Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 17. desember 2001 MÁNUDACUR SUND Esso-deild karla: Haukar að stinga af Á Jakob Jóhann Sveinsson eftir að ná langt? „Hann Jakob á pottþétt eftir að ná langt. Ég er 100% viss um það, hann hefur alla burði til að ná langt. Hann æfir eins og skepna og veit hvað hann vill gera og hvað þarf að gera til að ná því. Hann er rosalega sterkur á andlega sviðinu." Örn Arnarson, sundkappi úr SH HANPBom íslandsmeistar- ar Hauka eru með sex stiga forystu í Esso deild karla eftir leiki helgarinnar. Haukar sigruðu Víkinga með ellefu marka mun, 31- 20 að Ásvöllum á laugar- dag. Aron Kristjánsson virðist vera komast í sitt fyrra form og skoraði átta mörk. Valur lagði Stjörnuna að velli 31-22 í Ásgarði og ÍBV sigraði KA fyrir norðan með 23 mörkum gegn 22. Aftur- elding og FH skildu jöfn í Mos- fellsbænum, bæði lið skoruðu 25 mörk. Bjarki Sigurðsson var at- kvæðamestur heimamanna með átta mörk en Guðmundur Peder- sen skoraði átta fyrir FH. Selfoss sigraði Gróttu/KR 29- ESSO-DEILPIN Lið Leikir U J T Mörk Stig Haukar 13 12 1 0 363 311 25 Valur 13 9 1 3 358 321 19 ÍR 13 9 1 3 330 307 19 UIVIFA 13 7 2 4 317 305 16 KA 13 5 2 6 327 318 12 Þór A. 13 5 2 6 363 358 12 FH 13 4 4 5 330 331 12 Grótta/KR 13 6 0 7 329 335 12 ÍBV 12 5 2 5 327 343 12 HK 13 4 3 6 368 369 11 Selfoss 13 5 1 7 341 355 11 Fram 13 3 4 6 314 308 10 Stjarnan 13 3 2 8 310 342 8 Víkingur 12 0 1 11 258 332 1 27 á Selfossi og ÍR sigraði Fram með tveggja marka mun 22-20. Þetta var sjötti sigur Júlíusar Jón- assonar og lærisveina hjá ÍR og situr liðið sem stendur í þriðja sæti deildarinnar. HK sigraði Þór í Digranesinu með 31 marki gegn 25. ■ Úrvalsdeildin: KR vann Njarðvík KÖRFUBOlTl KR sigraði Njarðvík með 81 stigi gegn 78 í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gær. Keflavík situr enn í öðru sætinu en liðið lagði Breiðablik að velli með 92 stigum gegn 83. Grindavík sigraði Þór Akureyri með tíu stiga mun, 107-97. ■ ÚRSLIT: Keflavík - Breiðablik 92-83 Hamar - Stjarnan 82-70 Grindavík - Þór Ak. 107 - 97 Tindastóll - Skallagrímur 88-87 UIVIFN - KR 78-81 ÍR - Haukar 82 - 74 ÍUróttir áSýn 17.-26. desember mán- Heklusport flm W. 22.30 máfl AstonVMa- Enskl bolilnn kl. Í9.55 þri Arseital - Hewcaitle Enskl boltlnn 19.50 sun Ítalskí boltinn v kl. 13.45 -lí- Llverpool - Arsenal '' Enskláoillnnk). 15.55 SASpurs-l NBAkl.00.0! mán Aðfangadagur * Jk Jókertölur 6 4 9 5 3 iJP^I AÐALTÖLUR 1 7J 17) 22) 25) 27) 45) BÓNUSTÖLUR „ . \ 0_ \ Alltaf á 111 miðvikudögum Jókertölur mlðvlkudags £0. 8 8 9 16 Tvíbætti íslandsmetið á EM Jakob Jóhann Sveinsson í 6. sæti á EM. Tvíbætti íslandsmetið. Hefur bætt það um ijórar sekúndur á tveimur árum. sunp Jakob Jóhann Sveinsson, sundkappi úr Ægi, náði sjötta sæt- inu í 200 m bringusundi á Evrópu- mótinu í 25 metra laug sem fram fór í Antwerpen í Belgíu um helg- ina. Hann synti á 2:10,47 í úrslita- sundinu og bætti íslandsmet sitt, en hafði synt á 2:10,81 fyrr um daginn. „Maður er bara búinn að æfa eins og brjálæðingur," sagði Jakob Jóhann þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær, þar sem hann sat að snæðingi á veitinga- húsi í Belgíu með félögum sínum. „Þetta gekk bara mjög vel hjá mér og ég náði markmiðinu sem ég var búinn að setja mér, þ.e. að komast í úrslitin. Það gekk eftir svo ég hafði engu að tapa í úrslita- sundinu sjálfu." JAKOB JÓHANN SVEINSSON Sundkappi úr Ægi fór míkinn á Evrópumótinu í 25 metra laug í Antwerpen um helgina. Jakob Jóhann segist þakka þjálfara sínum árangurinn og jafnframt nýjum andlegum að- ferðum við undirbúning. „Ég fór sálfræðings í fyrra og lærði slökun og nýtti mér hana. Svo fór ég nokkrum sinnum í gegnum sundið í huganum.“ Gamla met Jakobs var 2:14,52 sem hann setti í Sundhöll Reykja- víkur árið 1999. Hann bætti það met fyrir þremur vikum, synti á 2:11,55 en tvíbætti það, sem fyrr segir um helgina. Hann hefur því bætt metið um rúmar fjórar sek- úndur. Jakob Jóhann ætlar að hvíla sig þegar heim kemur en svo hefst undirbúningur fyrir Evr- ópumótið í Berlín á næsta ári. kristjan@frettabladid.is Enska úrvalsdeildin: Eiður skoraði gegn Liverpool fótbolti Eiður Smári Guðjohnsen skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar Chelsea lagði Liver- pool að velli með fjórum mörkum gegn engu í ensku úrvalsdeild- inni. Chelsea var yfirburðaraðili í leiknum og Greame Le Saux skor- ÚRSLIT HELGARINNAR aði strax á þriðju rnínútu leiksins. Hasselbaink bætti öðru marki viö, eftir sendingu frá Eiði Smára. Della Bona bætti þriðja markinu við áður en Eiður Smári skoraði síðasta mark leiksins. Liverpool STAPA EFSTU LIPA Chelsea - Liverpool 4-0 Leeds - Leicester City 2-2 Southampton - Sunderland 2-0 Everton - Derby 1-0 Middlesbrough - Man Utd 0-1 West Ham - Arsenal 1-1 Bolton - Charlton 0-0 Tottenham - Fulham 4-0 Newcastle - Blackburn 2-0 Lið Leikir U J T Mörk Stig Liverpool 16 10 3 3 25-15 33 Arsenal 16 8 6 2 34-18 30 Newcastle 16 9 3 4 27-19 30 Leeds 16 7 8 1 20-11 29 Chelsea 17 6 9 2 23-12 27 Man. Utd. 17 8 3 6 37-27 27 Tottenham 17 8 3 6 29-23 27 Aston Villa 16 6 6 4 21-18 24 Everton 16 6 5 5 21-19 23 Fulham 17 5 8 4 17-17 23 RAUÐI HERINN. - saga Liverpool 1892-2001 Knattspyrnubókin í ár. Frábær bók um frábært lið. jp BÓKAÚTGÁFAN HÓI.AR ÞRÍR GÓÐIR Eiður Smári Guðjohnsen, Greame Le Saux og Jimmy Floyd Hasselbaink, fagna hér marki þess síðastnefnda en hann skoraði annað mark Chelsea þegar liðið lagði Liverpool að velli 4-0. heldur þó þriggja stiga forystu í deildinni. Manchester United virðist komið á beinu brautina en liðið vann sinn annan sigur í röð þegar það lagði Middelsbrough að velli 1-0. Ruud van Nistelrooy skoraði mark meistaranna. Guðni Bergsson og félagar í Bolton gerðu markalaust jafntefli við Charlton og Arsenal gerði 1-1 jafntefli við West Ham. ■ tf HART BARIST Diadetchko reynir hér að brjótast í gegnum vörn norsku stúlknanna. Hinkel Nyhamar og Cecilie Leganger reyna að stoppa hana. HM kvenna í handbolta: Rússland vann handbolti Rússneska kvenna- landsliðið í handknattleik lagði það norska með 30 mörkum gegn 25 þegar liðin mættust í úrslita- leik heimsmeistaramótsins í Merano á Ítalíu í gær. Júgóslavar lögðu Dani að velli 42-40, í tvíframlengdum leik um þriðja sætið. Fyrirfram var búist við að Dan- mörk og Noregur myndu leika til úrslita en öllum að óvörum töpuðu þær fyrrnefndu fyrir þeim rúss- nesku í undanúrslitum. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.