Fréttablaðið - 18.01.2002, Blaðsíða 19
FÖSTUPAGUR 18. janúar 2002
Alliance Francaise:
Evrópsk áhrif í ís-
lenskri byggingarlist
fyrirlestur Alliance Francaise stend-
ur fyrir fyrirlestri í kvöld þar sem
Elísabet Gunnarsdóttir, arkitekt,
fjallar um: Evrópsk áhrif í íslenskri
byggingarlist og mótun bœja. Leit-
ast verður við að varpa ljósi á þau
áhrif sem mótað hafa íslenska
byggingarlist. Fyrirlesturinn
verður haldinn í JL-húsinu, Hring-
braut 121, 3. hæð og hefst kl. 20.30.
Elísabet lærði arkitektúr í Skotlandi
og Frakklandi 1979-88 og hefur rek-
ið eigin teiknistofu á Isafirði frá
1988. Að fyrirlestrinum loknum
verða umræður og fyrirspurnir.
Hann er öllum opinn meðan húsrúm
leyfir. Fyrirlesturinn er fluttur á
frönsku og þýddur jafnóðum á ís-
lensku. Aðgangur er ókeypis. ■
22.00 Hljómsveit Rúnars Júlíussonar
heldur uppi fjörinu á Kringlu-
kránni í kvöld.
22.00 Sálin hans Jóns mín leikur á
Gauki á Stöng í kvöld. Forsala á
miðum er hafin og er takmarkað-
ur fjöldi af miðum seldir. Miða-
verð er 1.500 krónur.
SÝNINGAR_________________________
Fellingar heitir sýning um sögu Eyglóar
Harðardóttur sem stendur yfir í Þjóðar-
bókhlöðunni. Það er Kvennasögusafnið
sem setur sýninguna upp.
Handritasýning í Stofnun Árna Magnús-
sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Hand-
ritasýning er opin kl. 14 -16 þriðjudaga
til föstudaga.
Sýningin Landafundir og ragnarök
stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu.
Sýningin er samstarfsverkefni við Landa-
fundanefnd og fjallar um landafundi og
siglingar íslendinga á miðöldum með
áherslu á fund Grænlands og Vínlands.
MYNPLIST_________________________
Finnska listakonan Helena Hietanen sýn-
ir skúlptúra gerða úr Ijósleiðurum í i8gall-
erí. Sýningin stendur til 3. mars. Safnið er
opið þriðjud. til laugard. frá kl. 13-17.
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi sýnir
þýski listamaðurinn Bernd Koberling olíu-
og vatnslitamyndir sem hann hefur unnið
fráárinu 1988, m.a. hérá landi. Kjarvals-
staðir eru opnir alla daga 10-17 og mið-
vikudaga 10-19. Sýningin stendur 3. mars.
klár í miðbæinn!
Þrjár sýningar eru nú í tengslum við Gallerí
Fold. í Rauðu stofunni er sölusýning á 18
pastelverkum eftir Hring Jóhannesson.
Verkin eru myndaröð sem hann vann árið
1990 á sólarströnd. í Ljósafold stendur yfir
kynning á Ijósmyndum Magnúsar Óskars
Magnússonar en á síðasta ári kom út bók-
in Face to Face eftir Magnús. í Baksalnum
sýnir Inger Helene Bóasson Ijósmyndir en
sýninguna nefnir listakonan Litið um öxl.
Safnið er opið daglega frá kl. 10-18, laugar-
d.. kl. 10-17 og sunnud. kl. 14-17.
i Listasafni Kópavogs - Gerðasafni sýnir
Ritlistarhópur Kópavogs Ijós og myndverk
í tilefni af útgáfu Ijóðarbókarinnar Sköpun.
Bókin er samvinnuverkefni við myndlistar-
menn úr Kópavogi. Félagar í Leirlistafélag-
inu hafa einnig opnað sýningu sem ber
heitið Tvískipt Þar sýna ellefu listamenn
ýmist nytjalist eða frjáls form. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17.
Sýningarnar standa til 3. febrúar.
í galleri@hlemmur hefur samvinnu-
verkefnið Markmið 6 verðið tekið til
sýningar. Verkið er unnð af Helga
Eyjólfssyni og Péturs Amari Friðrikssyni.
Það er sett úr margþættum verkefnum
sem unnin eru til sýningar, skrásett til
birtingar á sjónrænan hátt og með öðrum
heimildum. Safnið er opið frá fimmtudegi
til sunnudags kl. 14-18. Sýningin stendur
til 3. febrúar.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabiadid.is
Liz Gammon skemmtir
fimmtud. iil sunnud.
frá kl 22:00
Snyrtilegur klœðnaður
Lœkjargötu
rgotu l - s: oo/-:
ifeopera@cafeopera.is
www.cafeopera.is
s: 552-9499
Pöbb á besta stað!
laugavegi 78 • Tel.: §81 7722
Laugavegi 20 a [
—i