Fréttablaðið - 15.01.2002, Side 13
PRIÐJUPAGUR 15. janúar 2002
TRÉTTABLAÐIÐ
13
Nýjar niðurstöður mannfræðinga í Suður-Afríku:
Mannleg hugsun er
77 þúsund ára gömul
77 ÞÚSUND ÁRA GAMALL STEINN
Munstur sem grafin eru á þennan stein benda ótvírætt tii þess að menn hafi verið farnir
að hugsa og hegða sér með nútímalegum hætti mun fyrr en mannfræðingar hafa hingað
til talið.
washington. ap Til þessa hafa vís-
indamenn talið að. fyrir um það
bil 40 þúsund árum hafi mann-
kynið farið að hegða sér og hugsa
með líkum hætti og þekkist enn í
dag. Er þá miðað við að mannin-
um, sem líffræðilega tók á sig nú-
verandi mynd fyrir 150 þúsund
árum, hafi hlotnast hæfileikar til
að búa til verkfæri úr beinum,
mála hellamyndir og veiða sér til
matar með frekar flóknum útbún-
aði og skipulagningu. Talið hefur
verið að fyrstu mennirnir, sem
voru færir um þetta, hafi búið í
Evrópu fyrir um 40 þúsund árum.
Nýlega fundust hins vegar í
helli skammt austur af Höfða-
borg í Suður-Afríku fáeinir stein-
ar, sem virðast ætla að kollvarpa
þessum eldri kenningum. Á stein-
ana eru grafin flókin munstur,
sem eru ótvíræð merki um nú-
tímalegt hugarfar og hegðun
manna. Aldursgreining bendir
hins vegar til þess að steinarnir
séu 77.000 ára gamlir, og það þýð-
ir að mannkynið hafi byrjað að
haga sér og hugsa með nútíma-
legum hætti um það bil 35.000
árum fyrr en vísindamenn hafa
talið.
„Það er kerfi í þessu munstri,"
segir Christopher S. Henshilwood,
höfundur vísindagreinar um stein-
ana sem birtist á netútgáfu tíma-
ritsins Science fyrir helgi. „Við
vitum ekki merkinguna í því, en
þetta eru tákn sem ég held að
þetta fólk hafi getað túlkað þan-
nig að þau hafi haft merkingu
sem aðrir hafi skilið.“ ■
Einkavæðingarnefnd og
Símmn:
Viðræðurnar
gengu vel
síminn Skarphéðinn Steinarsson
hjá einkavæðingarnefnd vildi
ekkert gefa upp um hvað bæri á
milli í viðræðunum við danska
símarisann TDC um kaup á hlut í
Landssímanum. Nefndarmenn
hittu fulltrúa TDC í London í lið-
inni viku. Skarphéðinn sagði vel
hafa miðað í viðræðunum og að
fleiri fundir væru ráðgerðir, auk
þess sem samningsaðilar eru í
reglulegu fjarskiptasambandi.
„Það var stefnt að því að klára söl-
una fyrir áramót, en nú erum við
óbundnir af tímasetningum sem
er mun betra.“ ■
Met í framleiðslu
og útflutningi á
tiskimjoli
Nýtt met var sett í mjöl- og lýsisframleiðslu á
síðasta ári. Útflutningur var 272 þúsund tonn.
Nýir markaðir að opnast. Verðmæti hátt í 16
milljarðar króna.
MJÖLFRAMLEIÐSLA „Ég býst VÍð að
þetta sé met,“ sagði Jón Reynir
Magnússon, starfandi fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
fiskimjölsframleiðenda úm fram-
leiðslu mjöls á síðasta ári. „Mér
sýnist þetta í fyrsta skipti sem
mjölframleiðslan
fari yfir 282 þús-
und tonn.“
Nýtt met var
einnig sett í út-
flutningi fiski-
mjöls á síðasta ári
en um 272 þúsund
tonn voru flutt út.
Gamla metið var
254 þúsund tonn
sett árið 1997. Jón
Reynir segir metið
komið vegna meiri
veiði undanfar-
inna ára.
Samkvæmt töl-
um frá Samtökum
fiskvinnslunnar er
útflutningsverð-
mæti mjöls og lýs-
is rúmir 14 millj-
arðar. Þá á eftir að
reikna seinasta mánuð ársins inn í
og má áætla að útflutningsverð-
mæti slagi þá hátt í 16 milljarða.
Mest var framleitt af loðnu-
mjöli, um 192 þúsund tönn, og er
verðmæti þess um 9,5 milljarðar.
Síldarmjölsframleiðslan var rétt
rúm 25 þúsund tonn, að verðmæti
1,2 milljarðar, og kolmunamjöl
um 3 þúsund tonn.
Aðspurður hvort bann sem
Evrópusambandið setti í kjölfari
kúariðunnar hafi haft áhrif á
framleiðslu og útflutning sagði
Jón Reynir.
„Eftirspurnin eftir mjöli virð-
ist hafa aukist, ekki síst það sem
fer í fiskeldi og
það sem fer í svín
og alifugla. Það er
ekki mikil breyt-
ing sjáanleg á út-
flutningi til þeirra
landa sem bann
Evrópusambands-
ins náði til.“
Stærstur hluti
mjölsins var flutt-
ur til Noregs en að
sögn Jóns Reynis
hafa fleiri markað-
ir verið að opnast.
„Síðan hefur
bæst við talsverð-
ur útflutningur til
Rússlands sem
ekki var áður.“
Lýsisframleiðsla
síðasta árs var 108
þúsund tonn, sem
er vel yfir meðallagi. Um 98 þús-
und tonn af lýsi voru flutt út á síð-
asta ári, en metið var sett árið
1996 þegar 136 þúsund tonn voru
flutt út. Jón Reynir segir að minna
sé af lýsi nú þótt veiði sé meiri en
það megi rekja til kolmunnans,
sem er ekki eins feitur og síld og
loðna.
kristjan@frettabladid.is
LOÐNUVEIÐAR
Af því fiskimjöli sem framleitt er hér-
lendis er stærsti hlutinn loðnumjöl.
Eftirspurn eftir mjöli virðist fara vaxandi
og nýjir markaðir hafa verið að opnast.
NÁMSKEIÐ í SJÓNVARPSÞÁTTAGERÐ
Lokaverkefnið verður sýnt á PoppTíví!
4 vikna námskeið, 8 stundir, einu sinni í viku.
13 - 16 ára kl. 18-20 • 17 ára og eldri 20 - 22.
Fyrsta námskeiðið hefst 4. febrúar.
Athugið aðeins 8 manns í hverjum hópi.
Kennsla mánudaga eða miðvikudaga.
Kennslustaður Mörkin 3, 2. hæð.
Verð kr. 15.000,-
Innifalið: Námskeiðsgögn, 3 leiðbeinendur,
myndbandsspóla og lokaverkefni sem sýnt á PoppTíví.
Kennarar: Siggi Hlö, Valli Sport og Hredds.
Nánari upplýsingar á www.hausverk.is/namskeid
Innritun hafin í síma 588 9544
eða á namskeid@hausverk.is
Vika 1:
Bóklegt. Uppbygging þátta og vinnubrögð
Vika 2:
Dagskrárfundur og hugmyndavinna
Vika 3:
Undirbúningur og upptaka.
Vika 4:
Klipping og frágangur.
Frumsýning á PoppTíví.
hDLisiycrk
Hausverk auglýsingastofa • Corporate Communication • Mörkinni 3, 108 Reykjavík • www.hausverk.is • Simi: 588 954
Drögum í stærsta happdrætti landsins á fimmtudaginn.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fáöu þér miöa í 800 6611 eða á hhi.is