Fréttablaðið - 08.02.2002, Síða 18

Fréttablaðið - 08.02.2002, Síða 18
18 FRÉTTABLAÐIÐ 8. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR HVADA BÓK ERTU AD LESA? Beitiskipið Potemkin: múm frumflytur nýja kvikmyndatónlist Bækur um sænska skáldkonu Ég er að lesa margar bækur um eina persónu. Einar fjórar fimm ævisögur sænsku skáldkon- unnar Victoriu Benedictsson. Ég er nefnilega að skrifa leikrit um ævi hennar. Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur tónleikar Kvikmyndasafn íslands stendur fyrir kvikmyndatónleik- um í Bæjarbíói, Hafnarfirði í kvöld klukkan 20. Tónleikarnir eru hluti af verkefninu „Ný tónlist - gaml- ar myndir" þar sem íslenskt tón- listarfólk semur og flytur nýja tónlist við þögla kvikmynd að eigin vali. í þetta sinn mun hljómsveitin múm flytja frum- samda tónlist sína við rússneska meistaraverkið Beitiskipið Potemkin (1925) eftir Sergei Eisenstein. Mikið hefur verið skrifað og rætt um Potemkin og mörg atriði úr myndinni eru fyr- ir löngu orðin að ógleymanleg- um minnisvörðum kvikmynda- sögunnar. Kvikmyndin þótti svo mögnuð á sínum tíma að hún var bönnuð í mörgum löndum (þ.á.m. heimalandi sínu) vegna ótta stjórnvalda um að hún myndi hvetja almenning til blóð- ugra uppreisna. Lítið hefur farið fyrir múm síðan þau luku upptökum á nýrri breiðskífu síðasta sumar enda er helmingur hljómsveitarinnar bú- settur í Berlín um þessar mundir og koma því hingað til lands sérstak- lega til að leika á þessum kvikmyndatónleikum. Liðsmenn sveitarinnar eru þöglir sem gröfin um tónlist sína við myndina en af fyrri verkum þeirra að dæma má búast við einstakri upplifun. Miðaverð á sýninguna er 1.000 krónur og fer for- sala fram í 12 Tónum. ■ HLJÓMSVEITIN MÚM Liðsmenn sveitarinnar eru þögl- ir sem gröfin um tónlist sína við myndina Beitiskipið Potemkin. 1 METSÖLUBÆKURNAR | METSÖLULISTl YFIR BARNABÆKUR Q Þórarinn Eldjárn þýddi MOLDVARPAN SEM VILDI VITA HVER SKEIT Á HAUSINN Á HENNI J.K.Rowling a POTTER OC FANCINN FRÁ AZKABAN fí) J.K.Rowling HARRY POTTER OC LEYNIKLEFINN O Nigel Nelson SKODAÐU LÍKAMA ÞINN 0 Diane Redmond BUBBI BYGCIR -AFMÆU Astrid Lindgren LÍNA HELDUR AFMÆLI Ql Setberg ÉG ÆTLA AD LÆRA NÝ ORD rfl Teletubbies STUBBABRAUÐ-TURNINN yl Astrid Lindgren RONJA RÆNINGJADÓTTIR Vilbergur Júlíusson íslenskaði W SNÚÐUR SKIPTIR UM HLUTVERK F Ö STUDAGURINN 8. FEBRÚAR FUNDUR____________________________ 13.00 Vinnueftirlitið gengst fyrir mál- þingi um kulnun í starfi í dag í Norræna húsinu. Aðalfyrirlesari er Wilmar Schaufeli, prófessor í félags- og skipulagssálfræði við háskólann í Utrecht í Hollandi. TÓNLIST___________________________ 20.00 Kvikmyndasafn fslands stendur fyrir kvikmyndatónleikum i Bæjar- bíói, Kafnarfirði í kvöld. Tónleik- arnir eru hluti af verkefninu "Ný tónlist - gamlar myndir" múm flytur frumsamda tónlist sína við rússneska meistaraverkið Beiti- skipið Potemkin (1925) eftir Sergei Eisenstein. 21.00 Jóhanna Jónas leikkona, Margrét Eir söngkona og Guðmundur Pétursson gítarleikari, flytja á Kaffileikhúsinu kvöld blús og gospel tónlist ásamt leikni efni eft- ir Langston Huges og Mayu Ang- elou. Miðaverð er 1.200 krónur. 21.00 Páll Rósinkranz heldur söng- skemmtun á skemmtistaðnum Nasa I kvöld. Tilkynningar sendist á netfangið ritstjorn@frettabiadid.is Backgamon mót Verður haldið laugardaginn 9. febrúar kl 1 3:00 á Grandrokk Smiöjustíg 6 Skráning í síma 551 5522 og á staðnum Þáttökugjald 1000 kr Útsala - Flísar - Útsölulok Dagana 30. janúar til 2. febrúar verður 15-50% afsláttur á öllum vörum á lager Mílanó-Flísaverslun Teygja sig eins langt í ræturnar og hægt er Margrét Eir, Jóhanna Jónas og Guðmundur Pétursson flytja söng- og leikjadagskrá í Kaffileikhúsinu í kvöld. Ætlunin er að magna upp sanna Harlem stemmingu. SVÖRT MELÓDÍA Margrét Eir, söngkona, Jóhanna Jónas, leikkona og Guðmundur Pétursson, gítarleikari, ætla að sjá til þess að landinn sleppi fram af sér beislinu kvöld. Sýningin hefst klukkan 21 og er miðarverð 1.200 krónur. SÖNG- OC LEIKDAGSKRÁ „VÍð erUIH tvær hvítar konur og ætlum ekki að fara maka framan í okkur svartan lit til að komast nær kjarnanum. Við reynum frekar að gera það á tilfinningasviðinu, fara eins langt og svertingjarnir og aldrei að vita nema eitt og eitt Halelúja fylgi með í hita leiks- ins,“ segir Margrét Eir, söng- kona en hún ásamt Jóhönnu Jónas, leikkonu, ætla að flytja söng- og leikdagskrá í Kaffileik- húsinu í kvöld. Yfirskriftin er „A Toast To Harlem" - Svört meló- día og samstendur dagskráin af blús og gospel tónlist ásamt leiknu efni eftir Langston Huges og Mayu Angelou. Efnisskráin er eins konar óður til hinnar svörtu amerísku menningar þar sem lífsgleðin og treginn mynda frá- bæran samhljóm. Margrét Eir segir hugmynd- ina hafa komið frá Jóhönnu sem þegar hafi verið búin að finna til ljóð og texta. „Hún vildi fara með þetta lengra og blanda þessu tónlist. Hafði hún því sam- band við mig og í sameiningu ákváðum við að leggja af stað með þetta ferli, hlusta á tónlist og finna þetta upprunalega svar- ta bragð." Margét Eir segist hafa sótt lög í Muddy Waters, blúsgít- arleikara, Big Mama Thornton, Ettu James auk gospellaga. Guð- mundur Pétursson sér um tón- listarflutninginn um kvöldið og segir Margrét Eir engan annan hafa komið til greina þegar finna átti gítarleikara. „Hann er snill- ingur og hefur gífurlega mikla tilfinningu fyrir blús.“ Þess má geta að Margrét Eir, Jóhanna og Guðmundur störfuðu öll saman í söngleiknum Hárinu sem settur var upp í Gamla bíói fyrir nokkrum árum. Margrét segir Jóhönnu flytja efni eftir Langston Huges og Maya Angelou. Bæði séu þau einna fremst í flokki svartra amerískra rithöfunda. „Langston Huges var uppi á sama tíma og Martin Luther King. Ljóð hans einkennast af boðskapnum að hvítir og svartir lifi saman í sátt og samlyndi. Það kemur einmitt fram í texta ljóðsins „A Toast To Harlem" sem Jóhanna ætlar að flytja. Bæði er hann kómískur og með alvarlegan undirtón." Jóhanna Jónas og Margrét Eir eru báðar menntaðar í Banda- ríkjunum þar sem þær kynnt- umst og hrifust af þessari menn- ingu. Margrét Eir segir að í kvöld verði mögnuð upp sönn Harlem stemming þar sem ríkir bæði gleði og grátur. „Við ætlum að teygja okkur eins langt niður í ræturnar og hægt er.“ kolbrun@frettabladid.is Ármúla 17a - Sími: 511 1660 Misstu ekki af vandaðri fermingarmyndatöku í vor. Gerðu verðsamanburð. Ljósmyndastofan Mynd sími 565 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 30 20 Í Þjóðarbókhlaðan: Sýning á verkum eftir Gerlu mynplist Sýning á verkum eftir Gerlu verður opnuð í dag í Þjóðar- bókhlöðunni í sýningaröðinni Fell- ingar. Fellingar hóf göngu sína í júní á síðasta ári og er sýning Gerlu sú áttunda í röðinni. Fell- ingar er samstarfsverkefni Kvennasögusafnsins, Landsbóka- safns íslands - I-Iáskólabókasafns og þrettán starfandi myndlistar- kvenna. Gerla stundaöi nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands árin 1971-75 í myndmenntakennardeild og textíldeild. Á árunum 1976- 1980 var hún við framhaldsnám í Amsterdam við Gerrit Rietveld Academie með listrænan textíl sem aðalnámsgrein en leikmynda- og búningahönnun sem aukanáms- greinar. Gerla hefur haldið nokkr- ar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga myndlistar- manna. Gerla hefur ekki haldið sig við eitt listform. Hún hefur verið með gjörninga, innsetningar, unn- ið textílverk og er höfundur leik- mynda og búninga um það bil þrjá- tíu leikverka á sviði og í sjónvarpi. Árið 1991 vann Gerla ásamt Erlu Þórarinsdóttur 1. verðlaun í sam- keppni um textílvegg í Ráðhúsi Reykjavíkur. Gerla hefur einnig unnið til verðlauna fyrir hönnun úr íslensku hráefni. Gerla hefur alla tíð unnið að jafnréttisbaráttu kvenna á lista- sviðinu sem og annarsstaðar og var meðal annars framkvæmda- stjóri Listahátíðar kvenna sem haldin var 1985. Þar áttu verk eða fluttu hátt á fjórða hundrað konur. Gerla átti einnig hugmyndina að þeirri hátíð. ■ EITT VERKA GERLU Listakonurnar sem taká þátt í þessari sýn- ingarröð afhenda Kvenncsögusafninu gögn um listferil sinn. Með því vilja þær hvetja konur til að safna gögnum um eigin sögu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.