Fréttablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 4
15, desember 2001 Jólalög í anda Léttsveitarinnar SYNGJA JÓLALÖG í SÍNUM ANDA Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur syngur bæði innlend og erlend jólalög Á aðventunni: Hefð fyrir sænskum smásnúðum Kvennakórinn Léttsveit Reykja- víkur heldur aðventutónleika í Bústaðakirkju um helgina. Dag- skráin er fjölbreytt, innlend og er- lend lög. Markmiðið er að létta fólki lund og koma því í jólaskap. gestir tónleikanna verða Sigurjón Jóhannesson, tenór, Bjöllukór Bú- staðakirkju og Tómas R. Einarsson bassaleikari. Stjórnandi er Jó- hanna V. Þórhallsdóttir og undir- leikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Tónleikarnir verða í dag og á morgun sunnudag kl. 17. ■ Eg er nú fremur léleg í bakstri, en við mæðgurnar tökum okkur þó til eina helgi og bökum sænskar buller, eða smásnúða. Stelpurnar eiga sænskan föður og þaðan kom þessi hefð inn í fjölskylduna, en það er skemmti- leg og sérstök stemning í kring- um þetta. Auk þess bökum við eitthvað af hinum hefðbundnu ís- lensku smákökum. Að öðru leyti eru jólin hjá mér alfarið hefð- bundin, frekar róleg og lágmarks stress. Ég gerði samning við vin- konu mína fyrir mörgum árum um að við gæfum hvor annarri bók í jólagjöf og hef síðan gert fleiri slíka samninga. Það hjálpar til við rólegheitin að lesa góðar bækur. Núna hef ég til dæmis VILL LESA UM JÓLIN Snjólaug Stefánsdóttir er verkefnisstjóri í Ráðhúsi Reykjavíkur. augastað á bókunum eftir Vigdísi Grímsdóttur og Hlín Agnarsdótt- ur auk margra annarra. ■ gDgtmjDa JéDsöo’é — eðauwé wk eÆw sköturujm píyoir nu pusuifCiir isicnsKrð ■KSiDriiið* 10 ára ábyrgö 12 stærðir, 90 - 500 cm t* Stálfótur fylgir t* Ekkert barr að ryksuga t*-- Truflar ekki stofublómin Eldtraust tíí’ Þarf ekki að vökva t* íslenskar leiðbeiningar tt, Traustur söluaðili t* Skynsamleg fjárfesting e^tiv Ul!J'I.i3..5'I JJ.UAUl'J ftWMl hmM) vfl® tendöloaWowikmsluWo SVÍFANDI ENGLAR Jólakort Amnesty er eftir Sigrfði Önnu E. Nikulásdóttur og heitír Á tali. Átali Islandsdeild Amnesty Inter- national hefur hafið sölu á jóla- korti ársins 2001 og vonast sam- tökin til að sem flestir sjái sér fært að styðja við bakið á þeim með því að kaupa kprtin. Mörg undanfarin ár hefur íslandsdeild Amnesty gefið út jólakort og er sala þeirra ein helsta fjáröflunar- leið deildarinnar. í ár eru kortin með myndinni Á tali eftir lista- konuna Sigríði Önnu E. Nikulás- dóttur og eru þau fáanleg bæði með jólakveðju og án hennar. Kortin eru seld á skrifstofu samtakanna að Hafnarstræti 15 í Reykjavík og þar er einnig tekið á móti pöntunum í síma 55 16940 og á netfang amnesty@hi.is. ■ Það er ekki til neitt sem heitir jólakvíði eftir því sem ég best veit. Það er reyndar hægt að kvíða fyrir öllu mögulegu og ómögulegu í þessu lífi en ég man ekki eftir því að hafa fengið nokkurn til meðferðar eingöngu út af jólakvíða," segir Halldóra Ólafsdóttir, geðlæknir á bráða- móttöku og göngudeild geðdeild- ar Landspítala háskólasjúkra- húss. „Hitt er hins vegar rétt að sumir þeir sem eiga erfitt fyrir geta orðið viðkvæmari á þessum árstíma. Sem dæmi má taka þá sem hafa misst einhvern af sínum nánustu á árinu. Fyrstu jólin þar á eftir eru oftast erfið og magna upp sorg og söknuð. Sumir þung- lyndir og eða kvíðnir einstakling- ar eru heldur verri af sínum ein- kennum á þessum tíma, bæði þola þeir stundum illa álagið og um- stangið sem jólunum fylgir og eiga einnig erfitt með að gleðjast og njóta samveru með öðrum. Það hlýtur að vera enn erfiðara að vera dapur og kvíðinn þegar flest- ir aðrir eru að gera sér glaðan dag og njóta lífsins." Halldóra nefnir ennfremur að börn alkóhólista geti átt erfitt um jólin vegna drykkju foreldris eða foreldra, sem oft er jafnvel meiri yfir hátíðarnar en endranær. „Minningar um þess konar jól í æsku geta setið lengi í sálinni, jafnvel fram á fullorðinsár og varpað skugga yfir alla jólastemningu síðar meir.“ Halldóra segir að þeir sem búi við bágar félagslegar aðstæður svo sem kröpp kjör eða félags- lega einangrun finni stundum meira fyrir sínum vandkvæðum á þessum árstíma og hugsanlega komist sumir þeirra næst því að hafa jólakvíða. Hún segir marga af sínum skjólstæðingum vera ör- yrkja sem lítið hafi handa á milli, einnig eru allmargir sem búa ein- ir og eru jafnvel einir á aðfanga- dagskvöld. „Margt af þessu fólki tekur samt jólunum ótrúlega vel, af skynsemi og æðruleysi sem við hin getum lært af, þótt flestir hefðu efalaust kosið að búa við aðrar og betri aðstæður. Hins vegar er auðvitað fullt af heil- brigðu og sæmilega vel stæðu fólki sem virðist stressa sig að óþörfu fyrir jólin, spenna sig upp í alls kyns jólaundirbúning og eyðslu sem fer út fyrir öll vel- sæmismörk og er kannski lítið við því að segja, þetta er auðvitað frjálst val.“ Aðventan á bráðamóttöku Landspítalans segir Halldóra ekki meiri annatími en hvern annar. „Það reyndar er alltaf nóg að gera hérna en algengt er að það komi álagstímabil eftir hátíðarnar. Ég hef enga viðhlítandi skýringu á því, kannski frestar fólk bara vandanum þar til um hægist og mestu hátíðarhöldin yfirstaðin." SSl Halldóra segist ekki hafa nein- ar töfralausnir í handraðanum fyrir þá sem núna kvíði erfiðum jólum, það fari allt eftir eðli vand- ans. „Flestir sem hafa misst sína nánustu kjósa að minnast þess látna á táknrænan hátt á jólunum til að mynda með að fara að leið- inu með blóm og ljós. Margir for- eldrar sem eiga við áfengisvanda- mál að stríða setja sér það mark- mið að hafa ekki áfenga drykki um hönd yfir hátíðarnar barn- anna vegna. Fyrir aðra, bæði veika og heilbrigða skiptir ÓÞARFA STRESS Halldóra Ólafsdóttir segir að sumt heilbrigt og sæmilega vel stætt fólk virðist stressa sig að óþörfu fyrir jólin. kannski mestu máli að nota heil- brigða skynsemi og draga úr álagsþáttunum, sem allir þekkja og reyna að njóta þess sem þessi árstími býður upp á. Að lokum má það ekki gleymast að aðventan og jólin eru auðvitað ákaflega skemmtilegur tími fyrir lang- flesta, ekki síst í mesta skamm- deginu á norðurslóðum." ■ Hvað er til ráða? Þunglyndir Nokkrar ráðleggingar tii þeírra sem veilir eru fyrir á þessum árstíma Þeir sem nýlega hafa misst ástvin Það er eðlilegt þeim sem hafa misst að sakna, ekki síst fyrir jólin þegar allir eiga að vera glaðir og hlakka til. Það sem getur hjálpað er að leita eftir stuðningi frá ætt- ingjum og vinum. Fara i kirkjugarðinn og minnast hins látna og setja Ijós eða krans á leiðið. Þannig heiðra menn minningu þeirra sem saknað er og liður betur á eftir. Óvirkir alkóhólistar og vímuefnaneytendur Þeir ættu að huga vel að líðan sinni og bæta jafnvel við AA-fundi. Forðast að vera í kapphlaupi við tímann. Þeir sem eru á lyfjum ættu að gæta þess að taka lyfin sín rétt og gleyma þeim ekki. Spyrna við fótum og taka ekki þátt í kapp- hlaupinu og láta líðan sína ganga fyrir öllu. Efnalitlir Það er ekki nauðsynlegt að gefa dýrar og miklar gjafir. Það er hugurinn á bak við sem öllu máli skiptir. Verið minnug þess að þetta eru aðeins nokkrir dagar og aðalatriðið er að vera glaður í hjarta. Börn alkóhólista og aðrir aðstandendur Þið getið lítið gert og aðstandandinn drekk- ur hvort sem þið eruð kvíðin eða ekki. Lát- ið ekki kvíðann ná tökum á ykkur og gleymið ekki að þið hafið ekkert með það gera hvort foreldrar ykkar drekka. Það er ekki ykkar hegðun sem stjórnar því. Jólafastan er mörgum erfíð Halldóra Ólafsdóttir geð- læknir telur jólakvíða ekki vera fyrir hendi hjá heil- brigðum einstaklingum. Hins vegar er mögulegt að margir þeirra sem veilir eru fyrir geti átt erfiða daga á þessum árstíma

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.