Fréttablaðið - 18.01.2002, Síða 6

Fréttablaðið - 18.01.2002, Síða 6
SPURNING DAGSINS Hvað borðar þú í morgunmat? jH t2r „Ég borða annað hvort Cherrios, K-Cornflakes, eða AB-mjólk." Elín Ólafsdóttir, húsmóðir KRÓNAN Með eindæmum rólegt var á gjaldeyris- markaði í gær. Gjaldeyrismarkaður: Engin millibanka- viðskipti gjaldeyrir Engin gjaldeyrisvið- skipti áttu sér stað á millibanka- markaði í gær. Bjarni Kristjáns- son, yfirmaður gjaldeyrisvið- skipta Landsbankans, segir að þessi staða sé ekki einsdæmi þó sjaldgæf sé. Síðast kom þessi staða upp í ágúst sl. „Þó að bank- arnir hafi ekki átt viðskipti hver við annan með gjaldeyri þá höfum við að sjálfsögðu átt viðskipti við okkar kúnna. Þetta endurspeglar að rólegt hefur verið á mörkuðum í dag, bæði heima og erlendis," sagði Bjarni í samtali við blaðið síðdegis í gær. ■ Norðurlandaþing Lions hefst í dag: 300 manns skráðir hótel loftleiðir Árlegt Norður- landaþing Lionsmanna verður haldið á Hótel Loftleiðum í dag og á morgun. Alls sitja á þriðja hund- rað manns á þinginu, þar af á ann- að hundrað Lionsmenn frá ís- landi. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri verður viðstödd þingsetningu sem hefst kl. 13 í dag. ■ Útsala! FRETTABLAÐIÐ 18. janúar 2002 FÖSTUDAGUR Samráðsfundur við Hringbrautina: Fundað með Birni Bjarnasyni hjá Hannesi framboðsiviál Vera má að þegar sé hafinn framboðsundirbúningur Björns Bjarnasonar í borginni. Heimildir Fréttablaðsins herma að um helgina hafi á heimili Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar, háskólaprófessors, komið saman, auk Björns Bjarnasonar, hópur manna til skrafs og ráðagerðar. Til leiks eru nefndir: Óli Björn Kárason, aðalritstjóri Dagblaðs- ins, Jakob Ásgeirsson, útgáfu- stjóri Nýja bókafélagsins, Gísli Marteinn Baldursson, ein umsjón- armanna Kastljóssins í Sjónvarp- inu, Jónmundur Guðmarsson, for- seti bæjarstjórnar og bæjar- stjóraefni á Seltjarnarnesi og Sig- urður Kári Kristjánsson, lögfræð- ingur, fyrrum formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna (SUS). Sigurður Kári staðfesti að hóp- ur manna hafi hist á heimili Hann- esar um helgina en vildi ekkert láta uppi um umræðuefni fundar- ins. Jónmundur Guðmarsson, sagðist ekki vera beita sér í kosn- ingabaráttu í borginni. „Hann [Björn] hefur kannski áhuga á því að ræða við það fólk sem stendur honum næst,“ sagði hann og fannst ekkert eðlilegra en Björn velti hlutunum fyrir sér og ræddi við fleiri um hvernig mál væru vaxin. „Ég er náttúrulega ekki innanbúðarmaður í Reykjavík og þekki ekki til þeirrar pólitíkur, þannig lagað. En hann [Björn] BJÖRN BJARNASON Björn Bjarnason fundaði með hópi manna á heimili Hannesar Hólmsteins Gissurar- sonar um helgina. þekki ég auðvitað frá fornu fari og vil ráða honum eins heilt og unnt er. Hvort sem það er í þessu máli eða öðru.“ Jónmundur kvað lítið hægt að lesa út úr því að þessi hópur manna hittist. „Þetta er bara kaffiboð hjá vini okkar Hannesi," sagði hann. ■ V ísitala heildsölu- verðs markleysa Ekki upp á borðum hjá Hagstofunni. Oglögg skil orðin á milli heild- söluverðs og smásöluverðs. Breytingar í verslun. Vísitala framleiðslu- kostnaðar á næsta ári. Með vísitölum er ekki verið að finna söku- dólga heldur lýsa ástandi og þróun. —♦— hagstofan Svo virðist sem hags- munaðilum í verslun og verka- lýðshreyfingu muni ekki verða að ósk sinni um að fá vísitölu heildsöluverðs. í það minnsta er slík vísitala ekki upp á borðum hjá Hagstofu íslands. Þess í stað er verið að vinna að gerð vísitölu framleiðslukostnaðar sem vonir eru bundnar við að komist í gagn- —+— ið á næsta ári. Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að það sé ekki þægi- legt að skilgreina og reikna út heild- söluvísitölu í fram- haldi af þeim breytingum sem orðið hafa í skipulagi verslunar- innar og þá einkum meðal þeirra stærstu. Þar er heildsala og smá- sala komin á sömu hendi, öndvert við það sem var. Hallgrímur Snorrason hag- stofustjóri segir að í framhaldi af þessum breytingum í versluninni sé það bæði erfitt og nánast marklaust að reikna út vísi- tölu heildsöluverðs. Það sé m.a. vegna þess að það ligg- ur ekki beinlínis fyrir hvað sé nákvæmlega heildsölu- verð og hvað ekki. í það minnsta séu mjög óglögg skil orðin þar á milli. Hann bendir t.d. á að hjá öðrum þjóðum hefur áherslan á vísitölu heildsöluverðs minnkað mjög mikið. Sem dæmi bendir hann á að Bandaríkjamenn séu hættir því. HALLGRÍMUR SNORRASON Boðar vísitölu framleiðslu- kostnaðar á næsta ári. Hann segir að forgangs- verkefni stofnunarinnar á sviði vísitölu sé einkum af tvennum toga. Annars veg- ar að hlúa betur að vinnu við gerð vísitölu neyslu- verðs og hins vegar að þróa vísitölu framleiðslu- verðs. þ.e. vöruverð frá framleiðanda, bæði inn- lenda og innflutta. Hann segir að vísitala fram- leiðslukostnaðar sé mun áhugaverðara og gagn- legra tæki fyrir þá sem fylgjast AÐFÖNG Þeir stóru eru bæði með heildsölu og smásölu á sömu hendi, öndvert frá því sem áður var. með og meta framvindu efna- hagsmála heldur en vísitala heildsöluverðs. Það sé m.a. vegna þess að vísitölu framleiðslu- kostnaðar sé hægt að meta verð- breytingarnar eins og þær verða út frá framleiðslukostnaðinum auk þess sem innflutningsverð á hafnarbakkanum sé einnig tekin með í þeirri vísitölu. grh@frettabladid.is UMDEILDIR FÉLAGAR Klaus Wowereit, borgarstjóri Berlínar, ásamt Gregor Gysi, sem fer með efnahags- mál í borgarstjórninni. Eftir margra vikna japl, jaml og fuður: Borgarstjórn Berlínar orðin að veruleika berlin. ap Borgarþing Berlínar kaus í gær Klaus Wowereit nýjan borgarstjóra með 74 atkvæðum gegn 66. Wowereit er Sósíalde- mókrati, flokksbróðir Gerhards Schröders Þýskalandskanslara. Sósíaldemókratarnir í Berlín hafa myndað stjórn með flokki lýðræðissósíalista (PDS), sem er arftaki gamla Kommúnistaflokks- ins í Austur-Þýskalandi. Gregor Gysi, fyrrverandi leiðtogi PDS, verður efnahagsráðherra Berlín- ar, en Gysi hefur verið í senn um- deildur og áberandi stjórnmála- maður allt frá hruni Austur- Þýskalands fyrir áratug. Berlín er í senn höfuðborg Þýskalands og eitt af 16 sam- bandslöndum, sem mynda sam- bandsríkið Þýskaland. Þingkosn- ingarnar þar fóru fram í október síðastliðnum. Erfiðlega gekk að mynda stjórn, m.a. vegna mikillar andstöðu við að Sósíaldemókratar myndi stjórn með PDS. Flokkurinn hefur þó ítrekað fullyrt að hann hafi sagt að fullu skilið við fortíðina. „Allir sem vilja eiga sér framtíð verða að horfast í augu við fortíðina,“ sagði Harald Wolf, leiðtogi PDS í Berlín, á borgarþinginu í gær. ■ jcnn erauanavers m 25-40% afsláttur af öllum gleraugnaumgjöröum JL. Samfylkingin um verðbólgu og einokun: Verðbólgan sjálfkyndandi bál verðbólga össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það kröfu Samfylkingarinn- ar að ríkisstjórnin bregðist við verðbólguþróuninni með því að draga til baka nýlegar gjalda- hækkanir. Hann segir stjórnvöld- um í raun ekki stætt á öðru, enda vanti lítið upp á að forsendur kjarasamninga bresti vegna verð- bólgunnar. „Einna alvarlegast er að vegna verðbólgunnar er ekkert svigrúm til vaxtalækkunar. Svim- háir vextir hafa svo aftur áhrif á verðbólguna, sem þannig er farin að leggja til efniviðinn í bálið sem kyndir hana sjálfa." össur líkti hækkun opinberra gjalda við blauta tusku í andlit verkalýðs- hreyfingarinnar sem spornað hafi við þróuninni. „Vitaskuld stingur líka í augu að horfa á miklar hækkanir á mat- vælum. Stjórnarandstaðan hefur margsinnis vakið athygli á þessu á Alþingi og margsinnis hafa gengið yfirlýsingar frá ríkis- stjórninni um að farið verði ofan í saumana á þessum málum.“ Hátt matvöruverð rakti össur til ein- okunar á matvælamarkaði sem þrifist hafi með drjúgum tilstyrk stjórnvalda. „Þau hafa ekki lagst gegn þessari samþjöppun á mat- vælamarkaði sem nú hefur leitt til þess að hækkanir eru langt um- fram það sem aðrar aðstæður í þjóðfélaginu gefa tilefni til.“ Öss- ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON össur segir Samfylkinguna margsinnis hafa varað við verðbólguþróuninni og þakkar aðgerðum verkalýðshreyfingarinnar að hún varð ekki 10 prósent eins og Samfylkingin hafði spáð. ur taldi að ráðast þyrfti að rót þessa vanda og fela Samkeppnis- stofnun í hendur vopn til að berj- ast gegn þessari þróun. „Ef það er talið í þágu neytenda að kljúfa upp stór fyrirtæki sem nánast eru í einokunaraðstöðu þá verður það að gerast." ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.