Fréttablaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUPACUR 27. nóvember 2001 FRÉTTABLAÐtÐ 15 Enska knattspyrnan: Verkfallinu frestað fótbolti Ekkert verður af fyrirhug- uðu verkfalli atvinnuknattspyrnu- manna á Englandi sem hefjast átti 1. desember. Forráðamenn sam- taka atvinnuleikmanna, PFA, og ensku úrvalsdeildarinnar áttu fund fyrir helgi og komust að „já- kvæðri niðurstöðu", líkt og þeir orðuðu það en ekki er enn vitað hvað samið var um. Leikmenn ensku deildanna ætl- uðu í verkfall þar sem þeir töldu sig ekki fá nægar tekjur af sjón- varpsútsendingum og ef af verk- fallinu hefði orðið hefðu engar út- sendingar verið af leikjum. „Það lítur út fyrir að báðir aðil- ar gangi sáttir af fundinum,“ sagði Gordon Taylor, framkvæmdastjóri samtaka leikmanna. „Við höfum átt langa og stranga fundi til að reyna fá botn í málið. Þetta er alvarlegt mál. Mikil vinna hefur farið í þetta hjá okkur og við þurftum að sýna knattspyrnusam- tökunum að okkur var alvara." Á heimasíðu PFA var sagt að samkomulag hefði náðst en Ric- hard Scudamore, framkvæmda- stjóri úrvalsdeildarinnar, sagði að enn ætti eftir að ganga frá lausum hnútum. ■ ENCAR ÚTSENDINCAR Ef af verkfalli atvinnuleikmanna hefði orðið hefði ekki verið sýnt frá leikjum úr deildinni. Herman Maier: Tekur ekki þátt á Olympíuleikunum skíði Austurríski skíðakappinn Herman Maier tilkynnti um helg- ina að hann mun ekki taka þátt á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City í febrúar. Maier er í end- urhæfingu eftir mótorhjólaslys í ágúst og fór í læknismeðferð til Dubai um helgina. Það þurfti að negia löppina á honum saman með titaníumnöglum eftir slysið. Maier, sem ber viðurnefnið Herminator, vonaðist til að geta tekið þátt í leikunum og hefur æft stíft undanfarna mánuði. Hann vann tvö gull í Nagano 1998 en hef- ur einnig unnið Heimsbikar- skeppnina þrisvar sinnum og Heimsmeistarakeppnina tvisvar sinnum. ■ Gheorghe Hagi: Hættur með landsliðið fótbolti Gheorghe Hagi sagði upp starfi sínu sem landsliðs- þjálfari Rúmeníu í gær þar sem liðinu tókst ekki að komast í lokakeppni HM 2002. Rúmenar töpuðu fyrir Slóvenum í leik um laust sæti og er þetta í fyrsta sinn síðan 1986 sem liðið er ekki með á HM. Hagi, sem er þekkt- asti knattspyrnumaður Rúmeníu fyrr og síðar, sagðist bera fulla ábyrgð á árangri liðsins en sagð- ist vera tilbúinn að starfa áfram við að byggja upp liðið. í viðtali við rúmenska ríkisútvarpið sagð- ist Hagi hafa rætt við Mircea Sandau, forseta knattspyrnu- sambandsins, og sagt upp störf- um. GHEORGHE HAGI • Þekktasti knattspyrnumaður Rúmeníu er haettur með landsliðið. Hann lék meðal annars með Barcelona og Galatasary „Ég ræddi við Sandau í morg- un [í gær] og ég tel að þetta sér rétt ákvörðun." ■ Heimsbikarinn í svigi: Nýtt met hjá sigurvegaranum skíði Ivica Kostelic kom öllum í opna skjöldu með sigri í svigi á Heimsbikarmótinu í Aspen í Colorado á sunnudaginn. Hann er bróðir Janica Kostelic, sem er nú- verandi Heimsbikarmeistari kven- na. Ivica, sem er 22 ára og hefur átt við hnémeiðsl að stríða síðast- liðin ár, var í 64. rásstað í fyrstu umferð. Hann endaði í sjöunda sæti eftir hana og var síðan fljót- astur í annarri umferð. Þetta er síðasta rásstaða sigurvegara í svigi Heimsbikarsins og þriðja síð- asta í öllum greinum keppninnar. „Þetta er eins og í draumi. Mér finnst eins og keppnin sé á morg- un,“ sagði Kostelic eftir sigurinn. Besti árangur hans til þessa er 21. sæti. ítalinn Giorgio Rocca var í öðru sæti og núverandi Heimsbikarmeistari karla, Austurríkismað- urinn Mario Matt, var í þriðja sæti. Alls tóku 75 > keppend- ur þátt. Þetta er eina Heimsbikar- skeppnin, sem haldin verður í Bandaríkjunum í ár, en milt veður hefur sett strik í reikning skíða- svæða. ■ %k SfÐASTA RÁSSTAÐAN Ivica Kostelic byrjaði í 64. rásstöðu og vann keppnina. George Foreman illa við Mike Tyson: Hefur ekki gert neitt fyrir hnefaleikana HNEFALEIKAR George Foreman, fyrrum heimsmeistari í þunga- vigt, hefur ekki mikið álit á óhemjunni Mike Tyson og segir hann ekki hafa gert neitt fyrir hnefaleikana. Hann hvetur Lennox Lewis til að hætta við að slást við Tyson og gengur jafnvel svo langt að segja að Lewis þurfi ekki á honum að halda. Talið er að Lewis og Tyson muni mætast í hringnum þann 6. apríl á næsta ári en Foreman segir að sá fyrrnefndi rnuni fara með auð- veldan sigur af hólmi. „Ég vona að Lewis berjist ekki við Tyson. Hann þarf ekki að sanna neitt fyrir honum,“ var GEORGE FOREMAN „Það eina sem Tyson getur gert á móti Lewis er að láta berja sig i nokkrar lotur..." haft eftir Foreman. „Það eina sem Tyson getur gert á móti Lewis er að láta berja sig í nokkrar lotur en síðan fer hann að kasta stólum eða bíta einhvern. Þá er hætt við að Lewis missi stjórn á sér.“ Foreman segist ekki dæma fólk eftir sögu- sögnum en hann hefur séð Tyson slást. „Ég hef séð hann slá eftir að bjallan hringir, bíta fólk og allt það. Þetta er það sem ég hef séð og mér líkar það ekki. „Mike Tyson hefur ekki gert neitt fyrir hnefaleikana en aftur á móti hefur íþróttin gert mikið fyrir hann. Hann hefur þénað fullt af peningum en leggur eins lítið á sig og mögulegt er.“ ■ Þú gætir unnið vöruúttekt fyrir 10.000 krónur! jcrfnleikur rrikortsins Nánari upplýsingar á www.frikort.is IRON MiKE TYSON Er einn umdeildasti hnefaleikakappi fyrr og síðar. Hann sigraði Danann Brian Nielsen þeg- ar þeir mættust í hringnum í Kaupmannahöfn fyrr á árinu. Þú safnar hjá okkur... pingmenn! Sjálfsvirðing þings og þjóðar veltur á ykkur Hundruó manna meó fötlun og fgölskyldur þeirra, sem búa vió afar erfið lífsskilyrði, eru á biðlistum eftir lögbundinni þjónustu. Nái fyrirliggjandi ijárlagafrumvarp fram að ganga lengjast þeir biölistar og aLLar áætLanir stjórnvalda um lausn mála þar með að engu gerðar. Standið vörð um gerðar áætlanir svo lífsgrundvöllur fóLksins verði öryggi í staó óvissu. Við styðjum mannréttindabaráttu fatlaðra. Bandalag háskólamanna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.