Fréttablaðið - 22.02.2002, Page 16
16
FRETTABLAÐIÐ
:om iGÍnds) .SS HUOAaUTZO:?
22. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
HASKOLABIO
HAGATOROI • SÍHJ 530 1919 • 5T/ERSTA 5fNIMGARTIALD LAHDSINS
Sýnd kl. 10 [duets kL 11 j
jVANILLA SKY kt. 9.30 j [regIna kl. s|
jGEMSAR kl 9j ÍAMELIE kL 9.15 [
jMONSTER m/ísl tali kL 5 { [ÉLLING kLsl
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 Vit Mi
Sýndkl. 5.30, 8 og 10.30 “W'
|MflDE
_________________ ____ Ki. 3.50, 5.55 og 8 m/ens.tal vit jm
kL 6, 8 og 10.10 | [¥Sgj Kl. 3.50 og 5.55 m/fsl. tal vnrsss
UEIDolby /DDýTOx~ slMI 564 0000 - www.smarabio.is
jVANILLA SKY ki 8 og 10.30 j jiSj Iregína kL 3.45 | ®
|HEARTS IN ATL... kl. 8 og 10.201[?h| jATLANnS m/isLtali
jOCEAN S ELEVEN kl. 10.!0l[SlS jHARRYPOITERm/IsLtali "Tul®
U2 PROJECT
Hafa verið iðnir við að æfa og segjast
reyna að taka lögin í svipuðum útgáfum
og U2 gera á tónleikum.
Tónleikar í Islensku
Operunni:
Rjóminn
afU2
tónleikar írska hljómsveitin U2
hefur ekki enn komist í tölu íslands-
vina þó svo að Bono hafi látið sjá sig
hér í 30 ára afmæli Bjarkar Guð-
mundsdóttur. Til þess að bæta upp
fyrir þann tónleikamissi ætlar hóp-
ur er kallar sig U2 project að reyna
sitt til að skapa þá upplifun að sjá
sveitina spila á tvennum tónleikum í
íslensku óperunni í kvöld.
„Þetta er nokkra ára gamalt
verkefni," segir Birgir Nielsen
trommuleikari Lands & Sona en
hann gengur í hlutverk Larry Mul-
lens Jr. í kvöld. „Við höfum troðið
upp 1 - 2 á ári, okkur til gamans. Við
ákváðum að gera meira úr þessu
núna og fara með þetta í stærra
hús.“
Með honum í hinni íslensku U2
eru þeir Gunnar Eggertsson gítar-
leikari (Land & Synir), Friðrik
Sturluson bassaleikari (Sálin) og
Rúnar Friðriksson söngvari
(Sixties).
„Við ætlum að vera með alla þá
„róbota“ sem hægt er að leigja á
klakanum. Það skemmir nú ekki
fyrir þegar maður er að flytja þessa
tónlist. Svo erum við með bíótjald
þar sem varpað verður upp myn-
defni sem Samúel Bjarki vánn.“
Að sögn Birgis verða tekin 20 lög
eða „rjóminn" af bestu lögum U2.
„Þar má nefna lög eins og „With or
without you“, „Sunday1 Bloody
Sunday", „I Will Follów", „Pride“ og
þessa stærstu smelli. Við tökum
fimm lög af nýju plötunni. þ.á.m.
„Elevation", „Stuck in a moment“
og „Beautiful Day“.“
Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 20
en þeir seinni þremur tímum síðar.
Miðaverð er 2300 kr. og er forsala
aðgöngu miða í 12 Tónum. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kylie Minogue vann tvenn verðlaun á Brit
tónlistarverðlaunahátíóinni, sem haldin var
í Earls Court i : ondon á miðvikudagskvöld.
Hún var valirv besta alþjóðlega söngkonan
með besta myndbandið. Ðido fékk verð-
laun sem söngkona og fyrir plötuna No
Angel. Travis var kosiri besta breska hljóm-
popí
Söngvarinn Elton John skaut á
tónlistariðnaðinn í viðtali við
BBC á dögunum. Hann sagði að
plötufyrirtækin
væru of mikið að
hugsa um skyndi-
gróða og því væri
allt of mikið af
tónlist á vinsæld-
arlistunum sem
hljómaði eins.
Hann nefndi Brit-
ney Spears,
Backstreet Boys, S Club 7 og
Steps í þessu samhengi. Hann
sagðist ekki endilega vera að
setja út á tónlist þeirra, en líkti
henni þó við morgunkorn.
Þau misstök urðu í frétt um
Quarashi í gær að kynningar-
myndin um sveitina var rang-
feðruð. Það voru ekki þeir Árni
Sveinsson og Gaukur Ulfarsson
sem gérðu myndina, heldur
Gaukur og Árni Þór Jónsson sem
leikstýrðu. Báðir eru þeir auglýs-
ingaleikstjórara hjá Saga Film
sem vann myndina. Kynningar-
þáttinn er hægt að sjá á
www.nulleinn.is.
Leikarinn David Duchovny hef-
ur samþykkt að koma fram í
lokaþáetti síðustu X-Files serí-
unnar. Mikil
leynd hefur verið
yfir þáttaröðinni
en framleiðendur
þeirra lofa að
svara loksins eitt-
hvað af þeim
spurningum sem
komið hafa upp í
þáttunum í gegn-
um árin. Duchovny hafði gefist
upp á því að leika Mulder og var
persóna hans því numinn af brott
af geimverum í þáttunum. Síðasti
þátturinn verður um tveggja
stunda langur.
Peter Jackson, leikstjóri
Hringadróttinssögu, segist
vorkenna leikstjóranuin ástr-
alska Baz Luhrman fyrir að hafa
ekki fengið Óskarsverðlaunatil-
nefningu. Sjálfur er hann til-
nefndur. Honum finnst það afar
ósanngjarnt að leikstjórinn skyl-
di vera sniðgenginn þar sem
hann viti vel hversu mikla vinnu
hann lagði í mynd sína Moulin
Rouge.
GOSFORD PARK
Myndin þykir vera ein sú besta úr smiðju Robert Altmans og hefur hann þegar fengið nokkur verðlaun fyrir leikstjórn sína. Þar á
meðal Golden Globe verðlaunin, nú síðast.
Er brytinn morðinginn?
Te klukkan íjögur, kvöldverður klukkan átta, morð á miðnætti.
Laugarásbíó frumsýnir í dag nýjustu mynd leikstjórans Robert Alt-
mans, „Gosford Park“, sem tilnefnd er til sjö Oskarsverðlauna.
kvikmyndir Hinn 77 ára gamli
leikstjóri Robert Altman er á
meðal þeirra fimm sem keppa
um leikstjórna verðlaunin á Osk-
arsverðlaunahátíðinni í ár. Þetta
er í fimmta sinn sem hann er til-
nefndur en hingað til hefur hann
farið tómhentur heim.
Stílbragð hans er afar sér-
stakt sem gerir það að verkum
að afar auðvelt er að sjá hvenær
hann er á ferð. Myndir hans eru
yfirleitt hlaðnar þekktum leikur-
um en engin þeirra fær meira
pláss en annar. Hann er þekktur
fyrir hæfni sína að setja upp
langar senur þar sem myndavél-
in er látin rúlla mínútum saman
án þess að klippt sé á milli at-
riða. í myndum hans flækjast
oftast saman nokkrir söguþræð-
ir sem samtvinnast oftar en ekki
í sögulok. Þekktustu myndir
hans hingað til hafa verið „Short
Cuts“, „The Player", „Nas-
hville", „Pret-a-porter“ og
„Mash“.
Nýjasta mynd hans „Gosford
Park“ er gerð í Bretlandi, en það
er í fyrsta sinn mynd leikstjór-
ans gerist þar. Myndin er
spaugileg morðgáta í anda Agöt-
hu Christie og gerist á óðalsetri í
breskri sveit árið 1932. Spilltur
milljónamæringur og eiginkona
hans bjóða hópi einstaklinga í
veislu á óðalsetri sínu. Þetta er
litríkur hópur og ólíkur innbyrð-
is. í honum eru m.a. fyrrum
stríðshetja, þekktur leikari og
bandarískur kvikmyndagerða-
maður. Á meðan boðsgestirnir
safnast saman í fínni herbergj-
um óðalsins á efri hæðunum
sveima einkaþjónar hjónanna á
milli tveggja veralda hefðar-
fólksins og starfsfólksins á neðri
hæðinni sem stritar fyrir þæg-
indi vinnuveitanda sinna. En
ekki er allt sem sýnis á yfirborð-
inu, hvorki á meðal gestanna á
efri hæðinni né starfsfólksins á
þeirri neðri. Niðurbæld leyndar-
mál fortíðarinnar brjótast svo
all harkalega upp á yfirborðið og
milljónarmæringurinn finnst
myrtur. Ljóst er að morðinginn
er í húsinu og flestir virðast hafa
ástæðu að vilja hann feigan.
Myndin fær sjö tilnefningar
til Óskarsverðlaunanna í ár.
Myndin er tilnefnd í flokkunum
„besta myndin“, „besta leik-
stjórn", „besta handrit", „besta
búningahönnun" og „listræna út-
færslu“. Leikkonurnar Maggie
Smith og Helen Mirren eru svo
báðar tilnefndar í sem „bestu
leikkonur í aukahlutverki".
Margir veðja á að Altman fari
ekki tómhentur heim í þetta
skiptið og spá honum margir
leikstjórnaverðlaununum þetta
árið.
í dag eru einni frumsýndar
myndirnar „Behind enemy
lines“ með Gene Hackntan,
„Made“ úr smiðju þeirra sem
gerðu hina stórfínu „Swingers"
og spennutryllirinn „The Count
of Monte Cristo" með hinum
magnaða Guy Pierce úr „Mem-
ento“ í aðalhlutverki.
biggi@frettabladid.is
Segir það þér ekkert að
það ER ENGINN ostur
í herberginu? / „ , .. m
Hva., eg er tiniml- |
( ún. Ég er einn c"