Fréttablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 14
14 Frum- flutningur á jólatónleikum Hljómeykis Sönghópurinn Hljómeyki heldur jólatónleika í Háteigskirkju í dag, laugardag, kl. 20. Á efnis- skránni eru hefðbundin jólalög og jólasálmar eftir ýmis tónskáld, meðal annars Richard Rodney Bennett, Cristhopher Brown, Jan P. Sweelinck. Á tónleikunum verður frum- flutt nýtt tónverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, sem nefnist Canite JÓLALÖG OC SÁLMAR Sönghópurinn Hljómeyki syngur í Háteigs- kirkju á morgun. tuba. Stjórnandi Hljómeykis er Bernharður Wilkinson. Tónleik- arnir eru öllum opnir, miðasala verður við innganginn og hjá kór- félögum. ■ 15. desember 2001 UPPSKRIFT FRÁ EICINKONUNNI Júlíus Jónasson er þjálfari og leikmaður IR í handknattleik. Júlíus Jónasson, handbolta- maður, segist ekki baka mikið fyrir jólin þó það hafi komið fyrir þegar hann var atvinnumaður er- lendis. Hann segir konu sína og son sjá frekar um baksturinn en gaf samt uppskrift að svokölluðum Blúndum. Júlíus segist ekki vita hvernig nafnið sé tilkomið en blúndur þessar eru bornar fram eins og samlokur, eins og hann orðar það.l Blundur að hætti | handboltamanns 2 bollar haframjöli 2 bollar hveiti 2 af sykri 1/2 bolli síróp 1/2 bolli rjómi 1,5 tsk. lyftiduft 375 g bráðið smjörlíki AÐFERÐ: Öllu blandað saman, má hræra í með höndunum. Tíu kökur settar á hverja plötu og bakaðar í 10-15 mín. Opna verður ofninn öðru hverju. Bornar fram með rjóma á milli Blúndur handboltamannsins Betlehemsstjarnan í Hallgrímskirkju Karlakór Reykjavíkur heldur um helgina þrenna jólatón- leika í Hallgrímskirkju undir nafninu Betlehemsstjarnan. Á efnisskránni verða hefðbundin jólalög en auk þess verða flutt tvö ný verk ungra íslenskra tón- skálda, sem unnu til viðurkenn- inga í nýafstaðinni tónverka- keppni í tilefni af 75 ára afmæli Karlakórs Reykjavíkur. Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur á tónleikunum verður Friðrik S. Kristinsson en einnig kemur aðstoðarsöng- stjóri kórsins, Guðlaugur Vikt- aftur kl. 21.30 og þriðju og sfð- orsson, við sögu. Tónleikarnir ustu tónleikarnir verða svo á veróa í dag, laugardag kl. 17 og annað kvöld kl. 20. ■ Skotveiðimenn skilið tómum hylkjum á næstu Olís- stöð og fyllið út þáttökuseðil 150.000 kr. verðlaun fyrir heppinn veiðimann dregin út 23.12. n.k. Svartur hrafn sem aldrei kom VAR HRÆRÐ YFIR HUGSUNINNI Elísabet Jökulsdóttir man vel eftir gjöf sem synir hennar lofuðu henni en hún fékk einhverra hluta vegna aldrei. Elísabet Jökulsdóttir, rithöf- undur, sem fyrir þessi jól gef- ur út bókina Fótboltasögur, var spurð um eftirminnilegustu jóla- gjöfina sína. „Það er svartur hrafn sem synir mínir sögðust einu sinni ætla að gefa mér og ég var mjög hrærð yfir. Ég fékk hann nú reyndar aldrei, en þetta var uppstoppaður hrafn. Eftir- væntingin eftir gjöfinni og það að Og tölva sem kom og varð upphafið af rit- höfundaferlinum. þeir skyldu hafa hugsun á þessu og skyldu hafa ætlað að gefa mér þennan hrafn lifir í minningunni. Á þessu tímabili var ég að gefa út bók þar sem svartur hrafn hafði komið við sögu þannig að þeir vissu að þetta skipti mig máli. Það hreyfði rosalega við mér að þeir skyldu hafa ætlað að gera þetta, því þeir voru ekkert ofboðslega gamlir á þessum tíma, bara 13 eða 14 ára. Ég komst svo að því þegar ég spurði strákana út í þetta fyrir skemmstu að þeir hefðu hvergi fundið hrafninn og ég því ekki fengið hann. Ég á það nú einnig til að draga úr hlutunum ef ég veit að ég á von á einhverju," sagði El- nilpoiKta ólaeiöfin? ísabet. „Eftirminnilegasta gjöfin sem ég fékk var fyrsta tölvan mín sem fyrrverandi maðurinn minn gaf mér. Ég varð rosalega reið og vildi helst grýta henni í hann vegna þess að við höfðum ekki efni á henni, en lét á engu bera og þakkaði honum vel fyrir. Hins vegar var þessi tölva upphafið að mínum rithöfundarferli því nokkrum mánuðum síðar gaf ég út fyrstu bókina mína. Tölvan auðveldaði nefnilega mjög alla vinnu og var algjört töfratæki." ■ -Lagersala - Lagersala - Lagersala - Lagersala - Lagersala - Lagersaia - Lagersala - Lagersala - LAGERSALA 6. des til 23. des Hafnargötu 34 Keflavík sími 865-1064 ( móti sambíói) Það er hreint ótrúlegt hvað verðin eru lá. □ Lægsta verð á landinu á handfrjálsum búnaði fyrir flestar gerðir Nokia og Motorola símum frá 890.- krónum. □ Kilmanock úlpum verð aðeins 1.890.- kr. □ Skyrtur á 300.- kr. □ Pennaveski með litum og fl. verð kr 390.- □ Litabækur 250.- kr. □ Einnig ýmsar gjafavörur fyrir börn. □Yfir 30 titlar af teiknimyndum með íslensku tali á hreint ótrúlegu verði. □ Einnig skrautvasar kertastjakar og fleira. □ Allt í sömu línu 3 verð 750.-1500.- 2000.- kr. □ Þú spararr mörg þúsund á hverjum hlut. □ Ýmls tilboð í gangi. □ Þú getur hreinlega ekki sleppt þessu tækifæri að gera góð kaup. Opið virkadaga frá kl. 13.00 til 19.00 laugard 11.00-18.00 Velkomin til Keflavíkur. Við erum í jólaskapi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.