Fréttablaðið - 15.01.2002, Side 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
15. janúar 2002 PRIÐJUPAGUR
NORÐURLÖND
Mona Sahlin, aðstoðaratvinnu-
málaráðherra Svíþjóðar,
heldur stöðu sinni þrátt fyrir nýj-
ustu fregnir af óreiðu hennar í
fjármálum. Sahlin átti fund með
Göran Persson, forsætisráðherra
í gær og gaf Persson út þá yfir-
lýsingu í kjölfarið að hún nyti
fyllsta traust hans. Greint var frá
því í síðustu viku að hún hefði
ekki greitt bifreiðaskatt og að
auki hunsað tilmæli um viðgerð á
bíl sínum. Hún ók því bíl sínum í
óleyfi frá 1. desember. Sænskir
fjölmiðlar hafa velt sér upp úr
málinu og minnst hneykslisins
þegar Sahlin varð að segja af sér
embætti varaforsætisráðherra
1995. Þá komst upp að hún hafði
notað greiðslukort embættisins
til einkaneyslu.
Sjálfstæðismenn slíta samstarfi:
Nýr meirihluti í Vesturbyggð
SVEITASTIÓRNARMÁL SjálfstæðÍS-
flokkurinn í Vesturbyggð á Vest-
fjörðum hefur slitið meirihluta-
samstarfi við Sam-
stöðu. Boðað er til
bæjarstjórnarfund-
ar á morgun þar
sem oddviti Sam-
stöðu, Haukur Már
Sigurðarson, mun
HAUKUR láta af embætti for"
MÁR sigurð- seta bæjarstjórnar.
arson „Trunaðarbrest-
Þurfa að rök- urinn er af mörgum
styðja ásakan- toga. Þetta er ekki
irnar. eitthvað sem er að
gerast einn, tveir og þrír. Okkur
finnst að Samstaða hafi ekki gætt
almannahagsmuna eins og við
teljum að eigi að gera það,“ segir
Jón B.G. Jónsson, oddviti sjálf-
stæðismanna.
Haukur Már segir að trúnaðar-
brestur hafi orðið. Hann sé hins
vegar allur sjálfstæðismanna sem
hafi ekki getað staðið við skrifleg-
an
meirihlutasamning og m.a.
gengið á bak orða sinna í sam-
starfinu og einhliða borið upp til-
lögur án samráðs við fulltrúa
Samstöðu s.s. um fækkun bæjar-
fulltrúa úr níu í sjö. Hvað eftir
annað hafi Samstaða miðlað mál-
um svo samstarfið gæti haldið
áfram í bæjarstjórn en allt hafi
SVIPTINGAR I SVEITARSTJÓRN
í Vesturbyggð hefur verið myndaður nýr
meirihluti með sjálfstæðismönnum og Vest-
urbyggðalistanum, sem samanstendur af
einum bæjarfulltrúa; Kolbrúnu Pálsdóttur.
komið fyrir ekki.
Haukur veit ekki hvað átt er
Bjarni Ólafsson AK 70:
Fullfermi á
fyrsta degi
loðnuveiðar Loðnuveiði er komin
á fullt eftir brælu síðustu daga.
Bjarni Ólafsson AK 70 landaði
fullfermi, 1370 tonnum, á Seyðis-
firði í gær. Loðnan er stór og góð
og fer öll í bræðslu. Að sögn Gísla
Runólfssonar, skipstjóra, fengust
200-300 tonn í hverju holi og
veiddist hún suður af Dalatanga.
Bjarni Ólafsson er nýkominn af
síldarveiðum og þurfti því ekki að
bíða eftir að veðrinu linnti líkt og
margir aðrir. „Við erum að landa
núna og bíðum eftir því að komast
aftur út,“ sagði Gísli hress í
bragði. ■
Fimmtíu fangar
komnir til Kúbu
Bandaríkjamenn gagnrýndir fyrir meðferð fanganna. Geymdir í
skjóllitlum útibúrum. Njóta ekki verndar sem stríðsfangar. Fjöldi
óbreyttra borgara enn sagður falla í hörðum loftárásum á austurhluta
Afganistans.
Skipa-
þjónusta
VELALAND
VÉLASALA • TÚRBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Vagnhöfdi 21 • 110 Reykjavik
Simi: 577 4500
velaland@velaland.is
hryðjuverkamenn Bandaríski her-
inn er að flytja í áföngum til Kúbu
fanga sem handteknir voru í
Afganistan grunaðir um að hafa
starfað með talibönum eða al
Kaída samtökunum. Seint á sunnu-
daginn komu þrjátíu fangar til
Kúbu í viðbót við þá tuttugu sem
komu þangað á föstudaginn.
Bandaríkjamenn hafa sætt
gagnrýni, m.a. frá mannréttindam-
tökum, fyrir meðferð sína á föng-
unum. Þeir voru fluttir til Kúbu í
keðjum með bundið fyrir augun.
Sumir höfðu fengið deyfilyf og hár
þeirra og skegg höfðu verið klippt,
„af hreiniætisástæðum", þrátt fyr-
ir að vitað sé að þeir vilji hvorki
skerða hár sitt né skegg af trúará-
stæðum.
Þá eru þeir sagðir geymdir í litl-
um útibúrum sem veita lítið skjól
gegn veðri og vindum. Auk þess
verða þeir hafðir í keðjum. Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, segir að ekki verði
farið með þá sem stríðsfanga, „því
það eru þeir ekki, heldur bardaga-
menn sem brotið hafa lög.“ Sam-
kvæmt þvi njóta þeir ekki þeirrar
verndar sem stríðsföngum er tryg-
gð með alþjóðasamningum.
Þeir verða leiddir fyrir herdóm-
stól, enda dvelja þeir í herstöð
Bandaríkjanna í Guantanamo á
Kúbu, sem er utan lögsögu banda-
rískra dómstóla. Samkvæmt venju
fara réttarhöld við herdómstól
ekki fram fyrir opnum tjöldum,
þannig að erfitt verður að fylgjast
...........................
FANGELSIÐ í KANDAHAR
Á fjórða hundrað fanga eru eftir í þessu rammgirta fangelsi í Kandahar, þar sem um þrjú
þúsund hermenn gæta þeirra. Þaðan verða fangarnir svo fluttir til Kúbu, og eru fimmtíu
þeirra þegar komnir þangað.
með því hvort þau verða óhlut-
dræg.
Breska dagblaðið Times skýrði
frá því í gær að meðal þeirra fanga
í Afganistan, sem flytja eigi til
Kúbu, séu að minnsta kosti sex
breskir múslimar. Breska utanrík-
isráðuneytið staðfesti á laugardag-
inn að einn fanganna, sem fluttir
voru fyrir helgi, væri breskur.
Talsmaður Tony Blairs, forsætis-
ráðherra, sem vildi ekki láta nafns
síns getið, sagði í gær að bresk
stjórnvöld myndu reyna að hafa
samband við hann.
Þá gerðu Bandaríkjamenn í
gær harðar loftárásir á austur-
hluta Afganistans. Óbreyttir borg-
ara, sem búa á svæðinu, hafa verið
að flýja loftárásirnar og segja að
margir hafi fallið.
Meðal annars var heilt þorp lagt
í rúst. Þar voru 35 íbúðarhús, en
þau voru flest jöfnuð við jörðu.
„Enginn er eftir nema hinir látnu,“
sagði Noorz Ali, einn þeirra sem
flúðu þorpið, í viðtali við AP-
fréttastofuna.
Bandaríski herinn segist forð-
ast eftir megni að valda dauða
óbreyttra borgara, en áherslan sé á
að ná til allra liðsmanna al Kaída
og talibana sem hafa leitað skjóls á
þessum slóðum. ■
við þegar sjálfstæðismenn saka
þá um eiginhagsmunapot. Hann
bíður svara við þeirri ásökun sem
að hans mati er mjög alvarleg og
krefjist skýringa af hálfu sjálf-
stæðismann.
Jón vill ekki útlista nákvæm-
lega hvað felist í trúnaðarbrestin-
um eða eiginhagsmunapoti Sam-
stöðumanna. Hann segir að unnið
hafi verið að málum á bak við
meirihlutann. Deilur hafi staðið
um úthlutun byggðakvóta, sorp-
brennslustöð, Orkubú Vestfjarðar,
íslensk Miðlun og fleira. „Okkur
finnst ekki á vetur sitjandi að
halda áfram að starfa í svona
meirihluta. ■
Stjarnvísindi:
Himingeimur-
inn litgreindur
washington. ap Nokkrir stjörnu-
fræðingar við John Hopkins há-
skólann í Bandaríkjunum hafa
verið að dunda sér við að reikna
út hvernig heimurinn er á litinn,
að meðaltali. Þeir hafa safnað
saman upplýsingum um ljósið frá
þeim stjörnukerfum sem sjá má á
himninum, í allt að nokkurra
milljarða ljósára fjarlægð. Síðan
reiknuðu þeir út meðaltalslitinn á
þessu öllu saman.
Niðurstaðan er sú, að heimur-
inn sé grænleitur, nánar tiltekið
„örlítið grænni heldur en föl út-
gáfa af turkísgrænum lit.“
„Við erum ekki enn búnir að
fara út í einhverja málningar-
vörubúð til þess að athuga hvort
til er eitthvert flott nafn á hon-
um,“ sagði Ivan Baldry, einn vís-
indamannanna.
Baldry segir þessa útreikninga
í aðra röndina vera til gamans
gerða. Þó ekki eingöngu, því með
litgreiningu á stjörnukerfum má
komast að því hve gamlar einstak-
ar stjörnur innan þeirra eru. Ung-
ar stjörnur eru heitar og bláar,
miðaldra stjörnur grænleitar en
undir lok ævinnar taka þær á sig
rauðan lit. Þetta þýðir líka að
„meðaltalslitur" heimsins muni
þegar aldir líða smám saman
verða rauður. ■
NORÐURLÖND
Ekki er lengur bannað að selja
öl og gos í dósum í Dan-
mörku. Hans Christian Schmidt,
umhverfisráðherra, tilkynnti í
gær að Danir myndu aflétta
banni á einnota umbúðum.
Danska ríkisstjórnin vonast til að
lagabreytingin verði til þess að
málaferli gegn dönskum stjórn-
völdum við dómstól ESB falli nið-
ur. ESB höfðaði málið vegna þess
sambandið taldi dönsku lögin
standa í vegi frjálsrar samkeppni
innan ESB. Danir rökstuddu lögin
á sínum tíma með því að dósir
væru ekki umhverfisvænar.
Máíarar - Múrarar - Píparar - Smiéir
Dúkarar • Rafvirkjar • iasflfæknar
Eitt númer - 5111707
■qJ Tíi þjónustu reiduhúnirí
Handiaginn
Framboð í sveitarstjórnakosningum í vor:
Frjálslyndir og óháðir fara
fram saman í borginni
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is
J
Er byrjuð aftur eftir fæðingarorlof á
Hársnyrtistofunni Mýrún,
Kleppsvegi I50s. 588 8505
yar áður á Hársnyrtistofunni Minni, Toni and
guy og Cleópötru.
Gamlir og nýir viðskiptavinir ávalll velkomnir
Kveðja
Margrét Þorsteinsdóttir,
hársnyrfimeistari
borgarstjórn Verið er að kanna
möguleikann á sameiginlegu
framboði Frjálslynda flokksins og
óháðra í borgarstjórnarkosning-
unum í vor.
Miðstjórn Frjálslynda flokks-
ins varð við tilmælum Ólafs F.
Magnússonar, læknis, og félaga
hans um könnun á sameiginlegu
framboði og fékk framkvæmda-
stjórn flokksins umboð til við-
ræðna um skipan framboðslista og
forystu hans. Ólafur F. og félagar
hans í flokki óháðra munu svo til-
nefna fulltrúa til viðræðna við
málefnanefnd Frjálslyndra um
málefni borgarinnar og frekari
stefnumótun.
Ólafur segist mjög bjartsýnn á
samstarfið við Frjálslynda flokk-
inn. „Ekki síst
vegna þess að
mér heyrast þau
vera mjög sam-
mála mínum
áherslum í um-
h v e r f i s.m á 1 u m
sem eru hliðholl-
ari umhverfis-
vernd en raunin
hefur orðið á með
stóru framboðin
tvö í Reykjavík.
Auk þess hafa
Frjálslyndir haft
uppi mjög góðan
málflutning í
málefnum ör-
yrkja og aldraðra
og ástæða til að
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
Ólafur segist búast
við að harkalega
verði að honum
vegið af pólitískum
andstæðingum í
kosningaslagnum
sem framundan er,
en segist jafnframt
við öllu búinn og
reynslunni rfkari úr
umhverfisbarátt-
hvetja fólk til að kynna sér hann,“
sagði Ólafur og taldi það sam-
merkt með Frjálslynda flokknum
og öðrum sem risið hafi gegn ríkj-
andi öflum í samfélaginu að mál-
flutningur þeirra hafi verið afbak-
aður af pólitískum andstæðingum.
Ólafur segir firru að ekkert
komi út úr samstöðu við aldraða
og öryrkja, líkt og fjallað hafi ver-
ið um í fjölmiðlum. „Þetta er bara
ótímabær svartsýni af hálfu póli-
tískra andstæðinga," sagði hann
og bjóst við að fá sterka menn úr
röðum aldraðra og öryrkja með
sér í framboð, enda hafi margir
haft við hann samband. „Mínir
þræðir liggja svo víða inn í þessa
hópa bæði í gegnum mitt starf og
nefndarstörf í borginni." ■