Fréttablaðið - 21.01.2002, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
21. janúar 2002 MÁNUPAGUR
SVONA ERUM VID
LANCMINNSTUR UNCBARNA-
DAUÐI HÉRLENDIS
Árið 1988 dóu 6,2% af 1.000 bömum sem
fæddust hér á landi. Við höfum bætt okkur
verulega slðan þá. Tölur frá 1998 sýna að hlut-
fallið er komið niður I 2,6% sem er það lang-
lægsta I heiminum. Barnadauði er mjög mikið
vandamál í fátækum löndum en samt má
greina mikinn mun meðal einstakra iðnrlkja.
Mexikó
15,9
Ungverjaland
9.8
Kórea
7.8
Bandaríkin
7.2
ftalía
6.2
Holland
5,3
Danmörk
4,7
Noregur
4
ÍSRAELSKIR FRIÐARSINNAR
Nokkrir tugir ísraelskra friðarsinna hafa sett
upp tjöld rétt hjá skrifstofu Ariels Sharons
forsætisráðherra og mótmæla þar undir
slagorðinu: „Eyðilegging húsa og launmorð
eggja ti! hryðjuverka".
Jasser Arafat umkringdur
á heimili sínu:
Þúsundir
lýsa stuðningi
við Arafat
ramallah. ap Þúsundir Palestínu-
manna gengu fylktu liði um götur
Ramallah á Vesturbakkanum í
gær til þess að lýsa stuðningi
sínum við Jasser Arafat, leiðtoga
sinn. Arafat hafði þá í raun verið í
stofufangelsi á heimili sínu frá
því ísraelski herinn umkringdi
það með skriðdrekum og herbif-
reiðum á föstudaginn. ísraels-
menn hafa komið í veg fyrir að
Arafat geti farið frá Ramallah allt
frá því í byrjun desember.
Tólf Palestínumenn og einn
ísraelskur hermaður særðust í
skotbardaga í Ramallah í gær.
Þá efndu nokkur hundruð
palestínskra fréttamanna og há-
skólamanna til mótmæla í Ram-
allah, og gengu þeir til útvarps-
stöðvarinnar sem ísraelski herinn
sprengdi á laugardaginn. Undan-
farið hafa ísraelsmenn eyðilagt
fjölmörg hús og mannvirki á Vest-
urbakkanum og Gazasvæðinu í
hefndarskyni.
I gær sendu róttæk samtök
Palestínumanna, Lýðræðisfylking
til frelsunar Palestínu (DFLP), frá
sér yfirlýsingu þar sem þau segj-
ast ætla að hefja vopnaða baráttu
á ný gegn ísrael. ■
Orðrómur á Ítalíu:
Berlusconi að selja fjölmiðlaveldi sitt?
BERLUSCONI OG MURDOCH
Þessi mynd var tekin árið 1995 af þeim fjölmiðlakóngum, Silvio Berlusconi (t.v.), sem
jafnframt er forsætisráðherra italíu, og Rupert IVIurdoch. Þeir hittust síðast um helgina og
gengur sá orðrómur á Ítalíu að Berlusconi ætli að selja Murdoch fjölmiðlana sína.
RÓM. AP Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, snæddi kvöldverð
með ástralska fjölmiðlajöfrinum
Rupert Murdoch á laugardaginn.
Sátu þeir að snæðingi í fjórar
klukkustundir, og telja margir að
Berlusconi sé að leita leiða til að
losa sig út úr hagsmunaárekstrum,
sem stafa af því að hann er sjálfur
fjölmiðlakóngur mikill auk þess að
vera forsætisráðherra.
Þeir Berlusconi og Murdoch
hafa hist nokkrum sinnum undan-
farið, en ekki hefur neinn kaup-
samningur komið út úr því. Eftir
einn fundinn var fullyrt að börn
Berlusconis, sem orðin eru fullorð-
in, séu því mótfallin að selja fyrir-
tæki föður síns.
Heimildarmenn á skrifstofu
Berlusconis, sem ekki vildu láta
nafns síns getið, fullyrtu að ekkert
væri hæft í þessum orðrómi um að
Berlusconi væri að reyna að selja
fjölmiðlaveldi sitt. Hann væri ein-
ungis að hitta gamlan vin sinn.
Berlusconi á þrjár sjónvarps-
stöðvar auk þess að geta í krafti
embættis síns haft margvísleg
áhrif á rekstur ítalska ríkissjón-
varpsins. ■
í athugun aö senda
aðstoð frá Islandi
Flóttafólk byrjað að snúa aftur til Goma. Eldgosið hefur lagt
um 40% af borginni í rúst.
neyðarástand Á næstu dögum
verður ákveðið hvort fólk eða fjár-
magn verður sent frá íslandi til að-
stoðar vegna eldgossins í Kongó.
„Talsvert af Rauðakrossfólki er
á staðnum nú þegar til að hefja
fyrstu aðgerðir," segir Þórir Guð-
mundsson, upplýsingafulltrúi
Rauða krossins. „Það sem þarf er
fólk fyrir lengri tíma þegar hjálp-
arstarfið fer í gang fyrir alvöru.
Það þarf að koma upp búðum og
fleira. Það var leitað bæði til okkar
og annarra um aðstoð. Menn eru að
bera saman lista yfir það fólk sem
er fáanlegt og hverjar þarfirnar
eru nákvæmlega,“ segir Þórir.
Þótt tekið sé að hægja heldur á
eldgosinu í fjallinu Nyiragongo, er
enn talið að veruleg hætta stafi af
því. Þúsundir manna voru í gær á
leið aftur til borgarinnar Gomo,
eftir að hafa flúið yfir landamærin
til Rúanda. Sameinuðu þjóðirnar
og stjórnvöld í Rúanda hvöttu fólk-
ið þó eindregið til þess að fara
heldur í flóttamannabúðir, sem
komið hefur verið upp í Rúanda.
Um 40 prósent af borginni
Goma eru gjöreyðilögð af völdum
eldgossins, sem hófst á fimmtu-
daginn. Daglegt líf er farið að
ganga nokkurn veginn eðlilega í
þeim svæðum borgarinnar, sem
ekki eyðilögðust.
í gær streymdi fljótandi hraun
enn um borgina, en fór ekki út fyr-
ir farvegina sem myndast höfðu í
gegnum hana. Hörð skorpa var
tekin að myndast á hraunið og íbú-
ar borgarinnar sáust hlaupa ofan á
skorpunni til þess að komast á
milli borgarhluta.
Frést hefur að um 40 manns
hafi látið lífið af völdum eldgoss-
ins, en það hefur ekki fengist stað-
fest.
Talið er að um 300 þúsund
GENGIÐ Á HEITU HRAUNI
Hraunið í Goma er þegar tekið að harðna og hefur myndast skorpa á því. Skorpan er heit,
en fólk lætur það ekki aftra sér frá að ganga á hrauninu til að komast á milli bæjarhluta.
manns hafi flúið borgina og flestir
farið til borgarinnar Gisenyi, sem
er í næsta nágrenni en handan
landamæranna að Rúanda. Þar
hefur fólk komið sér fyrir ýmist á
götum úti eða á við strendur Kivu-
vatns.
Starfsmenn Sameinuðu þjóð-
anna óttast að kólerufaraldur
brjótist út, þar sem hreinlætisað-
stæður eru lélegar og matvæli af
skornum skammti. Fólk hefur sof-
ið á gangstéttum og drukkið vatn
úr Kivu-vatni, sem er verulega
mengað.
Flóttafólkið var því eindregið
hvatt til að fara til þriggja flótta-
mannabúða í nágrenni Gisenyi,
þar sem fólk fær matvæli, húsa-
skjól og eldunaráhöld. ■
p»au«naVERSLUNíA/
SJÓNARHÓLL
i
ára abyrgð á umgjörðum
• Léttar • Sterkar • Stöðugar
Reykjavíkurvcgur 22, Hafnarfirði 565-5970
Reykj avíkurborg:
Aðild að alþjóðlegum
umhverfissamtökum
umhverfi Borgarráð hefur sam-
þykkt að Reykjavíkurborg gerist
aðili að alþjóðlegum umhverfis-
samtökum sveitarfélaga, ICLEI,
eða International Council for
Local Einvironmental Initatives.
Áður hafði meirihluti umhverfis-
og heilbrigðisnefndar samþykkt
tillögu þess efnis. Af hálfu borg-
arinnar mun aðild að samtökunum
skapa borginni vettvang til að
taka þátt í umræðum sveitarfé-
laga á alþjóðavettvangi og einnig
að hafa áhrif á gerð reglugerða í
umhverfismálum hjá Evrópusam-
bandinu og hjá Sameinuðu þjóð-
unum.
Þessi samtök voru stofnuð árið
1990 og eru liðlega 330 sveitarfé-
lög aðilar að þeim og m.a. höfuð-
borgir Norðurlanda. Með aðild-
inni skapast möguleikar til að
taka m.a. þátt í alþjóðlegum rann-
sóknar-, átaks- og endurmenntun-
arverkefnum þar sem Reykjavík
getur miðlað reynslu sinni og
lært af reynslu annarra í um-
hverfismálunt. Þá gefur aðildin
aðgang að alþjóðlegum styrkjum
til umhverfisverkefna sem borg-
in hefur ekki átt aðgang að fram
til þessa. Áætlað er að kostnaður
borgarinnar vegna þessarar að-
ildar geti nuntið 100-150 þúsund
krónum á ári að viðbættum
kostnaði vegna ferðalaga sem
sagt er að reynt verði að halda í
lágmarki. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Til slagsmála kom milli tvegg-
ja manna, við krána Players í
Kópavogi um helgina. Lögreglan
í Kópavogi var kvödd á staðinn
og tókst að stía mönnunum í
sundur. Ekki er vitað hvað olli
ósætti á milli mannanna, en þeir
virtust ómeiddir eftir rysking-
arnar. Einnig þurfti lögreglan að
hafa afskipti af nokkrum öku-
mönnum, einkum fyrir of hraðan
akstur. Tveir voru teknir fyrir að
aka undir áhrifum.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi var rólegt í bænum um
helgina. Einhverjir hefðu þó tek-
ið forskot á þorrann og var fyrsta
þorrablótið haldið í bænum, á
laugardagskvöld.
Sveitarstjórinn á Tálkna-
firði um sölu Bjarma BA:
„Kemur
mjög flatt
upp á mann“
sjávarútvegur „Ég verð nú að játa
það að ég hef ekki séð þessa aug-
lýsingu," sagði Ólafur Magnús
Birgisson, sveitarstjóri á Tálkna-
firði aðspurður um fyrirhugaða
sölu á Bjarma BA- 326 sem var
auglýstur til sölu, ásamt öllum
veiðiheimildum, í Morgunblað-
inu.
„Ég er því ekki farinn að meta
hvaða áhrif það hefur hjá okkur.
Þó Bjarmi hafi aðallega landað á
Flateyri er stór hluti áhafnarinn-
ar frá okkur. Það verða því
starfsmannamálin sem verða
hvað alvarlegust fyrir okkur en
ekki vinnslulega séð.“
Fiskistofa svipti Bjarma veiði-
leyfi í átta vikur, frá og með 1.
desember s.L, en áhöfnin var
fundin sek um að kasta afla fyrir
borð í veiðiferð. Sýnt var frá
brottkastinu í sjónvarpsfréttum.
Hjá Tálkna ehf., sem gerir út
Bjarma, starfa um 20 manns; ell-
efu við fiskeldi en aðrir tengdir
Bjarma.
„Maður er eiginlega að átta
sig á því hvernig þetta getur þró-
ast ef þeir kúpla sig út. Þetta
kemur mjög flatt upp á mann,“
sagði sveitastjórinn jafnframt.
„Þetta hefur ábyggilega verið
mjög erfitt síðan hann var svipt-
ur veiðileyfi. Ég trúi nú ekki
öðru.“
Hlynur Ársælsson, frarn-
kvæmdastjóri Tálkna, vildi ekki
tjá sig um málið að svo stöddu. ■
Ilögreclufréttir
Aísafirði var leiðindafærð inn-
anbæjar um helgina. Ekki
þurfti lögreglan þó að koma bæj-
arbúum til aðstoðar vegna þess,
enda ísfirðingar vel undir það
búnir að færð spillist.
INNLENT I
s
Atakshópur öryrkja skorar á
verkalýðshreyfinguna að
hvika ekki frá yfirlýstri stefnu í
velferðarmálum í þeim viðræð-
um við stjórnvöld sem í hönd
fari. „Almenningur á íslandi
þolir ekki lengur þá stefnu í
skatta- og almannatrygginga-
málum sem framfylgt hefur
verið af sífellt meiri óbilgirni á
síðasta áratug," segir í tilkynn-
ingu og boðað virkara aðhald
með stjórnmálaflokkunum í
næstu sveitarstjórnar- og
alþingiskosningum.
Samfylkingin tekur varðstöðu
með almenningi gegn okri og
einokun,“ segir í tilkynningu frá
þingflokki Samfylkingarinnar.
Sett er fram lcrafa um að stjórn-
völd efli Samkeppnisstofnun og
fái henni í hendur vopn sent dugi
til að kljúfa í sundur stórfyrir-
tæki sem komin eru í fákeppnis-
aðstöðu. Vísað er til samþjöpp-
unar matvöruverslunarinnar og
sagt að verðhækkanir hér á
landi eigi sér vart hliðstæðu.