Fréttablaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
27. nóvember 2001 ÞRIÐJUDAGUR
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra:
Viðskipti Búnaðar-
bankans enn í rannsókn
Kafbáturinn Kúrsk:
2 líktil
viðbótar
fundin
MOSKVA.ftP Rannsóknarmenn fjar-
lægðu í gær tvö lík til viðbótar úr
flaki rússneska kjarnorkukafbát-
arins Kúrsk, sem sökk í Barents-
hafi þann 12. ágúst á síðasta ári
með 118 menn um borð. Alls hefur
því tekist að ná í 72 lík úr flakinu.
Rússneskir ráðamenn segja að
tundurdufl hafi valdið sprenging-
unni sem varð um borð í skipinu,
en þeir vita hins vegar ekki fyrir
víst hvers vegna það sprakk. ■
lögreglurannsókn Fjármálaeftir-
litið sendi Ríkislögreglustjóra
beiðni í janúar á þessu ári um nán-
ari rannsókn á viðskiptum Búnað-
arbankans með hlutabréf í
Pharmaco vorið 1999 til ársins
2000. Eftir ítarlega rannsókn
Fjármálaeftirlitsins var talið að
bankinn hefði brotið lög um verð-
bréfaviðskipti þar sem hann bjó
yfir trúnaðarupplýsingum um
Pharmaco sem hann notaði til að
hagnast á viðskiptunum.
Jón H. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra, segir málið enn til
meðferðar hjá embættinu. Ekki
hafi verið tekin ákvörðun um
ákæru og hann vissi ekki hvenær
áætlað væri að rannsókn málsins
lyki.
Pharmaco var í viðskiptum við
Búnaðarbankann á þessum tíma.
Tekin hafði verið ákvörðun um að
lána félaginu fyrir kaupum á
lyfjafyrirtæki í Búlgaríu, Balkan
Pharma. Eftir þessa ákvörðun
seldi Búnaðarbankinn hlutabréfa-
sjóði í hans eigu bréf í félaginu.
í fréttatilkynningu frá Búnað-
BÚNAÐARBANKINN
Viðskipti bankans með bréf Pharmaco eru
enn til rannsóknar.
arbankanum á sínum tíma kom
fram að innri endurskoðun bank-
ans hefði leitt í ljós að engar regl-
ur hafi verið brotnar. ■
21 milljóna tap LI:
Dýrar deilur [
stjómar
uppgiör Lyfjaverslun íslands tap-
aði 21 millj kr. fyrstu 9 mánuði árs-
ins samanborið við 33 millj hagnað
fyrir sama tímabil í fyrra. Hagnað-
ur fyrir afskriftir og fjármagnsliði
var 186 milljónir. Velta félagsins
hefur þrefaldast og er skýringin að
mestu sú að ný dótturfélög eru
hluti uppgjörsins. Þetta eru félögin
A. Karlsson, Thorarensen Lyf hf.,
Lyfjadreifing ehf. og J.S. Helgason
ehf. Afskriftir aukast verulega af
sömu sökum. Fram kemur frá fé-
laginu að deilur um kaup í Frum-
afli fyrr á árinu höfðu kostnað í för
með sér fyrir félagið. ■
NAUTNIN ER STERK
Níu af hverjum tíu sem hætta að reykja án
hjálparmeðala byrja aftur innan árs. Nýtt
bóluefni sem saenskir vísindamenn eru að
þróa getur losað þá sem það vilja við
nikótínfíkn.
Bóluefni gegn
nikótínfíkn:
Hætt að
reykja með
sprautu
svíþjóð Vísindamenn við Kar-
ólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi
eru komnir vel á veg með að þróa
bóluefni gegn nikótínfíkn. „Við
stefnum að því að prófa bóluefnið
á mönnum næsta haust,“ segir
Karl Olof Fagerström einn vís-
indamannanna í viðtali við Afton-
bladet.
Níu af hverjum tíu þeirra sem
hætta að reykja byrja aftur innan
árs. En hjálpin er nærri. Bóluefn-
ið kemur í veg fyrir að nikótín nái
til heilans. „Fyrir reykingamann
að fá sér sígarettu eftir bólusetn-
ingu verður eins og að drekka
koffínlaust kaffi fyrir koffínista
eða alkóhólfrían bjór fyrir þá sem
ánetjaðir eru vínanda," segir Karl
Olof.
Tilraunir á dýrum hafa gefið
góða raun og sýna að bóluefnið
virkar gegn fíkninni. „Nikótínist-
inn fær ekkert kikk, þannig að
maður getur fengið sér sígarettu,
en það veitir enga ánægju." Karl
Olof segir langan veg frá tilraun-
unum, þar til bóluefnið kemur á
markað, en reiknar með því að
það geti orðið eftir þrjú til fjögur
ár hið fyrsta. ■
—
Sjóðsstjóri Kaupþings:
Gæslu-
vardhaldi
lýkur í dag
LÖGREGLURANNSÓKN Gæsluvarð-
haldi yfir sjóðsstjóra Kaupþings,
sem grunaður er um að hafa brot-
ið lög um verðbréfaviðskipti, lýk-
ur klukkan fjögur í dag. Hann var
úrskurðaður í viku varðhald með-
an efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra rannsakaði málið.
„Það er ekki tímabært að velta
því fyrir sér,“ sagði Jón H.
Snorrason hjá ríkislögreglustjóra
aðspurður hvort farið yrði fram á
lengingu gæsluvarðhalds yfir
manninum. Óljóst væri hvað gert
yrði á þessari stundu og málið enn
í rannsókn. ■
Vestfjarðaskýrsla sögð vera
sérpöntun stjórnarformanns
Byggðastofnun segir einn milljarð króna og 300 störf tapast á Vestfjörðum vegna
kvótasetningar krókabáta. Stjórnarþingmaður segir sjónarhorn skýrslunnar of þröngt.
Ekki hefur verið staðfest hver átti frumkvæði að skýrslunni en hún sögð vera gerð
samkvæmt sérpöntun Kristins H. Gunnarssonar, stjórnarformanns.
stjórnmál Byggðastofnun hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
kvótasetning ufsa, steinbíts og
ýsu hjá krókabátum muni leiða til
þess að afli vestfirskra krókaafla-
marksbáta verði 6200 tonnum
minni á yfirstandandi fiskveiðiári
en því síðasta.
Stofnunin telur að
þetta leiði til þess
að samtals tapist
hátt í 300 störf á
Vestfjörðum og að
landshlutinn verði
af aflaverðmætum
upp á einn milljarð
króna.
Árni R. Árna-
son, alþingismað-
ur Sjálfstæðis-
flokks í Reykja-
neskjördæmi og
meðlimur sjávar-
útvegsnefndar
þingsins, segir það
einna merkilegast við skýrslu
Byggðastofnunar að hún skuli
hafa verið lögð fyrir sjávarút-
vegsnefnd sem fylgiskjal með
umsögn Byggðastofnunar um
lagafrumvarpið um breytingar á
kvótasetningunni án þess að fjalla
um frumvarpið eða áhrif þess.
„Þar fyrir utan koma áhrifin á
kvótasetningu krókabáta fram á
öllu landinu en ekki bara Vest-
fjörðum og Byggðastofnun er því
með allt of þröngt sjónarhorn á
málið. Stofnun af þessu tagi á að
leggja jafnt mat á málefni í öllum
landshlutum en síðan er það pólti-
tísk ákvörðun hvort á að gera eitt-
hvað fyrir einn landshluta fremur
en annan. Þá er skýrslan samin í
október en þá þegar var ljóst að
sjávarútvegsráðherra var með í
smíðum frumvarp til að draga úr
...♦—
Skýrsla
Byggðastofn-
unar sögð
lögð fyrir sjáv-
arútvegsnefnd
sem fylgiskjal
með umsögn
Byggðastofn-
unar um laga-
frumvarp án
þess að fjalla
um frum-
varpið.
KRISTINN H.
GUNNARSSON
Stjórnarformaður
Byggðastofnunar
er sagður hafa
sérpantað skýrslu
um áhrif kvóta-
setningar króka-
báta á kjördæmi
sítt á Vestfjörðum.
þessum áhrifum,'
Árni dregur
Byggðastofnun I
R.
ÁRNASON
Þingmaður Sjálf-
stæðisflokks á
Reykjanesi segir
óskynsamlegt að
upplýsa ekki hver
fyrirskipaði gerð
Vestfjarðaskýrslu
Byggðastofnunar.
segir Árni
ekki í efa að
afi metið áhrif
STEINBÍTSHROGN
Krókabátar gátu þar til í haust stundað frjálsar veiðar á ýsu, ufsa og steinbít en veiðar
þeirra á þessum tegundir hafa nú verið settar undir kvóta.
kvótasetningarinnar rétt miðað
við forsendur sem hún gaf sér en
segir mótvægisaðgerðir sjávarút-
vegsráðherra munu draga veru-
lega úr hinum neikvæðu áhrifum.
„Aflaheimildir krókabáta eru
auknar verulega, til dæmis er ver-
ið að rúmlega tvöfalda heimildirn-
ar í ýsu og svipað í steinbít sem
eru þeirra aðaltegundir fyrir utan
þorsk.“
Byggðastofnun hefur neitað að
gefa upp hver óskaði eftir gerð
skýrslunnar. Árni segir það bæði
sérkennilegt og óskynsamlegt.
„En mér er sagt að stjórn Byggða-
stofnunar hafi ekki beðið um
þessa skýrslu heldur aðeins
stjórnarformaðurinn,“ segir hann.
Hvorki stjórnarformaðurinn,
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður Framsóknarflokks á Vest-
fjörðum né Theódór Agnar
Bjarnason, forstjóri Byggðastofn-
unar, svöruðu skilaboðum í gær.
gar@frettabladíd.is
Verkafólk í Hafnarfirði:
Skattleysismörk
hækki í 90 þúsund
kjaramál Hafnfirskt verkafólk
telur sig þurfa auknar ráðstöfun-
artekjur í framhaldi af aukinni
verðbólgu og sífelldum verð-
hækkunum á vöru og þjónustu.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar
telur að raunhæf lagfæring á erf-
iðari fjárhagsstöðu láglaunafólks
sé að skattleysismörk verði
hækkuð úr rúmum 64 þúsund
krónum í 90 þúsund krónur. Síðan
verði skattleysismörkin láta fylg-
ja almennri launaþróun í landinu.
Sigurður T. Sigurðsson formaður
félagsins telur að forsætisráð-
herra geti varla verið svo veru-
leikafirrtur að halda að hann geti
blaðrað sig aðgerðalaust frá því
að laga skattalegt umhverfi al-
menns launafólks. Sérstaklega
þegar haft sé í huga að stjórnvöld
hafa lækkað skatta á hátekju-
fólki.
Formaður Hlífar segir félags-
menn kvarti mikið yfir því
hvernig efnahagsþróunin hefur
leitt til minnkandi kaupgetu í
buddum þeirra. Hann segir að
SIGURÐUR T.
SIGURÐSSON
Formaður Hlífar
I Hafnarfirði
segist hafa
tekið á móti
ómældum
skömmum.
þessar skammir séu einatt eyrna-
merktar stjórn félagsins vegna
þess að félagsmenn ná ekki eyr-
um ráðamanna.
Sigurður segist því hafa tekið
á móti ómældum skömmum fyrir
Davíð Oddsson upp á síðkastið og
það sé hlutverk sem honum líkar
ekki að vera í. ■
Sjúkraliðar:
Verkfalli
frestað
kjaramál Verkfalli sjúkraliða hjá
sveitarfélögum sem hófst á mið-
nætti aðfaranótt sl. mánudags var
frestað þegar samingar tókust á
milli Sjúki-aliðafélags íslands og
Launanefndar sveitarfélaga þá
síðar um nóttina. Samningurinn
var undirritaður með fyrirvara
um samþykki félagsmanna en
samningurinn verður borinn und-
ir atkvæða innan tveggja vikna og
mun gilda til nóvemberloka 2004.
Samningurinn er sagður taka mið
af þeim sem gerðir hafa verið að
undanförnu. ■