Fréttablaðið - 06.12.2001, Side 12

Fréttablaðið - 06.12.2001, Side 12
12 FRETTABLAÐIÐ 6. desember 2001 FIMMTUDAGUR Nóatún: Selja grænlenskt hreindýrakjöt neytenpur Nótatún mun í dag, fimmtudag, hefja sölu á græn- lensku hreindýrakjöti en samn- ingar voru gerðir við Stefán Magnússon, hreindýrabónda á Grænlandi um kaup á þessi kjöti. Að sögn Sólmundar Oddssonar, markaðsstjóra Nóatúns, er um talsvert magn að ræða. „Framboð af íslensku hreindýrakjöti hefur ekki verið mikið og markaðurinn verið töluvert erfiður og því var þessi leið farin. Verkun græn- lenska kjötsins er mun betra en á því íslenska en nákvæmlega er farið eftir öllum skilyrðum er varða heilbrigði og frágang í nánu samstarfi og eftirliti yfirdýra- læknis." Kjötið sem flutt verður til íslands sé eingöngu af ungum dýrum og fitumagn því í lág- marki. Samkvæmt upplýsingum frá Nóatúni er kjötið selt á lægra verði en gengur og gerist hér- GRÆNLENSKT HREINDÝRAKJÖT Sólmundur Oddsson segir matreiðslu- menn á Grillinu, Hótel Sögu, hafa undan- farið boðið upp á grænlenska hreindýra- kjötið og láti þeir mjög vel af kjötinu. lendis og segir að lækkunin nemi allt að 20-30%. Sem dæmi lækkar hreindýrahryggur úr 4.980 í 3.890 krónur kílóið, inn- læri fer úr 6.980 í 5.390 krónur, lærvöðvar lækka úr 6.490 í 4.990 og hreindýralæri með beini fer úr 3.980 í 3.590 krónur kílóið. Sólmundur sagði viðskiptavini geta fengið góðar ráðleggingar við kjötborðið um hvernig best sé að framreiða hreindýrakjötið og einnig sé hægt að fá upplýs- ingar um ýmsar matreiðsluað- ferðir á vefslóðinni www.nota- tun.is. ■ Stjórnsýsla: Tillaga um Matvælastofu eftirlit Nefnd á vegum forsætis- ráðuneytisins hefur lagt til við stjórnvöld að sett verði á lagg- irnar sérstök Matvælastofa sem hafi með höndum allt eftirlit með öryggi matvæla. Tilgangur- inn með því er að sameina stjórnsýslu eftirlits með mat- vælum undir eitt ráðuneyti í stað þess að hafa þetta bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Þannig ætti að fást heildstæðara eftirlit, markvissari vinnubrögð og auk- in skilvirkni. Hins vegar gerir nefndin ekki tillögu um það hvaða ráðuneyti fá þessa nýju stofnun en talið er að það verði í sjávarútvegsráðuneytinu. í greinargerð nefndarinnar kemur fram að núverandi fyrir- komulag þessara mála sé óvið- unandi. Bent er á að þessi mála- flokkur sé undir þremur ráðu- neytum, landbúnaðar-, umhverf- is- og sjávarútvegsráðuneyti auk þess sem fjórtán sjálfstæðar stofnanir og nefndir annast eft- irlit með matvælum í landinu. Verði farið að tillögum nefndar- innar munu heyra undir Mat- SJÁVARÚTVEGSHÚSIÐ Talið er að nýja Matvælastofan muni heyra undir sjávarútvegsráðuneytið. vælastofu verkefni gæðasviðs Fiskistofu, matvælasviðs Holl- ustuverndar, yfirdýralæknir, að- fangaeftirlit, plöntueftirlit og kjötskoðun ásamt því eftirliti með matvælum sem heilbrigðis- eftirlit sveitarfélaga hafa nú með höndum. ■ Stelpur eru betri í lestri en strákar Islensk ungmenni ná meðalárangri í námskönnun meðal OECD ríkja. Þrjátíu prósent fimmtán ára ungmenna lesa aldrei sér til skemmtunar. Island eina landið þar sem strákar og stelpur eru jafnvíg í stærðfræði. Góðum nemendum ekki sinnt nægilega vel. NÁMSKÖNNUN „fslensk fimmtán ára ungmenni ná meðalárangri í Pisa námskönnuninni, miðað við samanburðarlöndin,“ segir Júlíus Björnsson, forstöðumaður Náms- matsstofnunar. Niðurstöður könnunarinnar sýna að um þrjátíu prósent fimmt- án ára barna á íslandi lesa sér aldrei til skemmtunar. „Það er mjög stór hópur sem les eins lítið af skemmtiefni og hann mögulega kemst af með,“ segir Júlíus. „Þótt stelpur séu mun betri í lestri en strákarnir, þá lesa mun fleiri þeir- ra sér til skemmtunar, en 25 pró- sent stúlkna les aldrei sér til skemmtunar." Verið gæti þó, að ungmennin hefðu misskilið spurn- inguna og, sem dæmi, ekki álitið það sem þau læsu á tölvuskjá, lestur. „ísland var eina landið þar sem strákar og stelpur voru jafnvíg á stærðfræði, en í öðrum löndum voru stelpurnar betri í lestri en strákarnir náðu betri árangri í stærðfræði,“ segir Júlíus. „Ástæða þessa er sú, hversu mik- ill munur er á lestrarhæfni kynj- anna hér á landi, en stærðfræði- verkefnin sem lögð voru fyrir, reyndu töluvert á lestrarhæfni." „Ein mikilvægasta ályktunin sem hægt er að draga af þessari könnun er sú að íslendingar virð- ast sinna þeim sem gengur illa í námi, mjög vel en þeim sem vel gengur er, hinsvegar sinnt fremur JÚLÍUS BJÖRNSSON Island var eina landið þar sem strákar og stelpur voru jafnvíg á stærðfræði, en í öðrum löndum voru stelpurnar betri í lestri en strákarnir náðu betri árangri í stærðfræði. illa,“ segir Júlíus. Einungis fjögur prósent íslensku ungmennanna séu neðan við neðsta stigið, en OECD meðaltalið sé sex prósent. Hvað varðar betri nemendurna, þá eru um níu prósent þeirra í þeim flokki, en það er OECD með- altalið. Til samanburðar séu tutt- ugu prósent finnskra ungmenna í þeim hópi. Að sögn Júlíusar eru íslenskir bekkir of stórir og kenn- arar of uppteknir af því að sinna þeim sem lakari eru, því fái betri nemendur oft á tíðum minni at- hygli. Könnunin tók til 265 þúsund fimmtán ára ungmenna í 32 OECD löndum, en til stendur að framkvæma hana næst árið 2003. Finnsk ungmenni stóðu sig best í könnuninni. „íslensk ungmenni eru, miðað við þessa könnun, bærileg í lestri en árangur þeirra er undir meðallagi í náttúru- fræði. Stærðfræðikunnátta er einnig í meðallagi, en hana er erfitt að meta því ekki fæst sam- anburður fyrr en árið 2003,“ seg- ir Júlíus. arndis@frettabladid.is ( baráttunni viö kuldabola er qott ad eiga hlýjan og góöan fatn AHar tegundtr af uttviilarfalnaöt fyrir fjóbkylduna á frábæru verði. UTiViSTARBUDIN MIUNRMM : ÖM : A- HAMBORGARAR 1000 kr. með káli, sésu og osti 1 6“ PIZZA moð 3 áleBgstegundum 1 8” HZZA með 3 áleggstegundum 1000 kr. 1200 kr. Gildir frá 3. des. til og með 10. des. Tilboð miðast við að það sé sótt S: 533 2200 Opið alla virka daga frá kl. 11 - 01, um helgar frá kl. 11 - 03 Næstí útkomudagur er 7. desember 2001 ^ í fyrir jólin allt um jólaundirbúninginn! FRÉTTABLAÐIE-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.