Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ 17. desember 2001 MÁNUDAGUR KANÍNA VIKUNNAR „JÓLA"KANÍNA Þessi kanína var mætt á 25. sýningu kanínu- ræktenda í Bremen í Þýskalandi sem staðið hefur undanfarna daga. Dýraeigendur hvaðanæva frá Þýskalandi leggja leið sína þangað á ári hverju en búist var við rúmlega 25 þúsund kanínum á sýninguna í ár. Talið er að pistill Markúsar Arnar Antonssonar, útvarps- stjóra, í nýjasta tölublaði Vestur- bæjarblaðsins kunni að vekja litla hrifningu meðal sumra fé- laga hans innan raða Sjálfstæðis- flokksins. „í stað þess að vinna saman leitar fólk einveru og ein- angrunar og sækir fram á eigin forsendum í samkeppni um gæði og ríkidæmi. „Peningana eða dauðann“ má greina sem yfir- skrift á borðanum yfir rásmarki lífsgæðakapphlaupsins sem stendur nú sem hæst um allan hinn iðnvædda heim. [...] Reynsl- an sýnir, að áhættufíklum í fjár- málaheiminum með hagnaðar- sjónarmiðin ein að leiðarljósi er ekki alltaf best treystandi fyrir lífsnauðsynlegum grundvalíar- þáttum í rekstri þjóðfélagskerfa. Þannig standa Bretar nú uppi með meingallað einkavætt járn- brautakerfi, svo dæmi sé tekið. Heilbrigðiskerfið þar í landi hef- ur einnig stórlega látið á sjá. Blaðinu hefur verið snúið við hjá þarlendum stjórnvöldum og stefnt að skattahækkunum til að endurreisa það,“ sagði Markús í blaöinu. Velta menn því nú fyrir sér hvort hann hafi spurnir af frekari einkavæðingaráformum og sé byrjaður að verja stofnun sína. Hætt við sölu á sendibréfum J.D. Salinger til dóttur sinnar: Fékkst ekki nógu hátt verð fyrir bréfin uppboð Ekkert varð af sölu á safni sendibréfa rithöfundarins J. D. Salinger til dóttur sinnar, sem boðin voru upp hjá Sotheby’s í vikunni. Bréfin spanna 35 ára tímabil ('58 -'92) en fyrirfram var búist við að þau yrðu slegin á allt að 37 milljónir íslenskra króna. Hæsta boð í bréfin, sem alls eru 43 síður, var 18 milljónir og var ákveðið að hætta við uppboðið. Salinger er löngu kunnur fyrir skáldsögu sína Catcher in the Rye. Hann hefur ekki komið fram opinberlega í rúma þrjá áratugi og ekki sent frá sér skáldsögu all- an þann tíma. Kunnugir segja hins vegar að hann skrifi á hverj- um degi og víst að sendibréfin kunna að varpa ljósi á persónu höfundar. Dóttir Salinger, Margaret „Peggy" Salinger. var ekki við- stödd uppboðið. Ari áður en hún ákvað að bjóða þau til sölu sendi hún hins vegar frá sér sjálfsævi- sögu, Dream Catcher: A Memoir. Faðir hennar er 82 ára gamall og býr í Cornish í New Hampshire með þriðju eiginkonu sinni. Hann hefur ítrekað neitað öllu viðtöl- um. Árið 1999 vorú sendibréf sem hann skrifaði ástkonu sinni, Joyce Maynard, seld á 16,3 millj- sendibréf ónir króna. Kaupandinn skilaði pyrsta sendibréfið, af þeim sem boðin voru skáldinu bréfunum Og vildi með til sölu, skrifaði hann til dóttur sinnar árið því virða einkalíf höfundar. ■ 1958. ÞÖCULL Bréfaskriftirnar spanna 35 ára tlmabil ('58 - '92). Víst þykir að bréfin geti varpað Ijósi á leyndardómsfulla ævi rithöfundarins. •+£ 7ð u , /'J^. / / é / > <r /=) Áhuginn varð að áráttu Pétur Pétursson hefur skrifað íjölmargar greinar um margvísleg málefni. Nýlega komu 35 þeirra út í bókinni Ur fórum þular. bækur „Það var þannig að þeir hjá bókaútgáfunni Hólum höfðu samband við mig og óskuðu eftir að fá að gefa út úrval greina sem ég hef skrifað í Morgunblaðið á undanförnum árum,“ segir Pétur Pétursson um tilurð bókarinnar Úr fórum þular, sem er nýkomin út. Þrátt fyrir að mörg ár séu lið- in síðan Pétur lét af störfum hjá Ríkisútvarpinu, er hann enn kenndur við þularstarfið. Undan- farin ár hefur hann hins vegar helgað greinaskrifum og grúski tíma sinn. „Það er nú þannig að maður þarf að hyggja að því hvernig verja skal tómstundun- um. Þegar ég starfaði hjá Ríkis- útvarpinu þá velti ég því oft fyr- ir mér hver byggi í húsunum sem ég átti leið hjá. Ef ég komst í gamlar ljósmyndir þá fór ég alltaf að spyrjast fyrir um hver væri á myndunum. Þessi áhugi minn varð að áráttu og þetta hef- ur reynst mér góð dægradvöl," segir Pétur sem mælir með því að eldri borgarar leiti á náðir gamalla mynda ef þeim leiðist. „Það er auðvelt að nálgast auð- ugt mannlíf í gegnum myndir." Pétur bendir á að söfn lands- ins varðveiti hundruð þúsunda ljósmynda sem þarf að skrá og eldri borgarar gætu veitt ýmsar PÉTUR PÉTURSSON „Ég skrifa bara um það sem ég hef áhuga á," segir Pétur sem lengi var þulur á Rfkisút- varpinu en sinnir nú greinaskrifum. upplýsingar um fólk sem er á gömlum myndum. „Eyjólfur Halldórsson ferðagarpur og verkstjóri Vatnsveiturnnar tók tugi þúsunda af ljósmyndum. Hann fól mér að ráðstafa ljós- myndasafni sínu. Þar eru til dæmis hundruð mynda af göml- um húsum í Reykjavíkurborg. Safn Eyjólfs var að tillögu minni afhent Ljósmyndasafni Reykja- víkur. Það liggur enn óskráð og engum aðgengilegt. Svokölluð menningarnefnd Reykjavíkur- borgar hefur neitað Ljósmynda- safni Reykjavíkur um fjárveit- ingu í slíkt verkefni,” segir Pétur sem gagnrýnir harðlega skiln- ingsleysið á þessum menningar- verðmætum. „Það er ekkert á bakvið menningartal ráðamanna, fólk sem situr í þessum nefndum á að sjá um að sögunni sé haldið til haga. Annars hafa íslendingar engan áhuga á sögunni. Það hef- ur margoft sannast í fjölmiðlum, ég nefni sem dæmi 18. nóvember sl. Þá voru 80 ár liðin síðan rúss- neski drengurinn sem Ólafur Friðriksson hafði í umsjá sinni var hrakinn úr landi. Þetta er söguleg dagsetning hér á landi, 500 manna lið var kallað út og var það í fyrsta skipti síðan á söguöld að íslendingar báru vopn. Enginn fjölmiðill minntist á þetta aukateknu orði,“ segir Pétur og tekur annað dæmi. „Hinn 7. júlí síðastliðin voru 60 ár liðin síðan Bandaríkjaher tók við af hernámsliði Breta á ís- landi. Enginn fjölmiðill, ekki dagblöð, útvarp né sjónvarp minntist atburðanna. Enginn sagnfræðiprófessor, enginn stjórnmálafræðingur. Sálfræð- ingurinn Sigmund Freud hefði ef til vill kunnað svör við þeirri af- stöðu, eru þessi viðbrögð þjóðar- innar vottur um blygðun, sem bregst með þessum hætti við stórtíðindum? Að minnsta kosti er þessi „gleymska" ekki vottur um lifandi sagnfræðiáhuga," segir Pétur við blaðamann sem veit upp á sig sökina og snýr tal- inu að því hvort framhald verði á skrifunum „Það eru mörg við- fangsefni óleyst ennþá,“ svarar Pétur til. sigridur@frettabladid.is Hver urðu örlög mannanna sem lylgdu 1/1 • PVmÁNUDAGUR 10. DKSEMBER 2001 Feigðarför í fsherranum er það Vilhjálmur Stefánsson sem er skúrkurinn og er fátt tínt honum til varnar. Ef marka má bókina var hann athyglissjúkur og með mikilmennsku- brjálæði. Hann yfírgaf leiðangurinn fljótlega ásamt þeim sem hann þurfti á að halda en setti hina á guð og gaddinn. Guðmundur J. Guðmundsson landkönnuði ^^^^_norður í fshaf ÍS||S§C\ árið 1913 ? ktf íslensk þýðing Rúnar Helgí Vignisson rithöfundur. Þessi kynngimagnaða mannraunasaga lætur engan ósnortinn. PP FORLAG Það er víðar keppt hart um at- hygli fólks en við sölu bóka. Svo einkennilega vill að til að verið er að selja „heimagerð" ein- hverra allra vinsælustu sjón- varpsþátta, það er Viltu vinna milljón? og Gettu betur. En búið er að gera spil kennd við báða þættina. Keppnin er afar hörð þarna á milli. Ekki er enn vitað hvor þátturinn er líklegri til sig- urs í þessari keppninni. Þó er víst að það vinnur enginn milljón heima í stofu. Nú er allt útlit fyr- ir að Gettu betur hafi vinninginn umfram Viltu vinna millj- ón? Því er meðal annars þakkað að Logi Berg- mann Eiðsson hefur komið fram í aug- lýsingum fyr- ir Géttu bet- ur sem þykja hafa heppnast vel.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.