Fréttablaðið - 23.01.2002, Síða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
23. janúar 2002 MIÐVIKUPACUR
HÁSKÓLABÍÓ
HAGATORGI. SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
|K-PAX kl. 8 og 10.30Í
Iharry potter kL5l
REGÍNA FILMUNDUR kLÍj Imávahlátur kL6og 10.1
jlNTIMACY kl. 81 Ielling kL 8 og loj
25% afsl.
á hársnyrfistofu
10 tíma Ijóskort
á 3900.
Hársnyrtistofa
opin til 22.00
WINK
HÁR & SÓL
Smiðjuvegi 1, s. 5444949
Har.drió
gTIGAR &
c=3 Handrið
GRIDchi Dalbrekku 26, Kópavogl
stml 5641890 www.grid.ls
ANDVARI 2001
J* Wm .
Nýtt hefti af bókmennta- og fræði-
tímaritinu Andvara er komið út.
Meðal efnis eru greinar um skáld-
skap Sigfúsar Daðasonar og líf
betri borgara í Reykjavík um miðja
19. öld. Þá er fjallað ítarlega um
Snorra Hallgrímsson prófessor
sem var herlæknir í vetrarstríði
Finna og Rússa 1939-40.
Andvari fæst
íhelstu bóka-
verslunum og
hjá Sögufélagi,
Fischersundi 3.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Strákasveitin Boyzone er að
skipuleggja tónleikaferð, sem
ekki væri frásögu færandi ef
piltarnir ætluðu
sér allir í hana.
Málin standa hins.
: vegar þannig að
Ronan Keating
| var ekki boðið
; með. Sveitin hef-
ur ekki verið
starfandi síðan að
liðsmenn hennar
sögðust ætla í frí til þess að ein-
beita sér að sólóferlum sínum.
Ronan er hins vegar sá eini sem
hefur átt einhverri velgengni að
fagna.
Steven Spielberg hefur greint
frá áætlum sínum um að hefja
framleiðslu fjórðu Indiana Jones
myndarinnar um
leið og hann klár-
ar sína næstu
mynd. Sú mynd
heitir Catch Me if
You Can og verð-
ur með Leonardo
DiCaprio og Tom
Hanks í aðalhlut-
verki. Handrit Jo-
nes myndarinnar er tilbúið.og
titilinn með en Spielberg var
þögul sem gröfin þegar blaða-
menn reyndu að veiða frekari
upplýsingar um söguþráðinn.
Hann staðfesti þó að Harrison
Ford verði með og að eiginkona
hans, Kate Capshaw, sem lék
kærustu Indiana Jones í mynd-
inni Temple of Doom endurtaki
einnig hlutverk sitt.
Mariah Carey er staðráðin í
því að sannfæra kvik-
myndaáhugamenn að hún eigi
heima á hvíta tjaldinu. Þrátt fyr-
ir að frumraun
hennar hafi verið
sögð svo slæm að
jafnvel sýninga-
stjórarnir hafi
labbað út. Nýja
myndin heitir
| Wise Girls og þar
j leikur Carey
ásamt Miru Sorvino veitinga-
stúlku sem verður vitni að glæp
mafíunnar. Síðast varð að leggja
stúlkuna inn á geðdeild eftir að
gagnrýnendur hökkuðu hana í
sig. Samkvæmt fyrstu viðbrögð-
um gagnrýnenda má búast við
því að söngkonan þurfi að heim-
sækja deildina á nýjan leik.
siwil 564 oono - www.smarabio.is
Sýnd'kl. 8 og 10.30 vit 319
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 vrr 319
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 vit 333 jREPLIKATE _ _ kL8og 10.15
|K-PAX ~ kl.8ogl0.30:3 ÍffllÁNTlTm/bltoli kl4og6
.rvfiTi ___________———
HEIST
kUl
IREGÍNA
Í5T.45, 5.50, 8 og 10.20 aff?] IhARRY POTTER m/ isl lali
kl. 4 j pTj iHARRY POTTER m/ ens. tali H.«[g
fSTF|
MARC ALMONO
pfatí fyn'r að haía aldrei haldið her tónleika fyrr. yh
<8
MARC ALMOND
Er landi og þjóð kunnur þrátt fyrir að hafa aldrei haldið hér tónleika fyrr.
Almond nálgast
Hann er maðurinn sem söng um mengaða ást á níunda áratuginum.
Marc Almond á sér líklegast marga aðdáendur hér á landi og því má
búast við troðfullri Operu á tónleikum hans í næstu viku.
tónleikar Marc Almond náði að
fanga anda níunda áratugarins
með laginu „Tainted Love“ sem
hann og félagi. hans Dave Ball
gerðu vinsælt árið ‘81 undir for-
merkjum Soft Cell. Smáskífan
varð sú söluhæsta í Bretlandi
það árið. í kjölfar vinsældanna
kom fyrsta breiðskífa dúettsins,
„Non-stop Erotic Cabaret11, út ár-
inu seinna og seldist vel. Sið-
prúðari iandar raf-dúettsins létu
ögrandi klæðnað og sviðslátalæti
þeirra fara í taugarnar á sér og
margir- töldu- að hér væri há-
marki „tyggjókúlupoppsíns“ náð.
í dag eru þó líklegast flestir til-
búnir að viðurkenna þátt þeirra í
frámþróun raftónlistar. En í
byrjun níunda áratugarins mátti
setja þá undir sama hatt og
Depeche Mode skreið undan
nokkrum árum síðar. Önnur
þekkt lög með dúettnum eru:
„Say hello wave goodbye“,
„Bedstitter", „Torch“ og „Num-
bérs“.
Éftir að dúettinn sundurliðað-
ist í einingar sínar. hóf Almond
sólóferil sinn. Hann tók upp
þráðinn þar sem sveitin hafði
skilið við hann og hélt áfram að
framleiða sjúskað rafpopp en
átti í upphafi í erfiðleikum með
að ná aftur svipaðari athygli
fjöldans. Almond hefur þó alla
tíð átt traustan hóp fylgjanda og
gaf hann út eina plötu á ári á
tímabilinu ‘82 - ‘91. Hann komst
svo aftur á topp breska vinsæld-
arlistans árið ‘88 þegar hann
söng dúettinn „Something’s gott-
en hold of my heart“ með Gene
Pitney, manninum sem gerði lag-
ið Upphaflega vinsælt á 7. ára-
tugnum.
íslandstengsl söngvarans eru
í gegnum Jóhann Jóhannsson,
fyrrum LHOOQ liðsmann og
einn fimmta Apparat Örgan Qu-
artett (hvað sem nafnið gefur til
kynna), en þeir kynntust í gegn-
um sameiginlegan umboðsmann
þeirra.
Þeim félögum kom vel saman
og leiddi það til þess að Jóhann
stjórnaði upptökum og samdi
nokkur lög á nýjustu breiðskífu
Almonds, „Stranger Thing’s“,
sem kom út síðasta sumar.
Almond var víst yfir sig hrifinn
af plötu LHOOQ og enn hrifnari
af Dip, samstarfsverkefni Jó-
hanns og Sigtrygg Baldurssonar.
trommuleikara. Platan var m.a.
unnin hér heima í hljóðveri. Jó-
hanns, Nýjasta.tækni og vísind-
um. Hún hefur fengið góðar við-
tökur gagnrýnenda um heim all-
an.
Á tónleikunum mun Almond
leika með þriggja manna hljóm-
sveit og síðan slást í hópinn Jó-
hann og fjögúrra mahna
strengjasveit-skipuð þeim Bryn-
dísi Höllu Gylfadóttur sellóleik-
ara, Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðlu-
leikara,. Auði Hafsteinsdóttur
fiðlul^ikara, Helgu Þórarinsdótt-
ur .lágfiðluleikara. Það hlýtur að
teljast við hæfi að Páll Óskar
Hjálmtýsson og Monika
Abendroth opna tónleikana með
lögum af plötu þéirra „Ef ég
vakna ekki í nótt“. Tónleikar
verða á fimmtudagskvöldið 31.
janúar og hefjast kl. 20.00. For-
sala aðgöngumiða er í 12 tónum,
Skólavörðustíg.
biggi@frettabladid.is
NABBI
Nabbi minn. Ég ætla að
skreppa út í búð eftir
mjólk. Viltu ekki
koma með mér?
Þú ert fjörutíu og
þriggja úra! Ég hefði haldið
oð boð væri nógu mikið til
oð lifo of fimm mínútno
innkoupaferð einsömul.