Fréttablaðið - 15.12.2001, Qupperneq 16
Lægsta verð frá 27.995 kr.
Hátíð
manngæskunnar
*
Idag virðist það ekki lengur for-
senda að vera kristinnar trúar til
þess að halda jólin hátíðleg, þrátt
fyrir að hátíðin sé haldin til þess að
fagna fæðingu frelsarans. Þær til-
finningar sem fylla fólk á jólunum
búa í öllum mönnum sama hvaðan
þeir koma, hvert þeir eru að fara
eða á hvað þeir trúa, ef þeir trúa þá
á eitthvað æðra yfir höfuð. ■
15. desember 2001
1 9.900 kr.
Pottasett
Bachmayr Solingen
• 19 hluta pottasett
• Þrefaldur háqceda botn
• Hitamæliríloki
• Frá Solingen þýskalandi
ON OFF
VÖRUMARKAÐUR
Smiðjuvegi 4 Kópavogi græn gata, Sími 577 3377
Árbækur Ferðafélags íslands eru einstakur bókaflokkur um náttúru og
sögu fslands. Þær fást nú á skrifstofu félagssins á sérstöku jólatilbóði ásamt
öðrum ferðabókum með 20% afslætri. Ef keyptar eru 2 eða fleiri er
veittur 30% afsláttur. Sendum í póstkröfu.
Ferðafélag íslands
Mörkinni 6, 108 Reykjavík,
Sími 568 2533, mynds. 56825354, netfang fí@fi.is
Föndurfólk
Hjá okkur færð þú það sem þarf í servíettur, ikona
og englamyndirnar t.d. step 1 og 2 sprungulakk,
iakklím og kertagrunn.
Nýjar fallegar ikona- og englamyndir
Koffortið
Strandgata 21, Hafnarfirði, sími 555 0220
Hátíð Ijóss og friðar
Pétur Hallgrímsson borðar sína steik.
Pétur Hallgrímsson gítar-
leikari Stríðs & friðar,
hljómsveitarinnar sem sér
um hljóðfæraleik á „Nýbúa“
Bubba Morthens, gerðist
búddatrúar fyrir nokkrum
árum. Hann segist hafa snú-
ist meira og meira í átt búdd-
isma Tíbetbúa, en mörg af-
brigði eru til af honum.
Svo virðist sem siðaskipt-
in hafi þó haft lítil áhrif á það
hvernig Pétur eyðir tíma sín-
um yfir jólahátíðina. „Ég
eyði mínum tíma hjá foreldr-
um mínum, borða mína steik
og held upp á þetta eins og
flestir gera. Kannski ekki af
jafnmikilli áfergju og margir
aðrir. Ég held upp á jólin sem
hátíð ljóss og friðar og lít á
þetta sem fjölskylduhátíð."
Pétur tekur þátt í jólaga-
faölæðinu en segist þó
halda ró sinni í gegnum
jólavertíðina. Hann og
hljómsveit hans verða lík-
legast önnum kafin fyrir
þessi jól að kynna nýju
breiðskífuna og því má bú-
ast við að hátíðahöldin bjóði
upp á kærkomið frí frá
Stríði & friði. ■
MIKIÐ AÐ GERA
Á PLÖTUVERTÍÐINNI
Pétur Hallgrímsson gítarleikari
Stríðs & Friðar ætlar að halda
jól eins og aðrir Islendingar þrátt
fyrir að hafa snúist til Búddatrúar.
Mín fyrstu hvítu jól
Mishant Sundaresh er aðallega að fagna manngæskunni á jólunum.
Mishant Sundaresh, kom hingað
til lands frá Indlandi á vegum
AUS, Alþjóðlegu ungmennaskipt-
anna, fyrir nokkrum mánuðum.
Hann er í sjálfboðavinnu hjá Am-
nesty International hér á landi.
Mishant er hindúatrúar og því
ætti jólahátíðin hans að verða afar
ólík þeirri sem við eigum að venj-
ast, eða hvað? „Ég er vanur að
halda upp á jólin,“ segir hann glað-
ur í bragði. „Það er af því að ég á
marga kristna vini og ég var í
kristnum skóla á Indlandi. Þar er
kirkja, og haldið upp á jólin þar. Ég
er því vanur að mæta til miðnætur-
messu þar sem kveikt er á kertum,
sungnir sálmar og annað. Eftir há-
tíðarmatinn fer ég iðulega í heim-
sókn til vina minna.“
Á þessum örlagaríku tímum
heyrum við talað um Islamstrú nán-
ast á hverjum degi. Hindúismi eru
þó trúarbrögð sem hinn almenni ís-
lendingur þekkir mun minna til og
því kjörið að biðja Mishant um að
útskýra kjarna hindúismans í
nokkrum orðum. „Orðið hindú þýðir
„viðurkenning", þannig að grunnur
hindúisma er að viðurkenna allt.
Hugmyndafræði hans er að líta ekki
á neitt sem sóun né neinn mann
verðlausan. Við eigum kannski
marga guði, en við trúum því að all-
ir guðir séu sami guðinn.“
Þannig er það eðlilegt fyrir Mis-
hant að tilbiðja Guð í kirkjum, eða
bara hvar sem er. Munurinn á trú-
arbrögðunum er hins vegar sá að
hindúar trúa ekki að Jesú hafi ver-
ið sonur Guðs, og því er fæðing
frelsarans ekki efst á baugi hjá
hindúum á jólunum. „Það halda
ekki allir upp á jólin, en flestir
komast þó í jólaskapið. Jólin eru að
verða svo mikil markaðsvara að
þau fjalla meira um að gefa gjafir
en nokkuð annað. Margir komast
því í jólaskapið þrátt fyrir að vera
ekki kristnir. Þegar ég held upp á
jólin er ég að fagna fæðingu
Krists, en aðallega er ég að fagna
samúðinni, ástinni, jafnrétti eða
bara manngæskunni yfir höfuð.“
Mishant segist ætla að halda
þeim sið að fara í miðnæturmessu
á aðfangadag, en spurningin er
hvað hann geri fleira yfir jólin.
„Þetta verða mín fyrstu jól fyrir
utan Indland, þannig að allt verður
mjög nýtt. Ég er alveg óvanur öll-
um þessum jólaskreytingum og
snjónum. Þetta eru mín fyrstu
hvítu jól. Mig hefur dreymt um að
fá snjó á jólunum síðan ég var
krakki.“
Skyldi það þá hafa haft ein-
hver áhrif á þá ákvörðun hans að
koma hingað? „Ein af ástæðum.
Ég hef mjög gaman af landafræði
og gat valið um að fara til margra
landa. Ég ákvað að koma hingað
vegna þess að ég vissi að annars
myndi ég aldrei koma hingað. Það
er erfitt að koma til íslands og að
fá að vera hér í eitt ár var upplif-
un sem ég vildi ekki missa af.
Þetta voru bara mín örlög,“ segir
Mishant sáttur að lokum. ■