Fréttablaðið - 21.01.2002, Síða 9
MÁNUDAGUR 21. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
9
VIÐSKIPTi
Stýrihópur um aukið verðmæti sjávarafurða:
Hagnaður Baugs af matvöru-
sölu á íslandi á síðasta ári
var óviðunandi. Þetta var haft
eftir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í
fréttum RÚV. Hagnaður starf-
seminnar lækkaði á milli ára úr
3,5% af veltu í 2,3^b. Þettá er
sagt skýrast af samspili styrk-
ingar erlendra gjaldmiðla sem
Baugur kaupir í og veikingu
krónunnar. Jón Ásgeir vísaði því
á bug að Baugur hefði kynt und-
ir verðbólgu, tölurnar sýndu að
matvöruverð hjá samsteypunni
hefði ekki hækkað umfram al-
menna verðlagsbreytingu. Fram
kemur í tilkynningu félagsins að
opnun Smáralindar hafi haft
minni neikvæð áhrif á verslanir
Baugs í Kringlunni en búist var
við.
sjávarútvegur Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra hefur
skipað átta manna. stýrihóp
undir forystu Friðriks Frið-
rikssonar sem er ætlað að leg-
gja fram fimm ára aögeröaá-
ætlun um hvernig megi auka
verðmæti sjávarfangs.
stöður hóþsins eiga að liggja
fyrir í septembér.
Stýrihópnum er m.a. ætlað
að kortleggja þau svið í sjáv-
arútvegi þar sem hægt er að
auka verðmæti og finna bestu
leiðir á hverju stigi. Stýrihópnum
er einnig ætlað að gera tillögur
AKIMI MAIHItSLN
Kostnaður verkefnisins væntanlega fjármagnaður hvoru
tveggja af opinberum aðilum og einkaaðilum.
máta verkefna, benda á leiðir til
fjármögnunar verkefna, skil-
að verkinu og setja mælanleg
markmið fyrir fimm ára
átak.
Sjávarútvegsráðherra
sagði að með þessu vildu
menn fá skýrari mynd af
tækifærum til að auka verð-
mæti sjávarafurða. Með
þessu væri verið að bæta
skipulag og vinnubrögð í
verkefnum sem beinast að
því að auka verðmæti sjávar-
afurða. Árni lagði áherslu á
að þó nokkur tími liði þar til
tillögur stýrihópsins lægju fyrir
yrði samhliða unnið að ýmsum
um forgangsröðun og framgangs- greina hlutverk þeirra sem koma verkefnum á þessu sviði. \
Sj álfstæðisflokkurinn:
Samþykkja
leiðtogakjör
LEIÐTQGAPRÓFKJÖR Miðstjórn Sjálf-
stæöisflokks samþykkti á föstu-
dag að breyta prófkjörsreglum
flokksins með það fyrir augum að
heimila leiðtogaprófkjör fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Fulltrúarráð sjálfstæðisfélag-
anna í borginni á eftir að sam-
þykkja þá leið. Fundur fulltrúa-
ráðsmanna, sem eru um 1.400 tals-
ins, er boðaður nk laugardag og
þarf samþykki 2/3 hluta þeiri’a..
Jafnframt eiga fundargestir að
stinga upp á nöfnum sem þeir
vilja sjá ofarlega á lista og verður
niðurstaðan til hliðsjónar fyrir
kjörnefnd flokksins. ■
txatewua»xisz
Bandaríski talibaninn John Walker
Gæti átt fyrir höfdi
sér lífstíðarfangelsi
new york. ap John Walker, tvítug-
ur Bandaríkjamaður sem barðist
við hlið talibana í Afganistan,
gæti átt yfir höfði sér lífstíðar-
fangelsi fyrir að hafa starfað fyr-
ir Al-Kaída, samtök hryðjuverka-
mannsins Osama bin Laden og
fyrir að hafa fyrir að hafa tekið
þátt í hernaðaaðgerðum í stríðinu
í Afganistan og þar með ógnað
lífi og limum bandarískra her-
manna. Dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, John Ashcroft,
tilkynnti þetta fyrr í vikunni og
sagði ekki loku fyrir það skotið
að hann yrði ákærður fyrir land-
ráð og hugsanlega dæmdur til
dauðarefsingar. Sagði Ashcroft
að Walker hefði verið vel kunn-
ugt um hvað hann var að gera
þegar hann ákvað að ieggja
hreyfingunni lið.
Foreldrar piltsins, Frank Lindh
og Marilyn Walker hafa reynt að
draga upp þá mynd af honum í
fjölmiðlum að hann sé miklu
fremur sveimhuga hugsjónamað-
ur en íslamskur öfgamaður. Fjöl-
skyldan hefur ráðið til sín lög-
fræðing sem hefur ítrekað minnt
bandarísk stjórnvöld á að virða
réttindi piltsins. Foreldrar Wal-
kers hafa ekki fengið að hitta
hann og Walker hefur ekki verið
upplýstur um að lögfræðingur sé
að vinna í hans málum. Að sögn
yfirvalda hefur Walker ekki óskað
eftir því að hafa lögfræðing til
staðar við yfirheyrsiurnar.
Walker, sem er frá Kaliforníu,
JOHN WALKER
Hinn tvítugi John Walker snerist til íslamtrúar 16 ára gamall.
mun hafa verið í æfingabúðum Al-
Kaída í sjö vikur og á hann að hafa
hitt bin Laden sem þakkaði honum
fyrir að taka þátt í heilögu stríði.
Réttarhöldin yfir honum fara fyr-
ir hefðbundna dómstóla en ekki
herdómstóll samkvæmt ákvörðun
Bush forseta. Hann dvelur nú á
bandaríska herskipinu Bataan í
Arabíuhaf. ■
OTIOAR «■
fjggQiggg 0|
Handrið
l_—----1
Tölvuskólinn Sóltúni
Sóltúnl 3 105Reykjavík sími5 62 62 12 netfang: skoli@tolvuskoli.net heimasíða: www.tolvuskoli.net
4w
M-
Tölvugrunnur
Fyrir aigjöra byrjendur
Hægyfirferð. „
Kennt er:
Tölvugrunnur.
Windows stýrikerfið.
Word ritvinnsla.
Internet.
Tölvupóstur.
60 stunda námskeió.
Hefst 22.janúar.
Kennt þriðjud. og fimmtud.
Kl. 17:30-21:00.
N á m 8 k e I ð i H e f 8 t
Access 1 25. an. HTML 25.]an. Excel 1 28.jan. Power Point 06 eb.
Tölvunám 1 - 60 st. Kennt kl. 17:30-21:00 mán. miö. fös. ‘Windows Mnternet *Tölvupóstur *Word *Excel 23.jan.'
Eldriborgarar *Tölvugrunnur *Windows *lnternet *Tölvupóstur 23.jan.
Vefsíðugerð
Vefsíðugerð 1
60 stundir. 18.feb.-9.mars
Vefsíðugerð 2
Dreamweaver
Flash
Fireworks
120 stundir. H.rnars -4.maí.
Photoshop
40 stundir. 19.feb. - 7.mars.
Skráning stendur yfir
í síma 562-6212
alla daga frá kl. 13 - 22
Viltu læra á tölvu ?
Eða kanntu kannski svolítið á tölvu en vilt gjarnan læra meira ?
Viltu læra í litlum tölvuskóla ?
Viltu vera í bekk þar sem nemendur eru aldrei fleiri en tíu ?
Gerirðu kröfu um þaulvana, vel menntaða og hæfa leiðbeinendur ?