Fréttablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 22
22 Sársaukafullur að- fangadagur en góður Gjafirnar sem mátti opna fyrir sex v°ru eftirminnilegar. Eftirminniterasfci n^rdrnrl 15. desember 2001 Dagamunur í desember Islenski óperukórinn gerir fólki dagamun í dag. Það var heimilisvinur, vinur for- eldra minna, sem kom alltaf seinni partinn á aðfangadag með gjafir þegar ég var barn. Þær gjafir voru alltaf eftirminnilegar vegna þess að það voru einu gjafirnar sem mátti opna fyrir kvöld,“ segir Árni Þórarinsson, rithöfundur og blaða- maður. „Einhverju sinni, þegar ég var tíu ára, kom þessi góði maður með gjafirnar eins og venjulega. Gjöfin mín var hlutur sem mig hafði alltaf langað í. Það var svissneskur vasa- hnífur, einn af þessum rauðu, þykku með mörgum blöðum, upptökurum, tappatogara og fleira til. Þetta var mikil græja og ég var ofboðslega glaður. Ég opnaði hnífinn og skar mig auðvitað um leið. Allan að- GÓÐ GJÖF EN BEITT í lok aðfangadags hafði Árni Þórarinsson oft skorið sig á einni eftirminnilegustu jóla- gjöfinni, svissneskum vasahníf. fangadaginn var ég að reyna að nota essa frábæru gjöf og skar mig oft. lok aðfangadags var ég allur í plástrum. Þetta var sársaukafullur aðfangadagur en góður.“ ■ að er fastur liður á aðventu hjá íslenska óperukórinum að syn- gja undir stjórn Garðars Cortes í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti 19 í Reykjavík. Viðburðurinn kallast Dagamunur í desember og verður að þessu sinni í dag, laugardag. Einsöngvari með kórnum verður Ólöf Kolbrún Harðardóttir og und- irleikari er Iwona Jagla. Að vanda mun kórinn fyrst syn- gja utandyra um kl. 15.30 á horni Ingólfsstrætis og Bankastrætis en flytja sig síðan inn í Aðventkirkj- una og hefst dagskráin þar um kl. 16. Þarna gefst kjörið tækifæri til að hvíla sig frá önnum jólainn- kaupanna og streitu hversdagsins og grípa tækifærið til að hlýða á söng eins glæsilegasta kórs lands- ins. Á dagskránni verða hátíðar- söngvar tengdir jólum, þekktir og vinsælir óperukórar ásamt okkar gamalkunnu jólalögum þar sem áheyrendum býðst að taka undir með kórnum. Dagskráin í Aðvent- kirkjunni tekur um klukkustund. Aðgangur er ókeypis og að auki er boðið upp á súkkulaði og kleinur. ■ Þvörusleikir, Potta- skeflll og allir hinir Gömlu góðu íslensku jólasvein- arnir byrja að koma til byg- gða 13 dögum fyrir jól og leggja leið sína í Ráðhús Reykjavíkur dag hvern. Stekkjastaur kom fyrstur á miðvikudaginn og síðan tínast þeir einn af öðrum og njóta til þess aðstoðar Þjóðminjasafns- ins, Möguleikhússins og Islands- pósts. í dag kemur Þvörusleikir og á morgun birtast Grýla og Leppalúði í Ráðhúsinu ásamt Pottaskefli syni sínum og skartar jólasveinafjölskyldan þjóðlegum búningum sem Bryndís Gunnars- dóttir hannaði. Þjóðminjasafn íslands hefur gefið út 14 jólakort með jólasvein- unum, Grýlu og Leppalúða og fást þau í Bókabúð Böðvars Hafnar- Jólasveinar Þjóð- minjasafnsins koma við í Ráðhúsi Reykja- víkur fram að jólum. firði, Árbæjarsafni, skrifstofu Þjóðminjasafns íslands, Vestur- vör 20 Kópavogi og hjá jólasvein- unum í Ráðhúsinu. Lesa má um ís- lensku jólasveinana á heimasíðu Þjóðminjasafns íslands www.nat- mus.is. Jólasveinarnir verða á ferðinni kl. 14 um helgina og næstu helgi en kl. 10.30 á virkum dögum og á aðfangadag. ■ KOMINN TIL BYGGÐA Jólasveinamir þrettán hafa fyrir milligöngu Þjóðminjasafnsins heiðrað borgarbörn með nærveru sinni um árabil. Óttar Sveinsson Morjunbladið 'h, 2í,W..Ue, ^ OTTAR ÁRITAR: Laugardag kL15: Hagkaup. Kringlunni LaugardagkL12:30 KÁ Selfossi Sunnudag kL16: Hagkaup, Kringlunni ., . . . . .j.. ■ ... annraunir í þessari nýju og hörkuspennandi Útkallsbók Óttars Sveinssonar er lýst ótrúlegum mannraunum þegar óyeður gekk yfir ísafjarðardjúp í febrúar 1968. Breski sjómaðurinn Harry Eddom komst einn af þegar togarinn Ross Cleveland sökk og lýsir hér vistinni í gúmbátnum með látnum félögum sínum, torsóttri göngu um kletta og skriður í ókunnum firði og baráttu við svefn og kulda undir húsgafli mannlauss sumarbústaðar. Nær dauða en lífi megnaði hann ekki að brjóta sér leið inn. Þessa óveðursdaga barðist á fimmta hundrað sjómanna við að halda skipum sínum á floti í gífurlegri ísingu í Djúpinu. Þar á meðal var áhöfn togarans Notts County sem strandaði skammt frá þeini stað þar sem Ross Cleveland sökk. Varöskipiö Óðinn var statt í Djúpinu og þar um borð þurftu menn að höggva ís upp á líf og dauða. Tveir stýrimenn hættu lífi sínu við mjög tvísýnar aðstæður á litlum Zodiac-báti til að bjarga átján skipbrotsmönnum. Á saman tíma var Heiðrúnar II frá Bolungarvík saknað með sex manna áhöfn. Rauðási 4.110 Reykjavík. Sími 554 7700

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.