Fréttablaðið - 15.12.2001, Side 10
10 4, i f i 15._desember 2001
JQLAGLAÐNINGUR
Á aðventunni
í GALLERÍ TÚTLJ
Ný sending af einstaklega fallegum
sófaborðum og allt að 25% afsláttur
fram að jólum. Pantanir óskast sóttar.
Sjaldgæf husgogn
MEÐ HEILLANDI SDGU
Jarrahúsgögninfrá Suður-Afríku eru safngripir.
Borð í öllum staerðum, stólar, sófar, kistur, rúm
og margtfleira. Sérsmíði og pantanir eftir máli.
Tími til að skapa
góðar minningar
Aðventan er minn uppáhalds-
tími því það er svo gaman að
verða aftur barn og hafa til ein-
hvers að hlakka. Þann tíma sem
gefst reyni ég að nýta vel með
dætrum mínum, en í mínum huga
á aðventan að skapa góðar minn-
ingar. Þegar við hugsum til baka
verða það ekki minningar um
hlaup á milli búða í stressi sem
við munum varðveita, heldur
minningarnar um notalegu
stundirnar þegar setið var við
kertaljós og skorið út laufabrauð,
búið til jólaskraut eða bakað.
Búðarráp er ekkert fyrir mig og
ég vil mun frekar nota þennan
tíma til smákökubaksturs og
samveru við dætur mínar. Einnig
að hlusta á góða tónlist og njóta
einhverra af öllum þeim uppá-
komum sem bjóðast á aðvent-
AÐVENTAN
ER BESTI
TÍMINN
Sigríður
Ingvarsdóttir
leggur mikið
upp ór því
að fjölskyldan
tali saman og
að litið sé
á jákvæðu
hlutina.
unni. Ég legg líka mikið upp úr
því að f jölskyldan tali mikið sam-
an og að við lítum á jákvæðu hlut-
ina í kringum okkur, en ekki þá
neikvæðu." ■
Afmælisgj öfin
í jólamatinn
Grís sem elti heimilis-
fólk á röndum verður
hafður í jólamatinn
á Laugasteini.
Ingibjörg Hjartardóttir, rithöf-
undur, segir að grís sem henni
var gefinn í afmælisgjöf í maí sé
eiginlega orðinn að jólagjöf núna
því hann verði borðaður um jólin.
„Það situr í minningunni að fá lif-
andi svín með rauðri slaufu," seg-
ir hún, en svínið fékk hún að gjöf
frá eiginmanni sínum. „Þetta var
náttúrulega grís, sem varð að
svíni, og var slátrað í haust. Nú er
hún komin í fallega, snyrtilega
pakka í frystikistuna okkar, en
okkur þótti óskaplega vænt um
hana. Við kölluðum hana „Eyja-
fjarðarsól" og um hana var ortur
bragur. Hún var annars bara eitt
af húsdýrunum heima, hljóp og
elti okkur um allt, ægilega gæf og
góð,“ sagði hún en minningarljóð-
ið orti Björn Þorleifsson, skóla-
stjóri Brekkuskóla á Akureyri. ■
FÉKK LIFANDI SVÍN
MEÐ RAUÐRI SLAUFU
Ingibjörg Hjartardóttir á Laugasteini í
Svarfaðardal sagði að grís sem henni var
gefinn í afmælisgjöf væri eiginlega orðinn
að jólagjöf núna.
S: 551-1250 - emaii: vikurprjon@vikurprjon.is
Versiun: www.vikurprjon.is
Heimasíöa: www.vikwooi.is
Flíshúfa og
vettlingar
kr. 1.890 settiö
Flístrefill
kr. 890
Bómullarsokka-
buxur
kr. 990
Kringlunni
og Smáranum
Sími 553 7010 & 554 5408
Eyjafjarðarsól - In memoriam
Ég sá hana nýfœdda síðast í maí,
sól var á tindum og gleði í bæ,
menn þóttust af vorkomu vita.
En hált verður sporið hjá nýgotnum grís
sem gengur um valtur á parketti og flís,
hafður vid stofuhita.
Þótti húnfegurst í þessari sveit, \
þrammaði um stofu, í hornunum skeit,
þá gestum fannst gamanið kárna.
Sólbrennd á eýrum hún sást svo í leik,
síðurnarfeitur og klárar í reyk
fyrir hollráðfrá Ingvara-Árna.
Nú tekur að hausta um byggðir og borg
býr þá í huganiim depurð og sorg
því jjarðarins fallin er sólin.
Við gestum á bænum hún gótjlega hrein,
og gladdist við mat, sem var ruður og bein.
Nú verður hún.étin umjólin.
Faldafeykiiv
Lápur og Skrápur
Jólasveinarnir og foreldrar þeirra
handskornir í tré.
Bjarni Þór Kristjánsson tré- og
eldsmiður hefur skorið í tré
og málað hina íslensku jólasveina
og ástkæra foreldra þeirra.
Bjarni Þór einskorðar sig ekki við
besti þekktu sveinana 13 sem
stundum eru kenndir við Jóhann-
es úr Kötlum heldur dregur hann
fram í dagsljósið minna þekkta
sveina, svo sem Faldafeyki, Lepp,
Skrepp, Láp og Skráp, Leiðinda-
skjóðu, Völustakk og Bólu og jafn-
vel fleiri. Jólasveinarnir fást í
Galleri IJnoss á Skólavörðustíg 3
en einnig má nálgast þá á
www.hnoss.net. ■
MAMMA JÓLASVEINANNA
Grýla í útfærslu Bjarna Þórs Kristjánssonar.
J