Fréttablaðið - 23.01.2002, Side 18

Fréttablaðið - 23.01.2002, Side 18
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS? Lifandi líf Tilgangur lífsins hlýtur í fyrsta lagi að lifa lífinu lifandi. Hafa gaman af því sem maður er að gera. Jafnframt er mikilvægt að gleðja aðra og láta gott af sér leiða. Heiðrún Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ ■ Stóra sviðið kl 20.00 ► CYRANO • SKOPLEGUR HETJULEIKUR - Edmond Rostand 9. sýn. fim. 24/1 nokkur sæti laus, 10. sýn. sun. 27/1, 11. sýn. sun. 3/2, 12. sýn. fim. 7/2. ► MEB FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones fös. 25/1 100, svninq - uppselt, fim. 31/1 uppselt, þri. 5/2 uppselt, fös. 8/2 uppselt, sun. 10/2 örfá sæti laus. ► SYNGJANDI í RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed Lau. 26/1 örfá sæti laus, lau. 2/2 nokkur sæti laus, lau 9/2. ■ Litla sviðið kl 20.00 ► HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee Fös. 25/1 örfá sæti laus, mið. 30/1, fim. 31/1 nokkur sæti laus, fös. 1/2. Ekki er hægt að hleypa inn í salínn eftir að sýníng er hafin! >* . Smíðaverkstæðið kl 20.00 ► MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones Fös.1/2 uppselt mið. 6/2 nokkursæti laus, mið. 13/2, fim. 14/2, sun. 17/2. fim. 21/2. fös. 22/2. ► KARlUS OG BAKTUS - Thorbjörn Egner Sun. 27/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, kl. 15:00 uppselt og kl. 16:00 uppselt, sun. 3/2 kl.14:00 örfá sæti laus og kl.15:00 nokkur sæti laus, sun. 10/2 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 15:00 nokkur sæti laus, lau. 16/2 kl. 14:00 nokkur sæti laus oq kl. 15:00. Miðasöluslmí: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is 23. janúar 2002 MIÐVIKUDAGUR Rannsóknastofnun KHÍ: Hvemig líður kennurum? fyrirlestur Anna Þóra Baldursdóttir lektor við Háskólann á Akureyri heldur fyrirlestur á veg- um Rannsóknarstofnun- ar KHÍ í dag. í fyrir- lestrinum kynnir Anna Þóra meistaraprófs- verkefni sitt sem nefn- ist Hvernig líður kenn- urum? Verkefnið er könnun á kulnun í starfi grunnskólakennara og leiðbeinenda í grunn- skólum. Megintilgangur rann- sóknarinnar var að kanna hvort kulnunar í starfi gæti meðal þessa hóps, hjá hvaða kennurum hún komi helst fram og hvaða þættir í starfs- umhverfinu hafi helst áhrif þar á. Þættirnir samskipti, hlutverk og álag voru sérstaklega kannaðir. Fjallað verður um fyrirbærið kulnun í starfi, gerð grein fyrir rannsókninni og helstu niðurstöðum hennar og bent á leiðir til þess að sporna við kulnún í starfi. Fyrirlesturinn verð- ur haldinn í sal Sjó- mannaskóla íslands við Háteigs- veg. Hann hefst klukkan 16.15 og er öllum opinn. ■ MENNTUN er máttur Á fyrirlestrinum verður rætt um könnun sem gerð var á kulnun i starfi grunnskólakennara og leiðbeinenda í grunn- skólum. Hræðileg lífsreynsla að heyra mig tala íslensku Hinn íslensk ættaði rithöfundur, ljóðskáld og tónlistarmaður Bill Holm stendur fyrir kvöldstund í Salnum í kvöld. listar „Ég kom til íslands á mánudagsmorgun og hafði með- ferðis ferðatösku og pappakassa. Þegar ég fór í gegnum tollinn spurði tollvörðurinn hvað væri í kassanum. Ég leit á hana og sagði hann innihalda ljóð sem ég hefði samið. Þá brosti konan vinalega, sagði það vera stór- kostlegt. Síðan bauð hún mig hjartanlega velkominn til lands- ins. Þar sem ég gekk í gegnum hliðið velti ég fyrir mér, hefði þetta verið bandarískur tollvörð- ur stæði ég trúlega allsnakinn fyrir framan hann á þessari stundu og ljóðin mín á víð og dreif. Svona kveðja er séríslensk og eitt af mörgu sem gerir mig afar stoltan af forfeðrum mín- um. Alveg sama hversu marga farsíma íslendingar eignast, ekki minnkar ást þeirra á ljóð- um,“ segir Vesturíslendingurinn Bill Holm sem í kvöld ætlar að vera með kvöldstund í Salnum í Kópavogi. Bill, sem hefur ritað margar bækur um reynslu sína af landi og þjóð, ætlar að segja frá, í gamansömum tón, þeim breyt- ingum sem orðið hafa á íslandi síðastliðin tuttugu ár, lesa frum- samin ljóð auk þess að leika á pí- anó „ragtime“ tónlist eftir snill- inga á borð við Scott Joplin. Bill segir gríðarlegar breytingar hafa orðið á íslandi. „Ef ég nefni dæmi voru engar verslunarmið- stöðvar árið 1979 og malbikið úti á landi endaði við bæjarmörkin á Selfossi. Golfvöllur er kominn þar sem ég var í sveit fyrir tutt- ugu árum og hrörlegu húsin sem sumir bændur bjuggu í hafa breyst í glæsibýli sem myndu sóma sér vel í hvaða stórborg sem er.“ Bill er ættaður úr Vopnafirði BILL HOLM Bill dvelur jafnan 3-4 mánuði á íslandi á hverju árí. Þá er hann búsettur á Hofsósi, í húsi sem hann keypti fyrir tilstuðlan Valgeirs Þorvaldssonar, forstöðumann Vesturfara- setursins. Á veturna kennir hann bókmenntir við Southwest State-háskólann í Minnesota. Sumrin á íslandi notar hann til að semja auk þess að standa fyrir ritlistar- námskeiði fyrir fólk frá Bandaríkjunum og Kanada I samvinnu við David Arnason, yfir- mann ensku- og íslenskudeildar Manitoba-háskóla. og námu forfeður hans land í Minnesota þar sem hann fæddist árið 1943. Þar ólst hann upp og býr enn. Aðspurður hvernig ís- lenskukunnáttu hans væri háttað segir hann hræðilega lífsreynslu að heyra sig tala. „íslenska var móðurmálið hennar mömmu. Hún fullvissaði mig um að mað- ur þyrfti að vera mun greindari en aðrir til að geta lært íslensku. Mamma hafði hins vegar aldrei fyrir því að kenna mér málið. Það leiðir óneitanlega hugann að áliti hennar á greindarvísitölu sonarins," segir Bill og hlær. „Af samskiptum mínum við Bandaríkjamenn annars vegar og íslendinga hins vegar, geri ég mér sífellt betur grein fyrir hver- su stórkostleg gjöf hinn íslenski uppruni minn er. Hann gaf mér ástina á bókurn." í lok samtalsins spyr Bill Holm í einlægni hvort fyrirfinnist einhver íslendingur sem eigi sér ekki þann draum að sjá nafn sitt sem höfundarnafn bókar? Blaðamaður varpar þess- ar spurningu hér með til lesenda. kolbrun@frettabladid.is CENTAUR Hljómsveitin dregur nafn sitt af goðsögninni Centaur, sem var hálfur maður og hálfur hestur. j METSÖLUBÆKURNAR | METSÖLULISTI EYMUNDSSONAR DACANA 15.-21. JANÚAR. (Ql J.R.R. Tolkien HRINGADRÓTTINSSAGA - 1. BINDI Guðrún Agnarsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson ofl. AF BESTU LYST I @ Björg Sigurðardóttir, Hörður Héðinsson ofl. ____AF BESTU LYST II___ © J.K. Rowling HARRY POTTER OG LEYNIKLEFINN Tricia Kreitman STELPA, STATTU Á ÞÍNU J.K. Rowling HARRY POTTER OG FANGINN FRÁ AZKABAN © Þórarinn Eldjárn þýddi MOLDVARPAN SEM VILDI VITA HVER SKEIT... Q Helgi Jónsson GÆSAHÚD - GALDRAMAÐ- URINN ÓGURLEGI Jóhanna Á. Steingrímsdóttir endursagði SAGAN AF LOÐINBARÐA (JD J.R.R. Tolkien HOBBITINN Bækur: Hringadrótt- inssaga í 1. sæti bækur Fyrsfinluti Hringadróttins- sögu kom úr endurprentun í síð- ustu viku og rýkur beint upp í fyrsta sæti metsölulistans. ís- lenska þýðingin seldist upp fyrir jól og varð ein mest selda skáld- saga síðasta árs þrátt fyrir að hafa fyrst komið út fyrir nokkrum árum síðan. Matreiðslubækurnar Af bestu lyst I & II fylgja svo fast á hæla Tolkiens. í þeim er að finna hollar og næringaríkar uppskriftir sem alltaf eru vinsælar á þessum árs- tíma. ■ —♦— Israel-Palestína: Er einhver leið til sátta? fundur Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta heldur í kvöld málfund sem ber yfirskriftina „ísrael- Palestína: Er einhver leið til sátta?“. Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs hefur verið mjög í fjölmiðlum und- anfarna daga og vikur enda virðist sem ástandið versni nánast dag frá degi og erfitt er að sjá að friðarsam- komulag sé á döfinni. Framsögumenn verða þau Óli Tynes fréttamaður, Jóhanna Kristjóns- dóttir, blaðamaður sem hefur ferð- ast töluvert um Austurlönd og m.a lært arabísku í Egyptalandi, Sýr- landi og Yemen, og'Viðar Þorsteins- son frá samtökunum ísland- Palest- ína. Þau munu öll halda stuttar framsögur en að þeim loknum verð- ur opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn hefst kl. 12:15 og er áætlað að hann standi í um klukku- stund. Fundarstaður er Oddi, stofa 101. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga háfa á málefninu. ■ MIÐVIKUDAGURINN 23. JANUAR FUNOUR_____________________________ 12.15 Lagadeild H.I. gengstfyrir mál- stotu i dag þar sem umræðuefnið verður: Hver er stjórnskipuleg staða forseta fslands? Málshefj- endur verða Sigurður Líndal, prófessor emeritus við lagadeild og Hannes Hólmsteinn Gissura- son, prófessor í stjórnmálafræði. Málstofan er haldin I Lögbergi, stofu L-IOT, og er öllum opin. 12.15 Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta heldur málfund í dag sem ber yfirskrrftina "Israel-Palest- ína: Er einhver leið til sátta?". Fundarmenn verða þau Óli Tynes fréttamaður, Jóhanna Kristjóns- dóttir, blaðamaður og Viðar Þor- steinsson frá samtökunum Island- Palestfna. Þau munu öll halda stutt- ar framsögur en að þeim loknum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundarstaður er Oddi, stofa 101. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á málefninu. 16.15 Anna Þóra Baldursdóttir lektor við Háskólann á Akureyri heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknar- stofnunar KHI í dag. í fyrirlestrin- um kynnir Anna Þóra meistara- prófsverkefni sitt sem nefnist Hvemig líður kennurum? Fyrir- lesturinn verður haldinn í sal Sjó- mannaskóla fsiands við Há- teigsveg og er öllum opinn. 17.00 Mannréttindaskrifstofa fslands efnir til málstofu í kvöld þar sem Magnfríður Júlíusdóttir, lektor f landfræði við Háskóla íslands, flytur erindi sem hún nefnir Réttíndi kvenna og bama í Zimbabwe: Á mótum hefða og settra laga. Seg- ir hún þar frá rannsókn sinni á högum og réttindum kvenna og bama í Afríkuríkinu Zimbabwe. Málstofan verður í Litlu Brekku við Bankastræti. KVIKMYNDASÝNING___________________ 20.30 Goethe-Zentrum, Laugavegi 18, sýnir í kvöld þýsku kvikmyndina Sonnenalle í kvöld. Myndin er frá árinu 1999. Sonnenalle er gata sem var við hluta í Austur- Berlín og að hluta f Vestur-Berlfna. TÓNLEIKAR _________________________ 20.00 Rithöfundurinn, Ijóðskáldið og músíkkantinn Bill Holm verður i Saln- um, Tónlistarhúsi Kópavogs, í kvöld. Holm ætlar að lesa úr verkum sínum, segja óborganlegar skemmtisögur og spila og syngja eins og honum er einum lagið. 21.00 Hljómsveitin Centaur leikur á Gauki á Stöng í kvöld en langt er orðið síðan þeir félagar komu síðast saman. Á tónleikunum i kvöld leikur hljómsveitin blús af ýmsum tagi. Miðaverð er 500 krónur. SÝNINGAR___________________________ Fellingar heitir sýning um sögu Eyglóar Harðardóttur sem stendur yfir í Þjóðar- bókhlöðunni. Það er Kvennasögusafnið sem setur sýninguna upp .Opnunartími Kvennasögusafnsins er milli klukkan 9 og 17 virka daga. Handritasýning I Stofnun Áma Magn- ússonar, Arnagarði við Suðurgötu. Handritasýning er opin kl. 14 -16 þriðju- daga til föstudaga. Sýningin Landafundir og ragnarök stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er samstarfsverkefni við Landa- fundanefnd og fjallar um landafundi og siglingar (slendinga á miðöldum með áherslu á fund Grænlands og Vínlands. MYNDLIST___________________________ Finnska listakonan Helena Hietanen sýnir skúlptúra gerða úr Ijósleiðurum í i8galleri. Sýningin stendur til 3. mars. Safnið er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17. Blústónlist á Gauki á Stöng: Centaur saman eftir langthlé tónleikar Hljómsveitin Centaur leikur á Gauki á Stöng í kvöld en langt er orðið síðan þeir félagar komu síðast saman. Hljómsveitin var stofnuð fyrir tæplega tuttugu árum og efst á lagalista þeirra hefur ávalt verið blústónlist og seint á níunda áratugnum helgaði hljómsveitin sig slíkri tónlist. Þá var gefin út hljómplatan Blús- djamm og fylgdu hljómsveitin henni vel eftir með ótal hljóm- leikum. Centaur hætti að starfa eftir um tíu ára feril en hljóm- sveitarmeðlimir hafa komið sam- an nokkrum sinnum á ári síðan þá og blúsað sér til ánægju þegar. Á tónleikunum í kvöld leikur hljómsveitin blús af ýmsum tagi. Vert er að taka fram að lagavalið byggist ekki eingöngu upp á trega heldur má finna þar á með- al ýmiss konar afbrigði blússins, allt frá sveitablús og upp í „jump“. Tónleikarnir hefjast klukkan níu og er miðaverð 500 krónur. ■ úi'.uga ; ala a

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.