Fréttablaðið - 21.01.2002, Blaðsíða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
21. janúar 2002 MÁNUDAGUR
HVER ER TILCANCUR LÍFSINS
Láta gott af sér leiða
Að búa í sátt við sjálfa sig og aðra og láta
gott af sér leiða.
Laufey Steingrímsdóttir,
forstöðumaður Manneldissráðs.
Á námskeiðinu verður fjallað um trúar-
kenningar helstu trúarbragða heims fyrir
utan kristnidóminn.
Biblíuskólinn:
Námskeið
um trúar-
brögð
námskeið Biblíuskólinn við Holta-
veg gengst fyrir námskeið um
nokkur trúarbrögð mánudags-
kvöldin 21. og 28. janúar frá
klukkan átta til tíu. Námskeiðið
kallast „Hverju trúa þau?“ og
verður leitast við að gefa nokkra
innsýn í trúarkenningar og til-
beiðsluhætti helstu trúarbragða
heims fyrir utan kristindóminn,
þ.e. einkum gyðingdóms, islam,
hindúasiðar og búddhadóms. Fyr-
irlesari verður Gunnar J. Gunn-
arsson lektor vió KHÍ.
Námskeiðið verður haldið í
húsi KFUM og KFUK við Holta-
veg og er námskeiðsgjald 1.800
krónur. Skráning er í síma 588
8899 til klukkan 13 mánudaginn
21. janúar. ■
Minningarkvöld um Val Gíslason, leikara:
Einn af stórleikurum Islands síðustu aldar
VALUR GÍSLASON OG LÁRUS PÁLSSON
Myndin er tekin þegar þeir léku saman í leikritinu Jóni gamla sem var fyrsta íslenska leik-
ritið sem islenska sjónvarpið tók upp og sendi út árið 1967.
menning „Valur var afskaplega sér-
stakur maður og vandvirkur leik-
ari. Að mínu mati var hann einn af
okkar stórleikurum frá síðustu öld
sem verður minnst lengi. Valur var
sterkur persónuleikari og gustaði
af honum hvert sem hann fór,“ seg-
ir Gísli Alfreðsson, fyrrverandi
Þjóðleikhússtjóri, sem ætlar að
rifja upp minningar um leikarann
Val Gíslason í Listaklúbb Þjóðleik-
hússins í kvöld. Tilefnið er að Val-
ur hefði orðið hundrað ára þann 15.
janúar síðastliðinn. Um kvöldið
verður sýnt í samvinnu við RÚV,
fyrsta íslenska leikritið sem ís-
lenska sjónvarpið tók upp og sendi
út árið 1967, Jón gamli, eftir
Matthías Johannessen. Þar lék Val-
ur titilhlutverkið á móti Lárusi
Pálssyni og Gísla Alfreðssyn í leik-
stjórn Benedikts Árnasonar.
Valur lék fyrsta hlutverk sitt
hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið
1926 og urðu hlutverk hans þar
rúmlega níutíu talsins. í Þjóðleik-
húsinu lék hann tæplega 130 hlut-
verk, hið síðasta árið 1987. Einnig
lék Valur mikið í útvarp, stjórnaði
leikritum þar og kom síðustu árin
fram í nokkrum sjónvarpsleikrit-
um. Valur lést í Reykjavík 13. októ-
ber 1990
Auk þess að sýna í kvöld leikrit-
ið Jón gamli verður sýnt brot úr
sjónvarpsmyndinni Jóni í brauð-
húsum eftir Halldór Laxness með
hinum ástsælu leikurum Vali
Gíslasyni og Þorsteini Ö. Stephen-
sen í leikstjórn Baldvins Halldórs-
sonar. Steindór Hjörleifsson, fyrsti
dagskrárstjóri Sjónvarpsins, fylg-
ir sýningunum úr hlaði með stuttu
spjalli auk þess sem Gísli Alfreðs-
son, sem bæði leikstýrði Vali og
lék á móti honum, rifjar upp minn-
ingar Val, eins og áður hefur kom-
ið fram. ■
MÁNUDACURINN
21. JANUAR
LEIKLIST____________________________
20.00 Dagskrá Listaklúbbs Þjóðleik-
hússin sverður í kvöld helguð
minningu Vals Gíslasonar sem
hefði orðið 100 ára 15. janúar sl.
Af því tilefni verður sýnt í sam-
vinnu við RÚV fyrsta íslenska leik-
ritið sem íslenska sjónvarpið tók
upp og sendi út 1967, Jón gamlí,
eftir Matthías Johannessen. Einnig
verður sýnt brot úr sjónvarps-
myndínni Jóni í brauðhúsum eft-
ir Halldór Laxness. Steindór Hjör-
leifsson, fyrsti dagskrárstjóri Sjón-
varpsins, fylgir sýningunni úr hlaði
með stuttu spjalli og Gísli Al-
freðsson, fyrrverandi Þjóðleikhús-
stjóri, rifjar upp minningar um Val.
TÓNLIST_____________________________
20.00 Vladimir Ashkenazy og Kamm-
ersveit Reykjavíkur halda tón-
leika í Fjölbrautaskóla Garða-
bæjar í kvöld kl. 20. Á tónleikun-
um leikur Ashkenazy á píanó og
stjórnar Kammersveit Reykjavíkur.
Á efnisskránni eru verk eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart, adagio og
fúga KV 546, píanókonsert í A-dúr
KV 414 og píanókonsert í d-moll
KV 466.
20.00 Sönghópurinn Hljómeyki heldur
tónleika í Hjallakirkju í Kópavogí
í kvöld. Á tónleikunum verða flutt
kórverk eftir tónskáldið Jón Nor-
dal. Stjórnandi er Bernhaður
Wilkinson. Á efnisskrá tónleik-
anna er verkið Lux mundi, þjóð-
lagaútsetningarnar Framorðið er,
Göfgum góðfúslega og Ó, eg
manneskjan auma, kórverkið
Ljósið sanna, Trú mín er aðeins
týra og Requiem.
FUNDUR______________________________
12.30 Japanski myndlistarmaðurinn
Tetsuya Yamada flytur fyrirlestur I
LHl, Laugarnesi, í kvöld í stofu
024. Yamada hlaut menntun sína
í Japan og Bandaríkjunum þar
sem hann hefur búið og starfað
að undanförnu ,nú síðast sem
prófessor við leir-og skúlptúrdeild
Knox College Galesburg, lllinois
.Hann hefur hlotið viðurkenningar
fyrir verk sín og haldíð sýningar
víða um heim. Fyrirlesturinn verð-
ur fluttur á ensku og þar fjallar
Yamada um eigin verk.
Þekktastur íslenskra ríkisborg-
ara í heimi sígildrar tónlistar
Píanóleikarinn og tónlistarstjórinn Vladimir Ashkenazy er staddur á
Islandi. Heldur tónleika ásamt Kammersveit Reykjavíkur í Garðabæ
í kvöld. Flutt verða verk eftir Wofgang Amadeus Mozart.
tónleikar Vladimir Ashkenazy og
Kammersveit Reykjavíkur halda
tónleika í Fjölbrautaskóla
Garðabæjar í kvöld kl. 20 og í
Salnum í Kópavogi þriðjudags-
kvöldið 22. janúar kl. 20. Tón-
leikarnir eru tvímælalaust stór
viðburður fyrir tónlistarunnend-
ur því langt er um liðið frá því að
Ashkenazy spilaði síðast á ís-
landi. Á tónleikunum leikur Ash-
kenazy á píanó og stjórnar
Kammersveit Reykjavíkur.
Ashkenazy er án efa þekktast-
ur íslenskra ríkisborgara í heimi
sígildrar tónlistar í heiminum í
dag. Hann bjó á íslandi um ára-
bil og var á þeim tíma einn af
helstu hvatamönnum að stofnun
Listahátíðar í Reykjavík. Hann
hefur verið heiðursforseti Lista-
hátíðar frá árinu 1982. Ashken-
azy hóf feril sinn sem píanóleik-
ari og hefur leikið á öllum helstu
tónleikastöðum heims ýmist ein-
leikstónleika eða með hljóm-
sveit. Hann hefur unnið til fjöl-
margra verðlauna í píanókeppn-
um. Frá árinu 1970 hefur Ash-
kenazys snúið sér meira að
hljómsveitarstjórn sem er nú
helsti starfsvettvangur hans.
Hann hefur stjórnað ýmsum
þekktum hljómsveitum og verið
aðalstjórnandi Tékknesku fíl-
harmóníusveitarinnar frá árinu
1998. Samhliða gegnir hann
stöðu tónlistarstjóra Ungmenna-
hljómsveitar Evrópusambands-
ins og er heiðursstjórnandi Fíl-
harmóníusveitar Lundúna.
VLADIMIR ASHKENAZY
Frá árinu 1970 hefur Ashkenazys snúið sér meira að hljómsveitarstjórn sem er nú hel-
sti starfsvettvangur hans. Hann hefur stjórnað ýmsum þekktum hljómsveitum og verið
aðalstjórnandi Tékknesku fílharmóníusveitarinnar frá árinu 1998.
Ashkenazy heldur enn ein-.
leikstónleika um heim allan. Auk
þess má njóta píanóleiks hans á
hljómplötum og geisladiskum en
hann hefur tekið upp öll helstu
píanóverk tónlistarsögunnar.
Kammersveit Reykjavfkur
hefur í aldarfjórðung flutt
kammertónlist frá ýmsum tím-
um, bæði barokktónlist og nú-
tímatónlist. Sveitin hefur frum-
flutt fjölda kammerverka á ís-
landi og mörg tónskáld hafa
samið verk fyrir hana. Sveitin
heldur árlega nokkra tónleika á
íslandi og hefur auk þess haldið
fjölda tónleika erlendis á starfs-
ferli sínum.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, adagio og fúga KV 546,
píanókonsert í A-dúr KV 414 og
píanókonsert í d-moll KV 466.
kolbrun@frettabladid.is
......................1 1 ''"■■i .'"'"■■■ff
VLADIMIR ASHKENAZY OG
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR
Á TÓNLEIKUM í FJÖLBRAUTASKÓLA GARÐABÆJAR
MÁNUDAGINN 21. JANÚAR KL. 20
Vladimir Ashkenazy leikur á píanó og stjórnar
Kammersveit Reykjavíkur. Á efnisskrá eru verk eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Miðasala á vefnum www.midasala.is,
í síma 800 6434 (á virkum dögum)
og íF.G. frá kl.17á tónleikadag.
Miðaverð 3.000 krónur GARÐABÆR
Salurinn:
Ljóðstaf-
ur Jóns
úr Vör
ljóð Auglýst var eftir ljóðum í
nóvember síðastliðinn í ljóðasam-
keppni undir heitinu Ljóðstafur
Jóns úr Vör. Lista- og menningar-
ráð Kópavogs stendur fyrir þess-
ari samkeppni en hugmyndin er
komin frá félögum úr Ritlistar-
hópi Kópavogs. Alls bárust 510
ljóð í keppnina frá skáldum af öllu
landinu. Dómnefnd hefur nú valið
sigurljóðið og fer verðlaunaaf-
hendingin fram á fæðingardegi
Jóns úr Vör, í kvöld, mánudaginn
21. janúar, klukkan átta í Salnum.
í dómnefnd eiga sæti þau Matthí-
as Johannessen, Olga Guðrún
Árnadóttir og Skafti Þ. Halldórs-
son.
Dagskráin hefst með því að
Guðni Stefánsson, formaður
Lista- og menningarráðs setur
samkomuna. Sigurður Geirdal
bæjarstjóri minnist Jóns úr Vör.
JÓN ÚR VÖR
Jón úr Vör Jónsson rithöfundur og bóka-
vörður faeddist 21.janúar árið 1917 á Pat-
reksfirði. í Ijóðasamkeppninni honum til
heiðurs verða veitt vegleg verðlaun og fær
sigurvegarinn, auk peningaverðlauna,
„Ljóðstaf Jóns úr Vör" til varðveislu í eitt ár
sem er göngustafur skáldsins sleginn silfri.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Jónas Ingimundarson flytja lög
við ljóð úr Þorpinu eftir Jón úr
Vör og einnig flytja þau lag Jónas-
ar við ljóðið Sumarnótt eftir Jón.
Formaður dómnefndar, Matthías
Johannessen, gerir síðan grein
fyrir niðurstöðum nefndarinnar
og formaður Lista-og menningar-
ráðs afhendir verðlaunin og lesin
verða ljóðin sem hljóta verðlaun
og viðurkenningu.
Dagskránni lýkur með veiting-
um í boði Lista- og menningarráðs
Kópavogs. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir, enginn að-
gangseyrir. ■