Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 6
6 FRETTABLAÐIÐ 17. desember 2001 MÁNUDAGUR SPURNING DAGSINS Eru fangelsisdómar á íslandi of vægir? Stundum. Það fer eftir eðli málanna. Nauðgunardómar eru sérstaklega vægir. Torfí Þór Fort rafvirki Alþingi komið í jólafrí: Fundað innan við hálft árið alþingi Fimm vikna jólafrí þing- manna frá þingfundum á Alþingi hófst síðasta föstudag. Þá höfðu þingfundir staðið í tíu vikur frá 1. október síðast liðinn auk þess sem ein vika fór í kjördæmastarf þing- manna. Nokkuð meira verður um fundahöld hjá þingmönnum þegar þeir snúa aftur í þingsal 22. janú- ar næst komandi en samkvæmt starfsáætlun Alþingis er gert ráð fyrir þingfundum í 14 vikur í vor en þingi verður frestað 24. apríl næst komandi mánuði fyrir sveit- arstjórnarkosningar. Alls mun Al- þingi því funda í 24 vikur þennan veturinn eða sem nemur tæpum sex mánuðum. Að venju var mikið um að vera síðustu dagana fyrir jólafrí og urðu mörg frumvörp að lögum síðustu dagana. 15 lög Iitu dagsins ljós á föstudag. Iiæst ber band- orminn margfræga um ráðstafan- ir í ríkisfjármálum og frumvarp um stjórn veiða smábáta. Að auki var kosið í stjórnir og nefndir á vegum þingsins og ríkisborgara- réttur veittur. ■ STUNGIÐ SAMAN NEFJUM Nóg var um að vera á þingi síðasta starfs- daginn og að mörgu að huga. Þúsaldarhvelfingin: Hrakfallasag- an á enda? BRETLAND Búist er við því að Falconer lávarður greini frá því í vikunni að kaupandi hafi fundist að Þúsaldarhvelfingunni sem bresk stjórnvöld reistu í London til að fagna aldamótunum síðustu. Þremur fyrirtækjum var boðið að leggja inn tilboð í hvelfinguna eft- ir að fyrra útboð fór út um þúfur. Breska blaðið Observer heldur því fram í frétt í gær að kaup- verðið verði mun lægra en þær 125 milljónir punda sem Legacy bauð í hvelfinguna í fyrra en frá því var horfið eftir að í ljós kom að rekstrarkostnaður var mun hærri en stjórnvöld höfðu haldið fram. Saga Þúsaldarhvelfingarinnar hefur verið allt annað en glæsileg. Bygging hennar kostaði 750 millj- ónir punda, andvirði 112,5 millj- arða króna, en þegar til kom lögðu mun færri leið sína i hvelfinguna en búist hafði verið við. Þrátt fyr- ir að hvelfingunni hafi verið lokað fyrir ári síðan heldur hún áfram að kosta breska skattgreiðendur háar upphæðir og síðasta árið nemur kostnaðurinn 21 milljón punda, rúmum þremur milljörð- um króna. ■ Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar í Smáraiind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna. Frábær jóiadagskrá í Vetrargarðinum í dag! 16:30 og 17:30 JÓlasagan lesin. 17:00 Jólaball með Helgu Möller,Magga Kjartans ogjólasveinunum. Ævintýraheimur barnanna i J Ólalandínu i allan dag. Veröldin okkar er full af lífi og fjöri í dag og það sama á við um göngugötuna þar sem tónlístarflutningur Magga Kjartans, jólasveinakvartett og kvennakór skapa rétta jólaandann. Verslanir opnar til Smáralind framtiljóla Verslanir opnar í dag milií klukkan 11:00 og 22:00 • www.smaralind.is EmS |g ■ Fleiri keyra bíla fullir í desember Algengara að fólk freistist til að keyra bíla sína heim á föstudagskvöld- um. Lögregla fylgist vel með ölvunarakstri. Okumaður grunaður um ölvun velti bíl sínum á Akureyri. LÖGREGLUMÁL Ölvun var áberandi í Reykjavík aðfaranótt laugardags- ins og töluverð afskipti höfð af fólki að sögn lögreglunnar. Mikill erill var og töluvert um útköll í heimahús vegna hávaða. Mun ró- legra var hjá lögreglu í fyrrinótt. Svo virðist sem algengara sé að fólk freistist til að keyra bíla sína heim á föstudagskvöldum að sögn eins lögreglumannsins sem Fréttablaðið talaði við. Vildi hann tengja þetta við gleðskap vinnufé- laga sem væru mjög algeng í des- ember. Lögreglan í Reykjavík seg- ist leggja nokkuð upp úr því þessa dagana að fylgjast með ölvun- arakstri og koma í veg fyrir að fólk leggi ölvað af stað á bílum sín- um. Er svo einnig með lögreglu víða um land. Fimm ökumenn voru stöðvaðir aðfaranótt laugar- dagsins í Reykjavík grunaðir um ölvunarakstur. Aðfaranótt sunnu- dagsins var engin tekinn en um sjöleytið í gærmorgun voru tveir teknir grunaður um ölvunarakst- ur. Þess má geta að ellefu öku- menn voru teknir í Reykjavík grunaður um ölvun um síðustu helgi. Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af tveimur ökumönnum um helgina grunaða um ölvun und- ir stýri en að öðru leyti var helgin hjá þeim róleg. í Keflavík voru tveir ökumenn teknir aðfaranótt laugardagskvöldsins grunaður um ölvunarakstur og í Borgarnesi var einn ökumaður tekinn aðfaranótt laugardagsins. Fólksbíll er ónýtur eftir veltu á Borgarbraut á Akureyri laust fyr- ir klukkan sjö á laugardagsmorgn- inum. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp ómeiddur. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var það mikil mildi að maðurinn skyl- di sleppa án meiðsla því bíllinn sem er lítil Hondabifreið er mikið skemmdur. Ökumaðurinn sem er grunaður um ölvun var fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri til rannsóknar og blóðsýnatöku en var svo að lokinni skýrslutöku ekið til síns heima. kolbrun@frettabladid.is Skaftafellssýsla: Háskólasetur í Hornafjarðabæ náttúra Landsvirkjun hefur ákveðið að styrkja rekstur nýs há- skólaseturs í Hornafjarðarbæ um hálfa milljón króna á næstu þrem- ur árum. Markmiðið með þessari styrkveitingu er auka við þekk- ingu á þeim þáttum í náttúrufari sem hafa helst áhrif á mannvirki fyrirtækisins í Skaftafellssýslum. Þessir þættir eru aðallega jökul- hlaup, landbrot, sjávarselta, ofsa- veður og ísing. Verðmæti mann- virkja Landsvirkjunar á svæðinu eru um fjórir milljarðar króna. Það er Háskóli íslands sem stendur að þessu nýja háskóla- setri. Aðrir samstarfsaðilar eru Hornafjarðarbær, Vegagerðin, Siglingamálastofnun og Veður- stofa íslands. Tilgangur með stofnun setursins er að nýta hinar einstöku aðstæður sem eru fyrir hendi á Hornafirði til að efla fræðastarf og rannsóknir. Há- skólasetrið verður til húsa í Ný- heimum sem verið að er að bygg- ja. Þar verða einnig Framhalds- skólinn í A-Skaftafellssýslu, bóka- safn og ýmsir nýsköpunar- og rannsóknaaðiiar. ■ FRIÐRIK SOPHUSSON FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR Landsvirkjun styrkir setrið um 500 þúsund krónur á næstu þremur árum en verðmæti mannvirkja fyrirtækisins á svæðinu eru metin á 4 milljarða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.