Fréttablaðið - 04.03.2002, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.03.2002, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN MIKILVÆGUR meirihluti kjósenda á Vísi.is lætur sig það varða hver fer með ráðuneyti menntamála. Skiptir það þig máli hver verður næsti menntamála ráðherra? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is lá Nei Spurning dagsins í dag: Ertu ánægð(ur) með viðbrögð stjórn- valda við spillingamálunum undanfarið? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun I __________________finfftl Sigríður Anna Þórðard.: Vísbending um niður- stöðu í vor könnun Sigríður Anna Þórðardótt- ir, þingflokksformaður Sjálfstæð- isflokksins, segir athyglisvert að sjá hve staða Sjálfstæðisflokksins er sterk samkvæmt skoðanakönn- un Fréttablaðsins. „Ég tel að nið- urstaðan á höfuðborgarsvæðinu, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn kemur gífurlega sterkur út, gefi vísbendingu um hvernig sveitar- stjórnarkosningarnar gætu komið út á höfuðborgarsvæðinu." Sigríður Anna segir þó að taka verði niðurstöðunum með varúð, vegna þess hve margir eru óá- kveðnir. Hún segir einnig athygl- isvert að stuðningur við Vinsti'i grænna er minni en áður. „Það má spyrja sig hvort að það er stefna þeirra í virkjunarmálum sem er að koma í bakið á þeim.“ ■ —»— Sverrír Hermannsson: Sérlega ánægður könnun Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, kvaðst hæstánægður með fylgið í könnun Fréttablaðsins. „Þetta er afbragð, Gallup hefur haldið sig við 3 prósent frá örófi alda en við alltaf verið haerri annar staðar," sagði hann. „Ég er sérstaklega ánægður með niðurstöðuna í höfðuborginni því þar höfum við yfirleitt verið á lægri nótum en á landsbyggðinni. Nú snýst það við og vænti ég þess að það sé vegna þess að við undirbúum hér fram- boð,“ sagði hann. ■ —♦— Halldór Asgrímsson: Kemur að öllu leyti á óvart könnun „Ég geri nú fyrirvara við þessa könnun," segir Halldór Ás- grímsson, formaður Framsóknar- flokksins. „Ég þykist nú kunna eitthvað fyrir mér í tölfræði og ég tel úrtakið of smátt til að vera marktækt. Mér finnst við fá lága tölu út úr þessu. Það veldur mér vonbrigðum. Ég bíð eftir næstu Gallupkönnun sem ég held að verði fróðlegt að sjá.“ Gallup birti könnun í gærkvöl- di þar sem framsókn fær einu prósenti meira en í þessari kön- nun Fréttablaðsins. Halldór vildi ekkert um það segja hvað það væri sem yrði fróðlegt í þeirri könnun. „Þeir gera mánaðarlegar kannanir sem ég tek mark á. Hvað varðar þessa könnun ykkar, þá get ég sagt að hún kemur að öllu leyti á óvart.“ ■ 2 4. mars 2002 MÁNUDAGUR 'Tómas Ingi Olrich, nýr menntamálaráðherra: „Tek við góðu búi“ stjórnmál Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, er nýr menntamálaráðherra þjóðar- innar. Hann tók við embættinu um helgina af Birni Bjarnasyni. Sem kunnugt er leiðir Björn lista sjálf- stæðismanna í borgarstjórnar- kosningunum í vor. Ákvörðunin um eftirmann Björns var tekin, að fenginni tillögu Davíðs Oddsson- ar, formanns flokksins, á þing- flokksfundi Sjálfstæðisflokksins sl. föstudag. Ráðherraskiptin fóru fram á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á laugardagsmorgun. Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti fslands, veit- ti Birni lausn frá embætti og skip- aði Tómas Inga ráðherra í hans stað. „Ég tek við góðu búi í erfiðu ráðuneyti," sagði Tómas Ingi skömmu eftir að kunngjört var að hann tæki við af Birni Bjarnasyni. Hann sagði að tíminn myndi leiða í ljós hvort áherslubreytinga væri að vænta í ráðuneytinu. Davíð Oddson, forsætisráð- herra, sagði að val næsta mennta- málaráðherra hafa verið erfitt, enda margir komið til greina. Til- laga hans hlaut einróma samþykki í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. ■ RÍKISRÁÐSFUNDUR Á BESSASTÖÐUM Tómas Ingi Olrich er 28. ráðherrann til að sitja í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar trá árinu 1991. Hann var settur í embætti á Bessastöðum á laugardagsmorgun. FRAMSÓKNAR- FLOKKUR 18,4% 13,1% SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS FYLCI f SÍÐUSTU KOSNINCUM i FYLGI NÚ mig SAMFYLKINGIN VINSTRI GRÆNIR 9,1% 15,6% Sjálfstæðismenn vinna á en Framsókn tapar Framsókn stór flokkur úti á landi en smáflokkur í bæjarkjördæmunum. Frjálslyndir halda sínum tveimur þingmönnum. Samfylkingin næst stærsti flokkurinn en missir þrjá þingmenn. könnun Sjálfstæðisflokkurinn myndi bæta við sig þremur þing- mönnum ef gengið yrði til þing- kosninga nú og Samfylkingin tapa þremur. Vinstri grænir myndu vinna fjóra þingmenn en Framsókn tapa fjórum. Frjálslyndir myndu halda sínum tveimur þingmönnum. Þetta er niðurstaða skoðanakönn- unar Fréttablaðsins sem gerð var í gær. Sjálfstæðisflokkurinn fær í könnuninni 43,9 prósent fylgi þeir- ra sem tóku afstöðu. Flokkurinn fékk 40,7 prósent fylgi í kosningun- um fyrir þremur árum. Þessi niður- staða gæfi flokknum 29 þingmenn, þremur fleiri en í dag. Sjálfstæðis- menn hafa 34,0 prósent fylgi í landsbyggðarkjördæmunum en 52,0 prósent í kjördæmunum á höf- uðborgarsvæðinu. Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni. Hún fékk 22,2 prósent fylgi en fékk 26,8 prósent í síðustu kosningum. Þessi niðurstaða myndi fella þrjá af 17 þingmönnum Samfylkingar. Það vekur athygli að Samfylkingin er með nákvæmlega sama fylgi í landsbyggðarkjördæmunum og höfuðborgarsvæðinu. Vinstri grænir eru þriðji stærsti flokkurinn með 15,6 prósent fylgi. Samtökin fengu 9,1 prósent í síð- ustu kosningum. Þingmönnum vis- ntri grænna myndi því fjölga um fjóra; úr 6 í 10. Vinstri grænir eru með 18,1 prósent fylgi i lands- byggðarkjördæmunum en með 15,6 prósent í kjördæmunum á höfuð- borgarsvæðinu. Framsóknarflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn með 13,1 pró- sent fylgi. Hann fékk 18,4 prósent í síðustu kosningum. Þá fékk hann 12 þingmenn en nú fengi hann ekki nema átta. Þriðji hver framsóknar- maður félli því að þingi. Framsókn nýtur 22,2 prósent fylgis í lands- Urtakið í könnuninni var valið úr símaskrá. 600 manns voru spurðir og skiptust þeir jafnt á milli karla og kvenna. Helmingur þátttakenda var úr kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu og helmingur úr landsbyggðarkjördæmunum þremur; Suð- ur-, Norð-austur- og Vesturlandskjördæm- um. Spurningin var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef þingkosningar færu fram nú? byggðarkjördæmunum en aðeins 7,8 prósent í kjördæmunum á höf- uðborgarsvæðinu. Frjálslyndir standa í stað frá kosningum. Þeir höfðu 4,2 prósent fylgi og tvo þingmenn. Nú fá þeir 4,4 prósent fylgi og 2 menn. 30,2 prósent þeirra sem voru spurðir sögðust vera óákveðnir hvað þeir myndu kjósa. Óákveðnir voru mun fleiri á höfuðborgar- svæðinu. 5,7 prósent sögðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu og 10,7 prósent neituðu að svara spurning- unni. Alls voru það 60 prósent sem nefndu einhvern flokk. Þar af sögð- ust 3 vilja kjósa einhvern annan flokk en ofantalda. ■ Steingrímur J. Sigfússon: Lægri tala en sést hefur lengi könnun „Auðvitað vill maður helst vera sem hæstur, en það er nú einu sinni þannig að það sem farið hefur mjög hátt upp getur sigið aðeins aftur. Við höfum svo sem aldrei haft tryggingu fyrir því að við fengjum endalaust þessar háu tölur. Samt hef ég nú ennþá þá tilfinningunni að fylgi okkar sé nokkuð stöðugt í kring- um 18-20 prósentin," sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar, græns framboðs. Hann sagðist myndu vilja sjá fleiri kannanir áður en hann færi að hafa áhyggjur af fylgistapi. ■ Össur Skarphéðinsson: Hæg en jöfn uppleið könnun „Ég er eftir atvikum ánægður með þessa könnun," seg- ir Össur Skarphéðinsson, formað- ur Samfylkingarinnar. „Samfylk- ingin er á hægri en jafnri uppleið. Við höfum verið í málefnalegri sókn. Hin pólitíska umræða hefur að töluverðu leyti snúist um hug- myndir úr okkar smiðju. Við höf- um orðið vör við að gæfuhjólið hefur frekar snúist með okkur. Það er ljóst að við þurfum að spýta í lófana til að ná því kjör- fylgi sem við höfðum. Það munum við gera. Það er ánægjuefni að gjörningahríðin af hendi Baugs- veldisins virðist ekki hafa of mik- il áhrif á gengi flokksins." ■ Forstjóri Olís um játningu Olíufélagsins: Sumt hefur lifað lengi samráð „Það er alveg ljóst, að þegar að lögin tóku gildi, mátti gera athugasemdir við eitt og annað. Sumt hefur verið lagað. Annað hefur lifað lengur en æski- legt væri,“ segir Einar Benedikts- son, forstjóri Olís, um viðbröð Olís við þeirri yfirlýsingu Olíufé- lagsins hf. að óska samstarfs við Samkeppnisstofnun þar sem ým- islegt í rekstri félagsins virðist í andstöðu við samkeppnislög. Hann segir að félögin hefðu starf- að saman í þröngu umhverfi í um 75 ár. Samkeppnislög séu ekki nema sjö ára gömul. Einar segist fagna því að í viðræðum Olíufé- lagsins hf. við Samkeppnisstofn- un undanfarna daga, hafi komið fram að stofnunin hafi vilja til að leysa þessi mál. „Olís mun að sjálfsögðu veita allar þær upp- lýsingar sem Samkeppnis- stofnun kann að biðja um. Félag- ið er fúst til samstarfs um að upplýsa öll þau mál sem upp einar hafa komið benediksson varðandi meint Olis mun veita allar samráð olíufé- Samkeppnisstofnun l#nna,“ segir fer fram á. Einar. Með sam- starfi við Samkeppnisstofnun væntir Olíufélagið allt að helm- ings lækkunar þeirra sekta sem félaginu yrði annars gert að greiða. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.