Fréttablaðið - 06.12.2001, Síða 22

Fréttablaðið - 06.12.2001, Síða 22
22 FRETTABLAÐIÐ 6. desember 2001 FIMMTUDAGUR Walt Disney hefði orðið hundrað ára í gær: Dóttir hans var dauð- hrædd við nornina PRINSIPP VIKUNNAR EKKI TIL AMERÍKU Johnny Htoo, annar tvíburanna 13 ára sem fóru fyrír skæruliðahópnum her Guðs í Búrma (Myanmar), hlustar á tónlist heima hjá sér. Bræðurnir hafa dvalist ásamt fjöl- skyldu sinni í stöð tælensku landamæra- lögreglunnar síðan í janúar þegar þeir gáfust upp. Tælenska ríkisstjórnin hefur farið fram á það við bandarísk stjórnvöld að fjölskyldan fái að setjast þar að en þau vilja ekki til Ameríku og kjósa heldur að búa að tælenskum flóttamannabúðum. burbank. ap Walt Disney hefði orð- ið hundrað ára í gær, miðvikudag- inn 5. desember, og var þess minnst víða í Bandaríkjunum í gær. Afkomendur teiknimyndajöf- ursins höfðu auk þess verulegan áhuga á að segja fjölmiðlum frá því, hvers konar persóna maðurinn á bak við stóru teiknimyndirnar var, en hann lést árið 1966 úr krabbameini. „Það sem pabbi vildi gera var að skemmta fólki og koma því til að hlæja,“ sagði Diane Disney Miller, dóttir hans. „Það var alltaf aðalat- riðið hjá honum, að vekja gleði og gamanmál." Hún var fimm ára þegar teikni- myndin Mjallhvít og Dvergarnir sjö var frumsýnd, árið 1937, en það var sú mynd sem gerði Walt Disn- ey að því veldi sem hann var í teiknimyndaheiminum. Þetta var fyrsta teiknimyndin í fullri lengd og í litum. Diane fékk að sjá prufusýningu í kvikmyndaverinu í Burbank í Kaliforníu, þar sem höfuðstöðvar Disneys voru. „Þegar drottningin breyttist í galdranorn, þá æpti ég og grét og einhver fór með mig út úr verinu," sagði hún. „Pabbi breytti samt WALT DISNEY OG KÖTTUR- INN Þessi mynd er tekið á skrif- stofu Disneys á Þorláksmessu árið 1965. Disn- ey lést 15. des- ember árið eftir. engu.“ Bróðursonur hans, Roy Disney, er núna framkvæmdastjóri Disney fyrirtækisins. Hann hóf störf hjá frænda sínum árið 1951. „Ég naut þess í engu að vera skyldur honum,“ sagði Disney. „Hann var býsna harður við mig og alla aðra. Hann var svo fljótur að benda á mistök eða vandamál." ■ FRÉTTIR AF FÓLKI Vestfirðingar hafa sannarlega tekið tæknina í sína þjónustu. Á dögunum var stofnað Félag há- skólanema á Vestfjörðum, en á annað hundrað Vestfirðingar eru í fjarnámi í háskólum hér á landi. Stofnfundurinn var haldinn á tveimur stöðum, ísafirði og Pat- reksfirði, og voru fundargestir að sjálfsögðu tengdir með fjarfund- arbúnaði. Þau sem kjörin voru í stjórn voru Bríet Arnardóttir rekstrarfræðinemi á Patreksfirði, Helga Sigfríður Snorradóttir grunnskólakennaranemi á ísa- firði, Jóhanna Oddsdóttir hjúkr- unarfræðinemi á ísafirði, Sigur- borg Þorkelsdóttir íslenskunemi á ísafirði og Víðir Ólafsson rekstrarfræðinemi á ísafirði. Viðtal Gísla Marteins Baldurs- sonar við forseta íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, hefur vakið nokkra athygli. Illuga Jök- ulssyni leist ekki par vel á forset- ann í þættinum og segist í pistli á Stöð 2 hafa orðið fyrir vonbrigðum með hann í emb- ættinu, en Illugi var einn þeirra sem kusu Ólaf til forseta. „hann vildi í Kastljóss- þættinum túlka ;nrýni þannig að það væri nú bara tíska - gott ef ekki einskonar manndómsvígsla - hjá sumum fjölmiðlamönnum að sýna hvað þeir væru kaldir með því að „hjóla í forsetann". Og brosti svo blítt, fullur af umburð- arlyndi yfir kjánaskapnum. En burtséð frá því að Ólafur Ragnar Magnús Scheving og starfsmenn Latabæjar vinna hörðum höndum að undirbúningi sjónvarpsþátta um Latabæ. Stórar erlendar sjónvarpsstöðvar, sem sérhæfa sig í efni fyrir börn, sýna efninu mikinn áhuga. siónvarp „Við erum að undirbúa framleiðslu á 40 sjónvarpsþáttum um Latabæ," segir Magnús Scheving. „Upprunalega átti að gera 26 þætti en sjónvarpsstöð, sem við erum í viðræðum við, vildi fleiri." Þessa dagana vinnur starfs- fólk Latabæjar í samstarfi við erlenda handritshöfunda að því að skrifa handrit að sjónvarpsþát- tunum. „í augnablikinu eru viðræður í gangi við fjölda fram- leiðenda, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Margir þeirra hafa unnið að metsölumyndum og unnið til verðlauna. Latibær er einnig búinn að ráða til sín erlen- da aðila, m.a. fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Disney til fimmtán ára. Þetta fólk þekkir vel inn á markaðinn þar sem við erum í viðræðum við marga.“ Magnús hélt til Prag í gær til að skoða myndver fyrir tökurnar. „Tökurnar eru fleiri mánaða ferli, þetta er eins og að gera nokkrar bíómyndir. Prag býður upp á það besta en það kemur líka til greina að taka hér heima. Gjöld í kringum þessa framleiðslu hafa lækkað mikið.“ Magnús segir sjónvarpsþætt- ina ekki vera byggða á leikritun- um, sem voru sýnd í Þjóðleikhús- inu. „Handritin eru skrifuð út frá þeim heimi, sem Latibær er, og þeirri hugmyndafræði sem við höfum lagt mikla vinnu í. Brúður eru veigamiklar í þáttunum en við Latibær í alþjóðlegt sjónvarp FÓLKIÐ í LATABÆ Það er nóg að gera í Latabæ. Þessa dagana er unnið að handriti fyrir sjónvarpsþættina, sem verða annaðhvort teknir upp i Prag eða hér heima. erum að leita að góðum manni til að leika íþróttaálfinn. Allt er á uppleið. Það er verið að hamra járnið á meðan það er heitt. Það tekur rosalegan tíma og er hálf- gerð verkamannavinna. En við erum róleg, tökum bara „lazy steps“, eins og við segjum." Magnús og fleiri starfsmenn Latabæjar voru staddir í Was- hington þegar hryðjuverkaárás- irnar voru gerðar í New York 11. september. Degi áður flugu þau frá New York til Washington. Að hans sögn eru áhrif árásanna ekki slæm fyrir Latabæ. „í september vorum við að kynna þættina. Eft- ir árásirnar komumst við ekki neitt í viku. En Latibær geymir góðan boðskap og því er hann sterkari, ef eitthvað, eftir árásirn- ar.“ Latibær hentar einnig vel fyrir Bandaríkin þar sem offita barna er sífellt meira áberandi og fjórða hvert barn er of feitt. „Reykingar eru aðalvandamálið og svo kemur offita. Bandaríkin eru í fyrsta sæti og ísland í öðru,“ segir Magnús og er því Ijóst að Latibær herjar á hárrétta markaði. halldor@frettabladíd.is Elgadphon Gæðavörur á góðu verði Allt fyrir tölvu- lagna kerfi Meðal notanda: þjónustudeiid Símans RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf. VERSLUN - HEILDSALA Hamarshöfða 1-110 Reykjavík - Sími 511 1122 - Fax 511 1123 Netfang: ris@simnet.is - Veffang: www.simnet.is/ris er nú forseti íslands, þá þótti mér óneitanlega næsta klén niður- staða hjá fyrrum prófessor í stjórnmálafræðum að túlka gagn- rýni á opinberar persónur á þenn- an hátt,“ segir Illugi. Armann Jakobsson, pistlahöf- undur á Múrnum, fjallar um „svínakjötsdeiluna miklu" eins og hann kallar hana í pistli á Múrn- um. Deilan snýst eins og kunnugt er um þá ákvörðun ráðamanna í Austurbæjarskóla að leyfa ekki svínakjöt. „Svínakjötsdeilan mikla er í sjálfu sér bara hnyttin því að auðvitað geta íslensk börn verið án svínakjöts í hádeginu. Það sem er áhugavert við hana er að hún sýnir í hnotskurn hvernig átökin um fjöl- menningarsamfé- lagið verða. Erum við tilbúin til að breyta okkar hátt- um til að vera kurteis við nýja íslendinga? Eða eiga þeir að aðlagast að fullu og öllu? Þeir sem svara seinni spurningu játandi verða að átta sig á því að þá verður hér ekkert fjölmenningarsamfélag," er nið- urstaða Ármanns. „Jú, pósturinn verður að komast til skila. En það bannar enginn í kaffi og kleinu á leið- , ÞRUÐA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.