Fréttablaðið - 27.11.2001, Qupperneq 11
. I ( 7.}»(jT . í
G'G.\j\' ; ’J 'i "i
FRÉTTABLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. nóvember 2001
Fjölmiðlakönnun Gallu[7:
Fjölmiðlanotkun eykst
en áskrift dregst saman
fjölmiðlar Mikill lestur á Frétta-
blaðinu virðist fyrst og fremst
auka dagblaðalestur. Samdráttur í
lestri á DV og Morgunblaðinu er
tiltölulega lítill í samanbui’ði. Með-
allestur á hvert tölublað Morgun-
blaðsins mældist 60,3 prósent í
mars í vor en mælist nú 58,9%.
Meðallestur á hvert tölublað DV
mældist 35,1 prósent í mars í vor
en mælist nú 36,8%. Morgunblaðið
tapar því 1,4 prósentustigum en
DV bætir við sig 1,7 prósentustigi.
Mikill lestur Fréttablaðsins er því
viðbót við dagblaðalestur.
Áhrifin af innkomu Fréttablaðs-
ins má hins vegar glögglega sjá af
fjölda áskrifenda að Morgunblað-
inu. Þeir þátttakendur í könnun-
inni sem sögðust vera áskrifendur
að Morgunblaðinu - annað hvort
með fulla áskrift eða helgaráskrift
- voru 59,2 prósent. í mars í vor
voru áskrifendurnir 61,5 prósent.
Áskrifendum Morgunblaðsins úti á
landi hefur hins vegar fjölgað úr
40,8 prósentum í 44,5 prósent.
Samdrátturinn er hins vegar mikill
á höfuðborgarsvæði og Reykja-
nesi. Þar fækkar áskrifendum úr
71,3 prósentum í 66,2 prósent.
Áskrifendum fækkar mest í ald-
urshópunum 30 til 49 ára.
Sömu tilhneigingu má sjá í
áhorfi á sjónvarp og áskrift að Stöð
2. Ríkissjónvarpið bætir uppsafn-
Áskrift dregst sarraan
Mars '01 Okt. '01
Morgunblaðið
Landsbyggðin
Reykjavík + Reykjanes
Reykjanes
[Stöð 2
ÍSýn
61,5%
40,8%
71,3%
21,8%
28,0%
18,8%
50,70/o
30,50/o
59,20/o
44,50/o
66,2%
24,70/o
32,90/o
20,80/o
43,90/o
28,40/o
að áhorf sitt um 8 prósentustig,
Skjár 1 um 5 prósentustig, Popp
Tíví um 2 prósentustig og Sýn um
1 prósentustig. Stöð 2 missir hins
vegar 5 prósentustig af meðalá-
horfi sínu. Áskrifendum að Stöð 2
fækkar hins vegar mikið; eða úr
50,7 prósent heimila í 43,9 prósent
og áskrifendum Sýnar úr 30,5 pró-
sent í 28,4 prósent.
Tilkoma frímiðla á íslandi virð-
ist því hafa sömu áhrif og erlendis;
fjölmiðlanotkun eykst en áskrif-
endum að fjölmiðlum fækkar. ■
Styrk staða Fréttablaðsins
á höfuðborgarsvæðinu
Mest lesna blaðið hjá fólki á aldrinum 25 til 34 ára og milli fertugs og fimmtugs. Lestur á Morgunblaðinu
dregst saman og áskrifendum fækkar. Töluvert um að þátttakendur í könnuninni hafi fengið DV
og Morgunblaðið ókeypis meðan á henni stóð.
Lestur dagblaðanna virka daga á höfuðborgarsvæðinu
67,5%
25 til 80 ára
58,1%,
67,9%
62,8%
64,5% 64,2%,
60,6% 61,0%
27,8%
33,90/o
26,6%
62,8%
38,6%
1,6%
25 til 29 ára 30 til 34 ára 35 til 39 ára 40 til 49 ára 50 til 67 ára 68 til 80 ára
fjölmiðlar Fjölmiðlakönnun
Gallup, sem framkvæmd var í
október síðastliðnum, staðfestir
sterka stöðu Fréttablaðsins á
höfuðborgarsvæðinu.
Blaðið er mest
lesna blaðið virka
daga á svæðinu í
aldurshópunum 25
til 34 ára og 40 til
49 ára. Fréttablað-
ið og Morgunblað-
ið skiptast á eftir
aldurshópum að
vera mest lesnu
blöðin. DV er hins
vegar miklu
minna lesið.
Mánudagsblað
Fréttablaðsins er
mun meira lesið
en mánudagsblað DV. Af fólki á
aldrinum 12 til 80 ára sögðust
54,5 prósent lesa mánudagsblað
Fréttablaðsins en 35,6 prósent
DV. Fréttablaðið er mun
sterkara í öllum aldurshópum.
Ef þessi könnun er borin
saman við eldri kannanir kemur
í ljós að með tilkomu Frétta-
blaðsins hefur Morgunblaðið
gefið eftir bæði í lestri og
áskriftum.
í könnun sem gerð var í mars
í vor mældist meðallestur blaðs-
ins í Reykjavík og á Reykjanesi
69,2 prósent. Meðallesturinn
mælist nú í 65,3 prósentum.
Áskrift heimila að Morgunblað-
inu dregst einnig saman á þessu
svæði. 71,3 prósent heimila var
með áskrift að Morgunblaðinu í
vor en þau eru 66,2 prósent nú.
Við framkvæmd könnunar-
innar kom í ljós að 10 prósent
þátttakenda sagðist hafa fengið
DV ókeypis heim til sín meðan á
könnuninni stóð og 4 prósent
ókeypis Morgunblað.
Það má því gera ráð fyrir að
lestur á þessum blöðum sé of-
metinn um sem því nemur í
könnuninni. ■
MISSTERK STAÐA EFTIR ALDRI
Fréttablaðið og Morgunblaðið
skiptast á um að hafa forystu.
DV er alltaf minnst.
v.♦—-
Ef þessi könn-
un er borin
saman við
eldri kannanir
kemur í Ijós
að með til-
komu Frétta-
blaðsins hefur
Morgunblaðið
gefið eftir
bæði í lestri
og áskriftum.
----
Einkaframkvæmdasamningar í Hafnarfirði:
Sveitar stj órnarlög
ekki brotin
5VEITAR5TJÓRNARMÁL Hafnarfjarðar-
bær er í úrskurði Félagsmáíaráðu-
neytis ekki sagður hafa gerst brot-
legur við lög við meðhöndlun
einkaframkvæmdasamninga við
byggingu og rekstur leikskólanna
Álfasteins og Tjarnaráss og grunn-
skóla í Áslandi, að því er segir í til-
kynningu bæjaryfirvalda. Þá er
talið 700 milljón króna skuldatil-
færsla frá bæjarsjóði til nýstofn-
aðs fyrirtækis Vatnsveitu Hafnar-
fjarðar gefi ekki óeðlilega mynd af
fjárhagsstöðu bæjarsjóðs.
Úrskurðurinn kemur í kjölfar
spurninga sem Samfylkingin í
Hafnarfirði sendi ráðuneytinu til
úrlausnar þann 10. apríl síðastlið-
inn. Lúðvík Geirsson, sem leiðir
lista Samfylkingarinnar fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar næsta vor,
segir öfugmæli sem fram komi í
úrskurði ráðuneytisins vekja at-
hygli. „Nefndin kemst að þeirri
niðurstöðu að framsetning einka-
framkvæmdanna sem slík brjóti
ekki í bága við lögin eins og þau
eru í dag. í sömu skýrslu kemst
nefndin, engu að síður, að þeirri
niðurstöðu að full ástæðu sé til að
endurskoða þessa löggjöf með vís-
an til þeirra aðstæðna sem orðnar
eru uppi varðandi þessar einka-
framkvæmdir. M.ö.o. lagaramm-
inn tekur ekki á þessum vanda sem
við erum að benda á. Það þarf að
breyta og endurskoða lögin svo
hægt sé að gera ársreikningana
þannig úr garði að viðunandi sé,“
sagði hann og bætti við að Sam-
fylkingarfélagið í Hafnarfirði
myndi beita sér fyrir breytingum
á reikningskilaákvæðum stjórn-
sýslulaga.B
Alla daga við hendina!
Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819 Veffang: www.mulalundur.is
MÚLALUNDUR
Vinnustofa SÍBS
Borðalmanak Múlalundar er
lausnin fyrir jbó sem vilja hafa góða
yfirsýn yfir verkefni mánaðarins.
Þau fást í helstu ritfangaverslunum
landsins og söludeild Múlalundar.
Borðmottan undir almanakið
myndar ramma og gefur fínleikann.
Við hjá Múlalundi getum merkt
borðmottuna heiti fyrirtækis eða
nafni einstaklings.
íslenskt
já takk
RÖÐ OG R