Fréttablaðið - 08.02.2002, Side 12
VELALAIMD
VÉLASALA • TÚRBIWUR
VARAHLUTIR • VIDGERÐIR
áb
HELCiA
MOGENSEN
FRETTABLAÐIÐ
8. febrúar 2002 FÖSTUDACUR
Upplýsingar í sírna 699 6287
Enn rætt um áhugamannahnefaleika:
Lemjast megi á með lögmætum hætti
alþingi Síðasta umræða um
ástundun og æfingar áhuga-
mannahnefaleika fór fram á Al-
þingi í gær. Allar líkur eru á að
frumvarp Gunnars Birgissonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokks, þar
að lútandi verði senn að lögum.
Hnefaleikar hafa verið bannaðir
hér frá því árið 1956.
Sigríður Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, ítrek-
aði fyrri varnaðarorð sín vegna
frumvarps Gunnars Birgissonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokks um
áhugamannahnefaleika. „Maður
hefur heyrt að þeir sem hafa ver-
ið að reka hér áhugamannaklúbba
um box og hafa farið mikinn, ekki
síst í fjölmiðum, hafi í raun haft
stuðning yfirvalda til að fara sínu
fram þó að ríkti bann í landinu við
iðkun íþróttarinnar,“ sagði hún
sem dæmi um hvernig gliðnað
hafi á banni stjórnvalda við hnefa-
leikum og taldi ljóst að erfitt yrði
að koma í veg fyrir að það yrði nú
að lögum. Þá ítrekaði hún að
slysatíðni væri há í hnefaleikum
og að breska læknafélagið og
samtök lækna hafi ítrekað varað
við íþróttinni. Undir það tók
Katrín Fjeldsted, þingmaður
Sjálfstæðisflokks.
Kolbrún Halldórsdóttur, þing-
maður VG, Katrín Fjeldsted, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og Sig-
ríður Jóhannesdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar lögðu fram
breytingatillögu á þá leið að
banna ætti höfuðhögg og að íþrót-
ta- og Ólympíusamband íslands
skuli einnig setja reglur um bann
við höfuðhöggum í sambærileg-
um bardagaíþróttum. Katrín taldi
að samstaða ætti að geta náðst um
breytingatillöguna.
Kosið verður um frumvarpið
og breytingartillöguna á mánu-
daginn kemur. ■
SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR
Sigríður telur slaginn líkast til tapaðan og
bendir á að um skeið hafi áhugamanna-
klúbbar um hnefaleika verið starfræktir
með stuðningi stjórnvalda þrátt fyrir ríkj-
andi bann.
joga
slökun
-- JAFNVÆGI ---------
INNRA SEIVI YTRA
NY Byrjendanámskeið
með Helgu Mogensen .
1: Hádegistímar fc/. 12:15-13:15
2: Síðdegistímar fc/. 17:30-18:30
5 vikna námskeið
haldið þriðjudaga og fimmtudaga
að Dugguvogi 12
Fyrsti tíminn þriðjudaginn 12. l'ebrúar
Rafvéla
verkstæði
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavik
Sími: S77 4500
velaland@velaland.is
Valdaafmæli drottningar fá-
lega tekið af þegnum hennar
Iprófkjör1
Hrannar B. Arnarsson, borgar-
fulltrúi og Pétur Jónsson,
varaborgarfulltrúi hafa einir boð-
ið sig fram í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í
vor, að sögn Katrínar Theodórs-
dóttur, formanns kjörnefndar fé-
lagsins. Frestur til að tilkynna
um þátttöku í prófkjörinu rennur
út á morgun. Meðal fjölda ann-
arra sem hafa verið nefndir sem
líklegir þátttakendur eru sitjandi
borgarfulltrúar og Stefán Jón
Hafstein.
Lítill áhugi er í Bretlandi fyrir 50 ára valdafmæli Elísabetar Englands-
drottningar. Skipuleggjandi hátíðarhalda í tilefni afmælisins sagði af sér
sökum verkefnaskorts. Afstaða fólks til konungsQölskyldunnar hefur
breyst mikið undanfarinn aldarQórðung.
MERKI VÍTISENGLA
Mörgum þykir hauskúpan
í merki Vítisengla heldur ógeðfelld.
Sniglarnir vilja ekki Vít-
isengla innan sinna raða:
Fafner bíður
eftir svari frá
Vítisenglum
BiFHJÓLASAiviTðK Bifhjólaklúbbur-
inn Fafner í Grindavík hefur sótt
um aðild að Vítisenglum en ekki er
komið í ljós hvort af verður.
Brynjólfur Þór Jónsson talsmaður
Fafner segir ekki sjálfgefið að
merki Vítisenglanna verði strax
tekið upp þótt til aðildar komi.
Stjórn Sniglanna hefur tekið þá
ákvörðun að þeir félagar Sniglanna
sem einnig eru félagar í Fafner,
fjórir eða fimm talsins, verði rekn-
ir úr Sniglunum ef þeir setja upp
merki vítisengla. Einnig verður
þeim meinaður aðgangur að sam-
komum sem Sniglarnir standa fyr-
ir að sögn Dagrúnar Jónsdóttur
varaoddvita stjórnar Sniglanna.
„Við höldum áfram að koma því á
framfæri að við viljum ekkert með
þessi samtök vítisengla hafa að
gera,“ segir Dagrún.
„Þetta eru stærstu vélhjólasam-
tök í heiminum og þau eru líka
virt,“ segir Brynjólfur Þór þegar
hann er spurður um ástæðu um-
sóknarinnar. Hann segir það ekki
trufla félaga Fafner að samtökin
séu bendluð við glæpi enda sé
hvergi til dómur í heiminum á Vít-
isenglana sem samtök. „Vítisengl-
ar eru lögleg samtök alls staðar
sem þau starfa."
Um 20 vélahjólaklúbbar munu
starfa á landinu um þessar mundir
og eru Sniglarnir langstærstir með
um 1300 félaga. ■
kóngafólk Síðastliðinn miðviku-
dag voru fimmtíu ár liðin frá því
að Elísabet Englandsdrottning tók
við veldissprotanum í Bucking-
ham höll í Lundúnum. Engin hátíð-
arhöld voru haldin í tilefni afmæl-
isins vegna þess að drottningin
vildi ekki að haldið væri upp á dag-
inn sem George VI konungur og
faðir hennar lét lífið. Þess í stað
mun Buckingham höll standa fyrir
fjölda viðburða í
maí og júnímánuði
til að halda upp á
hið gullna valdaaf-
mæli. Vandamálið
er aftur á móti það
að afar takmarkað-
ur áhugi virðist
vera fyrir afmæl-
inu á meðal al-
mennings í Bret-
landi. Samkvæmt
nýjustu skoðana-
könnunum þar í
landi dáist fólk af drottningunni og
vinnusemi hennar. Hins vegar hef-
ur það ekki áhuga á að halda upp á
afmælið sökum fjarlægðar við
hana.
í breskum fjölmiðlum hefur
mikið verið rætt um að Bucking-
ham höll hafi gríðarlegar áhyggjur
yfir því hve fá bæjarfélög séu far-
in að undirbúa hátíðarhöld vegna
afmælisins. Peter Levene lávarð-
ur, sem ráðinn var af drottning-
unni til að skipuleggja hátíðarhöld-
in, hefur þegar sagt upp störfum
vegna þess hve honum fannst lítið
vera að gera hjá sér.
Fyrir 25 árum síðan þegar hald-
ið var upp á silfurafmæli Elísabet-
ar sem drottningar var andrúms-
loftið allt öðruvísi. Þúsundir bæja
og þorpa í landinu héldu veislur á
götum úti, þar á meðal voru 4 þús-
und slíkar veislur haldnar í
London einni saman. „Ég man árið
1977 þegar haldið var upp á af-
mælið. AUir voru í góðu skapi,
veifandi fánum og borðandi sæt-
indi. Ég get ekki ímyndað mér að
ég eða nokkur annar muni gera
slíkt núna,“ sagði Matthew Savage,
þrítugur Lundúnarbúi í viðtali við
blaðið Herald Tribune. Sýnir þetta
að tímarnir hafa breyst og hefur
afstaða fólks til konungsfjölskyld-
„Allir voru í
góðu skapi,
veifandi fán-
um og borð-
andi sætindi.
Ég get ekki
ímyndað mér
að ég eða
nokkur annar
muni gera
slíkt núna"
'—«—
ELÍSABET
Elísabet Englandsdrottning er ekki eins vinsael og hún var fyrir 25 árum síðan. Hefur hún
verið sökuð um að vera bæði kuldaleg og fjarræn. Var hún mikið gagnrýnd fyrir litil við-
brögð sín opinberlega þegar Díana prinsessa, tengdadóttir hennar, lét lífið á sviplegan
háttárið 1997.
unnar bersýnilega breyst til mik-
illa muna á undanförnum aldar-
fjórðungi. Börn með aðalstign fá
ekki lengur þingsæti í arf og allir
nemendur, hvort sem þeir eru með
blátt blóð í æðum eður ei, þurfa að
taka inntökupróf til að komast inn
í hinn virta Oxford-skóla. „Nánast
allt í ensku samfélagi nú til dags
byggist á verðleikamati einstak-
linga. Fólk spyr sig því, hvers
vegna ættum við að kjósa æðstu
manneskju ríkisins eftir fæðingar-
stöðu hennar?“
í blaðagrein í blaðinu Guardian
spyr blaðamaður sig hvers vegna
Englendingar séu enn að syngja
þjóðsöng þar sem textinn byggist
á því að upphefja drottninguna og
konungsdæmið. „Hvers vegna
ætti einhver að drottna yfir okk-
ur?,“ spyr hann sig. „Hvers vegna
ættum við að vera þegnar ein-
hvers? Það er einfaldlega ekki
lengur við hæfi á 21. öldinni,“
skrifar hann. Margir Englending-
ar eru honum eflaust hjartanlega
sammála. ■
Hrannar Björn er traustsins veröur!
fWW§.
í forystu í umhverfísmálum
Hrannar Björn er þekktur fyrir dugnað og áræðni. Hann hefiir óhræddur reifað hugmyndir um nýjar leiðir í samgöngumálum
á höfðuborgarsvæðinu. Sem forystumaður umhverfismála í Reykjavík hefur hann stuðlað að upplýsingagjöf til borgaranna
um möguleika til umhverfisvænni lifnaðarhátta, vistvænni meðferð sorps, og margvíslegum tilraunum til endurnýtingar.
Stuðningsmenn Hrannars Björns Arnarssonar í prófkjöri
Samfylkingarinnar íyrir framboð Reykjavíkulistans.
—
—
I