Fréttablaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
2
FRÉTTABLAÐIÐ
27. nóvember 2001 ÞRIÐJUDAGUR
FLEIRl MIG
Þrír af hverjum fimm
vilja endilega láta klóna
sig. Enda engin ástæða
til að hafa aðeins eitt
eintak af velheppnuð-
um einstaklingi.
Myndir þú láta klóna þig
ef það stæði til boða?
Niðurstöður gærdagsins
á www.ví^ir.is
Spurning dagsins í dag:
Var rétt að taka svínakjöt af matseðlin-
um í Austurbæjarskóla af tillitssemi við
minnihlutahópa?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þina skoðun I
_________
Áfram opinber verðlagn-
ing landbúnaðarafiirða:
Hætt við
frjálsa verð-
lagningu
VERÐiAGNiNG „Við erum að óska
eftir því að samkeppnisstofnun
úrskurði hvort samkeppnislög séu
ekki æðri búvörulögum," segir
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu (SVÞ). Samtökin vilja meina
að starf opinberrar verðlags-
nefndar, sem ákveður heildsölu-
verð á landbúnaðarafurðum,
brjóti í bága við samkeppnislög.
Búvörulögin voru sett árið
1997 og segir Sigurður að þá hafi
verið ákveðið að verðlagsnefndin
skyldi hætta störfum í ár. „Síðan
ákveða landbúnaðarráðuneytið og
bændasamtökin að það sé ástæða
til að framlengja störf nefndar-
innar um þrjú ár. í millitíðinni
komu samkeppnislögin endur-
skoðuð til framkvæmda og þar
eru mjög ströng ákvæði um verð-
samráð, hvort sem um er að ræða
milli sölustiga eða innan,“ segir
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri.
Verðlagsnefndin, stundum
kölluð sex manna nefnd, ákveður
heildsöluverð á ýmsum mjólkur-
afurðum, eins og osti og mjólk,
sem vega þungt í útgjöldum heim-
ilanna. I ár átti að gefa verðlagn-
ingu á þessum vörum frjálsa.
Fulltrúi ASÍ sagði sig úr þess-
ari nefnd fyrir nokkrum árum
þegar horfið var frá því að stokka
landbúnaðarkerfið skipulega upp.
„Fyrst að menn ætluðu að fara út
úr endurskipulagningunni og hag-
ræðingunni þá taldi ASÍ ekki
ástæðu til að hafa fulltrúa í þess-
um nefndum til að blessa sjálf-
virkar hækkanir," segir Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
ASÍ. ■
VEÐUR
Það er útlit fyrir að það verði
norðanhvassviðri, það gæti
orðið eitthvað um 25 metrar á
sekúndu og mikil snjókoma á
norðvestanverðu landinu seint í
nótt og eitthvað fram eftir degi á
morgun", sagði Hörður Þórðar-
son, veðurfræðingur á Veðurstof-
unni í gærkvöldi um óveðrið sem
spáð var á landinu vestanverðu í
nótt og £ dag.
„Þetta verður eitthvað rólegra
á suðvesturhorninu en samt það
sem maður myndi kalla erfitt
ferðaveður."
|lögreglufréttir[~
Lögreglunni í Reykjavík barst
tilkynning síðdegis á sunnudag
um að neyðarblys sæist á lofti í
norðri yfir Reykjavíkurhöfn.
Skömmu síðar kom tilkynning frá
flugturninum um að Fokker flug-
vél Flugfélags íslands, sem var að
koma til lendingar, hafi staðfest að
flugeldi hafi verið skotið upp frá
landi þannig að hægt var að útiloka
strax að væri um menn í sjávar-
háska að ræða. Sá sem skaut upp
flugeldinum er enn ófundinn.
Fimm bandarískir hermenn særast í árás Bandaríkjamanna:
Fyrsta hernaðaraðgerð landgönguliða hafin
TILBÚNIR í BARDAGA
Landgönguliðar, sem eru hluti 500 manna liðssveitar Bandaríkjamanna í suðurhluta
Afganistan, búa sig til brottfarar af flugmóðuskipinu USS Peleliu.
ouetta. washington, ap. Landgöngu-
liðar bandaríska hersins hófu
fyrstu hernaðaraðgerð sína í gær,
fáeinum klukkustundum eftir að
þeir náðu herstöð talibana, í gren-
nd við Kandahar, á sitt vald. Þyrlur
þeirra réðust á skriðdrekasveit, en
talsmenn Pentagon gáfu ekki frek-
ari upplýsingar um málið, að því er
fréttavefur CNN greindi frá í gær.
Um 500 landgönguliðar eru nú í
suðurhluta Afganistan og fleiri á
leiðinni. Þeim var flogið til suður-
hluta Afganistan í gærmorgun.
„Þetta er ekki hernámslið," sagði
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna í gær. „Þeir
eiga að koma í veg fyrir að liðs-
menn talibana og al-Quaida geti
farið frjálsir ferða sinna.“
Rumsfeld bar til baka fregnir
um að þúsundum hermanna yrði
flogið til Afganistan. í norðurhluta
Afganistan hélt Norðurbandalagið
áfram að styrkja stöðu sína í borg-
inni Konduz, sem féll í hendur þeir-
ra á sunnudag. Vestur af henni, í
borginni Mazar-e-Sharif, voru enn
átök á milli Norðurbandalagsins og
Bandaríkjamanna annars vegar og
talibana hins vegar.
Fimm bandarískir hermenn
særðust í sprengjuárás Banda-
ríkjamanna á fangelsi í útjaðri
Mazar-e-Sharif á sunnudag. Það
voru talsmenn Pentagon sem
greindu frá þessu í gær. Enginn
hermannanna særðist lífshættu-
lega en þrír þeirra sem særðust
voru fluttir til Úsbekistan þar sem
gert var að sárum þeirra.
Meira bls. 4 og 12.
Davíð boðar 3 milli
Eiginmaður Katrínar
Valgeirsdóttur:
Finnst ekki
Ríkisstjórnin undirbýr tillögur að þriggja milljarða niðurskurði á ríkis-
útgjöldum. Tillögur fjárlaganefndar fyrir 2. umræðu um fjárlög hljóma
upp á 2,3 milljarða aukningu útgjalda. Bein Qárlagaumræða ómöguleg
meðan beðið er niðurskurðartillagna.
fjárlög Ekkert varð úr því að þing-
flokkum stjórnarflokkanna væru
kynntar tillögur um niðurskurð á
fjárlögum á þingflokksfundum í
gær eins og Davíð Oddsson for-
sætisráðherra hafði boðað. For-
sætisráðherra segir að lagðar
verði fram tillögur um niðurskurð
á fjárlögum um nokkra milljarða
króna áður en kemur að 3. umræðu
um fjárlögin sem hefst í næstu
viku. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er stefnt að því að
draga útgjöldin saman um þrjá
milljarða króna og er sérstaklega
horft til þess að
skera niður í fram-
kvæmdum og fjár-
festingum.
Tillögur fjár-
laganefndar um
breytingar á fjár-
lögum fyrir 2. um-
ferð umræðna
sem hefst í dag
lágu fyrir seinni-
partinn í gær og
ganga þær þvert á
tillögur ríkis-
stjórnarinnar um
niðurskurð. Nefndin leggur til að
fjárheimildir ráðuneyta og vaxta-
gjöld ríkisins aukist um 2,3 millj-
arða króna frá því sem lagt var
upp með í fjárlagafrumvarpi fjár-
málaráðherra. Mestur hluti aukn-
ingarinnar fer til fjármálaráðu-
EINAR MÁR
Lítið hægt að
ræða fjárlögin
meðan útgjal-
dahliðin liggur
ekki fyrir.
BREYTINGAR á fjárheimild- I UM RÁÐUNEYTA SAMKVÆMT TILLÖGUM FJÁRLAGANEFNDAR
Forsætisráðuneyti 276,0 m
Menntamálaráðuneyti 706,6 m
Utanríkisráðuneyti Landbúnaðarráðuneyti Sjávarútvegsráðuneyti 135,9 m -0,5 m 11,0 m
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti Félagsmálaráðuneyti Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti 80,5 m -27,2 m 107,1 m
Fjármálaráðuneyti Samgönguráðuneyti 729,1 m 44,8 m
Iðnaðarráðuneyti 4,0 m
Hagstofa óbreytt
Umhverfisráðuneyti 110,3 m
vaxtagjold ríkissjóos 100,0 m k Samtals frávik frá frumvarpi 2217,1 m í|
\Allar tölur eru í milljónum króna. J
neytis og menntamálaráðuneytis
eða um 1.435 milljónir króna. Ein-
ungis er lagt til að heimildir tvegg-
ja ráðuneyti dragist saman en það
eru félagsmálaráðuneyti og land-
búnaðarráðuneyti með samtals 28
milljóna króna niðurskurð, nær
allan í fyrrnefnda ráðuneytinu.
„Það verður ekki hægt að fjalla
um útgjaldahlið fjárlagafrum-
varpsins í 2. umræðu eins og hefð
er fyrir", sagði Einar Már Sigurð-
arson eftir að fyrir lá að tillögur
ríkisstjórnarinnar um niðurskurð í
útgjöldum lægju ekki fyrir við 2.
umræðu. Hann segir að meðan út-
gjaldahliðin liggi ekki fyrir sé lítið
hægt að ræða fjárlögin. Þrátt fyrir
að engar niðurskurðartillögur
væru kynntar þingflokkum ræddu
framsóknarmenn efnahagsástand-
ið og viðbrögð við því á fundi sín-
um í gær. Hjálmar Árnason sagði
menn hafa verið sammála um
nauðsyn þess að takmarka ríkisút-
gjöld en það væri svo sem alltaf
auðvelt þangað til
ákveðnar tillögur
komi fram og
menn fari að verja
sín ráðuneyti og
kjördæmi.
K r i s t j á n
Pálsson segir að
tillögur fjárla-
ganefndar fyrir 2.
umræðu hafi verið
ákveðnar á sun-
nudagskvöld og
því hafi nýjum
tillögum ekki
verið bætt inn.
Hann segir þó ljóst að málið sé í
fullri vinnslu og að það sé mikill
misskilningur hjá minnihlutanum
að þetta séu einhver platfjárlög þó
ekki liggi allt fyrir á sömu stundu.
Tillögur séu í vinnslu þó þær verði
ekki strax kynntar minnihlutanum
en hann skilji svo sem að þeir séu
pirraðir að vita ekki meira að svo
stöddu.
binni@frettabladid.is
KRISTJÁN
PÁLSSON
Stjórnarand-
staðan að gera of
mikið úr málinu
eða misskilja fjár-
lagagerðina.
Flugleiðir drógu tilboð til baka til íslendinga í London:
,,Með ólíkindum að þetta
gerist á 21. öldinni"
ferðalög Hópur íslendinga sem
býr í London, þurfti að sæta því að
tilboð sem hann hafði fengið í flug
til íslands um jólin, var dregið til
baka. Anna Sigríður Guðsteins-
dóttir, íslendingur og Londonar-
búi, sá um skipulagninguna á
ferðinni. „Ég leitaði til ferðaskrif-
stofu í London, Statesman travel,
sem sneri sér til Flugleiða og fékk
tilboð fyrir 15 manna hóp sem
hljóðaði upp á 250 pund [andvirði
um 39.000 ísl. kr.]. Þetta miðaðist
við flug til Reykjavíkur 21. des-
ember og kvöldflug til London 3.
janúar. Þetta var svo dregið til
baka og sú skýring gefin að þetta
væri ekki hópur Það þarf ekki að
segja meir, það sjá allir hvað
þarna er á ferð og alveg með ólík-
indum að þetta skuli gerast á 21.
öldinni."
Anna Sigríður segir það aug-
ljóst að þegar Flugleiðir komust
að því að íslendingar voru á ferð
hafi þeir dregið tilboðið til baka.
„Þeir vilja selja þessi tilboð til
breskra fyrirtækja en ekki til ís-
lendinga sem þeir vita að vilja
fara heim um jólin. Það er með
ólíkindum hvernig Flugleiðir
koma fi'am við fólk sem er upp á
það komið.“
Að sögn Önnu Sigríðar er ekki
um annað að ræða fyrir íslending-
ana en að taka tilboði heimfarar-
klúbbs Flugleiða sem hljóðar upp
á 326 pund [andvirði rúmlega
50.000 ísl. kr.]. „Það er þegar ein
fjölskylda sem hefur hætt við
ferðina heim, hún hefur ekki efni
á henni."
Guðjón Arngrímsson, upplýs-'
ingafulltrúi Flugleiða, segir til-
boðið hafa verið dregið til baka
þegar ekki fékkst greitt inn á
eða uppgefinn farþegalisti hjá
ferðaskrifstofunni ytra. Ekki
hafi verið hægt að halda sætun-
um lengur enda seljist hratt í
þau á þessum árstíma. „Það
skiptir Flugleiði engu máli hvers
lenskir farþegar eru, heldur að
gengið sé frá greiðslu farmið-
anna.“ ■
lögreglumál Ekkert hefur enn
spurst til Don C. Wiley, eigin-
manns Katrínar Valgeirsdóttur,
síðan hann
hvarf í Tenn-
essee fyrir um
tíu dögum.
„Enn hefur
ekkert komið í
ljós sem bendir
til þess að þær
rannsóknir sem
Don C. Wiley
stundaði á ban-
vænum veirum
hafi átt þátt í
hvarfi hans.
Það er þó verið
að skoða alla
möguleika," segir George Bolds,
upplýsingafullgtrúi FBI í Memp-
his, í samtali við Fréttablaðið.
„Lögreglan í Memphis fer með
rannsókn málsins og er það enn
meðhöndlað sem mannshvarf.
FBI hefur þó gert allt til að að-
stoða við rannsóknina, en enn
hefur ekkert komið fram í mál-
inu. Hvorki að glæpsamlegt at-
hæfi hafi átt sér stað, né hvað
hafi orðið um Don C. Wiley.“ Að
sögn George Bolds sýnir reynsla
FBI að margar ástæður geti ver-
ið þess að fólk hverfi sporlaust,
erfitt sé að leiða líkum að því
hvað gæti hafa gerst í þessu til-
felli. Fjölskylda Don vonist að
sjálfsögðu eftir jákvæðri út-
komu úr rannsókninni og sá
möguleiki sé vissulega fyrir
hendi, þótt á þessari stundu geti
enginn séð það fyrir. ■
IlögreglufréttirI
LEITAÐ f
TENNESSEE
Don C. Wiley er enn
saknað
Fiskflutningabíll valt í Kirkju-
bólshlíð, rétt fyrir ofan flug-
völlinn á ísafirði, um hálfsexleyt-
ið í gæi'. Að sögn lögreglunnar á
ísafirði var mikil hálka á vegin-
um. Bíllinn var skilinn eftir á
hliðinn þar til aðstæður leyfa að
hann verði sóttur, en ökumaður-
inn slapp með skrekkinn.
VIÐSKIPTI
SR mjöl tapaði 133 milljónum
króna fyrstu níu mánuði árs-
ins. Hagnaður af reglulegri
starfsemi fyrir fjármagnsliði
nam 431 milljónum en á sama
tímabili í fyrra var tap 229
milljónir.. Tap af reglulegri
starfsemi eftir fjái’magnsliði
nam 75 milljónum en var á
sama tíma í fyrra 477 milljón
króna. Stærsti hlutinn tapsins
er vegna veikingar krónunnar.
T Jerðbréfaþing íslands var
V rekið með ríflega 14 millj-
óna hagnaði fyrstu níu mánuði
ársins, en hagnaður fyrir allt
árið í fyi'>'a var rúmar 19 millj-
ónir. í frétt frá þinginu kemur
fram að markvisst hafi verið
unnið að því að skerpa eftirlits-
starfsemi þingsins þannig að
þingið geti brugðist hraðar við
en áður.
Lí n'JUWJ'á'«r d .*’i i'.l'i',
i b a ÁV-A't’ ** b* tf V Sfb' af tl
á tíiLÁdJÍ áJá » i i'A jjjk'-ili 1*i.i ll 11 '-i'i/.Wl' Ju-lé'áijg JÍÁ'jéiéXi'jt