Fréttablaðið - 22.02.2002, Page 6
f
SPURNING DAGSINS
Er nóg að áminna forstöðu-
mann Þjóðmenningarhúss?
Nei, það á að reka hann.
Jósef Cunnlaugsson er grafískur hönnuður.
Mannanafnanefnd
Samþykkir
Bæron, hafn-
ar Vincent
úrskurður Mannanafnanefnd sam-
þykkti tíu nöfn og hafnaði þremur
á síðasta fundi sínum. Kvenmanns-
nafninu Bjarkar var hafnað þar
sem það hefur verið skráð sem
karlmannsnafn. Þá var rithættin-
um Sævarr hafnað og karlmanns-
nafninu Vincent þar sem ritháttur
þess er ekki samkvæmt íslenskri
hefð.
Nokkur nafnanna sem voru
samþykkt eru íslenskur ritháttur
erlendra nafna. Það eru nöfn eins
og Bæron, Nansý og Bríanna.
Karlmannsnöfnin Goðmundur og
Gneisti fengu náð fyrir augum
mannanafnanefndar. Sömu sögu
var að segja um kvenmannsnöfnin
Ingimaría, og Geira.
Þá voru millinöfnin Bíldsfells,
Laufland og Hafnfjörð samþykkt. ■
UNGLINGAR
Góðar fyrirmyndir eru ungling-
um afar hollar, samkvæmt
rannsókn sem birt var í tímariti
bandarísku læknasamtakanna um
heilsufar barna og unglinga. Þar
kom fram að þeir unglingar sem
áttu sér fyrirmyndir höfðu meira
sjálfstraust en aðrir. Þeir fengu
hærri einnig einkunnir í skóla.
Þetta átti sérstaklega við ef ung-
lingurinn þekkti manneskjuna.
Einnig kom fram að drengir, sem
bjuggu fjarri föður sínum, áttu það
síður til að ofnota vímuefni, ættu
þeir góða fyrirmynd.
DÓMSMÁL
Dómur í máli dagföðurins, sem
ákærður er fyrir að hrist níu
mánaða barn svo harkalega að það
beið bana verður kveðinn upp í síð-
asta lagi mánudaginn ellefta mars.
Samkvæmt lögum um meðferð op-
inberra mála skal kveða upp dóm,
eigi síðar en þremur vikum eftir
dómtöku máls en málið var dóm-
tekið síðastliðinn mánudag.
FRETTABLAÐIÐ
22. febrúar 2002 FÖSTUDACUR
Afkoma Skýrr:
Lína.Net kostnaðarsöm
uppciör Skýrr tapaði 128 milljón-
um króna á árinu 2001, en hafði
skilað hagnaði síðustu fjögur
árin á undan. Tapið er verulega
meira en greiningardeildir bank-
anna gerðu ráð fyrir eftir níu
mánaða uppgjör félagsins.
Landsbankinn bjóst t.a.m. aðeins
við 18 milljóna króna tapi. Meg-
inástæða misræmisins er 102
milljóna niðurfærsla hlutabréfa-
eignar félagsins í Línu.Neti, en
þar á Skýrr 6,4% hlutafjár.
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, staðfesti þetta við blaðið.
Skýrr hafði áður skráð eign sína
HREINN
JAKOBSSON
Leitast við að
sýna hluta-
bréfaeign fyr-
irtækisins
sem næst
áætluðu
markaðsvirði
bréfanna.
þar á genginu sex, en eftir hluta-
fjáraukningu Línu.Nets á geng-
inu þremur í desember sl. var
það fært niður til samræmis.
Á síðasta ári niðurfærði Skýrr
einnig eign sína í Columbus IT
Partner og deCODE en það
skýrði að stórum hlut tap í níu
mánaða uppgjöri. Hreinn segir
að stefna Skýrr sé að uppgjörs-
tölur endurspegli markaðssveifl-
ur á hlutabréfaeign þess.
Rekstrartekjur Skýrr jukust
um 15% frá fyrra ári, en þar
kemur sala á eignum nokkuð við
sögu. Gert er ráð fyrir að velta
verði um tveir milljarðar króna á
yfirstandandi ári og hagnaður
um 75 milljónir. ■
Kópavogur:
Skipulag á
nektardans
sveitarstjórnir Fulltrúar minnihlut-
ans í Kópavogi leggja til að skorður
verði settar við rekstri nætur-
klúbba í bænum. í aðalskipulagi
verði bannað að veita leyfi til rekst-
urs næturklúbba á skipulagssvæð-
inu nema tiltekið sé í deiliskipulagi
að starfsemi þeirra sé heimil.
„Með næturklúbbi er átt við veit-
ingastað með reglubundna
skemmtistarfsemi þar sem aðalá-
hersla er lögð á áfengisveitingar og
nektardans í atvinnuskyni," segja
Sigrún Jónsdóttir og Flosi Eiríkis-
son. Málinu var vísað til skipulags-
nefndar. ■
Lífeyrisréttindi hafa
ekki verið skert
Lífeyrissjóðir landsmanna hafa sýnt lélega ávöxtun undanfarin tvö ár. Margir hafa verið með
neikvæða ávöxtun. Eign lífeyrissjóða og framtíðarskuldbindingar skulu haldast í hendur sam-
kvæmt lögum. Ekki hefur enn komið til skerðingar á lífeyrisréttindum.
lífeyriskerfið Hlutabréf hafa
lækkað mikið í verði undanfarin
tvö ár og skýrir að hluta lélega
ávöxtun lífeyrissjóða. Lögum um
fjárfestingar lífeyrissjóða var ný-
...A... lega breytt þannig,
að 50 prósent af
fjárfestingum
þeirra má vera í
hlutabréfum.
Þetta hlutfall var
35 prósent áður.
Spurning er hvort
stjórnendum hafi
verið gefinn of
laus taumur varð-
andi fjárfestingar
í hlutabréfum.
Stefán Hall-
dórsson, fram-
kvæmdastjóri Líf-
eyrissjóðs verk-
fræðinga, segir
Ef eign lífeyr-
issjóða rýrnar
eða eykst
meira en
nemur 10
prósent af
framtíðar-
skuldbinding-
um skal rétt-
indum sjóðs-
félaga breytt
til hækkunar
eða lækkunar
eftir því sem
við á.
vissulega samhengi á milli fjár-
festinga í hlutabréfum og lélegra
ávöxtunar lífeyrissjóða á undan-
förnum tveimur árum. „En það er
ekki sönnun þess að lífeyrissjóðir
eigi ekki að fjárfesta í hlutabréf-
um.“ Stefán segir undanfarin tvö
ár sýna mesta lækkun á hlutabréf-
um um langt skeið. „Ef horft er til
lengri tíma hafa hlutabréf skilað
mun betri ávöxtun en skulda-
bréf.“ Þess vegna verða menn að
horfa yfir lengri tíma en tvö ár.
Enginn lífeyrissjóður þurfti að
skerða lífeyrisréttindi sjóðsfélaga
vegna lélegrar ávöxtunar undan-
farin tvö ár. Stjórnendur lífeyris-
sjóða segja eignastöðu sjóðanna
það góða að hægt sé að mæta
EKKI HAFA ALLIR SJÓÐIR SKILAD UPPGIÖRI FYRIR ÁRIÐ 2001 EN PÁ SKILUÐU MARGIR NEIKVÆÐRI ÁVÖXTUN ANNAÐ ÁRID i RÖD.
Ltfeyrissjóður verslunarmanna 1,1%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 1,5%
Llfeyrissjóðurinn Framsýn -0,6%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn -0,9%
Llfeyrissjóður sjómanna -0,5%
Lífeyrissjóður Norðurlands -2,5%
Söfnunarsjóður llfeyrisréttinda 1,5%
Lffeyrissjóður bankamanna -2,7%
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn 0,2%
Samvinnulífeyrissjóðurinn 1,9%
HRAFNISTA í REYKJAVÍK
Ef ávöxtun llfeyrissjóða verður áfram nei-
kvæð getur komið til skerðingar á lífeyris-
réttindum sjóðsfélaga. Margir sjóðir eru
komnir að neðri mörkum sem miðað er
við þegar eignir eru skoðaðar I hlutfalli við
framtiðarskuldbindingar.
skuldbindingum þrátt fyrir tvö
mögur ár. Ef neikvæð ávöxtun
nær yfir lengri tíma, t.d. árið í ár,
gæti þurft að koma til skérðingar
á réttindum. Einstaka sjóðir eru
komnir að þeim mörkum.
„Lág ávöxtun undanfarin tvö
ár hefur ekki haft nein áhrif á líf-
eyrisgreiðslurnar," segir Jóhann-
es Siggeirsson, framkvæmda-
stjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Hann segir lífeyrissjóðinn hafi
sýnt góða ávöxtun árið 1999 og
greiðslur hafi verið hækkaðar um
7 prósent um mitt ár 2000. „Við
hefðum getað hækkað greiðslur
meira en vildum eiga umframeign
til að mæta mögru árunum," segir
Jóhannes. „Það er enginn að tala
um það að skerða lífeyrinn."
Arni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjó-
manna, segir sjóðinn ekki nýta til
fulls þessa heimild, að fjárfesta til
helminga í hlutabréfum. Því hafði
breytt löggjöf ekki áhrif á fjár-
fcJH'íOHDL.T
K11.L AC ðOCftl CIQN
MIÐSTRÆTI 12. 101 RVK.SlMI 533 • 3444
0PIÐ HUS Nýbýlavegur 66, Kópavogi
LAUGARDAG 0G SUNNUDAG FRÁ KL: 3 TIL 5
Mjög góð efri sérhæð, sem er 125 fm ásamt 30,3fm bílskúr. Sér inngangur og mikið út-
sýni.Rúmgóðar stofur, útsýni yfir Öskjuhlíð og Fossvog. eldhús, stórt hjónaherbergi, tvö
barnaherbergi, annað þeirra var tvö, auðvelt að breyta aftur. Baðherbergi með dúk á gólfi.
Þvottahús, þar innaf er geymsla. Bílskúrinn er snyrtilegur og rúmgóður. Húsið þarfnast
múrviðgerða að utan og stendur til að byrja á því næsta sumar. ***
MÖGULEG SKIPTI Á 2JA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á STÓR - REYKJAVIKURSVÆÐINU
Bandaríska varnarmálaráðuneytið í baráttu um „sálir manna“:
Óákveðið hvort dreifa skuli
röngum upplýsingum
washington. AP Donald Rums-
feld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði ráðuneytið
ekki hafa í hyggju að dreifa lyg-
um með fjölmiðlum. Hins vegar
gæti það gripið til „hagnýtra
blekkinga" í því skyni að rugla
andstæðing í ríminu þegar
stríðsátök eiga sér stað.
Undanfarna daga hafa verið á
kreiki hugmyndir innan varnar-
málai’áðuneytisins um að hrinda
af stað mikilli áróðursherferð í
erlendum fjölmiðlum til þess að
bæta álit umheimsins á Banda-
ríkjunum. Meðal annars megi
dreifa misvísandi og jafnvel
röngum fréttum. Þessar hug-
myndir hafa verið umdeildar,
AÐSTOÐARVARNAR-
MÁLARÁÐHERRANN
Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að i Afganistan
og stríðinu gegn hryðjuverkum væru
Bandaríkin að „berjast um sálir manna".
h
z...
festingastefnu sjóðsins. Hann
fagnaði þó að þessar reglur voru
rýmkaðar.
Ef ávöxtunin verði jákvæð seg-
ir Árni að ekki komi til skerðingar
á lífeyrisréttindum. Trygginga-
fræðileg staða sjóðanna sé reikn-
uð á hverju ári og við það miðist
greiðslur. Neikvæð ávöxtun tvö ár
í röð kemur fram í lakari trygg-
ingafræðilegri stöðu en ella. „Það
eru ekki margir sjóðir komnir að
neðri mörkum sem segja að sjóðir
verði að eiga fyrir 90 prósent af
sínum skuldbindingum,“ segir
Árni.
bjorgvin@frettabladid.is
bæði innan ráðuneytisins og
utan. Ekki síst hafa menn talið
vafasamar þær hugmyndir að
ráðuneytið dreifi röngum upp-
lýsingum til fjölmiðla. Þær hug-
myndir hafa ekki verið sam-
þykktar í í’áðuneytinu, en eru
meðal þess sem verið er að ræða
þar í fullri alvöru.
„Embættismenn stjórnarinn-
ar, varnarmálaráðuneytið, þessi
ráðherra og fólkið sem starfar
með mér segja bandarísku þjóð-
inni og fólki um heim allan sann-
leikann," sagði Rumsfeld á fundi
í Salt Lake City á miðvikudag.
Var þetta svar hans við gacnrýni
á hugmyndirnar, sem hafa verið
á kreiki í í’áðuneytinu. ■
H
I