Fréttablaðið - 06.12.2001, Síða 7
FIMMTÚDAGUR 6. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Stúdentaráð Háskóla ís-
lands:
Lægri skattar á
erlendar bækur
ályktun Stjórn Stúdentaráðs Há-
skóla Islands hvetur stjórnvöld til
að lækka virðisaukaskatt á erlend-
um bókum en ályktun þess efnis
var samþykkt í gær. í ályktuninni
segir m.a.: „Há skattlagning er-
lendra kennslubóka kemur afar illa
niður á stúdentum. Um 90% af
kennslubókum við íslenska háskóla
eru erlendar að uppruna. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Bóksölu
stúdenta myndi bókakostnaður há-
skólastúdenta lækka um 25-30
milljónir króna ef virðisaukaskatt-
ur á erlendum bókum yrði lækkað-
ur í 14% eins og gildir um íslensk-
ar bækur og erlend tímarit." ■
ÞÓRÓLFUR
SVEINSSON
Formaður
Landssambands
kúabænda segir
unnið að þvi að
hálfu félagsins
að losa um
skuldbindingar
vegna innflutn-
ings NRF-fóstur-
visa frá Noregi.
ALLT SIEM ÞARF
Bjóðum nú enn betra vöruúrval í endurbættri tækjadeild okkar í Hallarmúla 2
Landssamband kúa-
bænda:
Hafa ekki rætt
við NRFÍ
landbúnaður „Fósturvísarnir eru
hluti af samningi við norska fyrir-
tækið GENO,“ sagði Þórólfur
Sveinsson, formaður Landssam-
bands Kúabænda og bætti við að á
næstu dögum myndi skýrast hvað
yrði um þá. „Hvort hægt er að
selja þá og með hvaða hætti við
getum losað okkur undan samn-
ingnum við þá.“ Þórólfur segir
engar viðræður enn hafa átt sér
stað við Nautgriparæktarfélag ís-
lands (NRFÍ) um fósturvísana og
taldi ekki sjálfgefið að félagið
keypti þá. „Eg á von á því að við
verðum löngu búnir að selja þessa
fósturvísa áður en þeir fá leyfi,“
sagði hann, en játti því samt að
hugsanlega vildi félagið kaupa
fósturvísana áður en leyfi væri
fengið til innflutnings þeirra.
Þórólfur segir unnið að frágangi
einangrunarstöðvarinnar í Hrís-
ey, en talsmenn Nautgriparæktar-
félags íslands hafa lýst áhuga á að
taka hana á leigu fyrir sinn inn-
flutning. „Ég sé ekki fyrir mér að
við munum semja við NRFÍ um
stöðina heldur við ríkið. Þeim
liggur í raun ekkert á að fara að
semja um stöðina fyrr en leyfi er
fengið." ■
ÓBYGGDANEFND
Nú hillir undir fyrstu úrskurði
Óbyggðanefndar, en endur-
upptöku mála í Árnessýslu er að
mestu lokið. Að sögn Sifjar Guð-
jónsdóttur, starfsmanns nefndar-
innar, þurfti að boða viðbótar-
fundi í þremur málum þar sem
ekki tókst að svara öllum spurn-
ingum við endurupptökuna. Þá
fer nefndin yfir þau mál þar sem
fram hafa komið nýjar upplýs-
ingar við endurupptökuna og er
fyrstu úrskurða að vænta í fram-
haldi af því.
Dahle 20100 pappírstætari
7-9 bls. í einu
25 lítra geymsla
Öryggisstig 2
Listaverð: 22.800
Tilboðsverð: 14.900
Brother 8070P
A4 laserfaxtæki
2 MB minni
14.400 bps
Listaverð: 59.900
Tilboðsverð: 39.900
Brother HL1230
laserprentari
12 bls. á mínútu
2 MB
Windows prentreklar
Listaverð: 36.900
Tilboðsverð: 29.900
Brother HLP2500
laserprentari, skanni og Ijósritunarvél
10 bls. á mínútu
skönnun beint í e-mail/skrá
Windows og Mac prentreklar
Listaverð: 49.900
Tilboðsverð: 39.900
brothef:
Penninn skrifstofumarkaður Hallarmúla, sími 540 2000, www.penninn.is
GOTT I6LK McCANN-tRimON • ÍlA I