Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KIÖRKASSINN 17. desember 2001 MÁNUDAGUR RÉTT ÁKVÖRÐUN Þrír af hverjum fimm netverjum segja það rétta ákvörðun Símans að segja Þórarni V. upp störfum? Var rétt að segja Þórarni V. Þórarinssyni fyrrum forstjóra Símans upp störfum? Niðurstöður gærdagsins á vwvw.vísir.is Spurning dagsins í dag: Er fimm vikna jólafrí Alþingis of langt? Farðu inn á vísi.is og segðu I þína skoðun Gissur hvíti SF 55: I hafsnauð við Noregs- strendur HÆTTUÁSTANP Gissur hvíti SF 55 var hætt kominn út af Noregi í gær eftir að hann varð vélarvana. Sextán menn eru í áhöfn, allir norskir nema skipstjórinn sem er íslenskur. Þegar blaðið fór í prentun var verið að draga Gissur hvíta til hafnar. Það gekk ekki áfallalaust þar sem taug á milli hans og drátt- arskipsins hafði slitnað tvisvar. Vonskuveður hefur verið á þeim slóðum þar sem skipin eru. Gissur hvíti er á línuveiðum í Barentshafi og hefur afli verið með ágætum. ■ Fyrsta íslenska léttvínið: Sala umfram væntingar vín „Það er búið að seljast miklu meira en við bjuggumst við svona fljótt", segir Omar Gunnarsson, vínframleiðandi á Húsavík, um sölu á fyrsta íslenska léttvíninu Kvöldsól sem kom á markað í byrj- j. un desember. „Þegar við fórum af stað sáum við fyrir okkur að þetta myndi seljast nánast eingöngu til erlendra ferðamanna. Við sáum fyrir okkur að það myndi rjátlast út ein og ein flaska fram á sumar- tímann en það hefur farið á annan veg og þetta rýkur út.“ Ómar segir að viðbrögð fólks séu þannig að vínið hafi komið því á óvart. „Margir mynda sér fyrir- fram skoðun á hvernig vínið sé og halda að það líkist meira berja- safti. En það er meiri fylling í því og við setjum krydd út í svo þetta er meira út í að vera eins og rauð- vín.“ Ómar segir vínið geta breyst frá ári til árs. Berjaspretta og veðurfar hafi mikil áhrif og eins sé opið fyrir að breyta út af upp- skriftinni frá ári til árs. Líklega verði vínið aldrei alveg eins. ■ Rjúpan á um 1000 kr. stykkið, ef hún er þá til: Veiðimenn bíða eftir hækkun RIÚpan Rjúpuleysi í kjörbúðum er orðið afar áberandi og margir farnir að óttast rjúpulaus jól í ár. „Þetta er svipað ástand og var á árunum 1991 og 1992, þá kom svona lægð á rjúpunni," segir Ragnar Lárusson sem unnið hefur áralangt bakvið kjötborðið í Nóa- túni. „Þetta er það slæmt að það verða margir sem fá ekki fuglinn. Þá skiptir fólk bara yfir í ham- borgarahrygginn eða eitthvað." Ragnar segir veiðimenn gera sér vel grein fyrir ástandinu og því sitji þeir á rjúpunni í von um að fá meira fyrir hana á endanum. „Þeir eru að sprengja verðlagið upp. Búðirnar fá í sjálfum sér mjög lítið fyrir stykkið, veiði- mennirnir stjórna alveg verðlag- inu. Þeir sitja bara á rjúpunni al- veg fram að síðustu stundu, og bíða eftir að verðið hækki." Ragn- ar segir að sumir kúnnar séu af- skaplega pirraðir á ástandinu enda eflaust erfitt fyrir fjölskyld- ur sem hafa haft rjúpuna á borð- stólnum í þrjátíu ár að sætta sig við rjúpuleysið. Ragnar segir þessa lægð að- eins vera náttúrulega sveiflu, og að ástandið sé ekki óeðlilegt. „Þetta kemur fyrir á 10 ára fresti. 1991 og 1992 fór rjúpan upp RJÚPA Menn velta þvi fyrir sér hvort veiði- menn sitji á bráð sinni í þeirri von að fá enn hærra verð fyrir hana. úr öllu valdi í verði. Stofninn er víst ekki kominn í lágmark, þeir telja að það séu eitt, tvö ár í það.“ Ragnar segir stykkið kosta nú 800 - 1000 kr. út úr búð. Hann segir stærstan hluta af því verði fara í vasa veiðimanna þar sem búðin leggi aldrei meira en um 150 kr. á stykkið. „Ég hef ekki getað annað pönt- unum. Svo stoppa ég bara af þeg- ar fer að líða á. Síðast þegar það var svona rjúpuhallæri fór stykk- ið upp í 1000 krónur en svo korteri fyrir jól kom alveg hellingur inn. Þá voru menn að sitja á þessu of lengi. Búðirnar hækkuðu sig ekk- ert og stoppuðu verðhækkunina. Þá fóru veiðimennirnir að skríða inn með þetta.“ ■ Ar afat vill heij a friðarviðræður Arafat fordæmir Sharon. Hvetur til þess að friðarviðræður verði hafnar á ný. Colin Powell segir Palestínumenn eiga sök á því að erindreka stjórnarinnar er gert að snúa aftur til Washington. Ekki dregur úr ofbeldi. JERÚSALEM. CAZA. ap. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, hvatti í gær ísraelsmenn til að snúa aftur að samningaborðinu með Palest- ínumönnum. Arafat sagði að sjálfsmorðsárásum gegn ísrael- um yrði að linna sem og öllum hryðjuverkaárásum og þeir sem ekki hlíttu því yrðu látnir svara til saka. Hann sagði einnig að Ariel Sharon, forsætisráðherra fsrael, hefði lýst yfir stríð á hendur stjórn Palestínumanna og ítrekaði þá ósk Palestínumanna að þeir ;höfuðborg Vvarpið var fengju sitt eigið ríki o þess yrði Jerúsalem. . haldið í tilefni þess að Ramadan, helgum mánuði múslima, er lokið. Arafat sagði Shar- on eiga sök á þeir- ri öldu ofbeldis sem hefur gengið yfir ísrael undan- farnar vikur. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að hryðjuverkaárás- um Palestínu- manna væri um að kenna að erind- reki Bandaríkja- manna, Anthony Zinni, hefði yfir- gefið landið. Powell sagði að sak- lausir borgarar væru fórnarlömb árásanna, auk þess sem þær hefðu grafið undan valdi Arafats og hans manna. Zinni var kallaður til DRENGUR BLÆS í BLÖÐRU Þriggja daga hátíðarhöld standa yfir hjá Palestínumönnum í tilefni loka Ramadans, helgasta mánuði múslima. Drengurinn stendur við rústir í bænum Beit Hanoun. Israelski herinn lagði undir sig hluta bæjarins og eyðilagði nokkur hús á laugardag, meðal annars hús Salah Shahada, sem fer fyrir Hamas-samtökunum. skrafs og ráða- gerða í Was- hington en lítill árangur hefur verið af þriggja vikna dvöl hans í landinu. Zinni átti að reyna að lífga friðarvið- ræður ísraela og Palestínumanna. Á tímabilinu sem hann héfur dval- ið í ísrael héfur ofbeldi aukist mjög og háfa 60 Palestínúmenn og YASSER ARAFAT Leiðtogi Palestínumanna í sjónvarpsávarpi sínu í gær. 40 ísraelsmenn látist í átökunum. Þyrlur ísraelsmanna skutu eld- flaugum að byggingum Palest- ínsku lögreglunnar á Gaza svæð- inu snemma í gærmorgun, í kjöl- far árásar Palestínumanna á ná- læga herstöð. Yfirvöld Palestínu- manna lokuðu 14 bækistöðvum Hamas samtakanna og Jihad-sam- takanna á Vesturbakkanum. ísra- lear hafa gefið lítið fyrir þessar aðgerðir palestínskra stjórnvalda þau segja stöðugar árásir ísreala gera þeim erfiðara fyrir er kemur að því að hafa hendur í hárri her- skárra Palestínumanna. ísraelar gerðu árás á bæinn Beit Hanoum á Gaza svæðinu á laugardag og lögðu nokkur hús í rúst, þar á meðar hús leiðtoga Hamas-sam- takanna, Salah Shahada. 15 Palest- ínumenn voru handteknir, en ekki tókst að hafa hendur í hári Shahada. ■ 20% afsláttun af allri erlendri klassík til jóla Hriktir í viðskiptabanni við Kúbu: Kaupa korn frá Bandaríkjunum havana. ap. í fyrsta skipti í fjóra áratugi kom bandarískt skip til Kúbu í gær hlaðið verslunarvarn- ingi, nánar tiltekið korni. Sending- in hefur vakið væntingar banda- rískra viðskiptamanna og kúban- skra og bandarískra embættis- manna um að það styttist í að við- skiptabanninu við Kúbu verði aflétt. 24.000 tonn af korni voru um borð í skipinu, og er þetta í fyrsta skipti síðan 1963 að land- búnaðarvörur eru fluttar út til Kúbu frá Bandaríkjunum. í bandarískum landbúnaði vekur sendingin vonir um að viðskipta- banninu verði aflétt og kúbanskur markaður opnist. Kúbanir sem flúð hafa béima- land sitt eru margir hverjir hlynntir viðskiptabanninu og voru því andsnúnir sölunni. Þeir segja viðskiptaþvinganir nauðsynlegar til að refsa stjórn Fidels Kastrós, Kastró sagði í síðustu viku að hugsanlegt væri að meira yrði keypt frá Bandaríkjnum ef að Kúbu yrði leyft að selja vörur í Bandaríkjuum. Nær ölf viðskipti milli landanna eru bönnuð í dag en Bahdaríkjaþing leyfði nýverið sölu á matvælum til Kúbu. Kúba SKIPINU HEILSAÐ Fraktskipinu M.V.Ikan Mazatlan heilsað er það sigldi inn í höfnina í Havana. 26.400 tonn.af korni voru um borð í skipinú. hefúr hingað til ekki viljað nýta sér þessa heimild og segir ýmsa annmarka á henni. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.