Fréttablaðið - 08.02.2002, Page 4

Fréttablaðið - 08.02.2002, Page 4
SVONA ERUM VIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ: Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði Samkeppni er um fyrirtagki á meðal sueitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það gæti haft áhrif á ákvörðun Marels um flutning frá Reykjavlk til Garðabæjar að þar greiða fyrirtæki nokkru lægri fasteignagjöld. Hæsta hlutfallið er í Reykjavlk, 1,65% af fasteignamati, og lægst í Mosfellsbæ, 1%. Hámarksskatt- hlutfall samkvæmt lögum um tekju- Stofna sveitaríélaga er 1,65%. Fasteignaskattur á atvínnuhúsnæði, í % Reykjavlk 1,65 Kópavogur 1,63 Hafnarfjörður 1,63 Bessast.hreppur 1,22 Garðabær ' ' . 1,12 Seltjarnarnes 1,12 Mosfellsbær 1,00 Heimild: Samtök atvinnulífsins Listaverk eyðilagt: Listamað- urinnekki spurður álits árbæjarskóli Listaverk eftir Vetur- liða Gunnarsson sem staðsett var í Árbæjarskóla var fjarlægt og eyði- lagt án þess að haft hefði verið sam- ráð við listamanninn. Að sögn Guð- mundar Pálma Kristinssonar, for- stöðumanns Fasteignastofu, var honum tjáð að listamaðurinn væri veikur og ekki til viðtals. í síðustu viku óskuðu Sjálfstæð- ismenn eftir því að fá að vita hvað hefði orðið af listaverkinu. Engin svör fengust. Á borgarráðsfundi í fyrradag var hins vegar upplýst að listaverkið hefði verið fjarlægt og eyðilagt vegna framkvæmda við skólann, en um var að ræða veggskreytingu. Það hefði síðan verið gert í samráði við Þorstein Sæberg skólastjóra. Einnig hefði borgarlögmaður verið spurður álits vegna eignarhalds og höfundarrétt- ar og Eiríkur Þorláksson, forstöðu- maður Kjarvaisstaða. Eiríkur hefði lagt til að veggurinn yrði Ijósmynd- aður og það hefði verið gert. Eina minningin um listaverkið er því Ijósmynd af því. ■ Þingmenn Samfylkingar- innar: VÍljaefla rarmsóknar- vald Alþingis almngi Lokað hefur verið að-hluta á eðlilegt upplýsingaflæði frá ríkis- stjórn til Álþingis, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Sam- fylkingarinnar. Hún mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breyt- ingar á þingsköpum Alþingis með það fyrir augum að auka rétt og valdsvið þingnefnda til sjálfstæðra rannsókna á einstökum málum. „Á undanförnum árum hafa [...] komið berlega í ljós veikleikar löggjafar- valdsins gagnvart framkvæmdar- valdinu þar sem Alþingi er að verða æ meira framkvæmdarvaldsþing. Þessi staðreynd er alvarleg fyrir lýðræðið í landinu og telja má að þingræðið sé í hættu vegna þessa,“ segir í greinargerð með frumvarp- inu. Þingmenn sem til máls tóku lýstu sumir áhyggjum af því að málið yrði enn „svæft“ í nefnd og vonuðust til að það mætti fá eðli- lega afgreiðslu af hálfu þingsins í annari og þriðju umræðu. Svipuð frumvörp hafa verið lögð fram áður á þingi en ekki náð fram að ganga. Jóhanna segir svipuð ákvæði um rannsóknarnefndir fyrir hendi hjá nágrannaþjóðunum og telur ein- stakt að ekki séu heimildir þar að lútandi fyrir hendi hér á landi. „Valdsvið þeirra er í raun miklu rýmra og gengur lengra en hér er gengið," sagði hún. Ásamt Jóhönnu stóðu að frum- varpinu Össur Skarphéðinsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Lúð- vík Bergvinsson, þingmenn Sam- fylkingar. ■ FRETTABLAÐIÐ 8. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR Stódentar mótmæla framkvæmd inntökuprófa í læknadeild Háskóla Islands: Miðad við námskrá sem ekki er komin til framkvæmda stúpentar f gær afhentu stúdentar rektor Háskóla íslands, Páli Skúla- syni, undirskriftalista þar sem far- ið er fram á að fresta framkvæmd inntökuprófa í læknadeild Háskól- ans. Um 1000 manns hafa skrifað undir, læknanemar sem þreyttu próf um jólin, framhaldsskólanem- ar og fleiri sem málið varðar. Undirbúningur læknadeildar undir inntökuprófin er að mati stúdentanna sem eiga í hlut ónógur og ófullnægjandi. Krafan er því að framkvæmd þeirra verði frestað. „Seint lá fyrir úr hvaða áföngum framhaldsskólans yrði prófað. Námskeiðslistanum var meira að segja breytt nú í janúar eftir að skólameistarar framhaldsskólanna gerðu athugasemdir við hann. Læknadeild gekk út frá aðal- námskrá sem ekki er að fullu kom- in til framkvæmda í og það skapar þessi vandræði," segir Þorvarður Tjörvi Ólafsson formaður Stúd- entaráðs. Þorvarður Tjörvi segir að ekki sé verið að mótmæla inntökupróf- um yfirleitt enda séu menn almennt hlynntari þeim en samkeppnispróf- MÓTMÆLI AFHENT Stúdentar við Háskóla Islands afhentu I gær Páli Skúlasyni rektor mótmæli vegna framkvæmdar inntökuprófa I læknadeild. um í lok fyrstu annar eins og tíðkast hafa. Sömuleiðis eru menn ekki endilega mótfallnir innihaldi prófanna heldur því að of snemmt sé að leggja fyrir próf sem miðast við aðalnámskrá sem ekki er að fullu komin til framkvæmda. ■ íslandsbanki lækkar verð: Ákveðið eftir ASÍ-fund bankar íslandsbanki hefur ákveð- ið að gera breytingar á verðskrá sinni og lækka ýmis gjöld bank- ans. Ákvörðunin er tekin í kjölfar fundar með forystumönnum ASÍ. Bankinn leggi þannig sitt lóð á vogarskálarnar svo meiri líkur verði á að verðlagsákvæði kjara- samninga verði innan viðmiðun- armarka í maí. Lántökugjöld skuldabréfa, tilkynningar-og greiðslugjald skuldabréfalána, ár- gjald debetkorta og tékkhefta lækka um 15%. Bankinn skuld- bindur sig til að breyta ekki verðskránni það sem eftir er ársins. ■ Segist engu hafa stolið Bankamaðurinn John Rusnak, sem talinn er hafa dregið til sín 75 millj- arða króna, gaf sig fram við FBI í gær. Lögfræðingur hans segir hann ekki hafa verið á flótta. Nick Leeson segir að málið afhjúpi vanhæfni og vanrækslu bankaheimsins. baltimore.ap Bandaríski banka- starfsmaðurinn John Rusnak, sem grunaður er um svik sem kostuðu stærsta banka írlands, Allied Irish Banks, 75 milljarða króna, gaf sig fram við fulltrúa banda- rísku alríkislögreglunnar, FBI, í gær. Lögfræðingur Rusnak segir skjólstæðing sinn ekki hafa verið á flótta undan réttvísinni og að hann hafi ekkert óhreint mjöl í pokahorninu. Rusnak, sem er starfsmaður dótturfyrirtækis Allied Irish Bank í Bandaríkjun- um, mætti ekki til vinnu sinnar á mánudag. Hefur hann eytt síðustu dögum í faðmi fjölskyldunnar í Baltimore, auk þess sem hann hefur rætt við yfirvöld í borginni. Rannsókn FBI felst í því að kom- ast að því hvort Rusnak hafi stundað gjaldeyrisviðskipti án heimildar. Ekki hefur enn verið gefin út handtökuskipun á hendur honum. Bankastjórn Allied Irish Banks boðaði til neyðarfundar í gær til að komast til botns í málinu. Full- vissuðu forsvarsmenn bankans viðskiptavini sína um að enn sé stefnt að því að ná hagnaði á þessu ári þrátt fyrir allt. „Þetta er mikið áfall en það mun ekki gera út af við okkur," sagði Michael Buckley, framkvæmdastjóri bankans. Sagði hann að töluverð- ur munur væri á þessu máli og því þegar Nick Leeson setti Barings bankann á hausinn árið 1995. Þá tapaði hann um 115 milljörðum króna með óheimiluðum áhættu- viðskiptum sínum í nafni bank- ans. Á vefsíðu Sky birtist viðtal við Leeson. Þar sagði hann að hrun Barings bankans og grunuð svik John Rusnak afhjúpi „vanhæfni og vanrækslu” bankaheimsins. Sagði hann málin vera sláandi lík og bætti því við að þessar nýjustu fregnir sýni að fjármagnsstofnun- um hafi mistekist hrapalega að RUSNAK John Rusnak er giftur tveggja barna faðir sem starfað hefur hjá bankanum I sjö ár. „Við erum afar vonsvikinn yfir því að starfsmönnum okkar hafi ekki tekist að koma (veg fyrir þennan atburð fyrr," sagði framkvæmdastjóri frska bankans Allied Irish Banks. „Rannsókn- in mun ekki aðeins skera úr um hvemig málið átti sér stað heldur einnig hvernig við get- um varist þvi að það komi aftur fyrir í framtíðinni." koma á öflugu eftirlitskerfi. „Eft- irlitskerfið sem á að koma í veg fyrir að svona hlutir gerist er mjög einfalt. Fólk hefur einfald- lega ekki verið að sinna því,“ sagði Leeson. „Þetta er náungi sem hefur klifið upp metorðastig- ann í bankanum og er orðinn einn helsti miðlarinn innan hans raða. Hann hefur komið sér í aðstöðu þar sem hann hefur tapað pening- um. Virðist hann hafa tekið aukna áhættu til þess að ná peningunum aftur.“ Fimm starfsmenn bankans, þar á meðal Rusnak, hafa verið leyst- ir undan störfum á meðan á rann- sókn málsins stendur. ■ Ríkisábyrgð vegna hryðjuverka: Leika sér með fjöregg þjóðarinnar alþingi Ábyrgð ríkisins vegna hugsanlegs tjóns sem flugvélar valda vegna hryðjuverka hefur verið framlengd til 10. apríl nk. Bráðabrigðalög um bótaábyrgð vegna tjóns af notkun loftfars vegna hernaðaraðgerða, hryðju- verka eða áþekkra atvika voru staðfest á Alþingi í gær og send til ríkisstjórnarinnar sem lög. Vilhjálmur Egilsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks talaði fyrir frumvarpinu og sagði að á alþjóð- legum vettvangi væri stefnt að því að fyrir marslok að fyrir lægi niðurstaða um hvernig haga ætti þessum tryggingamálum til fram- búðar. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, varaði við frumvarpinu. „íslenska ríkið er að taka á sig gífurlega ábyrgð fyr- ir hönd íslensku þjóðarinnar og þó að líkurnar séu sáralitlar þá er þarna verið að leika sér með fjöregg þjóðarinnar. Vegna þess að verið er að tala um þvílíkar upphæðir ef til skyldi koma að þjóðin biði þess varla bætur,“ sagði hann. ■ PÉTUR H. BLÖNDAL Pétur varar við því að gangast I ábyrgðir vegna skaða sem loftfar gæti valdið vegna hryðjuverka. Tilraunir með línubeitó: Fiskhakk í grisjupoka sjávarútvegur Svo getur farið að ný línubeita sem verið er að gera tilraunir með geti lækkað útgerð- arkostnað umtalsvert. Þarna er um að ræða grisjupoka sem er álíka stór og tepoki. í þessum til- raunum hefur m.a. verið prófað að hafa ýmsar tegundir af fersku fiskhakki í þessum pokum sem geta verið af ýmsum stærðum. Snorri Sturluson smábátasjómað- ur á Suðureyri við Súgandafjörð segir að í þeim tilraunum sem hann hefur gert í samstarfi við veiðarfæragerðina Dímon hafi afli ýmist verið góður eða nánast enginn með einum 500 króka bala. Hann segir að ef menn séu kanns- ki að beita 15 grömmum á hvern krók en þurfa kannski ekki nema 8 grömm í pokann geti þetta haft í för með sér verulegan sparnað í útgerðarkostnaði. Sem dæmi nefnir hann að kostnaður vegna beitu geti numið allt að 5-10% af heildarkostnaði útgerða. Takist að lækka þennan kostnað að einhverju ráði sé það veruleg kjarabót fyrir smábáta- sjómenn. Fyrir utan Dímon stan- da að þessum tilraunum Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins og Raunvísindastofnun Háskóla Is- lands. Þetta verkefni fékk nýlega 3 milljóna króna styrk úr Tækni- sjóði. ■ Rekstrarár Hraðfrystihúss Eskiijarðar: 156 milljón í hagnað sjávarútvegur Hraðfrystihús Eski- fjarðar hf. skilaði 156 milljón króna hagnaði rekstrarárið 2001. Rekstar- tekjur námu rúmum 3,763 milljón- um en hagnaður fyrir afskriftir var 1.280 milljónir króna. Afskriftir ársins voru rúmar 403 milljónir og f jármagnsgjöld rúmar 750 milljón- ir. „Grundvöllur- inn að þessu er elfar aðal- kannski fyrst og STEINSSON fremst góð Upp- 3S,HEÍt íjávarfiskvelði á fjarðar segir að arinu. Skip okkar nýliðíð ár sé eitt voru að slá hvert besta rekstrarár í metið á fætUl’ Öðru. sögu félagsins. Ejns var nokkuð hagstætt afurðarverð á mjöli og lýsi en þetta eru stærstu tekjupóst- ar þessa félags svo þetta hefur mik- ið að segja,“ sagði Elvar Aðalsteins- son, forstjóri Hraðfrystihúss Eski- fjarðar. Hann segir að endurskipu- lagning sem félagið gekk í gegnum hafi verið að skila sér hægt og ró- iega. „Endurskipulagningunni er að mestu lokið svo hún ætti að koma til fullra áhrifa á þessu ári.“ Hann tel- ur rekstrarhorfur þessa árs nokkuð góðar ef núverandi markaðshorfur haldi sér í stórum dráttum. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.