Fréttablaðið - 27.11.2001, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
1lögreglufréttir|
Formaður fræðsluráðs:
Lögreglunni í Reykjavík var
tilkynnt um þrjú innbrot í
gærmorgun. Brotist hafði verið í
húsnæði Björgunarsveitarinnar
Landsbjörg við Stangarhyl og
þaðan stolið skjávarpa og mynd-
bandstæki. Þá voru unnar
skemmdir á bát sem var í við-
gerð í Daníelsslipp við Bakka-
stíg. Ekki var að sjá að neinu
hafi verið stolið en miklar
skemmdir voru unnar m.a. á
stjórntækjum £ stýrishúsi þ.á.m.
á tveimur GSP-staðsetningar-
tækjum. Rúða var brotin í úti-
hurð á spilasalnum Mónakó á
horni Rauðarárstígs og Lauga-
vegs. Hafði þjófurinn á brott
með sér skiptimynt að andvirði
um 40 þúsund krónur.
Fullmikið að taka svínakjöt
alfarið af matseðlinum
SKÓLASTARF „Það
hefur frekar ver-
ið talað um að
fólk sem hingað
flytur taki upp
okkar siði og
venjur. Austur-
bæjarskóli hefur
verið móðurskóli
í því að athuga
hvernig skóla-
starf geti farið
fram í fjölmenn-
ingarsamfélagi,"
SIGRÚN
Austurbæjarskóli
er í fararbroddi
að skipuleggja
skólastarf sitt
með Hliðsjón af
breyttu samfélagi.
segir Sigrún Magnúsdóttir, for-
maður Fræðsluráðs Reykjavík-
ur. Stjórnendur Austurbæjar-
skóla ákváðu að taka svínakjöt
af matseðli nemenda af tillit-
semi við þá sem ekki borða
svínakjöt vegna trúar sinnar.
„Ég skal ekkert segja um það
hvort Austurbæjarskóli sé að
ganga of langt. Mér finnst hægt
að taka ákveðið tillit til einstak-
linganna en það gæti verið full-
mikið að taka svínakjöt alfarið
af matseðlinum. Það væri hægt
að gefa út til þessara barna, eins
og til þeirra sem eru til dæmis
með ofnæmi fyrir ákveðnum
mat, sérstaka máltíð," segir Sig-
rún.
Sigrún leggur áherslu á að
stefnan sé að auka sjálfstæði
skóla til að stjórna sínum eigin
málum sjálfir. „Við skipum skól-
um ekki fyrir í svona einstökum
málum. Við viljum frekar hvetja
til þess að hver skóli hafi sína
sérstöðu sem allir þeir sem star-
fa í skólanum móti.“ ■
Ættu að bjóða kjúk-
ling á móti grísnum
Svínakjöt hefur verið tekið af matseðli Austurbæjarskóla í Reykjavík af tillitssemi við þá sem trú-
ar sinnar vegna mega ekki borða það. Fræðslustjórinn í Reykjavík segir fræðsluyfirvöld ekki
skipta sér af matseðli skólanna. Svínabændur eru hissa og finnst málið skrítið.
menntaiviál Gerður G. Óskarsdóttir,
fræðslustjóri Reykjavíkur, segist
ekki enn hafa kynnt sér ástæður
þess að forsvarsmenn Austurbæj-
arskóla í Reykjavík hafa ákveðið af
fjarlægja svínakjöt af matseðli
nemenda. „Mér finnst skólinn ráða
sínum matseðli og vona að þetta
hafi verið gert í samráði við for-
eldraráð skólans, en þegar við höf-
um börn í skólanum sem ekki mega
borða svínakjöt verðum við annað
hvort að fara þessa leið eða bjóða
upp á sérstakan mat handa þeim,
þegar aðrir fá svínakjöt,“ sagði hún
og taldi ólíklegt að mikill auka
kostnaður fylgdi síðari kostinum.
„Þetta er jú allt matreitt á staðnum.
Annars finnst mér ágætt hjá skóla-
stjóra Austurbæjarskóla að taka til-
lit til fólks sem ekki má borða
svínakjöt." Gerður sagði að einnig
þyrfti að taka tillit til margra ann-
arra hluta þegar kemur að mat
handa nemendum og nefndi fæðuó-
þol og ofnæmi
hvers konar. „Það
er líka ein rök-
semdin fyrir því að
elda matinn í skól-
anum í stað þess að
kaupa hann að.“
Gerður sagði ekki
ólíklegt að aðgerð-
ir á borð við þessar
gætu valdið nokk-
urri óánægju með-
al framleiðenda
svínakjöts hér á
landi yrðu þær
teknar upp í fleiri
GERÐUR
Gerður segir mat
eldaðan í skólun-
um m.a. til að
frekar sé hægt að
bregðast við sér-
þörfum nemenda
vegna fæðuóþols.
skólum. Þá átti hún ekki von á að
teknar yrðu upp samræmdar regl-
ur um matarmál skólanna. „Við höf-
um ekki skipt okkur af matseðlin-
um í skólum og finnst ólíklegt að
við gerum það.“ Kristinn Gylfi
Jónsson, formaður Svínaræktarfé-
lags íslands, segist vera hissa á að
svínakjöt skuli hafa verið tekið af
SVÍN
Trúaðir gyðingar og múslimar borða ekki svínakjöt og nota ekki vörur unnar úr því. Til að fyrir-
byggja vandkvæði af þeim sökum hefur Austurbæjarskóli hætt að bjóða nemendum svínakjöt.
matseðli nemenda Austurbæjar-
skóla. „Ég ætla nú ekki að fara að
blanda mér í einhver trúarbragða-
mál, en má ekki vera einhver fjöl-
breytni í mataræðinu þar þannig að
nemendur skólans geti fengið
svínakjöt og þeim sem ekki vilja
það verði boðið upp á eitthvað ann-
að. Mér finnst að bregðast ætti við
fjölmenningarlegu samfélagi, með
öðrum hætti en þessum og hafa þá
alvöru fjölbreytni og bjóða upp á
kjúkling á móti grísnum."
oli@frettabladid.is
LÖGREGLUFRÉTTIRf
Lögreglan í Hafnarfirði fékk til-
kynningar um sjö umferðaró-
höpp um helgina og í einu tilvik-
anna var ökumaður grunaður um
ölvun við akstur. Engin meiðsl
urðu á fólki í þessum óhöppum. Þá
voru tíu ökumenn stöðvaðir vegna
hraðaksturs. Tvö innbrot voru
framið í Hafnarfirði um helgina, í
bílapartasölu og í veitingahús.
Lægsta verð
frá 1*990 kr.
þú safnar frípunktum /
> og getur líka unnið
utanlandferð.
Tveir aukavinningar
dregnir út vikulega.
hagkaup Þú safnar hjá okkur...
Kannabis ræktað í iðnað-
arhúsi í Hafnarfirði:
Fundu um
600 kannabis-
plöntur
lögreglumál Tveir menn, á fertugs-
og fimmtugsaldri, voru handteknir
á laugardagskvöld í tengslum við
stórfellda fíkniefnaframleiðslu. í
kjölfar handtökunnar var gerð hús-
leit í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði
þar sem lagt var hald á á sjötta
hundrað kanabisplöntur. í húsnæð-
inu hafði verið komið upp aðstöðu
til fíkniefnaræktar með tilheyrandi
búnaði. Gísli Þorsteinsson, lög-
reglufulltrúi í Hafnarfirði, sagði
margra mánaða vinnu liggja að
baki handtökunnar en byrjað var að
fylgjast með mönnunum í júlí á
þessu ári. Hafi á laugardag verið
búið að safna saman nógu miklum
gögnum til að láta til skara skríða.
Mennirnir höfðu tekið á leigu
iðnaðarhúsnæði undir starfsemi
sína undir öðru yfirskini en raun
varð á. Gísli sagði mikinn tækja-
búnað hafa verið í kringum fram-
leiðsluna. Hann segir búnaðinn
hafa verið til þess fallinn að geta
fullunnið plönturnar tilbúnar til
neytenda. Gísli sagði þetta mál ekki
einsdæmi, ræktunarmál hefðu áður
komið við sögu, en það sem gerði
það einstakt væri hið óvenjulega
mikla magn. Hann segir rannsókn
málsins halda áfram og mikla vinnu
liggja framundan. ■
Maltesers Large
175 gr
Nýtt rfffl
Lákerol Black,
Lakkrís og Salvi
Áður 85,-
Toblerone
50 gr
Nýtt
Kaffi Gevalia
250 gr
Áður 195,-
únptu goðu ve
Tilboð
Búðu hílinn fyrir veturinn
Silikon Stift, Áður 298,-
Lásaolía, Áður 250,-
■MiKS WD-40. Áður 335,-
TUboðin gilda í Uppgrips verslunum Olís um allt land