10
ÍR 8 4 1 3 186:189 9
KA 8 3 2 3 203:195 8
FH 8 2 3 3 203:199 7
Selfoss 8 3 1 4 218:218 7
UMFA 8 3 1 4 185:190 7
HK 8 2 2 4 218:222 6
Stjarnan 8 2 2 4 197:205 6
ÍBV 8 2 1 5 208:232 5
Fram 8 O 3 5 183:197 3
Víkingur 8 O 1 7 173:210 1
ÍR var 16-10 yfir í hálfleik og
vann leikinn 33-27. ■
ÞRUMUSKOT AÐ MARKI
Halldór Ingólfsson, leikmaður Hauka, skýt-
ur að marki Aftureldingar og Hjörtur Arnar-
son horfir á. Haukar unnu 27-22 í Mos-
fellsbænum.
BJÖRN BORG
Borg hélt sig frá tennisvellinum
í átta ár, en árið 1991 stóðst
hann ekki freistinguna lengur
og tók fram spaðann á ný.
MUHAMMAD ALI
Flestir voru sammála um að Ali
ætti að hætta árið 1979, en
hann ákvað að taka einn loka-
dans í hringnum árið 1980.
Misheppnaðar
endurkomur
íþróttamenn eiga oft erfitt með að hætta að keppa. Björn Borg, Nigel
Mansell, Magic Johnson og Muhammad Ali eru dæmi um íþróttamenn
sem hafa átt algjörlega misheppnaðar endurkomur.
i'þróttaivienn Töluvert algengt er
að íþróttamenn hætti við að
hætta. Eftir að hafa verið mörg ár
í kastljósi frægðarinnar reynist
oft erfitt að setjast í helgan stein.
Eftirsjáin er stundum svo sterk að
menn ákveða að reyna einu sinni
enn - reyna að rifja upp gamla
takta. Stundum hefur þetta tekist
en ekki næstum alltaf. Dæmi um
íþróttamenn sem hafa átt mis-
heppnaðar endurkomur eru Björn
Borg, Nigel Mansell, Magic John-
son og Muhammand Ali.
Svíinn Björn Borg var einn
allra besti tennisleikari heims á
sjöunda og áttunda áratugnum.
Eftir að hafa unnið til ellefu stór-
ra titla ákvað hann að hætta kepp-
ni árið 1983 og einbeita sér að við-
skiptum. Borg hélt sig frá tennis-
vellinum í átta ár, en árið 1991
stóðst hann ekki freistinguna
lengur. Orðinn 34 ára gamall,
smellti hann á sig svitabandinu í
Monte Carlo og strunsaði út á
tennisvöll með gamla tréspaðann
sinn. Árangurinn var hins vegar
ekki glæsilegur. Vopnaður nýjasta
grafít-tennisspaðanum á mark-
aðnum, sigraði algjörlega óþekkt-
ur tennisleikari, Jordi Arrese að
nafni, gömlu kempuna. Borg tókst
aldrei að komast í hóp þeirra þús-
und bestu og lagði fljótlega gamla
tréspaðann aftur á Ikea-hilluna.
Enski ökuþórinn Nigel Mansell
var einn sá allra besti í Formúlu 1
á áttunda áratugnum og byrjun
þess níunda. Hann vann keppnina
einu sinni og varð þrisvar í öðru
sæti áður en hann ákvað að hætta
í Formúlu 1 og keppa í Indy-
kappaksturskeppninni í Banda-
ríkjunum. Árið 1995 ákvað
Mansell að snúa sér aftur að For-
múlu 1. Hann samdi við McLaren,
en missti af tveimur fyrstu
keppnum tímabilsins vegna þess
að bíllinn var of lítill fyrir hann.
Hann lauk keppninni í Imola á
Ítalíu í 10. sæti og á Spáni hætti
hann þegar keppnin var rétt
hálfnuð. Næsta keppni átti að
vera í Monte Carlo, en Mansell sá
enga ástæðu til að halda þessum
hörmungum áfram og drap á bíln-
um fyrir fullt og allt. Einstaklega
ömurlegur endir á annars glæst-
um ferli.
Körfuboltahetjan Magic John-
son var af mörgum talinn sá allra
besti í NBA deildinni á milli 1979
og 1991. Með frábærum sending-
um og góðum alhliða leik vann
hann til fimm titla með Los Angel-
es Lakers. Eftir að hafa greinst
með HIV veiruna ákvað hann að
leggja skóna á hilluna, 32 ára
gamall. Mörgum til mikillar undr-
unar hélt Magic heilsunni og árið
1995 ákvað hann að snúa aftur.
Fjögurra ára sófaseta sagði hins
vegar til sín því Magic var alltof
þungur og gjarn á að meiðast.
Hann lék aðeins 32 (af um 80)
leiki á öllu tímabilinu og skoraði
að meðaltali 14,6 stig, samanborið
við um 20 áður.
Fáir efuðust um það á sínum
tíma þegar Muhammad Ali sagð-
ist vera besti hnefaleikamaður
allra tíma. Hinn tungulipri Ali,
sem áður bar nafnið Cassius Clay,
varð þrisvar heimsmeistari á ár-
unum frá 1964 til 1979. Flestir
voru sammála um að Ali ætti að
hætta árið 1979, en hann ákvað að
taka einn lokadans í hringnum
árið 1980, þá orðinn 38 ára gamall.
Mótherjinn var Larry Holmes og
hafði hann mikla yfirburði í bar-
daganum, sem margir töldu hafa
verið hryggilegan atburð fyrir Ali
og hreinlega hættulegan.
trausti@frettabladid.is
Meistaradeild Evrópu:
Markaleikur milli Real og Prag
knattspyrna Þrír leikir fóru fram í
C og D riðlum Meistaradeildar Evr-
ópu í gær en sá fjórði, milli Juvent-
us og Bayern Leverkusen, var
felldur niður vegna þoku. Hann fer
fram miðvikudaginn 28. nóvember.
Markaleikurinn var í Prag þar
sem Sparta Prag tók á móti Real
Madrid. Real var fyrra liðið til að
komast yfir og var það sjálfur Zida-
ne, sem skoraði. Prag náði að jafna
með marki frá Michalík en Mori-
entes kom Real aftur yfir stuttu
seinna. Þetta var endurtekið um
miðjan seinni hálfleik þegar Sionko
jafnaði en Morientes kom Real aft-
ur yfir. Arsenal fór í heimsókn til
Deportivo La Coruna. Heimamenn
voru með tögl og hagldir í leiknum,
þó Arsenal næði að sýna lit í seinni
hálfleik, og unnu hann 2-0. Mörkin
skoruðu Makaay og Tristán í fyrri
hálfleik. í Aþenu tók Panathinaikos
á móti Porto. Leikurinn endaði með
markalausu jafntefli og hafa Aþen-
ar því ekki fengið mark á sig í fjór-
um leikjum á heimavelli. ■