Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.12.2001, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 06.12.2001, Qupperneq 6
6 FRÉTTABLAÐIÐ 6. desember 2001 FIMMTUDAGUR SPURNING DAGSINS Mannvernd: Árás á friðhelgi einkalífsins Bakarðu laufabrauð? Nei, það hvarflar ekki að mér að innleiða utanbæjarsíði því ég er borgarbúi í húð og hár. Þetta er norðlenskur siður en ég er Reykvíkingur langt aftur í ættir. Inga Bjarnason Clever persónuvernp „Áttunda grein frumvarpsins veitir stjórnvaldi aðgang að sjúkraskrám og gefur leyfi til að opna þær og lesa,“ seg- ir Pétur Hauksson, formaður Mannverndar, um frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi. Það heim- ilar starfsfólki Tryggingastofnun- ar ríkisins að komast í persónu- upplýsingar fólks í sjúkraskrám. Hann segir þennan óhefta aðgang að viðkvæmum persónuupplýs- ingum enn eitt atriðið sem skerðir persónuvernd einstaklingsins og sé árás á fríðhelgi einkalífsins. Mannvernd hefur af þessum sökum sent erindi til þeirrar deildar Evrópusambandsins (ESB) sem sér um gagnavernd og beðið um athugun á því hvort ís- lensk stjórnvöld fari eftir tilskip- un ESB. „Þetta er skrifstofa sem fylgist með hvort lönd á Evrópska efnahagssvæðinu, þar með talið ísland, fari eftir tilskipun ESB um FLEIRI FÁ AÐGANG AÐ SJÚKRASKRÁM Starfsfólk Trygginga- stofnunar á, sam- kvæmt frumvarpi heil- brígðisráðherra, að vera heimilt að nálgast upplýsingar i sjúkra- skrám. persónuvernd frá 1995,“ segir Pétur. Hann segir að þó þetta virðist ekki vera stórt í sjálfu sér þá sé þetta sama stefið og heyrðist þeg- ar gagnagrunnslögin voru sam- þykkt, lífsýnabankanum var kom- ið upp og lögin um persónuvernd tóku gildi. Með lögum um lífsýna- bankann hefði hið merkingar- lausa hugtak „ætlað samþykki“ verið lögleitt og í persónuvernd- arlögunum væri heimild til að veita undanþágu frá samþykkti einstaklingsins sem hægt væri að túlka mjög vítt. „Tilskipun Evrópusambands- ins gerir ráð fyrir að ef undanþág- ur eru gefnar frá samþykki hins skráða þá þarf að sýna fram á brýna almannahagsmuni.“ Pétur segir að reynt hafi verið að gera lítið úr þessari gagnrýni með því að segja að það séu lækn- ar Tryggingastofnunar sem hafi bara þennan aðgang. „Læknar sem vinna fyrir yfirvöld þeir eru líka stjórnvald og ekki læknir sjúklingsins. Þeir eru að vernda aðra hagsmuni en hagsmuni sjúk- lingins og vinna ekki fyrir hann. Þetta finnst mér vera að kasta ryki í augu fólks.“ bjorgvin@frettabladid.is Ibúðalánasjóður: Húsbréfalán aukast ennþá húsnæðiskaup Samkvæmt bráða- birgðatölum íbúðalánasjóðs, fyrir útlán í nóvember mánuði, hefur sjóðurinn lánað fyrir tæpan millj- arð meira í ár miðað við sama mánuð í fyrra. Útgefin húsbréf námu 3.5 milljörðum króna í ár. Þessi niðurstaða kom aðilum, sem Fréttablaðið ræddi við, nokk- uð á óvart. Vegna frétta af sam- drætti var búist við að lántaka til íbúðakaupa myndi dragast saman. Spurningin sem eftir stendur er hvort lántakendur nú séu verr í stakk búnir til að greiða skuldir sínar þegar kemur að skuldadög- um. GUÐMUNDUR BJARNASON FORSTJÓRI ÍBÚÐALÁNA- SJÓÐS Útlán sjóðsins hafa aukist um tæpan milljað á þessu ári ef miðað er við síðasta ár Samkvæmt fréttum íslands- banka var mikil aukning í lánum til nýbygginga en samdráttur í lánum til kaupa á notuðu húsnæði. Aukningin er mest til byggingar- aðila sem staðfestir vísbendingar um það, að fjármögnun sé að fær- ast yfir á byggingaraðila. ■ Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir70 verslanir og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna. Jóladagskráin í Vetrargarðinum í dag! 16:30 og 1730 Jólasaganiesin. 17:00og 18:00 JÓlaSVeínarskemmta. Ævintýraheimur barnanna í JÓlalandÍHU í allan dag. Veröldin okkar er full af lífi og fjöri i dag og það sama á við um göngugötuna, þar sem tónlistar- flutningur Magga Kjartans skapar rétta jólaandann. -RÍTTI JÓLAANDINH Verslanir opnar í dag milli klukkan 11:00 og 20:00 • www.smaralind.is RÁÐHÚSIÐ Svo virðist sem einhver skjálfti sé innan R-lista vegna framboðsmála fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Samfylkingin sögd ala á tortryggni í R-lista Ásökuð um að vilja ræða á ný aðferðafræði vegna röðun frambjóðenda þrátt fyrir samkomulag þar um. Samfylking segist ekki kannast við meintan ágreining. Niðurstaða ekki útilokuð fyrir áramót. framboðsmál Svo virðist sem pirr- ingur sé meðal Vinstri grænna og Framsóknarmanna út í Samfylk- inguna í borginni vegna meints seinagangs þeirra síðastnefndu við að ijúka vinnu vegna sameig- —4— inlegs framboðs þeirra við næstu borgarstjórnar- kosningar. Stað- hæft er að engin málefnaágreining- ur sé meðal þess- ara fylkinga eftir að samkomulag náðist um að brey- ta rekstrarformi Orkuveitunnar í sameignarfélag. Staðhæft er að engin mál- efnalegur ágreiningur sé til staðar í við- ræðum Vinstri grænna og Framsóknar við Samfylk- inguna. —♦— Hins vegar er Samfylkingin sökuð um að draga lappirnar með því að vilja ræða á ný aðferðafræðina vegna röðun frambjóðenda á framboðslistann. Innan Vinstri grænna er fullyrt að það komi ekki til greina að ræða það mál eitthvað frekar og látið að því lig- gja að með þessu sé Samfylkingin að eitra andrúmsloftið langt inn í næsta kjörtímabil með því að ala á tortryggni milli flokka. Stefán Jóhann Stefáns- son formaður Samfylking- arinnar í Reykjavík segist ekki kannast við þennan meinta ágreining. Hann segir að sameiginleg vinna þessara flokka sé í góðum gír og niðurstaðan í þessum viðræðum muni koma í ljós í „fyllingu tímans", eins og hann orðar það. Hann segir að það geti jafnvel orðið fyrir áramót án þess hann geti fullyrt eitthvað um það. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins mun það enn vefjast eitthvað fyrir Samfylkingunni hvernig hlutföllin verða á milli flokkanna á framboðslistanum og hvaða sæti koma í hlut hvers og eins. í því samkomulagi sem talið var að væri í höfn er gengið út frá því að forseti borgar- stjórnar komi í hlut Vinstri grænna og Fram- sóknarflokkurinn fái fyrs- ta sætið. Þetta hefur farið illa í suma Samfylkingar- menn sem telja að með þessu verði vegur þeirra ekki sem skyldi á listan- um þótt þeir fá þrjú örugg sæti að undanskildu átt- unda sætinu sem borgar- stjóri skipar. í hlut Vinstri grænna kæmu tvö örugg sæti og einnig hjá Fram- sókn. Staðhæft er að Samfylking- in vilji endurskoða þetta sam- komulag en hinir ekki. grh@frettabladid.is HANN STEF- ÁNSSON Segist ekki kann- ast við þennan meinta ágreining. Stórbrunar falla jafnan á TM: „Búið að vera með ólíkindum" tryggingámál Ekkert lát er á að tjón vegna stórbruna falli á 'IVyggingamiðstöðina. Frá því að skip Samherja, Ms. Hannover, brann á hafi úti í fyrravor hafa einnig brunatjón lsfélagsins í Vestmanneyjum, íslenskra mat- væla í Hafnarfirði, rækjuverk- smiðju Samherja á Akureyri og, nú síðast, Lýsishússins á Granda í Reykjavík bæst við tjónalista fé- lagsins. „Hin tjónin eru ekki sambæri- leg við Isfélagsbrunann í Vest- mannaeyjum, fjártjónið þar var á annan milljarð króna, en auðvitað hafa þetta verið stór áföll á und- anförnum misserum," segir Gunnar Felixson, forstjóri félags- ins, en tekur fram að tjónsfjár- hæðir séu að jafnaði ekki gefnar upp, ísfélagið hafi hinsvegar veitt sérstakt leyfi. Talið er að tjón GUNNAR felix- SON Fjöldi stórra bruna- tjóna á skömmum tíma sett strik I reikning Trygginga- miðstöðvarinnar. vegna íslenskra matvæla nemi á annað hundrað milljónum króna og Lýsishússins á Granda hlaupi á milljónatugum. „Já, það er óhætt að segja að óeðlilega mikið hafi verið um brunatjón hjá okkur undanfarin misseri. Þetta skýrir óvenjulegar sveiflur í rekstrarreikningi en kemur að öðru leyti ekki illa við okkur þar sem víð fáum mestan hluta til baka frá endurtryggjend- um. Þetta er nú samt búið að vera með ólíkindum mikið og við skul- um vona að nóg sé komið,“ segir Gunnar. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.