Fréttablaðið - 18.01.2002, Page 11
FÖSTUPAGUR 18. janúar 2002
Rannsókn á Suðurskauti:
Selir notaðir
sem „neðan-
sjávaraugu"
vísindi Selir voru nýverið notaðir
af vísindamönnum á Suðurskaut-
inu til að fylgjast með tveimur
sjaldgæfum fiskategundum undir
yfirborði sjávar. Fiskategundirnar,
sem kallast silfurfiskur og tann-
fiskur, lifa á miklu dýpi. Alls voru
fimmtán selir notaðir í rannsókn-
inni. Myndavélum var komið fyrir
á þeim og upptökutæki voru sett á
þá til að kanna hreyfingar. Að sögn
vísindamannanna tókst rannsókn-
in með eindæmum vel. Kemur hún
til með að varpa nýju ljósi á lifnað-
arhætti fisktegundanna tveggja. ■
Lánasjóður landbúnaðar:
7 % aukning
vanskila
LANDBÚNAÐUR Vanskil bænda við
Lánasjóð landbúnaðarins hafa
aukist um 7 prósent á milli áranna
2000 og 2001. Guðmundur Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri Lána-
sjóðsins, segir tölur stofnunarinn-
ar sýna að vanskil á síðasta ári
hafi verið 4,1 prósent. Árið 2000
voru þau 3,8 prósent og voru 3,9
prósent þar áður. 638 milljónir
voru í vanskilum nú um áramót.
„Þetta er ákveðið varnaðarmerki
og vanskil eru að aukast,“ sagði
Guðmundur, en taldi þó aukning-
una ekki umfram það sem væri að
gerast annars staðar í þjóðfélag-
inu. Hann segir að á síðasta ári
hafi verið tekin upp endurfjár-
mögnunarlán og úr þeim flokki
hafi verið lánaðar um 290 milljón-
ir sem sé heldur minna en gert
hafi verið ráð fyrir. ■
| LÖGREGLUFRÉTTIR |
Ekið var á f jórtán ára stúlku á
gangbraut á Þingvallastræti á
Akureyri í fyrrakvöld. Hún slapp
lítið meidd. Talið er að ökumaður-
inn, 24 ára karlmaður, hafi ekið
gegn rauðu gangbrautarljósi.
—4-----
Rúmlega tvítugur ökumaður
kvartaði undan eymslum eftir
að hafa misst bíl sinn upp á um-
ferðareyju á hálku í Keflavík í
gærmorgun. Hann var að taka
beygju úr Njarðargötu í Stekk
þegar óhappið varð. Bílinn, sem
er nýlegur af Toytagerð,
skemmdist töluvert, m.a. skekkt-
ist hjólastell bílsins mikið.
—4-----
Kona velti bíl sínum í Gríms-
nesi milli Laugavatns og
Svínavatns um hádegisbil í gær.
Hún mun hafa sloppið ómeidd.
í fyrrakvöld slapp karlmaður
ómeiddur þegar hann veltu bíl
sínum á Biskupstungnabraut í
Þrastarskógi.
ÞAÐ ERUTVÆR
1EGUNDIR AF
KARLMÖNNUM
a) Sannir karlmenn
b) Kellingar
Sannaðu þig með því að liorfa
á eftirtalda leiki heima í stofu
Leeds - Arsenal 20. jan.
Man. Utd. - Liverpool 22. jan.
Arsenal - Liverpool 27. jan. (Enski bikarinn)
Middlesbrough - Man. Utd. 26. jan. (Enski bikarinn)
Bolton - Man. Utd. 29. jan.
Chelsea - Leeds 30. jan.
Leeds - Liverpool 3. feb.
NÁÐU ÞÉR í ÁSKRIFT í SÍMA 515 6100
Á SYN.IS EÐA í VERSLUNUM SKÍFUNNAR
ÚTSALAN
HEFST I DAG!
- allt að 50% afsláttur
IN GÓLFSSTRÆTI 5 • 101 REYKJAVÍK
SÍMI 551 5080 • www.ihusinu.is