Fréttablaðið - 26.11.2001, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KiÖRKASSINN
ÞESSI
DÁSAMLECA
SNJÓKOMA
Naumur meirihluti
netverja fagnar
snjónum. Restin
bölvar honum
e.t.v. í sand og
ösku.
Viltu snjó?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Myndir þú láta klóna þig ef það stæði
til boða?
Farðu inn á vlsi.is og segðu
þína skoðun
Axabískir talibanar:
Hundruð
falla í fanga-
uppreisn
BANCI. afcanistan. ap Hundruðir
erlendra hermanna sem barist
höfðu með talibönum en gefist
upp fyrir hermönnum Norður-
bandalagsins féllu þegar þeir
gerðu uppreisn í fangabúðum
nærri borginni Kunduz í norðan-
verðu Afganistan. Fangarnir
höfðu gefist upp á laugardag en
gerðu uppreisn í gær. Hún var
barin niður af fangavörðum sem
nutu stuðnings annarra hersveita
Norðurbandalagsins og banda-
ríska flughersins sem gerði loft-
árásir á þá hluta fangabúðanna
þar sem fangarnir höfðust við.
Daoud Khan, einn helsti her-
foringi Norðurbandalagsins, lýsti
því yfir í gær að hermenn sínir
hefðu náð Kunduz allri á sitt vald
og að hermenn talibana hefðu
hörfað til bæjarins Chardara fyrir
vestan borgina. Fall borgarinnar
fékkst ekki staðfest eftir öðrum
leiðum en ljóst þykir að sé borgin
ekki þegar fallin Norðurbandalag-
inu í hendur sé þess stutt að bíða.
í sunnanverðu Afganistan
lýstu andstæðingar talibana því
yfir að þeir hefðu náð hluta mikil-
vægrar aðfangaleiðar Kandahar á
sitt vald. Ef satt reynist veikir það
mjög varnir talibana í borginni. ■
—♦—
Miðstjórn Framsóknar:
Magntengt
veiðigjald
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn sam-
þykktu á miðstjórnarfundi um
helgina að innheimta eigi magn-
tengt veiðigjald af handhöfum
veiðiheimilda. Miklar umræður
urðu um sjávarútvegsmálin á
fundinum og skoðanir skiptar. Að
lokum var tillaga Halldórs Ás-
grímssonar þó samþykkt sam-
hljóða en þar er í fyrsta skipti
kveðið á um það af flokknum að
innheimta beri gjald af útgerðinni
fyrir veiðiheimildir.
„Það er eins í öllum stórum
málum að það eru mismunandi
skoðanir á hvaða leið skuli farin
en niðurstaðan er skýr. Þetta er
stefna flokksins", sagði Halldór
Ásgrímsson að fundi loknum.
Kristinn H. Gunnarsson sagði
ljóst að stuðningur við fyrningar-
leið væri talsverður innan flokks-
ins þrátt fyrir þessa niðurstöðu.l
Bandarískir vísindamenn:
Hafa klónað mannsfóstur
erfðavísindi Hópur bandarískra
vísindamanna greindi frá því í
gær að þeim hefði tekist að klóna
mannsfóstur með því að koma
frumu fyrir í eggi konu. Þetta er
í fyrsta skipti sem vísindamönn-
um tekst að klóna fóstur en slík
klónun er fyrsta skrefið í átt að
því hægt verði að klóna menn.
Rannsakendurnir neita því að til
greina komi að koma fóstrunum
fyrir í legi konu og segja tilgang-
inn þann að rækta stofnfrumur
sem nota megi til lækninga.
Dr. Michael West, forstjóri
fyrirtækisins sem stendur að
rannsóknunum segir að ekki
megi rugla fóstrunum sem vís-
EKKI A LEIÐ TIL MANNS
Vísindamenn segja fóstrin ekki klónuð til
að skapa menn.
indamönnunum hefur tekist að
klóna við mannverur. „Líffræði-
lega og vísindalega eru eining-
arnar sem við höfum skapað ekki
einstaklingar. Þetta er eingöngu
frumulíf. Þetta er ekki manns-
líf.“ Hann segir áfangann fyrsta
skrefið að nýjum lækningum,
svokölluðum endurnýjanlegum
lækningum, þar sem hægt verður
að rækta frumur til að koma fyr-
ir í líkama fólks í stað skemmdra
fruma.
Nokkur fylki Bandaríkjanna
hafa bannað klónun manna og
bandaríska þingið hefur löggjöf
til athugunar sem myndi banna
klónun í Bandaríkjunum öllum. ■
FÆRÐ ÞYNGDIST I REYKJAVÍK
Færðin í Reykjavík þyngist töluvert í gærmorgun og brögð voru að því að menn væru ekki alveg reiðubúnir að takast á við það eins og
þessi mynd ber með sér.
Ohöpp víða um land
vegna slæms veðurs
Grjóthrun varð á tveimur stöðum á Austurlandi vegna mikils vatnsveð-
urs. Nokkrir árekstrar urðu á Suðurlandi vegna hálku.
SAMCÖncur Mikið hvassviðri
gekk yfir Norðausturlandið og
niður með Austfjörðum í gær-
morgun. Samkvæmt upplýsing-
um frá Veðurstofunni fór vindur
allt upp í 25 m/sek og úti á miðun-
um varð vindur 30 m/sek en eng-
in vandræði hlutust af sam-
kvæmt upplýsingum frá Tilkynn-
ingaskyldunni. Allt innanlands-
flug féll niður £ gærmorgun en
komst aftur á um hádegisbilið.
Slæm færð var á vegum á Norð-
ur- og Austurlandi vegna snjó-
komu og hvassviðris og varð
ófært milli Akureyrar og Egils-
staða.
Á Akureyri var mikil snjó-
koma og að sögn lögreglunnar
var nokkuð um það að bílar væru
að festa sig og þurfti að aðstoða
nokkra ökumenn að losa sig í
gærmorgun. Á Húsavík var lé-
legt skyggni vegna snjókomu og
fór einn bíll útaf og valt í fyrra-
kvöld á vegamótum Köldukinnar
og Ljósavatnsskarðs. Bifreiðin
gjöreyðilagðist en ökumaður
slapp ómeiddur.
Vegur inn á Sauðanes lokaðist
fyrir fólksbíla seint í gærkveldi
vegna snjóflóðs. Að sögn lögregl-
unnar á Ólafsfirði varð umfang
flóðsins ekki mikið og var fært
fyrir jeppabifreiðar. Kalla þurfti
til aðstoðar Björgunarsveitarinn-
ar Hafliða til að koma tveimur
rjúpnaskyttum til bjargar sem
voru á Öxnafjarðarheiði. Að sögn
lögreglunnar á Raufarhöfn var
aldrei nein hætta á ferðum og
mennirnir voru í símasambandi
þangað til þeim var komið til
bjargar.
Mikið vatnsveður gekk yfir
Austurland og varaði lögreglan á
Djúpavogi við grjóthruni úr
Vatnnesskriðum milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar. Að
sögn lögreglunnar hrundi mikið
grjót úr skriðunum í fyrrinótt en
engin óhöpp urðu. Vegurinn um
Iivalnesskriður lokaðist í fyrr-
inótt vegna grjóthruns en að sögn
lögreglunnar á Höfn var hann
opnaður aftur í gærdag.
Á Suðurlandi var mikil hálka á
vegum. Fjórir árekstrar urðu í
gærdag sem rekja má til hálku á
Þjórsárbrú, Biskupstungnabraut,
innanbæjar á Selfossi og í Hvera-
gerði. Björgunarsveitin Tintron
kölluð út til aðstoðar bifreið sem
hafði fest sig inn á Þjófahrauni í
gærmorgun. Var hún afturkölluð
þar sem þegar var búið að koma
fólkinu til aðstoðar. Björgunar-
sveitarmenn Landsbjargar komu
fólki til aðstoðar sem höfðu lent í
vandræðum með bíla sína á Mos-
fellsheiði, Krýsuvík og Heiðmörk
í fyrrinótt. Talsverður skafrenn-
ingur var á þessum slóðum. í
Reykjavík þyngdist færðin mjög
um áttaleytið í gærmorgun, sér-
staklega í úthverfum og í húsa-
götum.
kolbrun@frettabladid.is
Rjúpnastofninn í lægð og veiði dræm:
Kaupmenn horfa til
ínnflutnings
DÝRALÍF Fyrirspurnir hafa borist til
embættis yfirdýralæknis varð-
andi hugsanlegan innflutning á
rjúpum, en veiði hefur verið
dræm. Enn sem komið er hefur þó
enginn leitað eftir formlegu leyfi
til innflutnings. Forsvarsmenn
bæði Nóatúns og Hagkaupa kváð-
ust ætla að sjá til enn um sinn og
sögðu engar ráðagerðir uppi um
innflutning. Sögðu þeir veiði oft
hafa verið dræma framan af, en
oftast hafi ræst úr málum og
framboð verið nóg. Mundu þeir til
þess að rjúpur hafi einu sinni ver-
ið fluttar inn frá Grænlandi fyrir
nokkrum árum og hafðar til sölu í
kjötbúð við Laugaveg í Reykjavík.
„Það er örugglega mjög lítið af
rjúpu núna en ég yrði hissa ef
veiðin færi niður fyrir 100 þúsund
fugla. Neyslan hefur verið ein-
hvers staðar á því bili. Þegar
menn voru að skjóta þetta 150 þús-
und fugla þá gátu þeir ekki selt all-
an afla,“ sagði Ólafur Karl Niel-
sen, líffræðingur. Hann segir að
sveiflur í stærð rjúpnastofnsins
séu vel þekktar. „Hann er kominn
í lágmark, en síðan um 1963-4 hef-
ur hann alla vega tvisvar eða þris-
var verið á svipuðu róli og núna.“
í máli Ólafs kom fram að fálka-
stofninn sveiflist með rjúpunni og
gera megi ráð fyi-ir að hann nái
botni eftir eitt til tvö ár. ■
26. nóvember 2001 MÁNUDAGUR
Davíð Oddsson:
Styrkur efna-
hagslífsins
efnahagsmál Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, sagði í viðtali í
Silfri Egils á Skjá einum í gær, að
það að verðbólgan í landinu væri
aðeins 5-6% þrátt fyrir að gengið
hefði fallið um þriðjung sýndi
ótrúlegan styrkleika íslensks
efnahagslífs. Það væri ennfremur
til marks um styrk efnahagslífs-
ins að kaupmáttur hefði ekki
rýi-nað.
Hins vegar lýsti forsætisi’áð-
herra skilningi á því að í núver-
andi ástandi setti verkalýðshreyf-
ingin fram kröfur um endurskoð-
un kjarasamninga. ■
DON C. WILEY
Starfar sem prófessor við Harvard háskól-
ann og sérhæfir sig í veirurannsóknum.
Týndur tengdasonur Is-
lands:
FBI komið í
málið
mannshvarf Bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, leitar enn Don C.
Wiley, sem giftur er íslenskri
konu og hvarf á dularfullan hátt í
Memphis í Tennessee þann 16.
nóvember s.l., en óttast að hann sé
látinn. „Við höfum fengið upplýs-
ingar sem við munum fylgja eft-
ir,“ sagði Joe Scott, lögreglumað-
ur.
Wiley er vísindamaður á sviði
veirurannsókna og próessor við
Harvard. Hann hefur rannsakað
margar af hættulegstu veirum
heims, s.s. ebólu, alnæmi og HIV.
Þar sem yfirvöld þar í landi óttast
að hryðjuverkamenn muni notast
við sýklavopn í kjölfar árásanna á
Afganistan var FBI fengið til sam-
starfs við lögregluna í Boston.
„Vegna vinnu hans sáum við
okkur knúna til að blandast í mál-
ið,“ var haft eftir William Woern-
er, rannsóknarmanni hjá FBI.
Wiley heldur úti heimasíðu
sem fjalla um rannsóknir hans en
Katrín Valgeirsdóttir, eiginkona
hans, telur hvarfið ekki tengjast
starfinu.
„Það virðist bara ekki mögu-
legt,“ sagði Katrín í viðtali við
Boston Globe. Þar kemur einnig
fram að leitin fari aðallega fram í
grennd Mississippi-fljótsins. ■
TögreclufréttirI
Maður á vélsleða slasaðist í
Ölfushreppi seinnipartinn í
gær. Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi fataðist manninum akstur-
inn og keyrði á girðingu og end-
aði á nærliggjandi húsvegg.
Hann var fluttur með sjúkrabif-
reið á slysadeild.
ÓLAFUR KARL NIELSEN
Stofnstærð rjúpunnar gengur I sveiflum og
er stofninn í lágmarki um þessar mundir.
Yfirdýralæknisembættinu hafa borist fyrir-
spurnir um hvaðan væri vænlegt að flytja
inn rjúpur.