Fréttablaðið - 27.11.2001, Side 12

Fréttablaðið - 27.11.2001, Side 12
FRÉTTABLAÐIÐ 27. nóvember 2001 ÞRIÐIUDACUR Kringlan er... ...með fjölmörgum Ofbeldi heldur áfram fyrir botni Miðjarðarhafs: Sjálfsmorðsárás á Gaza-svæðinu CAZA-svæðiNu.ap 22 ára gamall islamskur uppreisnarmaður sprengdi sjálfan sig upp skammt frá bækistöðvum ísraela á norð- urhluta Gaza-svæðisins í gær- morgun. Tveir ísraelskir landamæraverðir særðust lítil- lega í árásinni. Hamas-skæru- liðahreyfingin lýsti ábyrgð á verknaðinum á hendur sér. Tveir bandarískir samningafulltrúar komu til ísraels í gær til að ræða um að koma aftur á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. í dag munu þeir ræða við Ariel Sharon, for- sætisráðherra ísraels, og Shimon Peres, utanríkisráðherra lands- ins. Á morgun ætlar Yasser Ara- RIFFILSKOT Palestínskur maður hleypir af skoti úr riffli sínum eftir jarðarför 14 ára gamals Palestínu- manns sem skotinn var til bana af hersveitum (sraela. fat, leiðtogi Palestínumanna, að ir að hafa lokið ferð sinni um ræða við samningafulltrúana eft- arabaríkin. ■ GLÆSIHÓTEL í ÞÝSKALANDI Þarna ætla fulltrúar stríðsherranna frá Afganistan að setjast niður til að spjalla. Fundað um nýja stjórn í Afganistan í dag KriKq(csJ\ P fl R J £ M /n JII R T Rfl ! L (£ R www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200 Lægsta verð frá 27.995 kr. AHVERN ÞINN FINGUR Fulltrúar afganskra stríðsherra hittast í Þýskalandi. Bandaríkjamenn segja Qárstuðning bíða samkomulags um stjórn landsins. könincswinter. ap Fulltrúar Norðurbandalagsins og þriggja annarra þjóðar- —-+— brota í Afganistan hefja í dag við- ræður sín á milli um bráðabirgða- stjórn landsins. Viðræðurnar fara fram á gömlu hót- eli skammt frá Bonn í Þýska- landi. Bandaríkjamenn sögðu í gær að ekki kæmi til greina að Margir óttast að út geti brotist bar- dagar milli af- ganskra stríðs- höfðingja. —*— Afganistan fengi fjárstuðning til uppbyggingar landsins fyrr en stríðsherrar og ættarhöfðingjar væru búnir að koma sér saman um stjórn, sem nyti stuðnings sem flestra og væri viðurkennd af Bandaríkjunum. Bandaríska fréttastofan AP hafði þetta eftir bandarískum embættismanni, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Afgönsku leiðtogarnir sendu fulltrúa sína til Þýskalands í staðinn fyrir að mæta sjálfir, en Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist ekki hafa áhyggjur af því vegna þess að oft geti slíkt fyrirkomulag kom- ið að gagni til þess að ýta af stað raunverulegum samningavið- ræðum. Margir óttast að út geti brot- ist bardagar milli afganskra stríðshöfðingja, líkt og gerðist eftir að sovéska hernámsliðið var á bak og burt árið 1989. Bandaríski embættismaðurinn segir að þessi ótti geti jafnvel virkað hvetjandi á stríðsherrana um að mæta til viðræðnanna. ■ Ráðamaður í Vatikaninu: Fordæmir klónun mannsfósturs Michael D. West, forstjóri fyrirtækisins sem stendur að rannsóknunum, á rannsóknarstof- unni. Hann segir fyrirtækið hafa engan áhuga á að klóna mannverur. vatikanborc.ap Háttsettur maður í Vatikaninu hefur fordæmt þær fréttir sem borist hafa af fyrstu klónun mannsfósturs, sem bandarískir vísindamenn sögðust á sunnudag hafa framkvæmt. Sagði hann að jafnvel það mark- mið að lækna sjúkdóma með stofnfrumum réttlæti ekki þetta læknisfræðilega skref sem tekið hefur verið. „Bætt meðferðarúr- ræði eru af hinu góða. Samt sem áður er það aðferðin sem notuð er sem vekur upp spurningar," sagði Tarcisio Bertone, í viðtali á § ítalskri sjónvarpsstöð. „Ef hún I felur í sér framleiðslu og eyði- < leggingu mannlegra vera til þess að lækna aðrar mannverur þá helgar tilgangurinn ekki meðal- ið,“ bætti hann við. Girolamo Sirchia, heilbrigðisráðherra ítal- íu, fordæmdi klónunina einnig og sagði hana „glæp gegn mannkyn- inu.“ Bandarísku vísindamennirnir sem segjast hafa tekist að klóna fyrsta mannfóstrið hafa lagt áherslu á að þeir hafi engan áhuga á að klóna börn og að klón- unin feli ekki í sér sköpun ein- staklings, heldur sé einungis um frumulíf að ræða. Segjast þeir aðeins vilja nota þessa tækni til að rækta frumur til að koma fyr- ir í líkama fólks í stað skemmdra fruma og veita þannig meðferð- arúrræði gegn sjúkdómum. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.