Fréttablaðið - 08.02.2002, Page 15
FÖSTUDAGUR 8. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Stórsigur Stoke á Cambridge:
Guðjón ánægður
með strákana
Spænska liðið
Ciudad Real:
Tilboð í Ólaf
handbolti Umboðsmaður Ólafs
Stefánssonar, Wolfgang
Giitschow, segir í viðtali við þýska
íþróttablaðið Sportl að spænska
liðið Ciudad Real vilji tryggja
Ólaf til sín þegar samningur hans
við Magdeburg rennur út á næsta
ári. Spánverjarnir eru tilbúnir að
kaupa Ólaf strax í sumar en ólík-
legt er að hann eða Magdeburg
fallist á það.
Gutschow segir Jose Antonio
Revilla, framkvæmdastjóra Ciu-
dad, hafa rætt við sig á meðan á
Evrópukeppninni stóð í Svíþjóð.
„Þetta er algjört draumatilboð.
Þeim er full alvara,“ segir
Gútschow.
ÓLAFUR STEFÁNSSON
Markakóngur EM og valinn í stjörnuliðið.
Arangurinn skilar sér.
Ciudad er sterkt félag. Það er í
öðru sæti í spænsku deildinni.
Með liðinu leika m.a. Rússarnir
Talant Duschebajew og Sergej
Pogorelow og Danirnir Christian
Hjermind og Ian-Marko Fog. Lið-
ið er einnig að reyna að tryggja
sér Frakkann Bertrand Gille. ■
fótbolti Guðjón Þórðarson var
hæstánægður með frammistöðu
sinna manna á móti Cambridge í
ensku 2. deildinni á miðvikudag-
inn. Stoke City rúllaði yfir liðið.
Lokastaðan var 5-0.
Andy Cooke, Bjarni Guðjóns-
son, Stefán Þórðarson og Marc
Goodfellow skoruðu allir mörk
fyrir Stoke. Fimmta markið var
Adam Tann, liðsmanni
Cambridge, að þakka. Hann skor-
aði sjálfsmark. Bjarni Guðjóns-
son var kosinn maður leiksins af
stuðningsmönnum Stoke. Stefán
Þórðarson kom inn á sem vara-
maður. Pétur Marteinsson einnig.
„Það var mjög nauðsynlegt fyr-
ir íiðið að ná sér á strik aftur,“
sagði Guðjón eftir leikinn. „Það
mikilvægasta varðandi leikinn er
að við spiluðum vel allan tímann, í
níutíu mínútur. Það sem hefur
hrjáð okkur hingað til í tapleikj-
um er að við spilum aðeins hluta
leiksins vel. Svona á að gera
þetta."
Stoke er nú í fjórða sæti 2.
BJARNI GUÐJÓNSSON
Skoraði mark, bjó til tvö önnur og var kos-
inn maður leiksins.
deildar með 54 stig. Það er ekki
langt í næstu lið. Bristol City er í
þriðja sæti með 55 stig, Brighton í
öðru með 58 stig. Reading er í
fyrsta sæti með 62 stig. ■
Þessi fundur markar upphaf kynningarferils Samfylkingarinnar um Evrópumál.
Því lýkur í haust með allsherjaratkvæðagreiðslu allra félagsmanna Samfylkingarinnar
um það hvort flokkurinn setur aðildarumsókn að Evrópusambandinu á stefnuskrá sína
Á næstu mánuðum mun því fara fram viðamikið kynningarferli á kostum og göllum
hugsanlegrar aðildarumsóknar (slands að Evrópusambandinu. Til grundvallar
umræðunnar liggur Evrópuúttekt Samfylkingarinnar sem kom út
í bókinni ísland í Evrópu.
DAGSKRÁ FUNDAR Á AKUREYRI
Framsögu á fundinum á Akureyri 9. febrúar hafa:
Árni Páll Árnason, lögmaður
Utanríkismál, sjálfstæði og fullveldi.
Ingileif Ástvaldsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Dalvíkurbyggð
og Halldór S. Guðmundsson, félagsmálastjóri
Byggðamál og sveitarstjórnir.
Ágúst Ágústsson, formaður Ungra jafnaðarmanna;
Sjávarútvegsmál.
Sérstakir fyrirspyrjendur:
Birgir Guðmundsson, fréttastjóri DV
Inga Þöll Þórgnýsdóttir, lögmaður
Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor við Háskólann á Akureyri
Almennar fyrirspurnir fundargesta
Fundarstjóri:
Svanfríður Jónasdóttir, alþingismaður
*Bókin ísland í Evrópu verður til sölu á fundunum. Bókina er einnig
hægt að nálgast í bókabúðum og á skrifstofu Samfylkingarinnar.
Samfylkingin
www.samfylking.is
' * V
i
t
. 990 m2
Slofuleppi írá Kr. 750 m
HanfliaufettáM-2-5®
saienti m/se,u
M. 12.900
» IIOIU. J3WIII „ Filíarnnn,„. „.
14 fivá liV 1 090 m 14 mm frá kr- 2"° ni
piastparket ira M. tw
Opnum nýja verslun að
Skútuvogi 6 i byrjun mars.
MJm
I)
Knarrarvogi 4 • s: 568 6755 • www.alfaborg.is