Fréttablaðið - 15.01.2002, Síða 22
—i r
HRAÐSOÐIÐ
22
FRÉTTABLAÐIÐ
HÓLMGEIR BALDURSSON
forsvarsmaður Stöðvar 1
Fyrirmynd þekktustu bókar Hemingways:
Frá Keflavík
til Akraness
HVERNIG
hafa útsendingar Stöðv-
ar 1 gengið?
Útsendingar stöðvarinnar hafa geng-
ið vel. Við lukum við að setja upp
nýtt kerfi frá Ítalíu um áramót.
Þetta var feikileg vinna og tók um
átta mánuði að koma því upp. Við
tífölduðum sendistyrkinn á gamlárs-
dag og útsendingar nást nú um allt
Faxaflóasvæðið. Við höfum verið að
heyra frá fólki sem nær útsending-
um stöðvarinnar allt frá Keflavík og
upp á Akranes. Þá erum við með í
athugun að tengja okkur við minni
kapalkerfi hér og þar.
HVERJIR ná útsendingum Stöðvar 1 ?
Allir með hefðbundin loftnet, þ.e.
sjónvarpsgreiður, geta náð útsend-
ingum stöðvarinnar. Það er verið að
vinna í því að þær náist einnig í
gegnum örbylgjuloftnet og síðar
meir í gegnum breiðbandið.
HVERNIG verður dagskrá stöðvar-
innar samsett?
Dagskrá stöðvarinnar verður blönd-
uð, bæði klassískar erlendar kvik-
myndir og sjónvarpsþættir í bland
við innlent efni. Við verðum með
þátt með Jónasi Jónassyni, klukku-
tíma langan spjallþátt þar sem hann
nálgast viðmælendur sína á annan
hátt en gert hefur verið í sjónvarpi.
Síðan verður þáttur með Daníel
Edelstein og annar með Mumma í
Mótorsmiðjunni sem mun fjalla um
málefni líðandi stundar. Það er líka
verið að skoða fleiri möguleika og
við reiknum með að um 5-6 íslenskir
þættir verði á dagskrá vikulega.
Þættimir verða framleiddir af Saga
Film og öðrum aðilum og mun Stöð 1
ekki koma beint að framleiðslu þeir-
ra. Við skilgreinum okkur sem
„broadcaster" og menn eru að fá
þarna aðgang að okkar dreifineti og
geta þ.a.l. farið að selja inn á þetta
kostanir og auglýsingar sjálfir.
HVERNIG hefur fjármögnun fyrir-
tækisins gengið?
Vandi stöðvarinnar hefur einkum
Gamli maðurinn er látinn
bókmenntir Fyrirmynd aðalper-
sónu þekktustú bókar Ernest
Hemingways, „Gamli maðurinn
og hafið“, lést á sunnudag í sjáv-
arþorpinu Cojimar á Kúbu 104
ára gamall.
Gregorio Fuentes var skip-
stjóri á einkabát Hemingway's á
fjórða áratugnum eða á þeim
árum sem höfundurinn bjó á
Kúbu. Milli Fuentes og Hem-
ingway mynduðust sterk vináttu-
bönd og fóru þeir oft saman í
veiðiferðir.
Gamli maðurinn var orðinn
einskonar ferðamannasegull og
lögðu blaðamenn oft leið sína til
Cojimar þar sem þeir vissu að
GREGORIO FUENTES
Var fæddur árið 1897 en vann fyrir Hem-
ingway í ein 20 ár.
þeir gætu fengið viðtal við kapp-
ann í skipti fyrir eina romm-
flösku. Fuentes hafði mjög gaman
af því að rifja upp sögur af sjálf-
um sér og kynnum sínum af Hem-
ingway.
Fuentes dó á heimili sínu á
sunnudagsmorgni og var jarðað-
ur um kvöldið. Hann var víst skýr
í kollinum fram til dauðadags, en
líkamlega fann hann fyrir aldri
sínum. Bókin um gamla manninn
og hafið kom út árið '52 og fékk
Hemingway Nóbelsverðlaunin
fyrir. Höfundurinn flutti frá
Kúbu á uppreisnarárinu 1959 og
framdi sjálfsmorð tveimur árum
seinna. ■
Vissi fimm milljón
króna svarið
Margir fylgdust með hjónunum Árna H. Kristjánssyni og Lilju B.
Jónsdóttur glíma við fimm milljón króna spurningu í Viltu vinna
milljón. Hann segir þetta allt annað en að sitja heima í stofu og svara
spurningunum. „Þá er maður ekkert smá klár.“
spurningaþáttur Nokkrar tilvilj-
anir urðu til þess að hjónin Árni
H. Kristjánsson og Lilja B.
Jónsdóttir fóru í spurningaþátt-
inn Viltu vinna milljón?, sem
sýndur var síðasta sunnudag á
Stöð 2. Níu ára sonur þeirra var
alltaf að hvetja föður sinn til að
hringja til að taka þátt. „Ég tók
það ekki í mál og þótti það hé-
gómi og vitleysa," segir Árni.
Hann lét til leiðast einu sinni og
eftir það var hringt til baka og
hann spurður spurninga. „Allt í
einu stóðum við frammi fyrir
því að við áttum að mæta í ein-
hvern paraþátt." Eftir að sonur-
inn hafði sannfært föðurinn um
að hringja þurfti hann að sann-
færa eiginkonuna um að mæta í
þáttinn.
Árni segir að þau líti á það
þannig að hafa tapað fjórum
milljónum í
stað þess að
hafa unnið
eina. Hann
hafi þekkt
leikkonuna
sem spurt var
um síðast. „Ég
man eftir
henni í mynd-
inni Gone with
the wind og að
hún hafi verið
bústin. Þetta
gat bara ekki
verið svona auðvelt, fimm millj-
ón króna spurningin." Samt
hvatti hann til þess að þau skyl-
du hætta eftir að hafa tryggt
sér milljónina.
„Það er með ólíkindum hvað
það er allt annað að vera þarna
sjálfur. Það er mjög heitt út af
.U'jjllWiPll'l'gBW
RAFMÖGNUÐ STUND
Árni og Lilja fögnuðu mjög þegar þau
komust upp í eina milljón. Ární hvatti til
þess að þau skyldu hætta eftir að hafa
tryggt sér milljónina. Á myndinni til
vinstri eru börn hjónanna og vinkona,
sem komu með þeim í myndverið.
vissi svarið við én það kemur
alltaf efi.“
Árni undrast ekkert á því að
sófasnillingar þykist hafa svör
við öllu. „Þetta er allt annað en
að sitja heima í stofunni. Þá er
maður ekkert smá klár.“
Hann segir að Þorsteinn Joð,
stjórnandi þáttarins, auðveldi
ekki leikinn enda með fullkomið
pókerandlit. „Hann er hlutlaus
eins og hann á að vera. Það var
ekki óþægilegt að vera nálægt
honum." ■
ljósunum, keppnin var löng og
reykur kom sum staðar upp úr
gólfinu á sviðsmyndinni. Við
vorum bókstaflega að kafna,“
segir Árni. „Það er líka ótti við
að svara vitlaust mjög snemma
og detta út. Það voru þarna
spurningar í byrjun sem ég
falist í fjármögnun fyrirtækisins og
rekstravandi Skjás 1 og Stöðvar 2
hefur ekki orðið til að bæta trúa
manna á sjónvarpsrekstri. Við höf-
um staðið frammi fyrir töfum sök-
um þessa en þetta hefur tekist þó
hægt fari. Félagið skuldar ekkert í
dag og á sitt dreifikerfi og tæki og
tól skuldlaust. Það stendur til að
bjóða út hlutafé til valinkunnra fjár-
festa og það mun skýrast betur á
næstu dögum. Það fjármagn sem við
fáum verður síðan notað til að klára
efnissamninga, ráða til okkar starfs-
fólk og koma húsnæðismálum í
stand. Það þarf meðal annars að
klára að tengja kerfið inn á okkar
senda því við höfum kosið að vera
með okkar eigið kerfi. ■
Hólmgeir Baidursson er forsvarsmaður
sjónvarpsstöðvarinnar Stöðvar 1 sem
næst ókeypis á öllu Faxaflóasvæðinu.
| FRÉTTIR AF FÓLKI
Uthverfaframboðsmenn f jöl-
menntu á kynningarfund vegna
knattspyrnuhúss í Grafarvogi í síð-
ustu viku. Þetta var kannski fyrsti
kosningaáróðursfundurinn enda
markmiðið að vekja athygli á þessu
framlagi R-listans til knattspyrnu í
borginni. Úthverfaframboðsmenn
höfðu sig mikið í
frammi og sóttu hart
að Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur, for-
manni ÍTR, sem sat í
forsæti. Þeir vildu
stimpla sig inn í
borgarpólitíkina með
því að tala ekki aðeins um knatt-
spyrnuhúsið heldur vítt og breitt
um borgarmálin. Fundarmönnum
þótti lítið koma út úr upphlaupi
þeirra félaga. Stundum höfðu þeir
ekki staðreyndir á hreinu og voru
margir á því að Steinunn hefði
hreinlega tekið þá í bakaríið.
Spá- og
læknamiðill
Eru tilfinningarnar eða fjár-
málin í ólagi eða ert þú bara
forvitin um framtíðina?
Tek fólk í einkatíma
Sími 905-7010
“S>
Sálarrannsóknarfélag íslands
stofnað 1918
Garðastræti 8, Reykjavík.
Miðlarnir og huglæknarnir
Birgitta Hreiðarsdóttir, Bjarni
Kristjánsson, Erna Jóhanns-
dóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir,
Hafsteinn Guðbjörnsson, Krist-
ín Karlsdóttir, Lára Halla Snæ-
fells, María Sigurðardóttir,
Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenz-
son og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir starfa hjá félaginu
og bjóða upp á einkatíma.
Einig starfar Amy Engilberts
dulspekingur hjá félaginu og
býður upp á einkatíma.
Friðbjörg Óskarsdóttir heldur
utan um mannræktar-, þróun-
ar- og bænahringi.
Upplýsingar og bókanir eru í
s. 551 8130 alla virka daga frá
kl. 9.00 til 15.00 Einnig er hægt
að senda fax, 561 8130, eða
tölvupóst, srfi@isholf.id
SRFÍ.
í spásímanum 9086116 er
spákonan Sirrý og spáir í
ástir og örlög framtíðar.
Einnig tímapantanir fyrir
einkatíma í sama síma.
Tarotlínan sími 908 5050
tarotlestur, miölun, draumráðningar.
Fínsvör um hjónabandið, ástina,
heilsuna, fjármálin, símatími 18-24
Spámiðillinn Yrsa
Beint samband
S. 908-6414
149.90 mín.
Ástarmálin - Fjármálin
Vinnan - Heilsan
www. tarot. is
Tarotnámskeið:
Áhugavert - Öflugt - Allt árið
Fjarnám - Bréfaskóli
Uppl. og skráning á www. tarot. is
og í síma 553-8822
Spámiðlun
- miðlun
Lífssporin úr fortíð í
nútíð og framtíð.
Tímapantanir í síma:
561 5756 og 821 5756.
Einnig er ég við á kvöldin
í síma: 568 2338
og svara fyrirbænum.
Hreingerningar
HÓLM-
BRÆÐUR
S-5554596/
8970841