Fréttablaðið - 27.11.2001, Síða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
27. nóvember 2001 ÞKIÐJUDAGUR
HÁSKÓLABÍÓ
HACATORCI. SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 6, 8 og 10
[mAvahlatúr kl. 5.45 og 81 Sýnd kl. 8 og 10.45
[GÆSAPARTÍ kl.8oglo| [MÁLARINN kl. 5.45 {
[ellíng kL8.8oglot |the others kl. 5.45 og 10.1S I
[CORKY ROMANO kL 4,6,8 og 10 [ pftlí [ AMERICAN PIE 2 kL8ogiaio|[YSÍ
|the others kL8ogiai5t[Y,T| ÍRUGART5IN RARiS m/ ísL tali kulRst
SKÓLALlF m/isLtal kL 345 og 55o] [f^j jSHREK m/ísLtali E30
BRESKI LISTINN
SWING WHEN YOLTRE WINNING Robbie Williams
€1 WORLD OF OUR OWN Westlife ¥
0 DREAMS CAN come true . Gabrielle ►
GOLD - THE GREATEST HITS Steps ►
1o ll o 1 0 ¥
£}. THEY DON'T KNOW ** So Solid Crew m
0 WHATEVER GETS YOU... Lighthouse Family m
0 THEIR GREATEST HITS Bee Gees ¥
0 ENCORE RusseJLWatsím... ►
0 THE STORY SO FAR .RQd.Stewart..... ¥
ROBBIE SINATRA
Swing When You're Winning virðist hafa
hitt í mark.
Breski listinn:
Róbert
á toppinn
tónlist Það komu út margar plötur
í Bretlandi í síðustu viku og nokkr-
ar þeirra rötuðu á topp breska list-
ans. Þar ber helstan að nefna
glaumgosann Robbie Williams,
sem ratar beint í fyrsta sæti með
plötuna Swing When You’re Winn-
ing. Lighthouse Family og So Solid
Crew, sem einnig gáfu út plötur í
vikunni, höfðu ekki roð við Robbie.
Á Swing When You’re Winning
bregður Robbie sér í hlutverk
svipuðu Frank Sinatra, tekur mörg
af hans gömlu lögum og önnur í
stórsveitarstíl. M.a. má finna á
plötunni lagið um Makka hníf úr
Túskildinsóperunni, sem Nem-
endaleikhúsið sýndi nýlega. Dúett
hans og Nicole Kidman hefur vak-
ið mikla athygli en einnig koma
Jon Lovitz, Jane Horrocks, Rupert
Everett og sjálfur Frank Sinatra
fram á plötunni. Þess má geta að
síðasta plata söngvarans hét Sing
When You’re Winning. ■
Mikið úrvai ...
TURBO
Veggháfar
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kvikmyndin um Harry Potter
heldur áfram að slá met.
Núna sló hún fyrrum met Toy
Story 2, sem
tekjuhæsta mynd
þakkargjörðarhá-
tíðarinnar í
Bandaríkjunum
frá upphafi.
Myndin hefur nú
þegar halað inn
188 milljónir
dollara á aðeins
10 dögum, en það er t.d. meira
en Gladiator náði í kassann í
heild. Potter á því séns að verða
fljótasta mynd kvikmyndasög-
unnar til þess að ná upp í 200
milljón dollara markið, það met
er nú í höndunum á Star Wars:
Episode 1 og býður þess að
verða slegið af galdramanninum
unga.
Og meira um Stjörnustríð, því
fyrsta myndin sem gerð var,
Star Wars: A new hope lenti
ásamt framhaldsmyndinni The
Empire Strikes Back í efsta sæti
í skoðannakönnun Channel 4
yfir bestu myndir allra tíma. í
öðru sætu voru fyrstu tvær
Godfather myndirnar.
Bandaríska söngkonan Mel-
anie Thornton var á meðal
þeirra sem lést í flugslysinu í
Zurich Swiss á
sunnudag. Það
hlýtur að teljast
kaldhæðnislegt
að Thornton var
að kynna nýja
A plötu sem heitir
s „Ready to fly“ og
átti að koma út í
gær. Thornton
átti mestri velgengni að fagna í
Þýskalandi, en þangað flutti hún
árið ‘92 með aðeins 15 dollara í
vasanum.
Fred Durst, höfuðpaur Limp
Bizkit, segist vilja að kven-
maður fylli upp í það skarð sem
gítarleikarinn
Wez Borlan skyl-
di eftir sig. Hann
segist einnig
hafa vitað af því
að Borlan ætlaði
að segja skilið
við sveitina.
BRAGI ÓLAFSSON
Segíst hlusta meira á tónlist í dag eftir að hann lagði bassann á hilluna.
I felum undir rúmi
I dag plokkar hinn uppleysti Sykurmoli, Bragi Olafsson, aðra strengi
en þá sem gefa bassanum tón. Eins og bassaleikari lætur Bragi lítið á
sér bera, og því er það við hæfi að aðalpersónan í annarri bók hans,
Gæludýrunum, heldur sig undir rúmi nánast alla söguna.
bókmenntir Ástæða þess að Emil,
aðalpersóna Gæludýranna, felur
sig undir rúminu heima hjá sér
er sú að upp á bankar maður sem
hann vill síður hitta. „Upphaf-
lega felur hann sig undir rúminu
fyrir þessum manni, Hávarði.
Hann býst náttúrulega ekkert við
því að gesturinn staldri lengi við
en svo fara hlutir að gerast, eins
og sagt er. Það verður alltaf erf-
iðara og erfiðara að koma fram,
eiginlega alveg ómögulegt. Upp-
haflega átti sagan að segja frá
þessum tveimur náungum, þar
sem þeir voru að gæta nokkurra
gæludýra í London en fyrir
nokkrum mánuðum bættist við
annað element, augnablikshug-
mynd sem ég fékk allt í einu og
þar með varð gæludýrahlutinn
partur af fortíð sögunnar."
Eins og í fyrri bók Braga,
Hvíldardögum, á aðalpersónan
erfitt með að takast á við líf sitt.
„Þegar ég virði fyrir mér fólk al-
mennt, sé ég stundum alveg
hvað það á erfitt með að taka á
sínum málum. Bæði að taka
skynsamlegar ákvarðanir eða ná
stjórn á sínu lífi. Þetta á ekki ein-
göngu við um yngri kynslóðirnar
þótt það sé e.t.v. erfiðara fyrir
þær að ráða fram úr hinni
hversdagslegu ráðgátu, vegna
þess að á þeim standa svo mörg
spjót."
Bragi sagði einu sinni í viðtali
á Sykurmolaárunum að hann
skildi vel ef fólk væri tregt til að
taka hann alvarlega sem skáld,
hann myndi t.d. eflaust ekki gefa
ljóðum bassaleikarans í Sálinni
mikinn gaum. í dag á fólk líkleg-
ast auðveldara með að taka hann
alvarlega sem rithöfund en
bassaleikara. „Ég hef ekki snert
bassann síðan Sykurmolarnir
hættu árið ‘92. Ég hef ekki getu
til þess að spila það sem mig
langar til að spila. Ég þyrfti að
læra nótur til þess, og ég treysti
mér ekki til þess. Ég hef meiri
áhuga að skrifa og mér finnst
hitt bara trufla. Molarnir áttu að
verða stuttlífur brandari en þró-
uðust út í 6 ára samstarf og ég
gat ekki mikið einbeitt mér að
því að skrifa þá. Mér finnst voða-
lega skrýtið þegar einhver popp-
ari eða pípulagningarmaður fer
að skrifa skáldsögu. Maður þarf
aðeis að hugsa sig um áður en
maður kynnir sér það,“ segir
Bragi brosmildur að lokum.
biggi@frettabladid.is
NABBI
SIÖMfVSIOMB
f smpi STOMpr stomp'
/rönix
Hátúni 6a S 552 4420