Fréttablaðið - 17.12.2001, Side 4

Fréttablaðið - 17.12.2001, Side 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 17. desember 2001 MÁNUDAGUR SVONA ERUM VIÐ GEYMSLA HEYFENGS Reiknað út frá rúmmáli - rúmmál votheys reiknað tvöfalt. ■ þurrhey VOTHEY '86 '90 '95 '96 '97 '98 '99 00 Heimild Hagtölur landbúnaðarins. Suður-Evrópa: Snjór og kuldi valda vandræðum maprip. róm. ap. íbúar Suður-Evr- ópu hafa mátt þola rússneskan kulda og snjókomu undanfarna daga, á meðan Reykvíkingar spóka sig um í sumarhitum. Þetta hefur valdið ýmsum vandræðum. Barcelona, I SNJÖKASTI Það er ekki oft sem hægt er að fara í snjó- kast á Markúsartorgi f Feneyjum. önnur stærsta borg Spánar, varð til dæmis rafmagnslaus á föstudag, eftir að kuldabylgja hafði gengið yfir norður og austurhluta landsins. Nokkur umferðaslys þar í landi mátti einnig rekja til veðrabrigð- anna. Gripið var til sérstakra ráð- stafana í fjórtán héruðum á Spáni, og grundir í Andalúsíu voru hrími lagðar, sem er mjög óvenjulegt. Á Italíu hefur sama verið upp á teningnum. Talsverðar umferðataf- ir urðu í kjölfar snjóbyls á föstudag og flugvelli og lestarstöðvum á Norður-Ítalíu. Skýring kuldanna mun eiga rætur sínar að rekja til Rússlands en þar geisaði stórhríð fyrir helgi. ■ A SLYSSTAÐ Fimm létust f umferðaslysi á Spáni á laugardag sem rekja má til veðursins. Veður fer kólnandi: Verðajólin rauð eða hvít? vepur Landsmenn eru að öllum líkindum farnir að velta því fyrir sér hvort jólin í ár verða rauð eða hvít. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu íslands liggur veður- spá fyrir aðfangadag ekki enn fyrir, en er að vænta á morgun. Samkvæmt langtímaspá fer veður hægt kólnandi, aðallega fyrir norðan og austan og á föstudag má búast við því að norðlægar átt- ir verði ríkjandi. Veðurfar verður svipað á höf- uðborgarsvæðinu og það var í gær og svo verður fram á mið- vikudag. Á fimmtudag verður væta á höfuðborgarsvæðinu en snjókoma eða slydda fyrir austan. Á föstudag og laugardag fer veð- ur kólnandi, komnar norðlægar áttir og mega norðanmenn búast við því að það snjói hjá þeim. ■ —♦— Kropp hjá bátunum: Fínt verð fyr- ir loðnuna VEIÐAR „Það er borgað fínt verð fyrir þetta“, segir Freysteinn Bjarnason, útgerðarstjóri Síldar- vinnslunnar á Neskaupsstað, en skip útgerðarinnar Birtingur landaði 500 tonnum af loðnu á Raufarhöfn um helgina. Það var í þriðja skipti sem Birtingur landar loðnu að undanförnu. Freysteinn segir menn bjart- sýna á að hafa megi gott upp úr loðnuvertíðinni. Átta til tíu bátar hafi verið við veiðar norður af Hraunhafnartanga síðustu vikuna sem hafi landað fyrir norðan og austan en einhverjir bátanna munu sigla suður fyrir með síð- ustu túra fyrir jól. ■ 1 LEIÐRÉTTING 1 * Ibókadómi sem birtist í laugar- dagsblaði Fréttablaðsins um smásagnasafn Ágúst Borgþórs Sverrissonar, Árið 1970, misritað- ist nafn höfundar. Við biðjum Ágúst innilega velvirðingar á því. FRÁ ÓLAFSFIRÐI Hæstiréttur taldi sýnt að fyrrum framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Sæunnar Axels hefði ætlað að koma jeppanum undan gjald- þroti fyrirtækisins með sölu á of lágu verði. Fiskvinnslulykt var kennt um lágt verð Fyrrum framkvæmdastjóra Sæunnar Axels gert að greiða 2,7 milljónir vegna kaupa á jeppa fyrirtækisins skömmu fyrir gjaldþrot. Mat endur- skoðanda á bílnum þótti of lágt en ekki var leitað álits bílasala. pómsmál Hæstiréttur hefur gert fyrrum framkvæmdastjóra Sæ- unnar Axels ehf að greiða 2,7 milljónir til þrotabús fyrirtækis- ins vegna kaupa hans á jeppabif- reið fyrirtækisins skömmu áður en það varð gjaldþrota. Maðurinn keypti sjö mánaða gamla bifreið- ina á 4,5 milljónir en nýr kostaði bíllinn 6,4 milljónir króna. Framkvæmdastjóri Sæunnar Axels, sem jafnframt var einn eig- enda fyrirtækisins, keypti bílinn af fyrirtækinu undir lok október 1999 en rúmum mánuði síðar var fyrirtækið tekið til gjaldþrota- skipta. Greiddi hann fyrir bílinn með yfirtöku lána upp á þrjár milljónir sem á honum hvíldu og að eigin sögn með því að greiða lögfræðingi sínum og fyrirtækis- ins fyrir vinnu sem hann hafði unnið fyrir fyrirtækið. Skipta- stjóra þótti söluverðið of lágt auk þess sem ekki var að finna gögn í bókhaldi um greiðslur fyrir hann. í héraðsdómi lagði hann fram bréf frá umboðinu þar sem kom fram að endursöluverð á sjö mánuða gömlum jeppanum væri 5,8 millj- ónir miðað við að bíllinn liti vel út og væri í góðu standi. Endurskoð- andi Sæunnar Axels mat bílinn fyrir söluna og sá ekki ástæðu til að leita til bílasala með mat þar sem hann átti sjálfur sams konar bíl og var kunnugt um gangverð. Hann kvað jeppann ekki vel með farinn. Dæld hafi verið á honum framanverðum og hann orðið fyrir öðru tjóni auk þess sem „fisk- vinnslulykt" hafi verið komin í bíl- inn og hann mikið keyrður. Tíu mánuðum síðar var bíllinn seldur á 4,4 milljónir að undangenginni viðgerð upp á 174.000 krónur. Framkvæmdastjórinn fyrrver- andi hafði boðist til að skila jepp- anum gegn því að fá endurgreitt það sem hann hafði greitt fyrir hann en því hafnaði skiptastjóri. Kvaðst hann þá reiðubúinn að greiða þrotabúin allt að 585.000 fyrir bifreiðina umfram það sem þegar hafði verið greitt en því var einnig hafnað. binni@frettabladid.ís Listi fólksins á Akureyri: Bjóða fram í vor sveitarstjórnarkosningar Að- standendur Lista fólksins sem náði einum manni inn í bæjar- stjórn Akureyrar i sveitarstjórn- arkosningunum 1998 hafa ákveðið að bjóða aftur fram við sveitar- stjórnarkosningarnar næsta vor. „Við ákváðum á fundi í byrjun mánaðarins að svara því játandi ef fólk spyr okkur hvort við ætl- um að bjóða fram í vor“, segir Oddur Helgi Halldórsson, bæjar- fulltrúi Lista fólksins. Oddur segir að framboðsvinna sé að öðru leyti skammt á veg kominn og engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvernig listinn skuli skipaður. Að sögn Odds verða engar frekari ákvarðanir teknar í þessum málum fyrr en eftir jól. „Það er nægur tími til þess. Ég minni á að fyrir síðustu kosningar héldum við fyrsta ODDUR HELGI Framboð ákveðið mun fyrr en fyrir síðustu kosningar. fundinn 18. mars. Þá héldum við fund til að spá í það hvort við ætt- um að fara í framboð eða ekki.“ ■ EKKI GÓÐ LATÍNA „Það hefði ekki þótt gott latína þegar ég var að stýra Hafnarfirði ef ég hefði ekki vit- að hversu margir ynnu hjá bænum." Þróun fjölda opinberra starfsmanna: Enginn veit hversu margir vinna hjá ríkinu stjórnsýsla „Því miður veit for- sætisráðherra ekki hversu marg- ir vinna hjá honum", segir Guð- mundur Árni Stefánsson um svar forsætisráðuneytisins við þróun fjölda starfsmanna hins opinbera og fyrirtækja sem eru að hluta í eigu hins opinbera. „Ég var að fiska eftir því hver hefði orðið þróun umfangs ríkis- ins á undanförnum árum. Menn hafa verið að halda því fram, sjálfstæðismenn einkum og sér í lagi, að þeir hafi verið að draga úr ríkisumsvifum. Fjárlög síðustu ára benda til annars þau hafa tvö- faldast og farið langt umfram verðlag." Guðmundur segist hafa viljað sjá þróun á fjölda opinberra starfsmanna í þessum samhengi en í ljós komið að hvergi væri að finna áreiðanlegar upplýsingar um það. „Það fær mann til að velta því fyrir sér hvernig gangi að halda utan um ríkiskerfið með skynsamlegum hætti þegar menn hafa ekki einu sinni hjá sér upp- lýsingar um hversu margir starfsmennirnir eru.“ Sveitarfé- lögin segir Guðmundur Árni vera engu skárri en ríkissjóð þar sem þau hafi ekki upplýsingar um starfsmenn hlutafélaga og orku- fyrirtækja í þeirra eigu. ■ IlögreglufréttirI Ekið var á hross á Þingvalla- vegi um þrjúleytið í fyrrinótt með þeim afleiðingum að það drapst. Bíllinn sem ók á hrossið stórskemmdist og var fluttur í burtu með kranabifreið. Engan annan sakaði við áreksturinn. . ♦... Brotist var inn í fjóra bíla í austurborginni í fyrrinótt og þaðan stolið geislaspilurum. Þá var brotist inn í bíl í Grafarvogi og stolið geisladiskum. í Breið- holti var farið inn í geymslu í íbúðarhússog þaðan stolið fjórum hjólbörðum á álfelgum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.